Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1998, Síða 27
JL^'V’ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998
imm
35
' -w k
Trimmhópur Fjölnis í Grafarvogi:
Skokkarar landsins
þekkja það af eigin reynslu
að ólikt skemmtilegra er
að hlaupa 1 hópi en einn.
Víða á landinu hafa mynd-
ast fjölmennir skokkhópar
sem æfa reglulega. í sum-
um eru nokkrir hlauparar
en stærsti hópur landsins
er sennilega hópur Fjölnis
í Grafarvogi (Grafarvogs-
hópurinn). Þar æfa rúmir
sex tugir manna reglulega
tvisvar í viku. Drifkraftur
og æfmgaþjálfari Grafar-
vogshópsins er Erla Gunn-
arsdóttir, íþróttakennari í
Hamraskóla.
„Upphaf skokkhópsins
Fjölnis í Grafarvogi má
rekja fimm ár aftur í tím-
ann. Nokkur hópur fólks,
aðallega samkennarar
mínir og nokkrar fóstrur
af leikskólanum, hafði
samband við mig árið 1992
og bað mig að koma af stað
skokkhópi. Þeir vissu af
þvi að ég var íþróttakenn-
ari hérna í Hamraskóla.
Mér fannst hugmynd
þeirra hið besta mál og
hafði reyndar fyrirmyndir
til að fara eftir, eins og til
dæmis skokkhópinn á Sel-
tjarnarnesi," sagði Erla.
Hjónin Páll ólafsson og Guörún Björk Eggertsdóttir leyföu heimilishundinum Rúdolf
aö taka þátt í æfingunni síöastiiöinn mánudag.
Fyrirmynd
„Ég fékk upplýsingar hjá
Margréti Jónsdóttur
iþróttakennara um hvern-
ig standa ætti að þessu
verkefhi en Margrét byrj-
aði með hlaupahópinn í
Seltjarnarnesi. Ég setti upp
auglýsingu í Hamraskólan-
um og þannig byrjaði þetta
allt saman. Byrjunin var
prýðileg, á þriðja tug
manna kom strax og
ákveðið var að æfa tvisvar
í viku, síðdegis á mánudög-
um og miðvikudögum.
Ég passaði mig á því að
rukka engan fyrir þátttök-
una og tók ekki niður nein
nöfn. Mitt hlutverk var
fyrst og fremst að sjá um upphitun
með tónlist, skipuleggja hlaupið og
gæta þess að allir teygi vel á eftir og
taki styrktaræfmgar. Hlauparamir
hafa fengið aðstöðu innan veggja
Hamraskólans til þess. Ég hef alltaf
hlaupið með hópnum og verið virk-
ur þátttakandi.
Við byrjuðum á þvi að ganga og
hlaupa á víxl en eðli málsins sam-
kvæmt voru þátttakendur í mis-
jöfnu formi. Sumir skokkaranna
voru með íþróttalegan bakgrunn og
margir höfðu jafnvel verið að
skokka einsamlir. Fólk sem hefur
stundað aðrar íþróttagreinar áður
er yfirleitt mjög fljótt að ná sér í
gott form. Flestir hlauparanna í
hópnum eru á aldrinum 35-45 ára
en elsti þátttakandinn er kona á sex-
tugsaldri sem er í mjög góðu formi.“
Kynntust við æfingar
„Munstrið hefur verið þannig að
konurnar hafa komið fyrst inn í
skokkhópinn en síðan koma eigin-
mennimir. Það er mjög mikið um
hjónafólk í Grafarvogshópnum. Við
höfum reyndar eitt dæmi um karl
og konu, Ingibjörgu Kjartansdóttur
og Aðalstein Snorrason, sem kynnt-
DV-myndir Hilmar
ust við æfingar hjá hópnum. Þau
eru nú hamingjusamlega gift og
eiga von á bami. Skokkarar í hópn-
um eru mjög duglegir að taka þátt í
víðavangshlaupum landsins. Þá
mæta heilu fjölskyldurnar og börn-
in hlaupa með. Það er mikill fjöl-
skylduandi ríkjandi i hópnum.
Vegna þess hve skokkaramir eru
í misjöfnu formi er ekki hægt að
láta aila hlaupa sömu vegalengdirn-
ar. Allur hópurinn byrjar að jafhaði
saman við upphitun en síðan em
skipulagðar misjafnlega langar
hlaupaleiðir, yfirleitt misstórir
hringir sem yfirleitt tekur um 30-40
mínútur að hlaupa. Ég hef reynt að
stíla þannig inn á leiðirnar að
skokkaramir klára yfirleitt allir á
svipuðum tíma svo að hægt sé að
teygja saman í lokin. Við erum svo
heppin í Grafarvoginum að göngu-
stígakerfið er mjög gott og aðgengi-
legt fyrir skokkara og einnig með
góða tengingu við Elliðaárdalinn og
inn í Laugardalinn."
Þessi mynd var tekin í sumar viö Mývatn en hlauparar úr trimmhópi Fjölnis
í Grafarvogi fengu mörg verölaun. Frá vinstri eru Kristján E. Ágústsson,
sem var í fljótustu sveitinni, Erla Gunnarsdóttir, sem var fyrst í kvennafiokki
í hálfmaraþoni, og Inga Björk Guömundsdóttir, sem var fyrst kvenna í 3 km,
en foreldrar hennar æfa bæöi meö trimmhópi Fjölnis.
Byrjendaæfingar
„Ég útbjó æfingaáætlun fyrir
byrjendur til að fara eftir sem
reynst hefur vel til að koma þeim í
form. Markmiðið, sem byrjendum
er sett, er að ná því að hlaupa við-
stöðulaust i 20 mínútur að lokinni
11 vikna þjálfun. I fyrstu vikunni
eru byrjendur látnir hlaupa í 30 sek-
úndur í einu og ganga þess á milli í
90 sekúndur, 10 sinnum alls, þrisvar
í viku. Síðan eru hlaupin smám
saman lengd og aukin og dregið úr
göngunni og á elleftu vikunni er í
fyrsta sinn hlaupið stanslaust í 20
mínútur. Þetta hefur
mælst vel fyrir og reynst
byrjendum vel til að ná
sér í form.
Að fá svona áætlun í
hendumar er mjög gott
fyrir byrjendur, það vilja
flestir vera sjálfstæðir og
ekki láta leiða sig í öllu
sem þeir ætla að gera. Ég
hef einnig útbúið ráð-
leggingar fyrir byrjendur
sem gott er að hafa í
huga við æfingar. Þar
eru tekin fyrir mikilvæg
atriði, eins og til dæmis
nauðsyn þess að hafa
stöðugleika í æfingum og
láta þær ekki verða
óreglulegar. Einnig eru
tekin fyrir önnur mikil-
væg atriði, eins og skó-
búnaður, þolinmæði,
mikilvægi hvíldar, menn
varaðir við of miklu
álagi og einnig hvattir til
að setja sér eitthvert tak-
mark. Ég bætti við þrek-
hring fyrir þá sem eru í
góðu formi og leigði
íþróttasal skólans til
þess. Það er mjög góð
mæting í þann þrek-
hring, 30-40 manns mæta
þar reglulega í viku
hverri, allan veturinn.
Þeir sem mættu í þrek-
hringinn fóru allir strax
að bæta sig mjög mikið í
hlaupunum þó að það sé
í sjálfu sér ekkert mark-
mið. Aðalatriðið er fyrst
og fremst að vera í góðu
formi.
Starf mitt var til að
byrja með sjálfboðaliða-
starf en þegar ég var
búin að sinna þessu í 3-4
ár fór borgin að styrkja þetta starf.
Ég er nú starfsmaður hjá Fjörgyn og
fæ laun fyrir minn hlut. Það eru
samt engin ósköp, ég fæ borgað fyr-
ir tvo tíma á viku. Ég er samt ekk-
ert að velta mér upp úr því og hef
mikla ánægju af þessu starfi. Ég hef
verið afskaplega heppin með fólk,
það hefur verið svo jákvætt og lífs-
glatt og gaman að vinna með því,“
sagði Erla.
Sleppa aldrei æfingum
„Æfingarnar hafa þróast út í að
þessi stóri kjarni, sem mætir á æf-
ingar, vill helst ekki sleppa úr einu
einasta skipti. Mætingin er þétt og
góð og þegar best lætur eru yfir
fimm tugir manns á æfingum. Það
er góð þátttaka miðað við að rúm-
lega 60 manns æfa reglulega með
Grafarvogshópnum.
Skokkaramir í Grafarvogshópn-
Umsjón
ísak Öm Sjguiösson
um halda mjög vel saman og félags-
lífið er í miklum blóma.
Þróunin hefur verið sú að hópur-
inn hittist og borðar saman eftir
Reykjavíkurmaraþon. Það er venja
hjá okkur einu sinni á ári að hlaupa
frá Grafarvoginum upp í Mosfells-
bæ þar sem farið er í sund og síðan
borðað á veitingastaðnum Ásláki.
Við emm með árshátið i mars, á
haustin hlaupum við upp í sumar-
bústað, sem heitir Lynghóll, inni á
Mosfellsheiði, og grillum þar sam-
an. Við forum alltaf í Bláskóga-
hlaupið, tjöldum þar og gistum eina
nótt,“ sagði Erla.
Um og yfir 6 tugir manna skokka reglulega meö trimmhópi Fjölnis í Grafar-
vogi.
c.pÉ^OPP4p
~ M * Barnafataverslun ■ Mg
uIlarafnM 1 n r'rafan,nni
Hverafold 1-3, Grafarvogi.
á0°/° „
UTSALA "
3oar byrjar 3.janúar ^o°l°
Opnunartímar:
Alla virka daga
10-18.30,
laugard.10-16.
Sími/fax 567 6511
r
A
r