Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1998, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998
7
Fréttir
Sjómaður fékk uppsagnarbréf frá útgerðinni tveimur dögum fyrir jól:
Sagt upp eftir slys
- fær engin slysalaun - ómanneskjuleg vinnubrögð, segir sjómaðurinn, Össur Oddsson
„Ég kom heim úr túr
22. desember. Þá beið mín
uppsagnarbréf frá útgerð-
inni. Engin formleg skýr-
ing var gefln á uppsögn-
inni í bréfrnu. Mig grunar
að ástæðan sé sú að ég
tók mér veikindafrí og
sleppti einum túr eftir að
ég slasaðist um borð.
Þetta eru afar gróf og
ómanneskjuleg vinnu-
brögð hjá útgerðinni. Það
er auðvitað hræðilegt að
vera sagt upp rétt fyrir jól
og rétt fyrir verkfall," seg-
ir Össur Oddsson sjómað-
ur.
Össur hefur verið sjó-
maður undanfarin 7 ár.
Hann hafði starfað í rúm
3 ár hjá Stálvík hf. og var
netamaður á togaranum
Ými. Össur slasaðist um
borð í skipinu sl. sumar
þegcu hann var að vinna
á dekkinu. Hann rann til
með þeim afleiðingum að
liðþófi í vinstra hné rifn-
aði. Össur hefur ekki
fengið nein slysalaun
greidd frá útgerðinni.
Tók veikindafrí
„Margir um borð urðu
vitni að slysinu. Ég bað
um að það yrði fært í
dagbók skipsins eins og
venja er þegar óhöpp
verða um borð. Ég var
áfram um borð og
kláraði túrinn þó ég væri
illa farinn, með rifinn
liðþófa. í næsta túr
ákvað ég að taka mér frí
til að reyna að komast í
aðgerð. Yfirmenn útgerð-
arinnar tóku vel í það.
Össur Oddsson sjómaður slasaðist um borö í togaranum Ými sl. sumar. Honum var sagt upp tveimur
dögum fyrir jól og fékk engar formlegar skýringar frá útgerðinni. Hann hefur ekki fengið borguð slysa-
laun. DV-mynd E.ÓI
Síðan kom í ljós að ég
fékk ekki pláss á
Landakotsspítala fyrr
en skipið átti að fara í
næsta túr á eftir. Þá
fékk ég þau svör að
ekki kæmi til greina
að ég fengi veikind-
afrí og fengi ekki
borguð slysalaun. Það
var sama þó um væri
að ræða veikindafrí
vegna slyss sem gerð-
ist um borð.
Fékk mun
læjgri laun
Eg sýndi veikinda-
vottorð frá lækni og
sagði að ég yrði hrein-
lega að fara i upp-
skurð því annars
væri ég óvinnufær
enda hnéð í maski. Ég
hafði aldrei tekið mér
veikindafrí áður þau
rúmlega þrjú ár sem
ég vann hjá Stálvík.
Uppskurðurinn
heppnaðist mjög vel
og ég fór í tvo túra
með Ými seint á síð-
asta ári. Þegar gert
var upp kom hins veg-
ar í ljós að ég fékk
mun lægri laun en ég
átti að fá þar sem ég
fékk ekki borgaðan
netamannshlutinn
heldur einungis sem
háseti.
Síðan kom upp-
sagnarbréfið og engar
skýringar voru gefnar
þó að mig gruni auð-
vitað að það sé vegna
veikindafrísins sem
ég varð að taka. Rétt-
indi okkar sjómanna virðast engin.
Ef við slösumst um borð og megum
ekki taka veikindafri ef við erum
óvinnufærir er það vægast sagt
mjög slæmt mál. Þetta varðar
hagsmuni allra sjómanna í land-
inu. Ég ætla að berjast til þrautar í
þessu máli og hef leitað til Sjó-
mannasambandsins um aðstoð.
Mér finnst mjög illa komið fram
við mig af fyrirtæki sem ég hef
unnið hjá í rúm 3 ár,“ segir Össur.
Á rétt á slysalaunum
„Ég fæ ekki betur séð en hann
eigi rétt á slysalaunum. Hann er
óvinnufær vegna slyss sem verður
um borð. Samkvæmt sjómannalög-
um og kjarasamningum eiga sjó-
menn að fá laun ef þeir eru óvinnu-
færir vegna veikinda eða slysa.
Þetta mál verður sótt af lögfræðing-
um ef það leysist ekki á annan hátt.
Varðandi uppsögnina get ég ekki
tjáð mig að svo stöddu. Það er heim-
ilt að segja mönnum upp og menn
hafa heimild til aö segja upp sjálfir.
Ég tel ekki heimilt að útgerðin taki
af honum netamannahlutinn þar
sem hann er netamaður og hefur
gegnt þeirri stöðu um borð í skip-
inu,“ sagði Hólmgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Sjómannasambands
íslands.
Ekkert slys skráð
„Ég veit ekki til þess að þessi
maður hafi lent í slysi um borð í
skipinu. Það var ekkert slys skráð í
dagbók skipsins. Ég veit ekki til
þess að útgerðarfélagið hafi gert
neitt rangt. Þetta mál er í athugun
og ég vil ekki tjá mig neitt frekar
um það að svo stöddu,“ segir Guð-
rún Lárusdóttir, útgerðarmaður
Stálvíkur, aðspurð um málið.
-RR