Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1998, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998 33 "V
★ K
24 kyijanyndir
v
/ /
úúú Tarzan í trjánum
Tarzan er á
leiðinni
niður úr
trjánum. Hann
hefur haft hægt
um sig í tæp 20
ár en nú i
sumar eru
væntanleg-
ar tvær
myndir
um
þessa há-
væru
ffumskógahetju. í Tarzan and
the Lost City (öðru nafni Tarz-
an and Jane) leikur Casper Van
Dien (úr Starship Troopers)
apamanninn í nýrri
spennumynd. Tarzan snýr
heim til Afríku með eigin-
konu sinni, Jane (Jane
March), og bjargar hinni
týndu borg, Opar, úr
höndum málaliða.
Nýjasta Disneyteikni-
myndin, Tarzan, kemur út á
svipuðum tíma og Ijá eftir-
taldir leikarar persónunum
raddir: Tony Goldwyn (Tarz-
an), Alex D. Linz (ungi Tarz-
an), Minnie Driver (Jane),
Rosie O’Donnell (Terk), Glen
Close (Kala), Nigel Haw-
thorne (Porter) og Lance
Frægastur allra sem leikið
hafa Tarzan er Johnny
Weissmuller, sem hér er á
myndinni ásamt Maureen
O’Sullivan sem lék Jane.
Henrickson (Kerchak). Nánast ekkert
er vitað um söguþráð Disneymyndar-
innar en hún á án efa eftir að treysta
stöðu Tarzans í Hollywood næstu
árin.
Vinsældir George of the Jungle á
síðasta ári komu flestum á óvart en
þó mátti þegar árið 1996 sjá merki
þess að frumskógamyndir yrðu nýj-
asta æðið í kvikmyndaheiminum. Það
ár var heimildamyndinr Tarzan: The
Legacy of Edgar Rice Burroughs
sýnd í sjónvarpi og á eftir fylgdi sjón-
varpsmyndin Tarzan: The Epic Ad-
ventures.
Fyrsti Tarzanleikarinn var vöðva-
búntið Elmo Lincoln sem sveiflaði sér
inn á hvíta tjaldið í þöglu myndinni
Tarzan of the Apes frá 1918. Frægast-
ur Tarzanleikara er þó án efa Johnny
Weissmuiler (1904-1984) sem varð
margfaldur Ólympíumeistari í sundi
á leikunum 1924 og 1928. Hann lék
Tarzan í 12 myndum frá 1932 til 1948
en merkastar þeirra eru Tarzan, The
Ape Man (1932), Tarzan and his Mate
(1934) og Tarzan Finds a Son (1939).
Ekkert var sparað í gerð þeirra og all-
ir ættu að reyna að sjá fyrstu tvær
myndimar en þær eru m.a. helstu fyr-
irmyndir George of the Jungle.
Maureen O’Sullivan leikur Jane en í
fyrstu myndinni er henni rænt af
Tarzan og kýs hún að dvelja með hon-
um fremur en að snúa til unnusta
síns. í þeirri næstu hefúr Jane lagað
sig að frumskógalífmu. Sem bresk
húsmóðir á blómaskeiði heimsveldis-
ins býr hún í tréhúsi og er með gór-
illu sem þjón. Þegar Weissmuller var
orðinn of gamall til þess að leika Tarz-
an sneri hann sér að öðrum frum-
skógamyndum og var t.d. vinsæll sem
Frumskóga-Jim á sjötta áratugnum.
Vinsældir Weissmullers komu á
stað skriðu Tarzanmynda og reyndu
keppinautamir að velja leikara sem
líkt og Weismuller voru íþróttahetjur.
Larry „Buster“ Crabbe (1907-1983)
var Ólympiumeistari í sundi á leik-
unum 1932 þar sem hann sló gamalt
met Weissmuliers. Árið 1933 lék hann
í kvikmyndinni King of the Jungle
sem er stæling á Tarzanmyndum
tímabilsins. Sama ár lék hann í Tarz-
an the Fearless en Crabbe sneri sér þó
fljótt að vestrum og spennumyndum.
Annar þekktur íþróttamaður, sem
glímdi við
Tarzanhlut-
verk, var kúlu-
varparinn
Bruce Bennett
(1909-) sem
keppti á
Ólympíuleik-
unum í Los
Angeles 1932.
Árið 1935 lék
hann titilhlut-
verkið í The
New
Adventures of
Tarzan og
þremur árum
síðar aftur í
Tarzan and
the Green
Goddess. Þótt
Bennett hafi
Gömul auglýsingaplaggöt fyrir
Tarzanmyndir.
verið ágætur leikari eru flestar mynd-
ir hans nú gleymdar.
Seinni tíma Tarzan
Aðrir eftirminnilegir Tarzanleik-
arar eru Lex Barker (1919-1973) og
Gordon Scott (1927-) sem voru heistu
túlkendur hlutverksins á sjötta ára-
tugnum. Baxter lék í fyrstu Tarzan-
mynd sinni 1949, Tarzan’s Magic Fo-
untain, en á eftir fylgdu fjórar aðrar,
m.a. Tarzan and the Slave Girl (1950)
og Tarzan and the She-Devil (1953).
Barker var um tíma
kvæntur leikkonunni
Lönu Tumer. Gordon
Scott lék í nokkrum
ömurlegum Tarzan-
myndum; þeirri
fyrstu á móti eigin-
konu sinni Veru
Miles, Tarzan’s
Hidden Jungle, 1955.
Á eftir fylgdu Tarzan
and the Lost Safari
(1957) og Tarzan’s
Fight for Life (1958).
Það var ekki fyrr en í
síðustu tveimur
myndunum sem
Scott sýndi hvað í
honum bjó því Tarz-
an’s Greatest
Adventure (1959) og
Tarzan the Magni-
flcent (1960) eru báðar afbragðs
skemmtun. Scott endaði kvikmynda-
feril sinni á Ítalíu þar sem hann lék i
sögulegum og fremur lélegum skylm-
ingamyndum.
Með Barker og Scott lýkur gullöld
Tarzanmyndanna sem staðið hafði í
tæpa þrjá áratugi. Frá sjöunda ára-
tugnum má nefna fótboltastjömuna
Mike Henry sem lék titilhlutverkið í
Tarzan and the Valley of Gold (1966),
Tarzan and the Great River (1967) og
Tarzan and the Jungle Boy (1968).
Þessar myndir era að engu leyti eftir-
minnilegar og það sama má segja um
myndir sjónvarpsstjömunnar Rons
Elys sem lék Tarzan í tveimur mynd-
um árið 1970. Á áttunda áratugnum
hvarf Tarzan með öllu af sjónarsvið-
inu en 1975 gerðu Belgar og Frakkar
teiknimyndina Shame of the Jungle
sem er skopstæling af eldri Tarzan-
myndum og þótti svo gróf að hún var
bönnuð bömum innan 16 ára. Hin
raunverulega skömm frumskógarins
var þó Tarzan, the Ape Man (1981)
með Bo Derek sem Jane og tötrag-
hypjunni Miles O’Keeffe í titilhlut-
verkinu. Frá sama tíma er hin ágæta
Greystoke: The legend of Tarzan,
Lord of the Apes (1984) þar sem Chri-
stopher Lambert leikur apamanninn.
Greystoke er að mörgu leyti ólík fyrri
Tarzanmyndum og þótt frumskógar-
rómantíkin búi yfir fólsku raunsæi
spillir það myndinni á engan hátt.
-GE
!*■
TOH 2 0
í Bandaríkjunum
- aösókn dagana 25.-28. desember Tekjur í milljónum dollara og helldartekjur
mestu aösókn og ef sami gangur veröur
áfram eiga endar eftir aö ná saman en fyr-
irfram voru þaö aöeins bjartsýnustu menn
sem töldu þaö mögulegt en talið er aö
tekjur af aögangseyri aö Titanic þurfi aö
vera minnst 350 milljónir dollara til aö
kostnaði sé náö. Þær eru þegar komnar
yfir 157 milljónir dollara og þaö aöeins í
Bandaríkjunum en þessi miida kvikmynd
James Camerons er sýnd viö mikla aösókn um allan heim. Engar stórar nýjar mynd-
ir sáu dagsins Ijós um síöustu helgi og því er listinn nánast óbreyttur. Kvikmynd
Stevens Spielbergs, Amistad, sem margir telja aö veröi aöalkeppinautur Titanics
þegar óskarsverölaunaafghendingin fer fram, fer hægt og stgandi upp listann, er
sýnd í mun færri kvikmyndhúsum en Titanic.-HK
Tekjur Helldartekjur
1. (1) Tltanlc 33.315 157.467
2. (2) Tomorrow never Dies 13.798 - 92.408
3. (3) As Good As It Gets 12.217 40.722
4. (4) Mouse Hunt 8.418 40.021
5. (6) Scream 2 7.284 85.492
6. (5) Jackle Brown 7.264 27.164
7. (11) Amlstad 4.477 26.714
8. (7) An Amerlcan Warewolf in Parls 4.441 20.056
9. (8) Flubber 4.403 83.110
10.(10) Mr. Magoo 4.103 16.616
11.(13) Home Alone 3 3.829 24.251
12.(9) The Postman 3.533 14.327
13.(12) For Rlcher or Poorer 3.126 24.453
14.(15) Good Wlll Huntlng 2.338 7.510
15.(14) Anastasla 2.125 53.042
16.(16) Deconstructlon Harry 2.081 4.904
17.(9 Wag the Dog 1.195 1.417
18.(20) L.A. Confldental 0.577 38.296
19.(17) The Ralnmaker 0.576 44.417
20.(14) Mldnlght In the Garden of Good and Evil 0.493 23.316 p^a
Titanic enn á
fullri siglingu
Þriðju vikuna í röö er Titanic meö lang-
Sambíóin - George of the Jungle
Með apaskít á tánum
Velgengni George of the Jungle
kom flestum á óvart. Um síðustu
áramót voru tekjumar 105 millj-
ónir dala í Bandaríkjunum og 140
milljónir í heiminum öllum og
myndin fer án efa yfir 200 mUlj-
óna dala markið. Frumskóga-Ge-
org er endurgerð af vinsælum
teiknimyndaflokki sem bar sama
nafn og var sýndur í bandarísku
sjónvarpi á síðari hluta sjöunda
áratugarins. Þættirnir urðu víst
aldrei fleiri en 17 en þeir hafa ver-
ið endursýndir það oft að flest
börn vestan hafs hafa séð þá oftar
en einu sinni.
Georg (Brendan Fraser) er fjar-
lægur frændi Tarzans og líkt og
fyrirmyndin er hann alinn upp í
frumskóginum af öpum. Hann
gengur undir sama nafni og er
ýmist kallaður „stóri hvfti apinn“
eða „konungur frumskógarins”.
En ólíkt Tarzan er Georg auli sem
aldrei hefur lærst að sveifla sér
tré úr tré. Stór hluti grínsins felst
í því að sýna Georg lemjast utan í
trjástofna og falla hálfrotaðan til
jarðar. Söguþráðurinn er skop-
stæling á fyrstu Tarzanbókinni.
Ursulu Stanhope (Leslie Mann) er
bjargað af Georg þegar hún villist
í frumskóginum og hann flytur
hana í trjáhús sitt þar sem talandi
górillan Api (rödd John Cleese) er
ráðsmaður. Ursula er skrækróma
Jane og sjálfsagður maki fnnn-
skógaklaufans Georgs. Blikur eru
þó á lofti því unnusti Ursulu, ill-
mennið Lyle Van de Groot (Thom-
as Haden Church), er staðráðinn í
því að bjarga henni úr klóm apa-
mannsins og nýtur þar aðstoðar
tveggja veiðimanna (Abraham
Benrubi og Greg Cruttwell) sem
hafa i hyggju að færa Apa til Las
Vegas og raka inn peningum með
sýningum á talandi górillu.
George of the Jungle var mér
nokkur vonbrigði. Handritið var
stefnulaust og brandaramir sí-
felld endurtekning þess sama. í
George of the Jungle rifst sögu-
maðurinn við persónumar, breyt-
ir um skoðun í miðri senu o.s.frv.
Hann er þó ekki eins frumlegur og
ætla mætti því ágengir sögumenn
hafa verið notaðir á svipaðan hátt
í eldri grinmyndum, s.s. hjá Mel
Brooks. Þaðan koma þó bestu
brandarar myndarinnar. Brendan
Fraser og Leslie Mann skila hlut-
★★
verkum sínum með sóma. Fraser
túlkar Georg sem vitgrannan en
hjartahlýjan aula og Mann sýnir
að hún er ágæt gamanleikkona.
Þótt ég sé ekki á þeirri skoðun að
heimskulegar myndir geti verið
góðar barnamyndir verður það að
viðurkennast að bömin á sýning-
unni skemmtu sér konunglega.
Sjö ára frænda mínum þótti hún
frábær. Mér, sem er svolítið eldri,
er velgengni þessarar meðalmynd-
ar algjör ráðgáta.
Leikstjóri: Sam Weisman. Aðal-
hlutverk: Brendan Fraser, Leslie
Mann, Thomas Haden Church,
Richard Roundtree, John Cleese,
Abraham Benrubi og Greg
Cruttwell. Guðni Elísson