Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1998, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998
Neytendur
Bragöprófun á bitaharðfiski
Ýsukrýli fá
hæsta einkunn
Dröfn Farestsveit gaf Ýsukrýlum frá Vestfiski ehf. sína hæstu einkunn eöa
þrjár stjörnur af fimm mögulegum. DV-mynd E.Ól
Það styttist í þorrann og þá fer
ýmis þjóðlegur matur að birtast á
borðum landsmanna. Eitt af því sem
er nauðsynlegt á því borði er að
sjálfsögðu harðfiskurinn.
Nýverið prófuðu bragðfræðingar
DV, þau Dröfn Farestsveit, Úlfar Ey-
steinsson og Sigmar B. Hauksson,
nokkrar tegundir af bitaharðfiski.
Alls var prófaður bitaharðfiskur frá
fimm framleiðendum og var um að
ræða ýsu, þorsk og steinbít.
Eins og í fyrri bragðprófunum
voru það bragð, gæði og útlit sem
réðu stjörnugjöf bragðgæðinganna.
Stjörnugjöfin er á bilinu 1-5
(l=mjög vont, 2=vont, 3=í lagi,
4=gott og 5=mjög gott). Auk þess
gefa þremenningamir afurðunum
stutta skriflega umsögn. Fyrir
smökkun vissu bragðgæðingarnir
ekki hvaðan afurðirnar komu og
ekki er tekið tillit til verðs.
Ýsukrýlin með hæsta ein-
kunn
Enginn bitaharðfiskur fékk fullt
hús stiga eða fimm stjömur. Sú teg-
und sem komst næst því var Ýsu-
krýli frá Vestfiski ehf. Úlfar gaf fjór-
ar stjömur og sagöi harðfiskinn
góðan á bragðið. Dröfn var ekki
eins ánægð en gaf samt þrjár stjöm-
ur. „Sæmilegur" var einkunn Sigm-
ars sem gaf aðeins tvær stjörnur.
Alls fengu ýsukrýlin níu stjörnur af
fimmtán mögulegum og lentu þar
með í efsta sæti.
Mjúkir og góöir bitar
í öðru sæti með sjö stjömur var
Ýsa frá Sporði hf. Aftur vora þau
Dröfn og Úlfar sammála hvað varð-
aði bragð og gæði en þau gáfu að-
eins tvær stjömur. Ummæli Úlfars
vora „bragðlítið og ekki gott“. Sigm-
ar var hins vegar ánægðari meö
þessa afurð en hann gaf þrjár stjöm-
ur með þeim orðum að bragðið væri
ágætt og bitamir almennt „mjúkir
og góðir“.
Tveggja stjörnu fiskur
Bragðgæöingamir þrír voru á
sama máli um þorskinn frá Sjávar-
fiski hf. Afurðin kcillast Bitafiskur-
þorskur og fær í heild heldur slaka
dóma eða aðeins tvær stjörnur frá
hverju bragðgæðinganna fyrir sig.
Þau kvarta öll þrjú yfir lyktinni
sem þykir skrýtin og ekki góð. Úlf-
ar hælir þó útliti fisksins en kveðst
finna keim af ammoníaksbragði.
Dröfn tekur i sama streng og bætir
við að „lykt af fiskinum og bragð sé
skrítið". í ummælum Sigmars kem-
ur fram að honum finnst bitafiskur-
inn bragðlítill og af honum sé „ein-
kennileg lykf‘.
Steinbíturinn seigur
Steinbítur-snakk ffá Snakkfiski
fær betri einkunn hjá Úlfari en hin-
um tveimur. Úlfar er ekkert að orð-
lengja það að honum finnst steinbít-
urinn vel í lagi og gefur honum
þrjár stjörnur. Ekki gætir sömu
hrifningar hjá þeim Dröfn og Sig-
mari sem gefa þessari afúrð lægstu
mögulegu einkunn eða eina stjömu.
Dröfh segir um þennan bitafisk að
hann sé „seigur en þó ekki þurr“ og
Sigmar er á sama máli en bætir viö
að sér finnist fiskurinn „vondur á
bragðið".
„Ekki góöur“
Ýsu-Snakk frá Snakkfiski fær
fimm stjömur eins og Steinbítur-
snakk frá Snakkfiski en skiptingin
er nokkur önnur þegar kemur að
stjömugjöfinni. Dröfn og Úlfar gefa
tvær stjömur en Sigmar aðeins
eina. Úlfar finnur að bragðleysi
fisksins og Dröfn segir hann „ekki
góðan". Ummæli Sigmars eftir að
hafa smakkað á Ýsu-Snakkinu eru
einfaldlega „seigt og vont“.
Aöeins fjórar stjörnur
Ýsubiti-Eyjabiti frá Darra ehf.
fékk lægstu heildareinkunn eða
fjörar stjömur. „Vont og ljótt útlit“
era orð Úlfars sem ásamt Dröfn gef-
ur þessum fiski aðeins eina stjömu.
Dröfn segir fiskinn ekki unninn úr
góðu hráefni. Sigmar er öllu já-
kvæðari en hann gefur þessum fiski
tvær stjörnur. Einkunn Sigmars er
meðal annars „ágætur fiskur en
afar bragðlítilT. Svo mörg vora þau
orð. -aþ
. "''4 ' wf 'í ár-P* Bitaharðfiskur
rV ^ Dröfn Úlfar Sigmar Samt. |
| Ýsukrýli, Vestfiskur ehf. ☆☆☆ ☆☆☆☆ ☆☆ 9 1
1 Vsa, Sporður hf. ☆☆ ☆☆ ☆☆☆ 7 |
Bitafiskur-Þorskur, Sjávarfiskur hf. ☆☆ ☆☆ ☆☆ .. 6 1
| Steinbítur-Snakk, Snakkfiskur ☆ ☆☆☆ ☆ 5 1
| Ýsa-Snakk, Snakkfiskur ☆☆ ☆☆ ☆ 5
Ýsubitar-Eyjabiti, Darri ehf. ☆ ☆ ☆☆ 4 I
Mjólkurvörur hækka um 3-5%
Mjólkurlítrinn kostar
Nú um áramótin hækkaði verð á
mjólk, rjóma, ostum og öðrum mjólk-
urvörum um 4% að meðaltali.
Hækkunin gengur nokkuö jafnt
yfir allar mjólkurafurðir en þó
hækka smærri vörur hækka meira
og skiptir vægi umbúða mestu þar
um. Mjólkurlítrinn kostar nú á flest-
um stöðum 73 krónur en kostaði
áður 70 krónur.
Guðbjörn Árnason framkvæmda-
stjóri Landssambands kúabænda seg-
ir meginástæðuna fyrir verðbreyt-
ingunni vera að launaliöur bænda
hækkaði um 4% nú um áramótin
auk þess sem laun starfsfólks í
73 krónur
mjólkurbúum hafi hækkað.
Guðbjöm segir vægi mjólkurvara
minna í vægi vísitölu en áður og að
hækkunin muni ekki koma illa við
heimilin. Hann segir meöalfjölskyld-
una hafa eytt 2.900 krónum fyrir
hækkun en sama íjölskylda muni nú
greiða 3.000 krónur fyrir sömu vörur.
IVIark
Dollar
Eimskip
Olíufélagið
Skeljungur
Tæknival
Síldarvinnslan
Marel
Stig 0 N D
72,97
Stig 0 N D J
40,25
0,6
0,59
0,58
0,57
0,56
0,55
0,54
Skagfirsk olía
Hugmynd Finns Ingólfsson
um olíuhreinsistöð í Skagafirði
mælist ekki vel
fyrir þó flokks-
bróðir hans,
Stefán Guð-
mundsson
þingmaður,
hampi henni í
kjördæminu.
Fyrir jólin
hringdi síma-
sölumaður í móður
eins af forvígismönnum flokksins
á Norðurlandi vestra og kynnti
henni bók um skotvopn sem hon-
um fannst tilvalið að maddaman
gæfi einhverjum afkomendum
sínum í jólagjöf. Sú gamla var
skjót til svars: „Nei takk. í þessu
kjördæmi era allir fuglar friðaðir
nema Finnur Ingólfsson..."
Eyjamenn í sókn
Sjalfstæðismenn á Suðurlandi
ganga flestir út frá því að Þor-
seinn Pálsson verði ekki í fram-
boði við næstu þingkosningar.
Yfirlýsingar Daviðs Oddssonar
um ráðherraskipti era raunar af
flestum túlkaðar
sem gula spjaldið
gagnvart honum.
Stuðningsmenn
Árna Johnsens
ganga út frá því
sem vísu að
hann verði arf-
taki hans sem
oddviti flokks-
ins í kjördæminu. í annað
sætið, sem Árni vermir nú, sæk-
ir fast varaþingmaðurinn Drífa
Hjartardóttir, bóndi á Keldum
og formaður Kvenfélagasam-
bands íslands. Guðjón Hjörleifs-
son, bæjarstjóri í Eyjum, er
sömuleiðis orðaður við þriðja
sætið þó margir telji erfitt fyrir
flokkinn að tefla fram tveimur
Eyjamönnum svo ofarlega...
Gunnar varð Páll
Samkeppnin í innanlandsflug-
inu hefúr verið hörð þá mánuði
sem hún hefur staðið og nú hefur
Flugfélagið gefist
upp á lágu far-
gjöldunum frá því
í sumar. Stjóm-
endumir láta sig
dreyma um þá
gömlu og góðu
daga áður en
höggormur
samkeppninn-
ar gerði sig
heimakominn í Paradís. íslands-
flug er enn með lágu fargjöldin og
margan góðan drenginn dreymir
um að aftur komi tímar samvinnu
í stað samkeppni og óskhyggjan
getur villt mönnum sýn. Þannig
taldi vinur Flugfélagsins sig sjá á
Þremur frökkmn keppinautana
Ómar Ben. hjá íslandsflugi og Pál
Halldórsson stjómanda Flugfé-
lagsins. Fréttaritari Sandkoms í
flugheiminum fullyrðir hins vegar
aö sá sem sýndist vera Páll hafi
verið stjórnarformaður íslands-
flugs, Gunnar Þorvaldsson.....
Landslið pabba
Sú ákvörðun Guðjóns Þórðar-
sonar landsliðsþjálfara að velja
tvo syni sína í landsliðið hefur
mælst misvel fyr-
ir. Þeir Þórður
Guðjónsson og
Bjami Guðjóns-
son hafa spilað
með landsliðinu
að undanfómu
og nú er sá
þriðji, Jóhannes
Guðjónsson farinn að banka á
dyr hjá liði Skagamanna. Hann
þykir efnilegur og því er spáö að
áður en varir verði hann einnig
kominn í landslið pabba gamla.
Af því tilefni sönglaði áhugamað-
ur.
Hann Gaui átti syni þrjá,
þrjá syni átti Gaui.
Gaui valdi alla þá,
þá alla valdi Gaui.