Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1998, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998
19
5
I>V
Verkalýösfélag Húsavíkur:
Hvetur til verk-
falls sjómanna
DV, Akureyri:
Aðalfundur Sjómannadeildar
Verkalýðsfélags Húsavíkur sam-
þykkti að hvetja sjómenn til að
standa vörð um réttindamál sín og
sýna samstöðu í verki með því að
samþykkja að fara í verkfall 2.
febrúar nk. verði ekki búið að ná
fram samningum fyrir þann tíma.
í ályktuninni segir að hafni sjö-
menn því að fylgja kröfum sínum
eftir af fullri hörku yrði það mikið
áfall fyrir sjómannastéttina og byði
hættunni heim, að útgerðarmenn
gengju enn lengra en orðið er að
skerða kjör sjómanna, þar sem eng-
um yrði hlíft, hvorki sjómönnum á
bátum, loðnuskipum, togurum eða
vinnsluskipum. Þá var í ályktun-
inni undirstrikað að koma þurfl í
veg fyrir að sjómannaafslátturinn
verði afnuminn.
-gk
T m
| \ l r ■■ í \ ' 1
Ellefu hundruð íslendingar nutu veðurblíðunnar á Kanaríeyjum um jól og áramót. Boðið er upp á hefðbundinn ís-
lenskan jólamat á sumum veitingastaðanna og kínverjar og rakettur springa eins og heima um áramótin. Örvar Krist-
jánsson harmóníkuleikari heldur uppi fjörinu á íslendingabarnum og greinileg íslensk áhrif sjást víða enda landinn
búinn að stunda staðinn i þrjá áratugi og allar eyjarnar nánast frihöfn. Myndin er tekin á áramótgleði íslendinganna
og það er Fjóla Magnúsdóttir í Antikhúsinu sem vinkar gleðilegt ár. Ljósm.: G.T.K.
Slökkvilið Akureyrar:
Fleiri útköll
DV, Akureyri:
Bann við veiðum milli
lands og Vestmannaeyja
Slökkvilið Akureyrar var kall-
að út 121 sinni á síðasta ári sem
er 21 sinni oftar en árið áður. í
aðeins einu tilfelli var um stór-
bruna aö ræða þegar mjólkurhús
og Qós brunnu á bænum Leyn-
ingi í Eyjafjarðarsveit i apríl.
Af útköllum slökkviliðsins
voru 86 án þess að um eld reynd-
ist vera að ræða þegar að var
komið og var ástæða útkallanna
t.d. í 52 tilfellum grunur um eld.
Af útköllum þar sem um eld var
að ræða var 16 sinnum eldur í
rusli, sinu og mosa og 6 sinnum í
íbúðarhúsi.
Slökkviliðið á Akureyri fór í
1000 sjúkraútköll á síðasta ári,
þar af 190 utanbæjar. -gk
Ber að nýskrá
nýjar bifreiðar
í samræmi við gildandi EES-
samning ber öllum aðildarlönd-
um að nýskrá nýjar fólksbifreið-
ar með sambærilegum hætti
samkvæmt evrópsku samræmis-
vottorði frá og meö 1. janúar
1998.
Vottorð þetta innifelur hvorki
upplýsingar um framleiðsluár
né árgerð ökutækja og skráning
þessara atriða fellur þar með
niður. Verður því framvegis
miðað við fyrsta skráningardag
sem aðalviðmiðun um aldur
ökutækja eins og gert er í flest-
um öðrum Evrópulöndum.
-RR
Sjávarútvegsráðuneytið hefur gef-
ið út reglugerð um bann við veiðum
milli lands og Vestmannaeyja.
Bannið tók gildi 1. janúar sl. og tek-
ur til notkunar allra veiðarfæra.
Samkvæmt reglugerðinni eru
veiðar með öllum veiðarfærum
bannaðar á tilgreindu svæði. 1 frétta-
tilkynningu frá ráðuneytinu segir að
reglugerðin sé sett til þess að koma í
veg fyrir skemmdir á vatnsleiðslum
og rafstrengjum sem þar liggja. Sams
konar ákvæði voru í lögum frá 1976
um veiðar í flskveiðilandhelgi Is-
lands sem féllu úr gildi um áramót-
in. I lögum sem leystu lögin af hólmi
er hins vegar gert ráð fyrir að kveð-
ið sé á um slík veiðibönn til að koma
í veg fyrir skemmdir á neðansjávar-
strengjmn í sérstökum reglugerðum
og er þessi reglugerð þvi gefin út seg-
ir í fréttatilkynningunni. -RR
Hafdís Inga Karlsdóttir hlaut 1. verðlaun í jólagetraun DV 1997. Hafdfsi Ingu
voru afhent verðlaunin á dögunum og þau voru ekki af verri endanum. Hún
hreppti glæsilegt Sony-sjónvarpstæki og Panasonic- myndbandstæki frá
Japis, að verðmæti tæplega 160 þúsundir króna. DV-mynd BG
____________________________Fréttir
Suðurpólsfarar:
Margar hættur
í ferðinni
- segir Ólafur Örn Haraldsson
„Það urðu vissulega nokkur
minni háttar áföll en við höfðum
fulla stjórn á aðstæðum allan tim-
ann sem er að sjálfsögðu gríðar-
lega mikilvægt í svona ferð. Það
leyndust margar hættur í ferð-
inni, sprungusvæði, hætta á veik-
indum og kali. Þá var veörið okk-
ur erfitt lengst af. En það er mjög
Verðbréfaþing íslands:
ánægjulegt að hafa náð þeim
áfanga að komast á pólinn," sagði
Ólafúr Örn Haraldsson, þingmað-
ur og suðurpólsfari, þar sem
hann var staddur í Patriot Hills-
búðunum á Suöurskautslandinu í
gær ásamt syni sínum, Haraldi
Erni Ólafssyni, og Ingþóri
Bjarnasyni. -RR
Nýjar upplýsingareglur
Um áramótin tóku gildi nýjar
reglur um viðvarandi upplýsinga-
skyldu útgefenda skráðra verðbréfa
á Verðbréfaþingi íslands. Stjórn
þingsins samþykkti reglurnar 19.
des. sl. Þær eru settar til að sam-
ræmi sé milli hérlendra reglna og
tilskipana Evrópusambandsins sem
gilda á Evrópska efnahagssvæðinu.
Þá er markmið þeirra að ákvæði
séu skýrari og aðgengilegri en áður
og bætt sé úr þeim vanköntum sem
hafa sýnt sig á eldri reglum.
í frétt frá Verðbréfaþinginu segir
að veigamesta breytingin varði
reglubundna upplýsingagjöf um árs-
reikninga og milliuppgjör og ber
skráðum hlutafélögum framvegis að
tilkynna með minnst 15 daga fyrir-
vara í hvaða viku upplýsingar úr
ársreikningi verða birtar en með 7
daga fyrirvara þegar um er að ræða
hálfs árs milliuppgjör. Fréttatil-
kynningar skulu framvegis verða ít-
arlegri en almennt hefur tíðkast og
framsetningin verður samræmd.
í nýju reglunum er ákvæði nú
skýrara en áður um skyldu félaga
til að greina frá því þegar búist er
við að afkoman verði verulega frá-
brugðin því sem áður hafði komið
fram, t.d. í rekstraráætlun eða nýj-
ustu afkomutölum.
Þá eru ennfremur í nýju reglun-
um skýrari ákvæði um hvemig til-
kynna skuli innherjaviðskipti,
hlutafélögum er skylt að tilkynna
um viðskipti með eigin hlutabréf,
sex mánaða milliuppgjör skulu vera
með svonefndri könnunaráritpn
endurskoðanda.
Með nýju reglunum er að mati
stjórnenda Verðbréfaþings íslands
stigið veigamikið skref í átt til heilda-
rendurskoðunar á reglum þingsins
sem eru að grunni til frá 1992. -SÁ
Borgarstjórinn í Reykjavík
Reykvíkingar!
Hirðing jólatrjáa hefst í dag, miðvikudaginn 7.
janúar. Setjið jólatrén út fyrir lóðamörk og verða
þau þá fjarlægð.
Nú vil ég hvetja ykkur til að hirða upp leifar af
skoteldum og blysum í nágrenni ykkar.
Höldum borginni okkar hreinni!
Með nýárskveðju.
Borgarstjórinn í Reykjavík
Dansskóli Heíðars Ástvaldssonar er stoltur að kynna:
An-ltkEI Falaki
Danshöfundur fyrir:
Jacki Graham,
Cut'n'Move,
Boyzone, Aqua
ogfleiri
og fleiri.
flöeins í janúar!
GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ!
_ am
Innritun og upplýsingan í síma
552 0345 kl. 13-19 daglega
*
tc
Á