Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1998, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1998, Side 29
 LAUGARDAGUR 3. JANUAR 1998 fslandsmeistari ungmenna í hestaíþróttum ríður í skrúðgöngu: •%nglingar „ *★★ - segir Skúli Steinn Vilbergsson, þrettán ára DV.Suðumesjum: „Eg er búinn að velja hest 1 gönguna. í það þarf vel tamið og tauga- sterkt hross, eiginleikar sem íslenski hesturinn hefur upp til hópa. Ég er að undirbúa merina fyrir ferðina og m.a. temja hana svo hún verði ekki hrædd við flugelda. í göngunni sjáifri ber að varast þá sem eru með skotelda og kínverja," sagði Skúli Steinn Vilbergs- son, 13 ára Keflvíking- ur, en hann er í Hesta- mannafélaginu Mána sem mun taka þátt í áifabrennu og flugelda- sýningu sem haldin verður við Iðavelli í Reykjanesbæ þriðjudag- inn 6. janúar. Skrúðgangan mun ieggja af stað frá Tjam- argötuhorni kl. 20 og verður gengið norður Kirkjuveg og upp Aöal- götu undir forystu álfa- konungs og drottningar. Búist er við miklu fjöl- menni bæjarbúa. Hlakka til Æm ':u* áliJÍl ^ m . iáSBKívÁ' v . Si' if ''wem/ ■r W- 4 Skúli Steinn verður á merinni Dögun og íklæddur skikkju í göngunni. „Ég hlakka mikið til, hef tekið þátt í slíkri göngu 4-5 sinnum áður og þetta er alltaf jafngaman,“ segir Skúli Steinn. Þrátt fyrir ungan ald- ur varð Skúli Steinn í fyrsta sinn ís- landsmeistari í ungmennaflokki í Skúli Steinn í góöum félagskap meö Dögun, hryssunni sem hann veröur á í skrúögöngunni á þrettándanum. DV-myndir Ægir Már gæðingaskeiði sem fram fór á Vind- heimamelum í Skagafirði i júlí í fyrra. Þeir sem tóku þátt voru ungl- ingar alveg upp í 18 ára aldur og því sigurinn enn sætari fyrir Skúla Stein sem stóð sig frábærlega vel í mótinu og er hér greinilega á ferð- inni mikið efni í hestaíþróttinni. „Þessi sigur kom mér skemmti- lega á óvart og það er mjög góð til- finning að vera íslandsmeistari. Ég varð mjög glaður,“ sagði Skúli Steinn. A gamlársdag efndi Reykjanesbær til mikillar hátíðar í Flug- hótelinu í Keflavík þar sem íþróttabandalag Reykjanesbæjar heiðraði íslandsmeistara bæjarins með gullpeningi. Skúli Steinn fékk einn slíkan en hann var tilnefndur fyrir Mána í kjöri íþróttamanns Reykjanes- bæjar. Skúli Steinn byrj- aði í hestamennskunni með foreldrum sínum og byrjaði að sitja hest áður en hann fór að ganga. 4-5 daga í viku Skúli Steinn er í 8. bekk í Holtaskóla í Kefla- vík. Hann er fæddur og uppalinn Keflvíkingur. „Þegar ég er búinn að læra fer ég út í hesthús og er þar 4-5 daga i viku. Það er alveg meiri háttar skemmtilegt að vera í kringum hestana og þar líður mér vel. Ég æfl einnig knattspymu í 4. flokki með Keflavík og þar stefni ég einnig hátt. Þetta fer vel saman.“ Foreldrar Skúla Steins em Guðlaug Skúladóttir og Vilberg Skúlason. Skúli Steinn er yngstur þriggja systkina sinna. Fjölskyldan á hesthús i Mánagrund og um 20 hross. Skúli Steinn á eitt folald sem heitir Þór. „í framtíðinni stefni ég á að halda íslandsmeistaratitlinum mínum og bæta fleiri titlum í safn- ið mitt,“ sagði Skúli Steinn. -ÆMK hin hliðin Jóna Fanney Svavarsdóttir, só sem söng með Kristjáni: Ætlar út í söngnám Jóna Fanney Svavarsdóttir stóö sig vel í Halfgrímskirkju á dögunum. „Eg hef verið í söngnámi síðan ég var sextán ára, lauk 8. stigi frá Söng- skólanum i Reykjavík sl. vor og er í framhaldsdeildinni eins og er. Krist- ján fékk þessa hugmynd seint og um síðir. Hann langaði að fá einhveija fallega englarödd til þess að syngja yfirrödd í þessu lagi og ákvað að prófa frænku sína. Honum fannst það skemmtilegt og ég held að þetta hafi bara komið ágætlega út,“ segir Jóna Fanney Svavarsdóttir, stúlkan sem birtist á tónleikum Kristjáns Jó- hannssonar í Hallgrímskirkju og söng þar yfirrödd í Heims um ból. Jóna Fanney segist stefna á fram- haldsnám í söng á Ítalíu eða í Aust- uiTÍki, jafnvel strax næsta haust. Hún sýnir á sér hina hliðina að þessu sinni. Fullt nafn: Jóna Fanney Svavars- dóttir. Fæðingardagur og ár: 1. sept. 1974. Maki: Nýr kærasti er Gunnar Ás- geirsson. Börn: Engin. Bifreið: Glæsileg Mazda 323 1986. Starf: Syng með skólanum og verö síðan meö Leikfélagi Akureyrar í Söngvaseið sem frumsýndur verður í mars. Laun: Lifi af því sem ég er að gera. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Nei, spila lika sjaldan. Hvað flnnst þér skemmtilegast að gera? Komast heim í sveitasæl- una. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Ég þoli ekki uppvaskið. Uppáhaldsmatur: Pylsur og pasta. Uppáhaldsdrykkur: Mjólk er best. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Kristinn Björnsson skíðamaður hefur staðið sig vel. Uppáhaldstímarit: Ég les bara eitt tímarit. Kaupi einstaka sinnum Séð og heyrt. Hver er fallegasti maður sem þú , hefur séð (fyrir utan maka)? Val Kilmer í Willow. Ertu hlynntur eða andvígur rík- isstjórninni? Mér er nokk sama um pólitík. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Pavarotti. Uppáhaldsleikari: Árni Tryggva- son er alltaf góður. Uppáhaldsleikkona: Ég held ég verði að sleppa þessari. Uppáhaldssöngvari: Joan Suther- land og Billy Holliday. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Páll Pétursson. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Grettir. Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég horfi lítiö á sjónvarp. Leiðarljós er það eina sem ég horfi á. U ppáhaldsmatsölustaður/veit- ingahús: Ítalía er mjög góður staður. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Ég les lítið og er ekki spennt fyrir neinni sérstakri um þessar mundir. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Rás 2. Uppáhaldsútvarpsmaður: Gestur Einar Jónasson. Hverja sjónvarpsstöðina horfir þú mest á? Ríkissjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ég verð að segja Svanhildur Konráðs- dóttir. Hún er frænka mín. Uppáhaldsskemmtistaður/krá: Kofi Tómasar frænda. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ev- erton í gegnum súrt og sætt. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Já, verða betri á alla vegu, sem söngkona og manneskja. Hemig eyðirðu jólafríinu? Með tærnar upp í loft heima í sveitinni (Húnavatnssýslu) hjá pabba og mömmu. Ég fæ gott frí og læt mér líða vel. -sv *• *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.