Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1998, Page 12
12
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998
Spurningin
Stundarðu einhverja íþrótt?
Steinar Árnason framkvæmda-
stjóri: Nei, það geri ég ekki.
Hreggviður Jónsson bílstjóri:
Nei.
Ingvar Ölver Sigurðsson, nemi í
Rimaskóla: Nei.
Björgvin Austmann Þorbjörns-
son, nemi í Rimaskóla: Nei.
Guðrún Ragna Yngvadóttir nemi
í Þinghólsskóla: Já, ég æfi körfu-
bolta hjá Breiöabliki.
Lesendur__________
Áhrifamáttur
fjölmiðla
Sorgarviðbrögð þeirra milljóna manna sem syrgðu Díönu prinsessu voru
eðlileg vegna þess hve oft og náið fólk hafði orðið vitni að einkalrfi hennar,
segir bréfritari.
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Fjölmiölarnir hafa áhrif á skoðan-
ir manna. Sterkasti miðillinn í þess-
um geira er sjónvarpið. Margir hafa
líka orðið heimsfrægir í gegnum
skjáinn. Díana prinsessa af Wales
var ein úr þeirri átt. Frá þeim degi
er hún gekk að eiga Karl, ríkisarfa
Breta, varð hún „eign“ fjöldans.
Síðan gerðist það síðsmnars 1997
að Díana fórst í bílslysi í Frakklandi
ásamt tveimur öðrum. Við þá fregn
ríkti sorg um heimsbyggð alla og
sáust tár renna úr hvörmum millj-
óna manna sem syrgðu konuna.
Þetta fannst mörgum jaðra við
hræsni.
Þegar betur er að gáð þá er svörun
fjöldans fullkomlega eðlileg miðað
við aðstæður og ofur mannleg í
sjálfu sér. Munum að flest byggö ból
veraldar höföu haft þessa konu
heima í stofu hjá sér i áraraðir. Vart
leið sá dagur þar sem ekki var verið
að fjalla um lif, hjónaband og síðar
ergelsið sem kom upp á milli þessara
einstaklinga. Og hvaða maður kemst
hjá því, undir svona kringumstæð-
um, að mynda sér skoðun um máliö,
jafnvel að hleypa fólkinu inn á sig á
einhvem máta?
Hið gríðarlega umstang kringum
prinsessima í lifenda lífi sýnir vel
hvílíkur ofurmáttur fjölmiðlanna er
og hve mjög þeir eru færir um aö
móta skoðanir fjöldans. Því ljóst er
að hefði dauöa Díönu borið að eftir,
segjum 10 ára þögn fjölmiðla, þá
hefðu viðbrögö umheimsins verið
önnur. Sorgarviðbrögð fjöldans em
fyrir þær sakir kannski ekki rökrétt
en skiljanleg.
En fregnin um dauða Díönu er
ekki sú eina sem hefur hreyft við
fólki. Sviplegt fráfall Johns Lennons
framkallaði sambærileg viöbrögð
fjölda manna mn allan heim. Sem
dæmi hafa um 13 milljón eintök selst
af Anthology-safninu sem eftirlifandi
Bítlar gáfu út. Hljómsveitin lifir því
enn í hjörtum manna.
Og hvað gerðist ekki þegar Elvis
varð allur? í öllum þessum málum
spiluðu fjölmiðlar stóra rullu, um
þaö er vart deilt. Þeir halda m.ö.o.
vakandi áhuga fólksins á hinu eða
þessu efni með fréttum og margs
konar umfjöllun. Svipleg burtfor
frægs fólks kallar því á sorgina sem
framkallar ákveðin viðbrögð manna.
Og eðli syrgjenda er að hrópa á
huggun, ekki dóm. Það er þar af leið-
andi ekki sanngjarnt að kalla þær
milljónir hræsnara sem syrgðu
Díönu.
Verslum við skátana
Gunnar hringdi:
Öll umræðan undanfarið um slys-
in sem urðu um áramótin vegna
ónýtra flugelda og blysa fengu mig
til umhugsunar um öryggismál
þetta varðandi. Að mínu viti er nátt-
úrlega nauðsynlegast að fara var-
lega í allri meðferð flugeldanna. En
það er bara ekki nóg þegar flugeld-
arnir hafa fengiö ranga meðferö á
leiðinni til landsins eða eftir að þeir
komu hingaö. Sú virðist einmitt
hafa veriö raunin með mörg tilfelli
þar sem slys urðu nú á dögunum.
Eina leiðin til að komast hjá því
að lenda í slíku er að versla við
ábyrga og reynda aðila. Þá koma
skátamir strax upp í hugann. Þeir
hafa staöið í flugeldasölu í tugi ára
og eru þess vegna með mikla
reynslu í kaupum og sölum á flug-
eldum. Að því er ég best veit eru
slys mjög fátíö hjá þeim vegna lé-
legrar vöru og því ætti aö vera
langöruggast að skipta við þá um
áramót.
Hins vegar skilst mér að hin lé-
legu og skemmdu blys hafi verið
seld af mjög óreyndum aðilum. Það
hlýtur í raun að hafa hættu í för
með sér að kaupa jafn vandmeð-
fama og varhugaverða vöm og flug-
eldar em af fólki sem hefur ekki
reynslu í meðhöndlun og innkaup-
um á henni. Þarna eru oft á ferðinni
aðilar sem spretta upp fyrir áramót
með skúra og gáma en hverfa á brott
um leið og „vertíðinni" er lokið.
Þetta gera skátamir að sjálfsögðu
ekki, þeir eru hérna allt áriö og
standa og falla með þeirri vöru sem
þeir selja.
Ekki má svo gleyma að nefna í
hvað fjármunir fólks fara þegar þeir
kaupa flugelda því ef verslað er við
skátana þá rennur ágóðinn til efling-
ar björgunarstarfi. Því er það svo að
ef keyptir era flugeldar hjá skátun-
um þá er fólk jafnvel að bjarga
mannslífum í stað þess að leggja þau
í hættu.
Gott veður: Aldrei þessu vant?
K.A. skrifar:
Jæja, enn kemur fólki á óvart
hversu gott veðrið er á þessum tíma
árs. Ef ég á að segja alveg eins og er
þá kemur mér það afskaplega lítið á
óvart, þó það hafi reyndar verið
nokkuð betra nú fyrri hluta vetrar
en oft áður. Málið er nefnilega það
að undanfarin ár hafa nær undan-
tekningarlaust komið hlýindatíma-
bil einhvern hluta vetrar, oft fyrri
part janúarmánaðar. Alltaf kemur
þetta fólki jafnmikið á óvart „og
elstu menn muna ekki aðra eins
tíð“.
(LlÍifflO/íi þjónusta
allan sólarhringinn^
5000
^lfíílli kl. 14 og 16
Goif spilað 12. desember 1989 eins og kom fram f fréttum DV það ár. Þá voru
myndir birtar af þessum óvenjulega viðburði. Að mati bréfritara er ekkert
óvenjulegt þarna á ferð.
Sérstaklega man ég eftir þremur
vetram í röð þar sem myndir birt-
ust í dagblööum af golfleikurum
einhvers staðar á landinu. Textinn
með myndunum var á þá leið að
viökomandi hlýindakast hafi gert
mönnum kleift að spila golf á þess-
um tíma árs „aldrei þessu vant“.
Fólk er fljótt aö gleyma!
Nú fyrir áramót var talsvert úr
því gert að betra veður væri hér á
íslandi en í flestum öðrum löndum
Evrópu. Allir aö sjálfsögöu löngu
búnir að gleyma því að á nákvæm-
lega sama tima fyrir ári var hið
sama uppi á teningnum. Þá geisaði
fimbulvetur í Evrópu en veður var
allt hið skaplegasta hér í norðri. Að
sjálfsögðu breyttist þetta siðan eftir
áramót eins og gerast mun hér, upp
úr miðjum janúar mun vetur kon-
ungur heíja innreið sína af fullum
krafti, eins og venjulega, liggur mér
við að segja.
Gildi áróðurs
Bjami Valdimarsson skrifar:
Nöldrið er þjóðaríþrótt íslend-
inga. Víkverji Morgunblaðsins á
metið í þeirri grein, honum virö-
ist allt ganga andhælis. Um ára-
mótin bragðum við blysum á loft
og skutum flugeldum. Um leið
styrktum við björgunarsveitim-
ar í landinu og eitt Vesturbæjar-
liö, sem tapar alltaf af því að
strákamir nenna ekki að æfa.
Einstaklingur getur lært, en þjóð
aldrei. Sama hversu miklu er
kostað í almenningsfræðslu um
bíla, jólaljós, áfengi, vímuefni,
umhverfismál, tóbak o.fl. Há-
skólaborgarar ofmeta gildi áróð-
urs og fræðslu. Hitler og
Goebbels enduðu í kjallara í
Berlín. Stalin var heppinn, hann
þurfti ekki að upplifa endalok
marx-sovésks áróðurs 1991 og að
ekkert sæti eftir 74 ár!
Húrra fyrir frá-
bæru skaupi
Harpa Karlsdóttir skrifar:
Mig langar til að þakka fyrir
frábært áramótaskaup. Við vor-
um 8 manna hópur á ýmsum
aldri sem horfðum á skaupið
þetta kvöld og hlógum allan tím-
ann. Öfl erum við sammála um
að þetta hafi verið besta skaupið
hingað til þótt oft hafi þau verið
góð. Það er greinilegt að við eig-
um mikið af frábærum ungum
leikuram sem létu ljós sitt skína
þetta kvöld. Ég vil sérstaklega
nefna Hjálmar Hjálmarsson leik-
ara sem stóð sig hreint út sagt
stórkostlega.
Húrra fyrir áramótaskaupinu
þetta árið.
Týnt debetkort
Haildór Sölvi Hrafnsson
hringdi:
Mig langaði til að athuga
hvort einhver hefði rekist á
debetkortiö mitt síðustu daga.
Ég glataði því í miðbæ Reykja-
víkur aðfaranótt laugardagsins
27. desember, þ.e. mifli jóla og
nýárs. Ef einhver hefur orðið
kortsins var er sá hinn sami
endilega beðinn að láta mig vita
af því svo ég geti sótt það. Síma-
númer mitt er 568 9152.
Góð jólagjöf
Jónas Hálfdánarson, Sauðár-
króki, hringdi:
Mig langar að þakka Karla-
kórnum Heimi sérstaklega vel
fyrir góða jólagjöf til okkar á
Dvalarheimilinu hér á Sauðár-
króki. Á sólstöðudaginn rétt fyr-
ir jólin kom allur kórinn hingaö
í heimsókn og söng fyrir okkur.
Hann lét sér ekki nægja að taka
nokkur lög heldur söng fullt pró-
gramm. Áður var kórinn að auki
búinn að syngja niðri í kaupfé-
lagi. Þetta var stórkostleg jóla-
gjöf til okkar enda er kórinn frá-
bær. Hann hefur á að skipa
landsfrægum söngmönnum, þar
á meðal Álftagerðisbræðram.
Kærar þakkir til Karlakórsins
Heimis fyrir frábæra upplyft-
ingu í skammdeginu.
Leiðinlegar
hvalafréttir
Halldóra hringdi:
Mikið afskaplega leiðist mér
allt þetta tal um hvalreka sem
tröllríður fjölmiölum um þessar
mundir. Það má varla aulast
hvalshræ upp í íjöru án þess að
því sé slegið upp sem stórfrétt í
öflum fjölmiðlum. Þetta þótti
kannski markvert í gamla daga
þegar fólk gat unnið sér eitthvaö
nytsamlegt úr hræinu en í dag
kemur þetta varla neinum við.
Og síðan tekur við umræðan um
hverrar tegundar hin sáluga
skepna hafi verið. Gáshnallur
var það nú síðast. Mikið er ég
ríkari manneskja af því frétta
það...