Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1998, Blaðsíða 26
26
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998
Afmæli
Sólveig Ólafsdóttir
Sólveig Ólafsdóttir, lögfræðingur
og framkvæmdastjóri Sambands ís-
lenskra auglýsingastofa, Bræöra-
borgarstíg 15, Reykjavík, er fimm-
tug í dag.
Starfsferill
Sólveig fæddist í Stóragerði í Ós-
landshlíð í Skagafirði en ólst upp á
Siglufirði hjá fósturforeldrum
sínum, Ingólfi Kristjánssyni, f.
12.10. 1902, fyrrv. yfirtollverði á
Siglufirði, og k.h., Guðrúnu
Jónsdóttur, f. 9.8. 1900, d. 19.3. 1979,
húsmóður. Guðrún var móðursystir
Sólveigar.
Sólveig lauk stúdentsprófi frá VÍ
1968, embættisprófi í lögfræði frá HÍ
1982, hlaut Frank Boas-styrk til
framhaldsnáms í lögfræði við
Harvard Law School í Cambridge og
lauk þaðan LLM-prófi 1983.
Sólveig var ritari skólastjóra VÍ
og á lögmannsstofu í Reykjavík
1968-71, vann við RÚV 1971-75 og
hjá fjármálaráðuneytinu 1975-76.
Hún var fulltrúi í safha- og lista-
deild menntamálaráðuneytisins
1983-84 og hefur verið fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
auglýsingastofa frá 1984.
Sólveig sat í stjóm Starfsmanna-
félags RÚV og í samninganefnd BS-
RB 1971-75, í stjórn Kven-
réttindafélags íslands
1972-81 og formaður þess
1975-81, var varaformað-
ur íslensku UNESCO-
nefndarinnar 1983-85, sat
í höfundarréttamefnd
menntamálaráðuneytis-
ins 1983-87 og í yfirstjóm
85-nefndar 1984-86 sem
skipulagði aðgerðir
kvenna 1985 á lokaári
kvennaáratugar S.Þ.
Fjölskylda
Sólveig giftist 8.5. 1971 Jónatan
Þórmundssyni, f. 19.12. 1937, pró-
fessor i lögum við HÍ. Hann er son-
ur Þórmunds Erlingssonar, f. 3.1.
1904, bónda á Stóra-Botni í Hval-
firði, síðar birgðavarðar í Reykja-
vík, og k.h., Oddnýjar Gróu Krist-
jánsdóttur Skagfjörð, f. 10.6. 1915,
húsmóður.
Sonur Sólveigar og Jónatans er
Þórmundur, f. 3.4.1972, nemi í sagn-
fræði við HÍ, en kona hans er Sóley
Halldórsdóttir, nemi við KHÍ, og
eiga þau eina dóttur, Sigurveigu, f.
26.11. 1997.
Systkini Sólveigar eru Anna
Sólveig Simha, f. 4.8. 1940,
starfsmaður sendiráðs íslands í
París; Hólmfríðiu- Sólveig
Ólafsdóttir, f. 19.9. 1941,
starfsmaður hjá
Verslunarmannafélagi
Suðumesja, búsett í
Garði; Jón Leifúr
Ólafsson, f. 2.4. 1943,
vélsmiður i Bergen í
Noregi.
Foreldrar Sólveigar vom
Ólafúr Halldór Jónsson, f.
25.12. 1907, d. 21.7. 1949,
bóndi og búnaðarráðu-
nautur Búnaðarsam-
bands Skagfirðinga í Stóragerði í
Óslandshlíð í Skagafirði, og Ásta
Jónsdóttir, f. 10.10.1909, d. 30.6.1975,
húsfreyja í Stóragerði og síðar mat-
ráðskona hjá Landssíma íslands í
Reykjavík.
Ætt
Ólafur Halldór var bróðir Jóns á
Hofi, föður Pálma í Hagkaupi. Ann-
ar bróðir Ólafs Halldórs var Pálmi,
faðir Elínar blaðamanns. Ólafur var
sonur Jóns, b. á Nautabúi, bróður
Herdísar, móður Helga Hálfdanar-
sonar skálds. Bróðir Jóns var Hann-
es, faðir Pálma rektors og afi
Hannesar Péturssonar skálds. Jón
var sonur Pétin-s, b. í Valadal,
Pálmasonar. Móðir Pétin-s var Ing-
unn Ólafsdóttir, systir Ingibjargar,
ættmóður Bólstaðarhlíðarættar.
Móðir Ólcifs Halldórs var Sólveig
Eggertsdóttir Jónssonar, pr. á Mæli-
felli, Sveinssonar, læknis i Vík í
Mýrdal, Pálssonar. Móðir Jóns var
Þórunn Bjamadóttir, landlæknis
Pálssonar, og Rannveigar Skúladótt-
ur, landfógeta Magnússonar. Móðir
Eggerts var Hólmfríður, systir Sól-
veigar á Gautlöndum. Hólmfríður
var dóttir Jóns, ættföður Reykja-
hlíðarættarinnar Þorsteinssonar.
Móðir Sólveigar var Sigurveig Ingi-
mundardóttir, b. á Þómstöðum í
Grímsnesi Sturlusonar og Katrínar
Guðmundsdóttur.
Ásta var systir Ingibjargar, móö-
ur Jóns Kristjánssonar alþm. Ásta
var dóttir Jóns, b. á Marbæli i Hofs-
hreppi, Erlendssonar, b. í Gröf,
Jónssonar, b. að Litlu-Brekku, Þor-
steinssonar. Móðir Erlends var
Hólmfríður Erlendsdóttir, b. að
Vatni á Höfðaströnd, Jónssonar.
Móðir Jóns á Marbæli var Ingibjörg
Jónsdóttir, b. í Gröf, Jónssonar rika
á Lambanes-Reykjum.
Móðir Ástu var Anna Rögnvalds-
dóttir, b. í Brekkukoti, Þorleifsson-
ar og Guðrúnar Jónsdóttur frá
Hreppsendaá.
Sólveig Ólafsdóttir.
Áslaug Sigurþórsdóttir
Áslaug Sigurþórsdóttir, húsmóðir
og starfsmaður við garðyrkjustöð-
ina að Melum, til heimilis að Suður-
brún 1, Flúðum, varð fertug á
sunnudaginn vár.
Starfsferill
Áslaug fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún lauk grunnskóla-
prófi í Reykjavík, stundaði nám á
hússtjómarbraut við lýðháskóla í
Noregi og einnig við MH um skeið.
Auk húsmóðurstarfa vinnur hún
nú við garðyrkjustöðina að Melum
á Flúðum
Fjölskylda
Áslaug giftist 9.5. 1980 Hannibal
Kjartanssyni, f. 13.4.1958, hitaveitu-
stjóra á Flúðum. Hann er sonur
Kjartans Júlíussonar og Elínar
Hannibalsdóttur.
Böm Áslaugar og Hannibals em
Hrafn Hannibalsson, f. 19.7. 1978,
nemi, búsettur á Flúðum; Elín
Hannibalsdóttir, f. 27.6.1980, nemi á
Flúðum; Guðrún Edda Hannibals-
dóttir, f. 30.4.1983, nemi; Karl Ágúst
Hannibalsson, f. 30.4. 1983, nemi;
Rakel Hannibalsdóttir, f. 9.1. 1988,
nemi.
Systkini Áslaugar em Gunnar
Sigurþórsson, f. 13.4. 1959, garð-
yrkjubóndi í Laugarási; Sigriður
Hulda Sigurþórsdóttir, f. 5.4. 1963.
Foreldrar Áslaugar: Sigurþór B.
Gunnarsson og Guðrún Karlsdóttir,
hjúkrunarfræðingur í Reykjavík.
Jón Vídalín Sigurðsson
v Jón Vídalín Sigurðsson sjómaður,
Múlavegi 32, Seyðisfirði, varð átta-
tíu og fimm ára á sunnudaginn.
Starfsferill
Jón fæddist á Fáskrúðsfirði og
ólst þar upp. Hann byrjaði ungur til
sjós. Fjórtán ára þurfti hann síðan
að gerast fyi'irvinna móður sinnar
Fréttir
og yngri systkina er faðir hans lést.
Jón stimdaði sjómennsku nánast
allan sinn starfsferil en kom í land
1979 og flutti þá til Seyðisfjarðar.
Fjölskylda
Eiginkona Jóns er Sigrún Sigurð-
ardóttir, f. 10.10. 1916, verkakona.
Hún er dóttir Sigurðar Guðjónsson-
ar, útvegsbónda og verkamanns á
Dalvík, og Önnu Sigurðardóttur
verkakonu.
Stjúpdóttir Jóns er Gunnþórunn
Gunnlaugsdóttir, skrifstofúmaður á
Seyðisfirði, gift Hafsteini Sigurjóns-
syni og eiga þau fjögur böm.
Böm Jóns og Sigrúnar em Sigur-
bjöm Jónsson, kvæntur Hugrúnu
Ólafsdóttur og eiga þau þrjú böm;
Anna G. Jónsdóttir og á hún þrjú
böm.
Bræður Jóns: Illugi Sigurðsson,
sem lést 1976; Bjami Guðjón Sig-
urðsson, tvíburabróðir Jóns, búsett-
ur á Fáskrúðsfirði.
Foreldrar Jóns vom Sigurður
Þórðarson og Ingibjörg Magnúsdótt-
ir en hún lést 1973.
DV
Til hamingju með afmælið 7. janúar
95 ára
Auðumn Kr. Karlsson, Ásabraut 2, Keflavik. Hann tekur á móti gesúun í Víkinni í Keflavík laugard. 10.1. milli kl. 17.00 og 19.00.
80 ára
Magnús Jónsson, Strandgötu 91, Eskifirði.
75 ára
Anna H. Aspar, Ægisgrund 6, Skagaströnd. Pálína Gunnlaugsdóttir, Skúlagötu 40 B, Reykjavík.
70 ára
Þóra Björgvinsdóttir, Álfalandi 7, Reykjavík.
60 ára
Ema Guðný Þórðardóttir, Hrauntúni 8, Keflavík.
50 ára
Axel Alan Jones, Vogsholti 11, Raufarhöfii. Samúel Einarsson, Brautarholti 11, ísafirði.
40 ára
Ágústína Andrésdóttir, Merkjateigi 2, Mosfellsbæ. Áslaug Adda Sigurðardóttir, Dalalandi 6, Reykjavík. Bjami Þór Ingvarsson, Vestmfold 21, Reykjavík. Björk Jóhannsdóttir, Rauðalæk 21, Reykjavík. Friðrik Friðriksson, Efstasundi 9, Reykjavik. Guðný Adolfsdóttir, Heiðarbraut 31 C, Keflavík. Jóhann Bogason, Krosshömrum 5, Reykjavík. Jóhann Kristjánsson, Völusteinsstræti 10, Bolungarvík. Magný G. Þórarinsdóttir, Sunnubraut 11, Akranesi. Ólafur Björgvin Guðmundsson, Hafiiarstræti 9, Akureyri. Róbert Gunnarsson, Löngubrekku 17, Kópavogi. Svanlaug Rósa Finnbogadóttir, Hagamel 48, Reykjavík. Vilborg Ámundadóttir, Sæviðarsundi 102, Reykjavik. Þórður Stefánsson, Birkigrund 11, Selfossi.
Sigluflörður:
. Sparisjóðurinn 125 ára
Haukur Jónasson, formaður stjórnar, og Björn
Jónasson sparisjóösstjóri.
DV, Siglufirði:
Elsta peningastofnun landsins,
Sparisjóður Siglufjarðar, fagnaði 125
ára afrnæli á nýársdag. Af því tilefni
var opið hús í sparisjóðnum þar sem
öllum bæjarbúum var boðið til kafíi-
drykkju og mættu tæplega 300 manns.
Fleira verður væntanlega gert síðar á
árinu i tilefni af þessum tímamótum.
Sparisjóður Siglufjarðar er í eigin
húsnæði í hjarta bæjarins að Túngötu
3. Flutti hann þangað 1966 og stækkaði
‘síðan húsnæðið og endurbætti 1986.
Eignir sjóðsins nema nú 1,1 milljarði
og starfsmenn em 8.
Það var 1. janúar 1873 sem sparisjóð-
urinn var upphaflega stofhaður. Hét þá
Spamaðarsjóður Siglufjarðar. Tilgang-
ur hans var eins og segir í stofiisam-
þykktum að taka á móti fé og eigum
efnalítils fólks og stuðla þannig að
spamaði og ráðdeild.
Aðalhvatamenn að stofnun vom
Einar Guðmundsson, bóndi á Hraun-
um, og Snorri Pálsson sem varð fyrsti
forstöðumaður hans.
Auk hans hafa fjórir
menn stjómað spari-
sjóðnum, þeir séra
Bjami Þorsteinsson,
Sigurður Kristjánsson
frá 1921-62. Kjartan
Bjamason frá 62-1979
og Bjöm Jónasson frá
1979.
Stjóm sparisjóðsins
skipa nú Hinrik Andr-
ésson, Kristján L. Möll-
er, Ólafúr Marteinsson,
Óli J. Blöndal og Hauk-
ur Jónasson sem er for-
maður stjómarinnar.
Svo skemmtilega vildi
til að á nýársdag vom 30 ár liðin síðan
Bjöm Jónasson fór að vinna sem bók-
ari hjá Sparisjóðnum. Bjöm sagði í
samtali að hvað starfsemi bankans
Starfsfólk sparisjóösins. DV-myndir Örn
varðaði væra honum efst í huga þær
miklu breytingar sem orðið hefðu á
þessum árum. Það hefði öll tækni ger-
breyst, svo ekki væri minnst á fjar-
skipti. Sagðist hann muna vel þegar
allir vextir vora handreiknaðir.
„Þá var nú mikið að gera um ára-
mótin og næstu daga á eftir. Menn
tóku sér frí á nýársdag en urðu svo að
vinna alveg jafnt hvort sem var virkur
dagur eða sunnudagur til að hafa allt
klárt. En með núverandi tækni þurf-
um við ekki að hafa lokað fyrsta virk-
an dag eftir áramót. Þetta er bara hefð
frá þeim tíma áður en tæknin tók við,“
sagði Bjöm. -ÖÞ