Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1998, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998
Útlönd Stuttar fréttir r»v
Danski forsætisráðherrann sagður vera verri en Adolf Hitler:
Það var rétt af mér
að koma til Færeyja
Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, tekur viö mótmælum úr hendi Zakariasar Wangs. Um tvö
hundruð manns efndu til mótmælafundar vegna komu danska forsætisráðherrans til Færeyja. símamynd jens k. vang
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, segir að það
hafi verið rétt af sér að koma til
Færeyja nú, viku áður en skýrsla
rannsóknarnefndar um hrun fær-
eyska bankakerfisins verður gerð
opinber.
Forsætisráðherrann kom í um-
deilda heimsókn til Færeyja í gær
til að funda með Edmund Joensen,
lögmanni Færeyja, og Jonathan
Motzfeldt, formanni grænlensku
heimastjómarinnar.
Poul Nyrap neitaði alfarið að tjá
sig um skýrsluna á fundi með frétta-
mönnum í Þórshöfn í gærkvöld.
Skýrslunnar er beðið með mikilli
eftirvæntingu. Margir telja að hún
muni staðfesta að Poul Nyrup og
stjóm hans hafi verið kunnugt um
bága stöðu Færeyjabanka, dóttur-
fyrirtækis Den Danske Bank, áður
en Færeyingar tóku við rekstri
hans. Færeyska landstjómin þurfti
að taka margra milljarða króna lán
hjá dönsku stjóminni til að bjarga
bankanum.
Aðspurður sagðist Nyrup ekki
þekkja innihald skýrslunnar en
sagðist engu að síður sannfærður
um að hún mundi hreinsa sig og
stjórn sína af öllum ásökunum um
að' hafa blekkt Færeyinga.
Danski forsætisráðherrann ítrek-
aði á fréttamannafundinum að fund-
urinn með Joensen og Motzfeldt, ár-
legur fundur danska ríkjasam-
bandsins, hefði verið ákveðinn áður
en vitað var hvenær bankaskýrslan
yröi gerð opinber. Færeyskir blaða-
menn halda því hins vegar fram að
svo sé ekki.
Tæplega tvö hundruð manns
efndu til mótmælaaðgerða í miðbæ
Vérðhrun á
gjaldeyrismörk-
uðum í Asíu
Gengi flestallra gjaldmiðla í
Suöaustur-Asiu lækkaði mikið á
mörkuðum í morgun þar sem
ástandið á fjármálamörkuðum
Asíu virðist ekkert ætla að
skána.
Bæöi fyrirtæki og fjárfestar
keyptu sem mest þeir máttu af
Bandaríkjadolluram og gátu
seðlabankar ríkjanna litið að
gert.
Gengi hlutabréfa á markaöin-
um í Hong Kong féll talsvert í
morgun. Hang Seng hlutabréfa-
vísitalan féll niður fyrir tíu þús-
und og hafði ekki farið svona
lágt frá því í nóvember. Um
tíma í morgun hafði vísitalan
fallið um 5,1 stig.
Bílstjóri Díönu
varaði Ijós-
myndarana við
Henri Paul, bilstjórinn sem
ók Díönu prinsessu og Dodi
Fayed í hinstu ökuferö þeirra í
París í fyrra-
sumar, lét
sjálfur ljós-
myndarana
sem biðu
þein-a vita að
prinsessan
væri um það
bil að yfirgefa
Ritz-hótelið.
Það eru heimildarmenn sem
þekkja til rannsóknar málsins
sem héldu þessu fram í gær.
Reuter
Þórshafnar síðdegis í gær. Þar lýsti
leiðtogi hópsins, Zakarias Wang, því
yfir að Poul Nyrup væri verri en
Hitler. Hitler hefði aldrei heimsótt
Quisling í Noregi.
Fyrirhugað er að Poul Nyrup
fundi með færeyskum stjórnmála-
mönnum í dag. Ekki hafa þó allir
Þýsku lögregluna grunar að verið
sé að byggja upp hryðjuverkasam-
tök nýnasista i Þýskalandi. Undan-
farnar vikur hefur lögreglan kom-
ist á snoðir um áætlanir um marg-
ar sprengjuárásir. Telur lögreglan
að ofbeldishneigðir aðilar meðal
nýnasista hafi fengið innblástur
frá hryðjuverkasamtökunum
Rauðu herdeildunum sem herjuðu
á áttunda áratugnum.
I desemberbyrjun fann lögreglan
sprengiefni og áætlanir um
sprengjugerð heima hjá nýnasist-
um í Berlín og i Bæjaralandi.
Bill Clinton Bandarikjaforseti
sakar ljósmyndara um að hafa ráð-
ist á einkalíf hans með því að taka
myndir af forsetafjölskyldunni í
jólafríi hennar á Jómfrúreyjum.
Ljósmyndaramir smelltu mynd-
um af forsetahjónunum þar sem þau
dönsuðu í sundfótum á baðströnd.
Dóttir forsetahjónanna, Chelsea, var
áhuga á því þar sem fimm flokkar af
átta hafa ekki áhuga á að ræða við
hann. Þá stendur til að Nyrap ræði
við stúdenta og kennara í Fróðskap-
arsetrinu, háskóla Færeyja, en óvíst
er hvort þar ríkir áhugi fyrir fund-
inum.
Blaðamaður færeyska blaðsins
Tveir ungir nýnasistar í Berlín
viðurkenndu eftir skyndileitina að
þeir hefðu ráðgert árás á ungan fé-
laga í flokki vinstri sósíalista sem
tók við af austur-þýska kommún-
istaflokknum.
Yfirmaður öryggislögreglunnar í
Berlín, Eduard Vermander, segir í
viðtali við tímaritið Der Spiegel að
hætta sé á að nasísk hryðjuverka-
samtök séu að myndast í Þýska-
landi.
Fjölmiðlar í Þýskalandi og utan
Þýskalands hafa í haust greint frá
auknum áhuga þýskra hermanna
einnig með á myndunum. Forsetinn
leynir því hins vegar ekki að honum
hafi þótt myndimar mjög góðar.
Fjöldi bandarískra blaða birti
myndimar á mánudaginn. Forset-
inn segir að hann hafi ekki haft hug-
mynd um nærveru ljósmyndaranna
þegar hann steig dansspor með Hill-
ary á ströndinni. Clinton neitar
Sosialurin spurði Poul Nyrup hvað
honum fyndist um kröfu færeyskra
jafnaðarmanna um aukið sjálfstæði.
„Það er ekki rétt af mér að fara út
í það, hvorki gagnvart færeyskum
né grænlenskum stjómmálamönn-
um,“ sagði Poul Nyrup Rasmussen,
forsætisráðherra Danmerkur.
á hugmyndafræði nasista. Búnað-
ur til sprengjugerðar fannst ný-
lega í herdeild í Landsberg i Bæj-
aralandi. Talið er að öfgasinnaðir
hermenn hafi átt tækin.
Tímaritið Die Woche hefur greint
frá þvi að einnig í fyrrum A-
Þýskalandi hafi nasistar orðið
meira áberandi.
Hægriöfgasinnaðar hljómsveitir
selja fleiri hljómplötur en þekktar
popphljómsveitir. Svipuð þróun á
sér stað í Svíþjóð í tónlistargeiran-
hins vegar að segja hver væru
mörkin fyrir árás á einkalífið. Hann
segir að fjölmiðlar verði sjálfir að
gera sér grein fyrir hvar mörkin
séu.
Talsmaður Hvíta hússins, Mich-
ael McCurry, segir nauðsynlegt að
gera ráðstafanir til að vernda
Chelsea.
Neyðarfundur
Vestur-evrópsk lönd ætla að
halda neyðarfund vegna straums
kúrdískra flóttamanna frá Tyrk-
landi til Ítalíu.
Þúsundum sagt upp
Yfirvöld í Kenýa ráku í gær
þúsundir hjúkranarfræðinga
sem hafa verið í verkfalli síðan í
nóvember. Hjúkranarfræðingar
krefjast 500 prósenta launahækk-
unar.
Jól án Jeltsíns
Milljónir Rússa flykktust í
kirkjur í gær til að halda upp á
jól rétttrúnað-
arkirkjunnar.
Borís Jeltsín
Rússlandsfor-
seti var ekki
viðstaddur aft-
ansöng í dóm-
kirkju sem
margir hátt-
settir aðilar sóttu. Embættis-
menn í Kreml segja forsetann í
fríi í Valdai. Þar aki hann um á
snjóbíl og ræði við stjórnmála-
menn heima og erlendis í síma.
Það vekur hins vegar athygli að
forsetinn hefur frestað ferð til
Indlands sem hann átti að fara í
núna i janúar.
Hættuleg baktería
Norska matvælaeftirlitið hefur
fundið hina hættulegu E.coli-
bakteriu í kebabkjöti sem selt
var á skyndibitastað í Kristians-
and. Bakterían er hættuleg og
getur valdið nýmabilun og jafn-
vel dauða.
Brjóstabörn duglegri
Ný könnun sýnir að böm, sem
drukkið hafa móðurmjólk, standa
sig betur í skóla en önnur. Könn-
unin var gerð á Nýja-Sjálandi.
Talið er að fitusýrur í mjólkinni
hafi áhrif á þróun heilans.
íhuga matvælaaðstoð
Bandarísk yfirvöld íhuga að
verða við beiðni Sameinuðu þjóð-
anna um að senda meiri matvæli
til Norður-Kóreu.
Áætlun samþykkt
Sameinuðu þjóðirnar hafa
samþykkt
áætlun íraka
um dreifingu
matvæla sem
þeir fá fyrir
sölu á olíu.
Saddam
Hussein íraks-
forseti hafði
lýst því yfir að írakar myndu
ekki hefja olíusölu á ný fyrr en
áætlunin hefði veriö samþykkt.
Rafmagnsleysi
Um 750 þúsund heimili urðu
rafmagnslaus i Quebec í Kanada
í gær er óveður gekk yfir fylkið.
Bílasprengja
Breskir hermenn gerðu I morg-
un óvirka bílasprengju i bænum
Banbridge á N-írlandi.
Ný hryðjuverkasamtök
Lítt þekkt samtök skæruliða í
Mexíkó hafa lýst yfir ábyrgð á
árás á lögreglustöð í síðustu
viku. Sögðu þau árásina hefnd
fyrfr morðin á 45 indíánum í suð-
urhluta landsins.
Chirac í árásarhug
Jacques Chirac Frakklandsfor-
seti sakaði í gær Lionel Jospin,
forsætisráðherra Frakklands, um
að grípa of oft
til neyðarráð-
stafana til að
koma frum-
vörpum sínum
í gegn á þingi.
Jospin hefur
sætt ámæli að
undanfórnu
fyrir að takast ekki á við at-
vinnuleysið sem er 12,4 prósent.
Handtökur
Tyrkneska lögreglan hefur
handtekið tugi íraka sem komu
ólöglega til Tyrklands.
Þýska lögreglan:
Nýnasistar skipuleggja
hryðjuverkasamtök
um.
Clinton ósáttur við
leynilegar myndatökur