Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1998, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998
13
I>V
Fréttir
Félagslegar leiguíbúöir borgarinnar:
Sveitarfélags-
ígildið dregið í efa
„Samkvæmt úrskurði félagsmála-
ráðuneytisins eru Félagsbústaðir
hf., fyrirtæki um eignarhald og
rekstur félagslegra leiguíbúða
Reykjavikurborgar, ígildi sveitarfé-
lags. Þess vegna telur ráðuneytið
ekkert því til fyrirstöðu að hlutafé-
lagið geti yfirtekið hinar félagslegu
leiguíbúðir borgarinnar. Ámi Sig-
fússon, oddviti D-listans í borgar-
stjóm, segir í samtali við DV að
megtntilgangurinn með stofnun Fé-
lagsbústaða hf. virðist vera sá að
rétta af hallann á borgarsjóði með
skyndilántöku út á skuldlitlar fast-
eignir.
Fréttaljós
Stefán Ásgrímsson
Formaður Húseigendafélagsins
segir hugmyndina athyglisverða en
framkvæmd hennar beri einkenni
bráðræðis og að ekki sé fullrannsak-
að hvort lög leyfi aö hlutafélag yfir-
taki skyldur sveitarfélags með þess-
um hætti og hvort hugtakið ígildi
sveitarfélags standist gagnvart
sveitarstjómarlögum. DV spurði
Pál Hreinsson, prófessor og sérfræð-
ing í stjómsýslulögum, þeirrar
spumingar. Hann kvaðst ekki geta
svarað henni með afgerandi hætti
að órannsökuðu máli.
Góð hugmynd en lítt unnin
„Hugmyndin er í sjálfú sér góð,
Árni Sigfússon, oddviti D- iistans. -
Verið að slá skyndilán til að rétta af
halla borgarsjóðs.
þ.e.a.s. að skilja á milli húsnæðis-
rekstrar sveitarfélags og annarrar
starfsemi sveitarfélagsins, en leiðin
að markinu hefur ekki verið nægi-
lega vel undirbúin og vörðuð," segir
Sigurður Helgi Guðjónsson, hæsta-
réttarlögmaður og formaður Húseig-
endafélagsins, í samtali við DV.
Sigurður segir það einnig órann-
sakað hver áhrif Félagsbústaðir hf.
muni hafa á leigumarkaðinn. Með
stofnun Félagsbústaða hf. verði til
risi á leigumarkaðnum sem hafi
óhjákvæmilega sterk áhrif á mark-
aðinn og hvemig hann þróist. þess
vegna skiptir miklu máli hvemig
framkvæmdin er og að hún virki
eins og til er ætlast.
„Mér sýnist farið nokkuð glanna-
lega í hlutina og það hafi þurft að
sveigja og teygja lagareglur óhæfi-
lega og búa til nýtt hugtak eins og
ígildi sveitarfélags til að fá málið til
að ganga upp,“ segir Sigurður.
Hann segir að ekki sé Ijóst hvort
fyrirhuguð starfsemi Félagsbústaða
standist að fullu sveitarstjómarlög
og lögbundna ábyrgð sveitarfélaga.
„Verði fyrirtækið gjaldþrota, hver
ber þá ábyrgð á þessu ígildi sveitar-
félags?" spyr Sigurður Helgi. Hann
segir að í sveitarstjómarlögum séu
takmarkanir fyrir því hvers konar
ábyrgðir sveitarfélag má ganga í og
kunni starfsemi hlutafélagsins að
rekast á við lög í þeim efhum.
850 íbúðir á 4,5 milljarða
Framkvæmdastjóri Félagsbú-
staða, Sigurður Friðriksson, segir i
samtali við DV að Félagsbústaðir hf.
yfirtaki 850 félagslegar leiguíbúðir
Reykjavíkurborgar sem em 4,5
milljarða króna virði. Um leið verði
að auka hlutafé félagsins og áætlað
sé að það verði um 1,5 milljarðar
króna og allt í eigu Reykjavík-
urborgar. Stofhhlutafé Félagsbú-
staða er hins vegar 10 milljónir
króna.
Fjármögnun félagsins er þannig í
meginatriðum að rúmur milljarður
er í yfirteknum lánum frá Bygginga-
Nýjar reglur um atvinnuleysisskráningu:
Verið að pína
fólk til sveitar
- segir Vigfús Andrésson
„Það er verið að gera fólki erfitt
fyrir að skrá sig. Það er í raun ver-
iö að pina fólk af ríki til sveitar
með þessum nýju reglum," segir
Vigfús Andrésson sem býr í Berja-
nesi í Austur-Landeyjum.
Vigfús segir að honum hafi ver-
ið tilkynnt milli jóla og nýárs að
honum bæri nú að skrá sig vegna
atvinnuleysis í Vík i Mýrdal en
fram að þessu hefúr honum veriö
kleift að gera það á hreppsskrif-
stofunni á Skógum.
„Þetta þýðir 40 kílómetra akstur
hvora leið, sem er um 160 kíló-
metrar á mánuði, miðað við að
nauðsynlegt sé að skrá sig tvisvar
í mánuöi en það fást engar bætur
fyrir þetta," segir Vigfús.
Hann segir að með þessu séu
stjórnvöld vafalaust að reyna að
uppfylla kosningaloforð sín um að
skapa ný störf og útrýma atvinnu-
leysi. Meö þessari ákvörðun um
að stækka atvinnusvæði í lands-
hlutunum myndu menn hugsa sig
tvisvar um ef þeim væri gert að
keyra langar vegalengdir til at-
vinnuleysisskráningar og jafhvel
taka atvinnutilboðum fjarri heim-
ili og fjölskyldu.
Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir að sú
ákvörðun hefði verið tekin fyrir
áramót að fækka skráningarstöð-
um fyrir atvinnulausa en koma
jafnframt á fót svæðisvinnumiðl-
unum í landshlutum sem hefðu
umsjón með atvinnuleysisskrán-
ingum og vinnuráðgjöf. Hann neit-
ar því alfarið að verið sé að gera
mönnum erfitt fyrir með þessum
reglum.
„Við ætlum að gera reglumar
sveigjanlegri. Við ætlum að leggja
minni vigt á skráningar en efla
ráðgjafarþáttinn til að auka hæfni
fólks á atvinnumarkaðnum," segir
Gissur. „Til að mynda er gert ráð
fyrir að fólk þurfi aðeins að skrá
sig hálfsmánaðarlega eða jafnvel
sjaldnar og ekki endilega alltaf á
sömu dögunum.“
Hann segir fráleitt að verið sé
að vísa vandamálunum frá riki til
sveitar. Þá segir Gissur að starfs-
svið svæðisvinnumiðlunanna sé
ekki fullmótuð og að tekið verði
tillit til óska sveitarfélaga. Þannig
hefði verið fallið frá því að leggja
niður skráningu á Skógum og eins
því aö beina fólki frá Stokkseyri
og Eyrarbakka á Selfoss til skrán-
ingar.
-Sól.
sjóði verkamanna en afgangurinn
er skuldabréf sem Félagsbústaðir
hf. gefa út til Reykjavíkurborgar.
Búnaðarbankinn hefur séð um að
selja skuldabréfin en Reykjavíkur-
borg ábyrgist skilvísar greiðslur
fyrir bréfm. Seld hafa veriö slík
Sigurður Helgi Guðjónsson, hæsta-
réttarlögmaður og formaður Hús-
eigendafélagsins. - Góð hugmynd
en slælega unnið úr henni.
skuldabréf fyrir 800 milljónir króna.
Á gráu svæði
Ámi Sigfússon, oddviti D- listans,
segir að þessi trygging borgarinnar
orki tvimælis. Um sé að ræða ein-
falda ábyrgð borgarinnar og slíkar
ábyrgðir sveitarfélaga séu á lagalega
gráu svæði. Hin einfalda ábyrgð
borgarsjóðs sýni hins vegar glöggt
hve lítill munur sé á þessu fyrirtæki
og borgarsjóði. Borgarsjóður selji
þessu nýja fyrirtæki sínu, Félagsbú-
stöðum hf., leiguíbúðir og söluverð-
maetið sé 4,5 milljarðar.
Ámi gagnrýnir undirbúning
málsins af hálfu R-listans og segir
ljóst að megintilgangur með stofnun
Félagsbústaða og sölu íbúðanna til
félagsins sé sá að losa 800 milljónir
úr leiguíbúðunum i skyndi og leggja
inn í borgarsjóð til að rétta af stöðu
hans svo að endar nái saman. „Það
hefði verið eðlilegt þegar Húsnæðis-
stofnun gerði athugasemdir að
menn hefðu sest niður og farið mjög
vandlega yfir málið. Það var ekki
gert heldur var pantað svar eða úr-
skurður úr félagsmálaráðuneytinu,
sem er úrskurðaraðili sem studdi
þessar aðgerðir," segir Árni.
Hann segir að það sé ljóst að
greiða verði af skuldabréfunum um-
ræddu og að sá kostnaður muni trú-
lega lenda á skattgreiðendum í borg-
inni fyrst um sinn en síðar á leigj-
endum í hinum félagslegu leiguí-
búðum af fullum þunga í formi
hærri húsaleigu.
25% afsláttur af
þessa
Litir: rautt og
svart lakk, silfur
St. 20-34
Verð 2.290 - 2.790
smáskór
r-‘
í bláu húsl vlð Fákafen Slml 568 3919
Danssmiðja Hermanns Ragnars Innritun f sfma
Danssköli Auðar Haralds M l b d ð n m u m m a m m n 561 9797
Skipholt 25, 105 Reykjavlk <p 561 9797 & 561 7580 milli kl. 13 og 19
KÁNTnt
SPICE ,
□ISKÓ
STEPP
Kennslustadin
Skipholt 25
Grafarvogur
Gardabær
Álftanes
mAmua
. Sfásr/vÍY'/nm rii -
Jóhann Örn Auður
Rósa Unnur Berglind Qb,p
Einnig:
Jassleikskólinn
Barnadansar