Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1998, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1998, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR. 5 JANÚAR 1998 Fréttir Hvalhræ fundust á Búlandsnesi: Kýrin reyndist tarfur DV, Djúpavogi: Á gamlársdag fundust reknir tveir hvalir milli Kálks og Sandeyj- ar, sem er á miklu sandflæmi úti á Búlandsnesi viö Djúpavog. Minni hvalurinn er um tveir og hálfur metri á lengd og er líklega um Höfr- ung að ræða en hann er mjög illa Hér má sjá hræ gáshnallsins í fjörunni. Hvalrekinn vakti mikla athygli heimamanna sem margir lögðu leið sína til að berja hræið augum. DV-mynd Hafdís farinn og hefur sennilega legið í nokkurn tíma í fjörunni. Stærri hvalurinn, sem er 6,78 metrar á lengd og 360 í ummál, er Gáshnallur sem tilheyrir ætt svín- hvela. Er hér mn merk- an reka að ræða en Gás- hnallar hafa einungis fundist tvisvar hér við land, árið 1979 og 1981, í bæði skiptin dauðir, reknir á Öræfafjörur. Margir notuðu góða veðrið til að skoða þessa merku skepnu sem glöggir heimamenn voru búnir að greina. Sigurður Ægisson, prestur á Grenjaðar- stað, sem gaf út bókina „íslenskir hvalir fyrr og nú“, mikill áhugamaður um hvali, lagði leið sína hingað austur til að líta gripinn augum. í fram- haldi af því lagði hann blessun sína yfír grein- ingu heimamanna. Var talið að um kvendýr væri að ræða en kennt um miklu myrkri er sú greining fór fram. Menn frá Náttúrufræðistofn- un héldu til Reykjavík- ur með hausinn og reð- urinn af kúnni sem reyndist tarfur. | s Hý" Tölvu- og kerfisfræðinámið er tveggja ára nám. Kennt er tvö kvöld í viku frá kl. 18:00-21:30 og laugardaga frá kl. 8:30-12:00. Námið er að fullu lánshæft. 5 •H ■H so "on' s,atf> BC 2 I ötí 1« Stöðumat p— Forritun J 1 Kerfisfrœ6M _ Umsjón og rekstur tölvuneta u Vefsíðusljórnun I— Lokaverkel'ni l l I— Lokaverkefni Nýsköpun ' i I tölvuiðnaði i r Lokaverkefni m Lokaverkefr RAFIÐNAÐARSKOLINN Skeifan 11 b - Sími 568 5010 X» 90 VI 3C s c 111V1A32I8 fllllA c 111 VlAlHfl fllllA c 111 VlAlflfl I111IA c 111 VlAaflfl fllllA -HB Talsmaöur Steinvíkur: Ömurleg áramót hjá okkur „Þetta hafa verið ömurleg ára- mót hjá okkur. Við hörmum mjög það sem gerðist á gamlárskvöld," segir Magnús Guðgeirsson, tals- maður Steinvíkur sem flutti inn kínversku Bengal-blysin. Blys þessi ollu sem kunnugt er flestum slysum á gamlárskvöld. Svo virðist sem raki hafi komist að blysunum í innflutningi. Flutt voru inn 9.300 Bengal-blys um þessi áramót og af þeim fóru rúmlega 6 þúsund á markað. Bengal-blys hafa verið á markaði hér á landi í 6 ár en þetta er í fyrsta skipti sem Steinvík flytur inn flugelda. „Við sáum að raki hafði kom- ist að vörunni við innflutning. Aðili sem hefur flutt þessa flug- elda inn ráðlagði okkur að nóg væri að láta blysin þorna. Við tókum nokkur þúsund flugelda úr gámnum þegar ljóst var að raki hafði komist að þeim. Það eru komnar þrjár kærur á okkur vegna þessara atburða og það er mjög eðlilegt. Gámurinn með flugeldunum og blysunum í var tryggður hjá Lloyds-tryggingafé- laginu. Ég vO þó láta það koma fram að það urðu Qeiri slys á gamlárskvöld þar sem aðrir Qug- eldar og blys en frá okkur komu við sögu. Það er þó ljóst að ef fólk hefði farið eftir leiðbeiningum, sem fylgdu fjölskyldupökkunum, þá hefðu ekki orðið slys á fólki. í hverjum fjölskyldupakka var leiðbeiningabæklingur um notk- un skotelda. Þar stendur í sam- bandi við blysin að þau skuli að- eins notast utandyra, beina þeim frá likamanum og nota ullar- eða leðurhanska þegar haldið er á blysum. Ef fólk hefði notað hanska þá hefði það komið í veg fyrir slysin," segir Magnús. -RR sandkorn Ekki bæjarfulltrúi Heldur varð DV á í messsunni við úttekt á afrekaskrá ein- staklinga á síðasta ári. Þar var Kolbrúnu Sverrisdóttur kennt um að meirihluti bæjarstjórnar ísafjarðarbæjar sprakk með látum í tvígang á síðasta áratug. Hið rétta er að Kolbrún Halldórsdóttir hefur setið í tveimur bæjar- stjórnum sem lotið hafa sömu örlögum klofn- ings og óein- ingar. Nafna hennar Sverris- dóttir er reyndar þekkt sem baráttukona fyrir því að upplýst verði hvers vegna skelbáturinn Æsa fórst i blíðuveðri og með skipinu eiginmaður hennar og faðir. Hugur hennar mun ekki standa til þess að verða bæjarfulltrúi heldur mun hún vera áhugasamari um þingmennsku þó ekki væri nema til að velgja Halldóri Blöndal samgönguráðherra undir uggum en ráðherrann þykir hafa klúðrað rannsókn Æsumálsins... Samstarf Margir töldu sig sjá fyrir far- gjaldahækkun í innanlandsQug- inu, sem nú er að koma á dag- inn, ekki sist þeir sem sáu þá keppinautana Pál Halldórsson, for- stjóra Flugfélags íslands, og Ómar Benediktsson, forstjóra íslands- Qugs, saman í hádegismat á veitingahúsinu Þremur frökk- um í Þingholt- unum í nóvemb- ermánuði sl. Á þeim fundi hafi þeir vafalaust rætt vandamál samkeppninnar, framtíðarsam- starf og kannski líka hækkunina sem nú er að koma á daginn eins og DV sagði frá í byrjun desember... Ástrali á suðurpólnum Þingmaðurinn Ólafur Öm Haraldsson vann það fræki- lega afrek að ganga á suður- pólinn með syni sínum, Har-aldi Emi, og Ingþóri Bjarnasyni. Afrekið vakti athygli alþjóð- legra sjón- varpsstöðva. Eitthvað skolaðist þó til í þýðingum á fréttaskeytum af afrekinu. Þannig hélt ein þeirra því fram í gær að þremenningamir væru frá Ástralíu. Samkvæmt því hefur Ólafur Öm Haraldsson náð þeim merka áfanga aö verða fyrsti Ástralinn sem gengur á suðurskautið... Pólitísk ólga Þegar Bogi Ágústsson fór í leyfi úr stöðu fréttastjóra Sjón- varpsins var Helgi H. Jónsson ráðinn að kröfu Framsóknar- Qokksins. Sviptingar urðu um ráðninguna og meira að segja fulltrúar Kvenna- listans tóku Helga fram yflr eígið kyn. Sjálf- stæðismenn urðu hins veg- ar ævareiðir og hafa allt á homum sér fréttastjórn Helga sem þeir segja að dragi ótæpUega taum Reykja- víkurlistans. Þannig var Helgi varla kominn í starfið þegar full- trúar þeirra í Útvarpsráði vom famir að kvarta undan honum...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.