Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1998, Blaðsíða 16
+
16
MIÐVIKUDAGUR 7. JANUAR 1998
MIÐVIKUDAGUR 7. JANUAR 1998
17
Iþróttir
DV
m
ENGIAND
Liverpool hefur sýnt mikinn áhuga á
aö fá Dion Dublin, framherja og
fyrirliða Coventry, til liðs við sig og
er reiðubúið aö greiða tæpar 400
milljónir króna fyrir kappann sem er
27 ára gamall.
Coventry hefur hins vegar boðið
Dublin 240 milljónir króna fyrir að
skrifa undir samning við félagið til
ársins 2002 og vill engan veginn
missa hann.
Mark Elliott, varnarmaðurinn sterki
hjá Leicester, hefur einnig verið orö-
aður við Liverpool en Roy Evans,
stjóri liðsins, hefur lengi haft auga-
stað á honum. Vörn Liverpool hefur
átt í stökustu vandræðum í undan-
fórnum leikjum og stuöningsmenn
liðsins teija það brýnna að fá sterka
vamarmenn frekar en sóknarmann.
David Ginola, mið-
vallarleikmaðurinn
knái hjá Tottenham
og Ian Walker mark-
vörður fóru báðir
meiddir af velli þeg-
ar Tottenham vann
sigur á Fulham í
fyrrakvöld og allt
eins er víst að þeir
missi af leiknum
gegn Man. Utd á
laugardaginn.
Joe Royle, fyrrum stóri Everton, hef-
ur sterklega verið oröaður við þjálf-
arastöðuna hjá n-irska landsliðinu.
Bernard Lama, franski markvörður-
inn sem lánaður var til West Ham
frá París SG fyrir nokkrum vikum,
segist liklega vera á förum frá félag-
inu og muni ganga i raðir Rennes.
Lama segist verða að fá að spila til að
eygja möguleika á að komast í
franska landsliðshópinn sem leikur á
HM en hann hefur ekki fengið að
spreyta sig með Lundúnaliðinu.
Harry Redknapp, stjóri West Ham,
segir að Lama þurfi að sitja við sama
borð og aðrir. Hann segir að Craig
Forrest hafi staðið sig vel á miili
stanganna í undanfómum leikjum og
engin ástæða sé þvi til að taka hann
út úr liðinu.
Fjölmiólar á Ítalíu er með vangavelt-
ur um að Juventus sé að undirbúa
risatilboð í Alan Shearer, framherja
Newcastle. Þar er talað um að
Juventus ætli að bjóða 2 milljarða
króna í Shearer sem er byriaður að
æfa að nýju eftir uppskurð sem hann
gekkst undir í haust.
Kenny Dalglish,
stjóri Newcastle, er
ekki á móti því aö
selja Shearer fyrir
þessa upphæö segja
heimildir ítölsku
blaðanna enda geti
hann notaö pening-
ana til að kaupa
marga sterka leik-
menn og þar eru
nefndir til sögunnar Robbie Fowler,
framherji Liverpool, og Duncan Fergu-
son, framherji Everton.
Michael Thomas, sem ekki hefur
leikið með Liverpool undanfarnar
vikur vegna ökklameiðsla, gæti verið
á forum til Benfica i Portúgal. Gra-
eme Souness, stjóri Benfíca, viil fá
Thomas og er reiðubúinn að borga
750 þúsund pund fyrir hann.
Sparkfrœöingar á
Englandi telja það
víst að Glenn Hoddle
velji Nicky Butt, mið-
vallarleikmanninn
knáa hjá Man.Utd, í
landsliðshóp Eng-
lendinga sem leikur
á HM. Butt hefur átt
hvem stórleikinn á
fætur öðrum og
Hoddle sá hann
eiga frábæran leik þegar United lagði
Chelsea i bikarnum um síðustu helgi.
Franz Beckenbauer, fyrrum lands-
liðseinvaldur Þjóðveija, vill að Eng-
land og Þýskaland sameinist um að
halda úrslitakeppni HM árið 2006.
Sunderland vill kaupa tékkneska
landsliðsmarkvörðinn Pavel Smicek
fyrir 1 milljón punda. Smicek er
hundfúll með vistina hjá Newcastle
enda er hann sem stendur þriðji
markvörður liðsins á eftir Shaka
Hislop og Shay Given.
Malcolm MacDonald, fyrrum leik-
maður Newcastle og Arsenal, segir að
Andy Cole hafa sprungiö út hjá
Manchester síðan Eric Cantona hætti
hjá félaginu. Hann segir að Teddy
Sheringham og Cole nái sérlega vel
saman í framlínunni.
-GH
Eyja
íþróttir
Kjartan Antonsson, knattspyrnumaður úr Breiða-
bliki er á leið til íslandsmeistara ÍBV og sam-
kvæmt heimildum DV verður líklega gengið frá því i
í dag.
Kjartan er 21 árs og hefur verið einn efnilegasti varn-
armaður landsins undanfarin ár. Hann hefur leikið 23
leiki í efstu deild með Breiðabliki en misst nokkuð úr 1
vegna meiðsla og náms í Bandaríkjunum. Kjartan á enn I j
fremur að baki 33 leiki með yngri landsliðum íslands.
Eyjamenn hafa þegar samið við Kristin Lárusson úr Stjöm-
unni til tveggja ára og mæta greinilega sterkir til leiks í sumar.
-VS
Auðun með þrjú
tilboð frá Sviss
- og Kongsvinger hefur mikinn áhuga
Auðun Helgason, knatt-
spymumaður úr Leiftri, hefur
fengið tilboð frá þremur sviss-
neskum félögum, Zúrich,
Young Boys og Lugano.
Auðun lék sex síðustu leiki
Neuchatel Xamax í svissnesku
1. deildinni fyrir áramótin og
stóð sig mjög vel. Liðinu
mistókst að komast í átta liða
úrslitin um meistaratitilinn og
hætti af þeim sökum við að
semja við Auðun til lengri
tíma.
Nú vilja Zúrich, sem komst í
átta liða úrslitin, og Young Boys og Lugano,
sem urðu í tveimur efstu sætum 2. deildar
fyrir áramót og spila ásamt Xamax og fimm
liðum í viðbót um fjögur sæti í 1. deild, fá
Auðun til sín.
„Það er mjög spennandi kostur að vera
áfram í Sviss. Zúrich væri góður kostur og
áhugi þeirra byggist eflaust
á því að ég átti minn besta
leik með Xamax gegn þeim.
Young Boys vann 2. deildina
mjög örugglega fyrir ára-
mótin og er gamalkurm-
ugt 1. deildarlið og Luga-
no virðist á uppleið
líka. Ég ætla að gefa
mér einhvern tíma til
að taka ákvörðun um
hvað ég geri,“ sagði
Auðun við DV í gær-
kvöld.
Noregur í bakhöndinni
Þá vill norska félagið Kongsvinger
líka frá varnarmanninn til sín. „Ég á
von á formlegu tilboði þaðan en Sviss
er þó vænlegri kostur að mínu mati,“
sagði Auðun Helgason.
-VS
Arsenal og Boro áfram
Arsenal vann West Ham, 1-2, í Lundúnaslag í átta liða úrslitum enska deildabikarsins
í knattspymu í gærkvöld. David Seaman, markvörður Arsenal, varði vítaspymu frá
John Hartson áður en Ian Wright og Marc Overmars komu Arsenal í 0-2.
Samassi Abou minnkaði muninn fyrir West Ham en það dugði ekki til.
Middlesbrough vann Reading, 0-1, með marki frá Craig Hignett. Hin-
ir tveir leikir átta liða úrslitanna fara fram í kvöid. Liverpool mætir
Newcastle og Ipswich leikur við Chelsea. -VS
Haraldur í Skallagrím
Haraldur Hinriksson, knattspymumaður úr
ÍA, gekk í gær til liðs við 1. deildarliö SkaUa-
gríms. Haraldur, sem hefur leikið 57 leiki
með ÍA í efstu deild, hefur leikið með þess-
um tveimur félögum til skiptis og spilaði
síðast með Borgnesingum árin
1994-1995. -VS
Tekur Þorvaldur
boðinu frá Öster?
- þrjú íslensk liö bíöa spennt
■ ■■ ■ ■■ ■
Minden vi
fleiri þýsk félög með landsliðsmanninn hjá Essen i sigtinu
Patrekur Jóhannesson,
landsliðsmaðurinn
sterki sem leikur meö
Essen í þýsku 1.
deildinni í hand-
É knattleik, er kom-
inn með tilboð í
hendurnar frá 1.
deildarliði Minden
sem vill fá hann í sínar rað-
ir fyrir næsta keppnistímabil.
Samningur Patreks við Essen rennur út
i vor og DVhefur heimildir fyrir þvi að
nokkur þýsk lið séu með hann í sigtinu.
Þar má nefna íslendingaliðið Wuppertal og
Gummersbach.
Essen er lika með í baráttunni en for-
ráðamenn liðsins vilja ganga til samninga
við Patrek sem fyrst um að hann verði
áfram hjá félaginu. Patrekur hefur leikið
sérlega vel með Essen í síðustu leikjum.
Hann skoraði fyrir skemmstu 12 mörk gegn
Gummersbach og skoraði 6 mörk og átti
fínan leik þegar Essen gerði jafntefli gegn
Massenheim um síðustu helgi. Um næstu
helgi mun mæða mikið á Patreki en þá
mætir Essen hinu sterku liði Kiel.
Minden eöa Essen
Samkvæmt heimildum DV þá gengur
Patrekur annaöhvort í raðir Minden eða
gerir nýjan samning við Essen. Mikill
metnaður er hjá forráðamönnum Minden
að tefla fram sterku liði á næsta keppnis-
tímabili en fyrirhugaðar eru talverðar
breytingar á liðinu fyrir næsta timabiL
Sænski landsliðsmaðurinn Robert Hedin
hættir og tekur við þjálfarastöðunni hjá St.
Otmar, liði Júlíusar Jónassonar, og franski
landsliðsmaðurinn Stéphane Stoecklin er
búinn að semja við félag í Japan. Þá gæti
sænski landsliðsmaðurinn Magnus Ander-
son verið á forum frá félaginu.
í ljósi þessa er Minden í leit að sterkum
leikmönnum til að fylla skarð þessara
manna og er Patrekur efstur á blaði.
-GH
Frjálsíþróttamenn
hafa oftast
hampað styttunni
Frjálsíþróttamenn hafa oftast hampað styttunni eftirsóttu
sem fylgir sæmdarheitinu íþróttamaður ársins.
Frá því Samtök íþróttafréttamanna útnefndu í fyrsta sinn
íþróttamann ársins árið 1957 hafa frjálsíþróttamenn 20 sinn-
um hlotið þennan eftirsótta titil.
Vilhjálmur Einarsson þrístökkvari hlaut titilinn fimm sinn-
um, sonur hans, Einar Vilhjálmsson spjótkastari, þvívegis og
sömuleiðis kúluvarparinn Hreinn Halldórsson. Þrjár greinar
koma svo jafnar í öðru sæti á eftir frjálsum, handknattleikur,
knattspyma og sund, en íþróttamenn úr níu íþróttagreinum
hafa hlotið titilinn íþróttamaður ársins. Hér til hliðar sést úr
hvaða íþróttagreinum íþróttamaður ársins hefur komið og ár-
tölin eru inni í súlunum.
-GH
20
'56
'57
'58
'59
'60
'61
'65
'67
'70
'76
'77
'79
'82
'83
'85
'88
'92
'95
'96
Frjálsar
íþróttir
íþróttamaður
ársins
- frá 1956 til 1997 -
'64 '73 '62 3
'68 '74 '69
'71 '75 . '72 '78 1 1 1
'89 '84 '86 '80
'97 '87 '91 '81 '66 '90 '93
Hand- knattlelkur Knattspyrna Sund Kraft- lyftlngar Körfu- knattlelkur Júdó Hesta- íþróttir
'94
Þolfimi
ESS9
Patrekur Jóhannesson gæti verið á
leið til Minden eftir þetta
keppnistímabil.
Heimsbikarinn í svigi annaö kvöld:
ísland á tvo
keppendur í
fyrsta skipti
- árangur Kristins tryggir Arnóri sæti
Kristinn bestur
í siðari umferð
- og varö Qórði á Evrópubikarmóti
Kristinn Björnsson varð
fjórði í Evrópubikarnum
í gær.
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson,
knattspyrnumaður frá Akureyri, hefur
ekki enn svarað tilboði sænska úrvals-
deildarliðsins Öster. Þar dvaldi hann
við æflngar fyrir jólin eins og áður hef-
ur komið fram.
„Ég hef ekki ákveðið mig enn og það
er erfitt því það eru margir góðir kost-
ir í boði,“ sagði Þorvaldur við DV í
gærkvöld. Hann varð þriðji marka-
hæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar í
sumar, skoraði 8 mörk fyrir Leiftur.
Ólafsfirðingar vilja ólmir halda Þor-
valdi. Eyjamenn sækjast eftir því að fá
hann til sín og sama er að segja um
Valsmenn. Þessi þrjú félög bíða spennt
eftir niðurstöðunni varðandi Öster, en
líklegast virðist þó að hann fari til Sví-
þjóðar.
-VS
Herra Island á stórmótinu
Enn bætast við athyglisverðir keppendur á stórmót ÍR í frjálsum íþróttum
þann 24. janúar. Einn kom úr óvæntri átt í gær þvi Herra ísland 1997, Reyn-
ir Logi Ólafsson, hefur þegið boð ÍR-inga um að taka þátt. Reynir, sem hefur
hlaupið 100 metra á 10,97 sekúndum, tekur þátt í 50 metra hlaupi. -VS
Blcntd í polca
Deborah Compagnoni frá ítallu
varð í gær hlutskörpust í stórsvigi
kvenna á heimsbikarmóti í Bormio á
Ítalíu. Þetta var níundi sigur hennar
i röð. Martina Ertl, Þýskalandi, varð
önnur og Alexandra Meissnitzer,
Austurriki, þriðja.
Herman Maier frá Austurríki sigr-
aði í stórsvigi karla á heimsbikar-
móti i Austurríki í gær. ítalinn Al-
berto Tomba varö annar og Rainer
Salzgeber frá Austurríki þriðji.
Maier var að vinna sinn fjórða
heimsbikarsigur á timabilinu og
hann er efstur að stigum í samanlögö-
um greinum.
Alberto Tomba var í áttunda sæti
eftir fyrri umferðina en í þeirri síöari
tók hann á öllu sem hann átti og það
skilaði honum I annað sætið. Tomba
var ánægður með árangur sinn en
hann lenti sem kunnugt er upp á
kant við forráðamenn alþjóða skíða-
sambandsins um síðustu helgi þegar
hann neitaði að fara síðari ferðina í
svigkeppninni i Slóveníu.
Lazio malaði granna sína í Roma,
4-1, i fyrri leik liðanna í 8 liða úrslit-
um ítölsku bikarkeppninnar i knatt-
spyrnu í gær. Boksic, Jugovic, Man-
cini og Fuser skoruðu fyrir Lazio en
Balbo fyrir Roma.
-GH/VS
Island á í fyrsta skipti tvo keppendur á
heimsbikarmóti á skíöum annað kvöld. Þá
fer fjórða mót vetrarins fram í Schladming í
Austurríki og Kristinn Bjömsson og Arnör
Gunnarsson verða báðir á meðal keppenda.
Árangur Kristins, sem er áttundi í stiga-
keppninni í svigi, tryggir Arnóri þetta sæti.
Kristinn hefur fengið rásnúmer 30, einu
hærra en síðast, og heldur sér því í fyrsta
ráshópnum. Þar eru þrjátíu stigahæstu sam-
anlagt á þessu tímabili og í fyrra. Arnór
verður væntanlega með eitt af hæstu rás-
númerunum en búast má við um 70 kepp-
endum á mótinu.
Tiu efstu rásnúmerin í Schladming annað
kvöld hafa eftirtaldir: Thomas Sykora,
Thomas Stangassinger, Finn Christian Jag-
ge, Sebastian Amiez, Alberto Tomba, Tom
Stiansen, Kjetil Andre Aamodt, Kiminobu
Kimura, Ole Christian Furuseth og Michael
von Grúnigen.
-VS
Kristinn Björnsson hafnaði i
fjórða sæti i Evrópubikarmóti í
svigi sem fram fór í Kranjska Gora
í Slóveníu í gær.
Kristinn var fjórði eftir fyrri
ferðina en náði besta tímanum í
þeirri siðari, einu sinni sem oftar.
Það kom honum þó ekki upp um
sæti því efstu menn voru það jafnir.
Richard Gravier frá Frakklandi
sigraði en hann fékk 70/100 úr sek-
úndu betri tima en Kristinn. Andrej
Miklavc frá Slóveníu varð annar,
Benjamin Reich frá Austurríki
þriðji og fimmti varð síðan æfinga-
félagi Kristins, Mika Marilla frá
Finnlandi.
Þess má geta að Miklavc verður
með rásnúmer 14 á heimsbikarmót-
inu í Schladming annað kvöld og
Reich varð heimsmeistari unglinga
í fyrra og hefur unnið fjögur Evr-
ópubikarmót I vetur.
Haukur Arnórsson og Arnór
Gunnarsson voru báðir á meðal
þátttakenda en féllu báðir í fyrri
ferðinni.
-VS
Arnór Gunnarsson
keppir ásamt Kristni í
heimsbikarnum annaö
kvöld.
NBA-körfuboltinn í nótt:
Skellur hjá Houston
Houston fékk sinn versta skell á
tímabilinu þegar liðið steinlá fyrir
sprEeku liði develand með 30 stiga mun
Indiana-Phoenix .............80-81
Miller 15, Best 13, Mullin 11-
Chapman 18, Mcdyess 16, Robinson 15.
Cleveland-Houston...........100-70
Anderson 19, Person 15, Kemp 14 -
Drexler 18, Willis 12, Ellie 9.
Vancouver-LA Lakers ........87-100
Reeves 24, Rahim 21, Mack 11 -
Shaq 25, Jones 22, Fox 16.
Chicago-Boston ..............90-79
Jordan 19, Kukoc 19, Rodman 9 -
Mercer 20, Walker 18, Mccarty 11.
Dallas-Denver ...............109-90
Scott 28, Finley 20, Davis 20 -
Jackson 17, L.Ellis 15, Washington 15.
Utah-Philadelphia.............98-95
Malone 21, Hornacek 21, Stockton 16 -
Iverson 27, Coleman 16, Weatherspoon 14.
Seattle-Charlotte............102-81
Williams 20, Payton 18, Ellis 12 -
Divac 25, Rice 19, Armstrong 9.
Sacramento-LA Clippers .... 105-89
C. Williamson 29, Richmond 19, Dehere 10
- Rogers 18, Murray 17. Barry 12.
Dallas tókst loks að innbyrða
sigur eftir 15 leiki í röð án sigurs en
Denver hefur nú tapað 14 leikjum í
röð.
Shaquille O’Neal var sterkur í liði
LA Lakers I sínum þriðja leik eftir
að hafa verið lengi frá vegna
meiðsla. Shaq skoraði 25 stig og tók
14 fráköst.
Tony Kukoc skoraði 17 af 19
stigum í siðari hálfleik gegn Boston
sem lengi vel hélt í við meistara
Chicago sem unnu sinn 11. sigur í
síðustu 12 leikjum. -GH
Ásgeir Sigurvinsson, frægasti knatt-
spymumaður landsins, er kominn í
United. Þó ekki í Manchester United
heldur í hið landsfræga félag Lunch
United. Ásgeir hefur mætt á nokkrar
æfmgar hjá Lunch og þar hefur hann
sýnt gamla góða takta líkt og hann
gerði með landsliðinu og Stuttgart.
Ottmar Hitzfeldt, sem gerði Dort-
mund að Evrópumeisturum í knatt-
spymu í vor, hefur kveðið niður þær
sögusagnir að hann sé aö gerast
tæknilegur ráðgjafl hjá spænska stór-
liðinu Barcelona.
Michel Platini, fyrrum landsliös-
maður Frakka í knattspymu og for-
seti skipulagsnefndar fyrir HM í
Frakklandi i sumar, spáir Brasilíu-
mönnum heimsmeistaratitlinum.
Platini nefnir aö auki flmm aðrar
þjóðir sem möguleika eiga á að vinna
titilinn. Það em Frakkar, Argentinu-
menn, ítalir, Þjóðvejar og Englend-
ingar.
Basile Boli, fyrmm landsliðsmaöur
Frakka, hefur neyðst til að leggja
skóna á hilluna, 31 árs gamall. Boli
hefur ekki jafnað sig eftir að hann
rakst á samherja í leik með Mónakó
gegn Leeds árið 1995 og þjáist stöðugt
af höfuðverkjum. -GH/VS
$
NBA-DEILDIN
Scottie Pippen, leikmaður Chicago
Bulls, er væntanlegur i liö meistara
Bulls eftir tvær vikur ef allt gengur
upp.
Endurkomu Pippens kann þó að
seinka. Hann hefur ekki enn getaö
hafið æfingar á fullu með liöinu eftir
uppskurð sem hann gekkst undir í
nóvember.
Vernon Maxwell, sá kunni bakvörð-
ur, er kominn á fullt í NBA, eftir
nokkra fjarvem. Maxwell leikur með
Orlando en hann gerði garðinn
frægastan hjá Houston Rockets.
Maxwell verður þó væntanlega ekki
lengi hjá Orlando. Hann skrifaði und-
ir 10 daga samning hjá Orlando á dög-
unum. Áður var hann hjá SA Spurs
en félagið endurnýjaði ekki samning
við hann fyrir yfirstandandi leiktið.
Mikil meiösli lykilmanna htjá nú lið
Orlando. Bakverðimir Penny Hard-
away og Nick Anderson em til að
mynda báðir meiddir og eiga enn
nokkuð í land.
-SK
Bland * i P oka
Gústaf Bjarna-
son, landsliðsmað-
ur í handknattleik,
var á gamlársdag
útnefndur íþrótta-
maður Hauka fyrir
árið 1997.
Rúnar Alexand-
ersson, fimleika-
maður úr Gerplu,
var útnefndur
íþróttamaður
Kópavogs 1997 á
uppskeruhátíð
íþróttaráðs bæjar-
ins laust fyrir ára-
mótin.
Þórður Emil
Ólafsson, kylfing-
ur úr Golfklúbbn-
um Leyni, var í
gærkvöld kjörinn
íþróttamaður árs-
ins 1997 á Akra-
nesi. Þórður varð
Islandsmeistari
karla og var út-
nefndur kylfingur ársins 1997.
Leik KA og Breiöabliks í 1. deild
karla í handknattleik, sem fram átti
að fara annað kvöld, hefur verið
frestað um óákveðinn tíma.
Mótanefnd HSÍ frestaði öllum leikj-
um umferðarinnar nema leik KA og
Breiðabliks vegna þátttöku KA-
manna í Evrópukeppninni. Þegar ís-
lenska landsliðið var valið um ára-
mótin fór stjóm Breiöabliks fram á
það við mótanefnd að félagið sæti við
sama borð þar sem Elvar Guðmunds-
son, markvörður Blika, var valinn i
landsliðið.
Nœsta umferö í 1. deild karla verður
leikin miðvikudaginn 14. janúar en
þá spila Breiðablik-ÍR, iBV-Viking-
ur, Fram-Afturelding, Stjarnan-HK,
FH-KA og Valur-Haukar.
8-liða úrslitin í bikarkeppni HSÍ 1
karlaílokki heflast í kvöld með leik
Fylkis og HK. Á laugardag leika
Grótta/KR-Valur og Afturelding-ÍBV
og á sunnudag er leikur Fram og
Hauka.
í kvennaflokki eru þrir leikir í bik-
arkeppninni á laugardaginn. Stjarn-
an-Valur, FH-Víkingur og Hauk-
ar-ÍBV og á sunnudaginn leika
Grótta/KR og Fram.
Bikarkeppnin í blaki hefst á föstu-
dagskvöldið. Þá leika í 8-liða úrslitum
karla KA-b gegn KA-a og lið Nató á
Keflavikurflugvelli mætir Stjöm-
unni. Sindri og Þróttur N. leika síðan
á laugardag en Þróttur R. og Is mæt-
ast 21. janúar.
Bikarkeppni kvenna í blaki hefst á
laugardag með leik Sindra og Þróttar
N. á Hornafirði. Víkingur mætir
Þrótti R. á þriðjudag, Nató og ÍS leika
fóstudaginn 16. janúar og loks Völs-
ungur og KA sunnudaginn 18. janúar.
Jón Þór Andrésson, markahæsti
leikmaður Leifturs 1995, hefur tekið
knattspyrnuskóna fram á ný og æflr
á fullu með Ólafsfiröingum. Jón Þór
hefur ekkert getað spilað í tvö ár
vegna meiðsla.
Björn Jakobsson knattspyrnumaður
er genginn til liðs við KR á ný eftir að
hafa leikið með ÍBV í tvö ár. Björn er
19 ára varnarmaður og fékk fá tæki-
færi með ÍBV í sumar.
-GH/DVÓ/VS
t