Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1998, Blaðsíða 2
2
MIÐVTKUDAGUR 7. JANÚAR 1998
Fréttir
Dýrasta folald landsins í Eyjafjarðarsveit:
Hver hlutur seldur a
hálfa milljón króna
Matthías Eiösson meö folaldiö Óskar Hrafn I hesthúsinu aö Möörufelli. DV-mynd gk
DV, Akureyri:
í hesthúsinu að Möörufelli í Eyja-
flarðarsveit er móálótt hestfolald frá
síðasta vori sem er vafalaust dýrasta
folald landsins. Folaldið er undan Ósk
frá Brún, sem er landskunn verð-
launahryssa, og hinum fræga Hrafni
frá Holtsmúla og eitt af síðustu folöld-
um þessa fræga gæðings sem var
felldur sl. vor og síðan stoppaður upp.
Folaldið ber nöfii beggja foreldra
sinna og heitir Óskar Hrafn.
Matthías Eiðsson, bóndi á Möðru-
felli, er eigandi hryssunnar Óskar,
sem er 17 vetra, og segir að það hafi
oröið að samkomulagi milli sín og
Hinriks Bragasonar hestamanns að
þeir ættu folaldið til helminga ef tæk-
ist að halda Ósk undir Hrafh. Síðan
var tekin ákvörðun um að selja 8
hluti í folaldinu á hálfa milljón króna
hvem. „Ég veit ekki betur en allir
hlutimir séu seldir og undirtektir
vom svo góðar að hlutfrnir hafa án
efa selst fyrir að minnsta kosti hálfa
milljón króna hver,“ segir Matthías.
Folaldið Óskar Hrafh er því a.m.k.
fimm milljóna króna virði í dag.
Matthías segir að mjög miklar von-
ir séu bundnar við að Óskar Hrafh
verði mikill og góður stóðhestur.
„Hann er óvenjustór, þegar orðinn 127
cm á herðar aðeins 8 mánaða gamall,
og langstærstur allra folalda hjá mér.
Þá er hann ákaflega geðgóður og meö-
færilegur og ber á allan hátt með sér
að vera mikið gæðingsefiii," segir
Matthías.
Matthías segir að þegar Óskar
Hrafn verði tveggja vetra eigi hann að
geta farið á 10-14 hryssur og þegar
hann verði fjögurra vetra eigi hann
að geta gagnast 70-80 hryssum á ári. í
dag kostar 60-70 þúsund krónur aö
leiða hryssur undir þekktustu stóð-
hesta landsins og það virðist nokkuð
borðleggjandi að eigendur hryssna
sem verða leiddar undir Óskar Hrafn
muni þurfa að borga vel fyrir. „Það
verður samkomulagsatriði þegar þar
að kemur en það verður dýrt,“ er það
eina sem Matthías hefur að segja um
það mál. Gangi allt eins og stefiit er að
mun það því ekki taka Óskar Hrafh
mörg ár að skila eigendum sínum
þeim krónum til baka sem þeir hafa
lagt í hann. -gk
Grammy-verðlaunin:
Björk
tilnefnd
DV, Akranesi:
Homogenic, nýjasta plata
Bjarkar Guðmundsdóttur, er til-
nefnd til Grammy-verðlaunanna
1998 í flokki framsækinnar dæg-
urtónlistar.
Þeir sem keppa við Björk í
þessum flokki eru David Bowie,
The Chemical Brothers og
hfjómsveitimar Prodigy og
Radiohead.
Grammy-verðlaunin í tónlist
þykja vera ígildi óskarsverð-
launanna í kvikmyndum. Þau
veröa afhent 25. febrúar í Radio
City Music Hall í New York.
Veislustjóri við afhendinguna
veröur Kelsey Grammer.
Hjá þekktasta tónlistarblaði
Breta, Melody Maker, var Björk
kjörin kona ársins 1997. Díana
prinsessa varð í öðra sæti.
-DVÓ
Jólin voru dönsuö út á þrettándanum f gær. Fjölmenni var viö brennur vföa um land til aö halda upp á daginn. Þessar
tvær stúlkur létu sig ekki vanta og fögnuöu meö blysum og stjörnuljósum. Þrettándinn fór vel fram um allt land aö
sögn lögreglu. Veöur var gott vföast hvar á landinu. DV-mynd S
Umdeildar breytingar á starfsmannahaldi Búnaöarbankans:
Systir aöalbankastjór-
ans aöstoöarmaður
- ekkert óeðlilegt viö ráðninguna, segir Sólon Sigurösson
Hanna Pálsdóttir, aðalféhirðir Bún-
aðarbankans, fékk um áramót stöðu
aðstoðarmanns bankastjómar Búnað-
arbankans samhliða því að Guð-
mundur Thoroddsen lætur af því
starfi. Nokkur titringur er innan
bankans vegna þess að Hanna er syst-
ir aðalbankastjórans, Stefáns Pálsson-
ar. Efasemdir hafa komiö fram um að
hæfniskröfur hafi veriö hafðar að
leiðarljósi við starfsbreytinguna sem
gekk i garð á sama tíma og bankinn
varð hf. Hanna Pálsdóttir á aðeins eft-
ir fá ár þar til hún fer á eftirlaun. Hún
vildi í samtali við DV engu um þessi
mál svara efnislega.
„Ég get ekkert verið að ræða mín
starfskjör hér til eða frá,“ segir
Hanna.
Samkvæmt heimildum DV er enn
ekki búið að tilkynna bankaráöi Bún-
aðarbankans um þessa starfskjara-
breytingu. Þá hefur almennum starfs-
mönnum í bankanum heldur ekki
verið gerð grein fyrir málinu.
Sólon Sigurðsson bankastjóri stað-
festi í samtali við DV að Hanna hefði
verið ráðin frá áramótum. Hann sagð-
ist bera ábyrgð á ráðningunni ásamt
Jóni Adolf Guðjónsyni bankastjóra.
Stefán Pálsson aðalbankastjóri hefði
vitaö um málið en ekki tekiö þátt í af-
greiðslu þess.
„Stefán kom ekkert að þessari
ráðningu vegna tengslanna við hana.
Auðvitað vissi hann um ráðninguna
en það þarf mikinn illvilja til að gagn-
rýna þetta,“ segir hann.
Sólon vísar algjörlega á bug efa-
semdum um að hæfniskröfur hafi
ekki verið hafðar að leiðarljósi þegar
Hanna var valin í starfið. Hann segir
Hönnu hafa mikla reynslu á þeim
sviðum sem hið nýja starf hennar tek-
ur til.
„Hanna hóf starf í bankanum 1954.
Hún hætti svo um átta ára tímabil en
síðan var hún útibússtjóri um 12 ára
tímabil og hefur verið aðalféhiröir
um 13 ára skeið. Þetta er nú reynsla
sem ekki er á hverju strái," segir Sól-
on. -rt
Stuttar fréttir r>v
Sýning á uppboði
Borgarráð
hefur sam-
þykkt að bjóða
út leigu á Laug-
ardalshöllinni
vegna sjávarút-
vegssýningar í
henni haustið
1999. Tvö fyrir-
tæki vilja
halda sýninguna og borgarráð vill
ekki gera upp á milli þeirra. Viö-
skiptablaðið sagði frá.
Flugleiðir fjölmennastar
Flugleiðir eru fiölmennasta
einkafyrirtæki landsins. Þar starfa
2018 manns, þar af 230 erlendis. Rik-
isspítalar eru hins vegar fjölmenn-
asta stofiiunin með 2400 starfsmenn.
Viöskiptablaðið sagði frá.
Sterk brauðgerð
Eftir sameiningu Myllunnar og
Samsölubakarís verður til brauðrisi
sem ræður fjórðungi brauðmarkað-
arins. Samkeppnisstofnun hefur
beðið um upplýsingar um samruna
fyrirtækjanna, að sögn Viðskipta-
blaðsins.
Besta ávöxtunin
Hlutabréf í
íslandsbanka
undir stjóm
Vals Valssonar
skiluðu bestri
ávöxtun á síð-
asta ári, að
sögn Viðskipta-
blaðsins. í öðra
sæti voru
hlutabréf í Marel og í því þriðja í
SR-mjöh.
Lánuðu til bílakaupa
Sjóvá-Almennar lána mest trygg-
ingafélaga til bilakaupa, að sögn
Viðskiptablaðsins. Félagið veitti 3,6
miiljarða í bílalán á síðasta ári,
Glitnir og VÍS hvort um sig 2,7
milljarða og Tryggingamiðstöðin 1,7
miiljarða. Um helmingur þeirra
sem fær sér nýjan bil tekur bílalán
til kaupanna.
Pótfari gagnrýndur
Amþrúður Karlsdóttir varaþing-
maður gagnrýnir Ólaf Öm Haralds-
son fyrir afskipti af innkomu sinni
á þing meðan Ólafur skrapp á suð-
urpólinn. Ólafúr vildi að Amþrúð-
ur sæti á þingi i sinn stað í þrjár
vikur af sjö en þá kæmi inn á þing-
ið annar varamaður hans. Dagur
sagði frá.
Enginn verslar enn
Enginn þeirra sem fengu verslun-
arrými í Leifsstöð i útboði í fyrra
hefúr byijað að versla í stöðinni.
Engu að síður verða þeir að greiða
mjög háa leigu frá 1. janúar. Stöð 2
sagði frá.
Hærri
Félagsmála-
ráðherra hefúr
ákveðið að
hækka atvinnu-
leysisbætur um
4% frá 1. janúar.
Hækkunin er í
samræmi við al-
mennar launa-
hækkanir.
Borga mest
Þrír hæstu skattgreiðendur í
Skorradalshreppi eru flugstjóri, tog-
arasjómaður og verkfræðingur.
Enginn þeirra býr í hreppnum þó
lögheimihð sé þar skráð. Stöð 2
sagði frá.
Vantar spjó
Frestað hefúr verið um óákveð-
inn tíma að ráða 10 starfsmenn í
skíðamiðstööina í Bláfjöllum vegna
þess að enginn snjór er á svæðinu.
Stöð 2 sagði frá.
Magnesíumverksmiðja
Sótt hefur verið um starfsleyfi
fyrir magnesíumverksmiðju sem
framleiða á 50 þúsund tonn á ári.
Verksmiðjan verður á Reykjanesi
og segir Morgunblaðið líklegt að af
byggingu hennar verði.
ísienskur tölvuleikur
Haraldur Þór Bjömsson arkitekt
hefur ásamt hópi fólks hannað
tölvuleik fyrir Sony sem hefúr selst
í tveimur milljónum eintaka. Morg-
unblaðið sagði frá. -SÁ
bætur