Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1998, Page 18
18
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998
Sviðsljós
DV
Don Johnson:
Yfirgaf 18 ára stúlku
vegna 72 ára konu
Stórhrifinn af
þýskum mat
Leonardo DiCaprio, leikarinn
ungi sem fer meö aðalhlutverk-
ið í ástar- og stórslysamyndinni
Titanic, hefur fimdið nýja ást í
lífinu, þýskan mat, einkum pyls-
ur og súrkál. „Mér finnst þýsk-
ur matur alveg æðislegur," seg-
ir leikarinn i viðtali við þýskt
tímarit.
Don Johnson er sagður hafa skipt
um kærustu enn einu sinni. í þetta
sinn vekja skiptin meiri athygli en
/• oft áður því hann á að hafa yfirgef-
ið hina 18 ára Jodie O’Keefe og snú-
ið sér að 72 ára gamalli konu, Den-
ise Hale. Sjálfúr er Don 47 ára.
Don og Denise voru fyrst fest á
filmu saman í ágúst síðastliðnum
þegar þau voru gestir í brúðkaupi
vinar þeirra. Síðan hafa þau sést
reglulega saman í ýmsum veislum.
Don hafði þó áður sýnt Denise ,
sem er ein ríkasta konan í Los Ang-
eles, aödáun sína. í apríl gaf hann
henni demantsnælu í afmælisgjöf
sem sögð er hafa kostað á aðra millj-
ón króna. Á þeim tíma töldu menn
að hann væri trúlofaður Jodie.
Ástarlíf Dons hefúr verið skraut-
legt að undanfomu. Hann giftist
^ Melanie Griffith 1976 en hjónaband-
ið varaði ekki lengi. Eftir skilnað-
inn var Don í langri sambúð með
leikkonunni Patty D’Arbanville sem
hann eignaðist son með. Árið 1989
gengu Don og Melanie í hjónaband
á ný og eignuðust dótturina Dakota.
Hjónabandinu lauk 1995 þegar Mel-
anie varð ástfangin af Antonio
Banderas sem nú er eiginmaður
hennar.
Don leitaði huggimar hjá hverri
konunni á fætur annarri. ímars í
fyrra kvaðst hann loksins hafa
fundið konu sem skildi hann og sem
hann ætlaði að kvænast. Hin út-
valda var hin unga Jodie. Hún lék
dóttur Dons í sjónvarpsmynda-
flokknum Nash Bridges.
Blaðafúlltrúi leikarans fullyrðir að
samband Dons og Denise sé einung-
is platónskt.
Denise er þrígift. Hún erfði stórfé
við lát síðasta eiginmanns sins sem
átti keðju stórverslana. Einn
eiginmanna Denise var faðir Lizu
Minnelli.
Skilnaðurinn
fyrir hæstarétt
Bandaríska leikkonan Kirstie
Alley, sem íslenskir sjónvarpsá-
horfendur kannast við sem
Rebekku úr Staupasteini, og
fyrrum eiginmaður hennar, Ric-
hard Parker, hafa ákveðið að fá
úrskurð hæstaréttar Maineríkis
í skilnaðarmáli þeirra. Kirstie
vill að sameiginlegum eigum
þeirra hjóna verði skipt sam-
kvæmt lögum Maine þar sem
þau áttu lögheimili. Rikki vill
hins vegar að skiptingin fari
fram í Kalifomíu þar sem þau
dvöldu flestum stundum. Ekki
er búist við úrskurði hæstarétt-
ar Maine fyrr en eftir nokkrar
vikur.
Travolta skipti
um hlutverk
John Travolta má þó eiga það
að hann er heiðarlegur gagnvart
sjálfúm sér og öðrum sem lista-
maður. Hann gerir sér engar
grillur um hvað hann getur og
hvað ekki, eins og best sést á því
hvaða hlutverk hann tók að sér
í nýjustu mynd Costa-Gavras,
Mad City. Þar átti Travolta upp-
haflega að leika blaðamann.
Honum fannst hann þó ekki
geta gert neitt nýtt fyrir hlut-
verkið og sosum ekkert heldur
fyrir hlutverk húsvaröarins sem
Dustin Hoffman átti að fara
með. En eftir langt símasamtal
við Dustin ákvað John að taka
húsvörðinn að sér.
Don Johnson ásamt vinkonu sinni, Denise Hale. Hún er ein ríkasta konan f
Los Angeles.
Hiö stórkostlega óperuhús í Sydney í Ástralfu veröur miöpunktur borgarinnar næstu vikurnar, eins og þáö sosum ávalit er. Þessa dagana er haldin mikil há-
tíö f borginni. Af þvf tilefni veröur óperuhúsiö iýst upp meö þessum fallegu bláu Ijósum frá þvf skyggja tekur og fram á næsta morgun. Lamparnir sem gefa
þessa fallegu bláu birtu eru þrjátfu og upphaflega hannaöir til aö hægt sé aö leika krikket aö kvöldlagi. Sfmamynd Reuter
Gleymdi dótturinni
á sveitakránni
Shaun Ryder, söngvarinn í
Black Grapes, er þekktur fyrir að
vera djammari. Og það sannaðist
rækilega um daginn. Þá var kapp-
inn á kránni Wagon and Horses
fyrir utan Manchester ásamt vin-
um sínum, eiginkonunni Oriole
og dótturinni Coco sem er 4 ára.
Eftir þriggja klukkustunda
drykkju ákvað hópurinn að yfir-
gefa staðinn. Þegar liðið var farið
fundu starfsmenn kráarinnar litla
og hrædda stúlku.
Einn starfsmannanna sagði í
viðtali við blaðið Mirror að stúlk-
an hefði sagst heita Coco og að
pabbi hennar héti Shaun. Reynt
var að hafa upp á rokkstjömunni
með aðstoð leigubílastöðva.
Eftir hálfa klukkushmd birtist
svo Shaun. Hann hafði uppgötvað
að eitthvað vantaði.
Söngvarinn sagði nýlega í viðtali
að það mikilvægasta í lifinu eftir
fæðingu dótturinnar væru fjöl-
skylduböndin.
Kærasti Viktoríu
hneykslaði þjóna
Viktoría Kryddpía var á dögunum
á finum veitingastað með kærastan-
um sínum, fótboltahetjunni David
Beckham sem leikur með Manchest-
er United.
Matarvenjur fótboltakappans fóra
fyrir brjóstið á þjónunum, að því er
erlend slúðurblöð greina frá. Hann
bað nefnilega um tómatsósu með
lambasteikinni.
Viktoría var heldur ekkert
skemmtileg, að mati þjónanna.
Erfitt var að gera henni til geðs því
hún sendi þá tvisvar til baka með
salatið sem hún pantaði.