Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1998, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1998, Page 19
MÁNUDAGUR 5. JANÚAR 1998 Samkomulag um 56K staðal Loksins, loksins, segja sennilega margir. Þessi barátta er búin að standa yfír í marga mánuði en nú hafa framleiðendur loksins komist að samkomu- lagi. Rétt fyrir jólin var samið um hvaða staðal eigi að nota fyrir 56K mótöld. Þannig er meiri hraði á Netinu loksins í augsýn fyrir marga. Það eru tvö fyrirtæki, Rockwell International og 3Com Corp., sem hafa búið hvort til sinn staðal fyrir 56K mótöld. Þau hafa deilt sín á milli síðan í febrúar um hvorn staðalinn eigi að nota. Þeir framleiðend- ur sem hafa boðið 56K mótöld, sem og netþjón- ustur, hafa þurft að velja annan hvom stað- alinn og netþjónustur. Þeir notendur sem hafa viljað tengjast Netinu með þessum mótöldum hafa fyrst þurft að athuga hvort netþjónustan sem þeir tengja sig við notar sama staðal. Nú hefur semsé samist um einn staðal og hafa framleiðendur mótaldanna lof- að að nýju mótöldin verði komin á markað í vor. Málamiðlun Það var úrskurður hjá alþjóðlega fjarskiptaráðinu (http://www.itu. ch) sem hjó á hnútinn. Þar stóð að fyrirtækin ættu að semja sín á milli um málamiðlunarstaðal sem bæði gætu sætt sig við. Mótaldaframleið- endur hafa hins vegar tapað vera- lega á þessari deilu því á meðan hraðvirkari mótöld koma ekki á markaðinn lækka þau sem fyrir eru í verði. Enda hefur verðhrun verið á 33,6K mótöldum upp á síðkastið. Nú þarf notandinn hins vegar engar áhyggjur að hafa af stöðlum. Hann getur labbað í næstu búð, keypt mótald og tengst Netinu án vand- ræða. Þeir sem eiga nú 56K mótöld munu heldur ekki eiga i neinum vandræðum með að tengjast hvaða netþjónustu sem er. Sérfræðingar spá þvi að neytend- ur muni taka fljótt við sér eftir að þessi nýju mótöld eru komin á markað. Um mitt ár verða níu af hverjum tíu mótöldum sem inn- byggð verða í PC- tölvur 56K sam- kvæmt spám þeirra. Hvað með kapalmótöld? Þó að enn séu nokkrir mánuðir í að þessi mótöld komi á markað eru menn þegar farnir að huga að því hvað eigi að koma næst. Næst verð- ur reynt að kanna hvernig hægt verði að bæta gagnaflutninga, þá sérstaklega frá notandanum út á Netið. Ef hægt verður að bæta slíka flutninga verður þess ekki langt að bíða að Netið verði notað í símtöl, fax, skjáráðstefnu og annað sem krefst mikils hraða í gagnaflutning- um. Ekki má heldur gleyma kapal- mótöldunum sem kapalsjónvarps- fyrirtæki og mótaldaframleiðendur standa að. Þar fer gagnaflutningur- inn fram í gegnum sömu línur og kapalsjónvarp notar. Þar er hrað- inn margfalt meiri en þegar 56K mótöld eru notuð. Hins vegar er mikill kostnaður því samfara að uppfæra kaplana þannig að þeir geti flutt þessi gögn. Þvi verða ein- hver ár í að þessi tækni komi fram á sjónarsviðið að mati sumra sér- fræðinga. Aðrir eru reyndar ekki á sama máli. Þeir segja að verið sé að vinna hörðum höndum að því að hafa kap- almótöldin á viðráðanlegu verði. Líklegt sé að þau verði komin á markað árið 1999. -HI/Reuter 23 ■ Svæðameðferðog létt rafmagnsnudd ásamt acupunchturmeðferð með lacer Sérhæfing við bólgu í herðum, baki og höf- uðverk. ELSA HALL ^ p Langholtsvegi 160, sfmi 568-7702. •7/////////y/#////////// m %■ staðgreiöslu- og greiðslu- kortaafsláttur og stighœkkandi birtingarafsláttur Smóauglýsingar I 5505000 FYRIR ÞA SEM VILJA NA LENGRA GUNNAR BERNHARD EHF. VATNAGARÐAR 24 SÍMI: 520 1100 FYRST KEM EG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.