Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1998, Side 28
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998
>
á
k
*
y
Veðurguðirnir
mætast í Davíð
„Rétt eins og þrjár guðfræði-
legar stærðir renna
saman og mætast á
leyndardómsfullan
hátt í einum Guði
kristinna manna,
þá mætast hér á
landi allir veð-
urguðirnir i ein-
um manni, Davíð
Oddssyni."
Guðmundur Andri Thorsson
rithöfundur, í Degi.
Sjúbídúbert
„Því miður var þriðji kaflinn
dálítið groddalegur og poppaður
og hljómaði tónlistin þá eins og
verk eftir einhvem Sjúbídúbert."
Jónas Sen í tónlistargagnrýni, í
DV.
Mótmælir krónískt öllu
„Minnihlutinn hefur mótmælt
krónískt öllu sem gert hefur verið.
Hann mótmælir bæði hækkun og
lækkun gjaldskrár Rafveitunnar."
Alfreð Þorsteinsson borgarfull-
trúi, í Degi.
Ummæli
Snautt gullgrafara-
samfélag
„Við búum í andlega örsnauðu
guilgrafarasamfélagi, einhverskon-
ar háþróuðu velferð-
arklondæk, þar sem
hugtök á borð við
náungakærleik og
samhjálp eru klúr-
yrði sem eiga eng-
an rétt á sér í póli-
tískri umræðu."
Árni Ibsen rithöf-
undur, í DV.
Verið þolinmóð
„Árangur af megrun kemur
ekki í ljós eftir viku eða mánuð
heldur þegar kemur að næstu jól-
um.“
Anna Elísabet Ólafsdóttir mat-
vælafræðingur, í Morgunblað-
inu.
Trujillo, forseti Dóminíska lýð
veldsins, lét reisa yfir 2000 stytt
ur af sér.
Sjálfsdýrkun
einræðisherrans
Einræðisherrar eru duglegir við
að minna þjóðina á það hver það
er sem ræður. Sá sem á heimsmet
í að láta reisa myndastyttur af
sjálfum sér var forseti Dóminíska
lýðveldisins, dr. Rafael Leonidas
Blessuð veröldin
Trujillo y Molina (1891-1961). í
mars árið 1960 voru rúmlega 2000
styttur af honum í landinu. Tru-
jillo lét ekki styttur nægja í sjálfs-
dýrkuninni. Hæsta íjall landsins
var nefnt Pico Trujillo (heitir í dag
Pico Duarte), eitt hérað í landinu
hét Trjuillo og annað Trujillo Vald-
es og meðan hann réð ríkjum lét
hann skíra höfuðborgina Trujill-
oborg (Ciudad Trujillo). Eftir daga
hans var fyrra nafn hennar, Santo
Domingo de Guzman, tekið aftur
upp. Þann 30. mai 1961 var Trjuillo
myrtur úr bílafyrirsátri og er sá
dagur nú hátíðisdagur í
Dóminíska lýðveldinu og almenn-
ur frídagur.
Óskar Finnsson matreiðslumeistari:
Mikill sprengur
„Þetta byrjaði þannig að Hagkaups-
menn hringdu í mig um verslunar-
mannahelgina þar sem ég var staddur
á Seyðisfirði og sögðust vilja fá fund
með mér. Ég sagðist verða þama í fá-
eina daga og ekki geta hreyft mig.
Þeir létu sér það ekki líka og vildu fá
fund strax þar sem þeir væru að
hugsa um að gefa út matreiðslubók
sem ætti að koma á jólamarkaðinn.
Þegar ég svo hitti Hagkaupsmenn
sögðu þeir mér að þeir vildu gefa út
matreiðslubók með vissum skilyrð-
um, samt bók sem ég og aðrir mat-
reiðslumenn á Argentínu gætu verið
stoltir af og bókin þyrfti að fara í
prentun í byrjun október. Þannig var
nú byrjunin á bókargerðinni og var
vinnán við gerð hennar mikill og
skemmtilegur sprengur," segir Óskar
Finnsson, einn höfunda metsölubók-
arinnar Veislubók Hagkaups sem var
allar vikur fyrir jól á toppi metsölu-
lista DV. Með honum við gerð bókar-
innar voru matreiðslumeistaramir
Ingvar Sigurðsson, Árni Þór Amórs-
son og Kristján Þór Sigfússon, kokk-
arnir í eldhúsinu á Argentínu.
Óskar segir að þeir félagar hafi
ekki beðið með hlutina heldur sest
strax niður og lagt línumar: „Það sem
við höfðum að leiðarljósi var að bókin
átti að notast af venjulegu fólki sem
vildi góðan mat. Þetta átti ekki að
vera hugarórar matreiðslumeistara
sem væri á per-
sónulegu trippi,
að gera uppskrift-
ir fyrir hina 228
matreiðslumeist-
arana á Islandi.
Við þrnítum að
vísu nokkrum
sinnum á vinnu-
ferlinu að bremsa
okkur af og segja
hver við annan að
við værum að búa
til bók sem fólk
ætlaði að nota.
Við lögðum mikla
vinnu í að breyta
og laga uppskriftir
og stílfæra þær að
heimilinu."
Óskar og félag-
ar luku bókinni á
réttum tíma en
þurftu að leggja á
sig óhemju vinnu
til að það tækist:
„Það má eiginlega segja að það sem
bjargaði þvi að við náðum að klára á
réttvun tíma var að við kokkamir vor-
um búnir að skipuleggja matarferð til
útlanda þannig að við urðum að klára
bókina áður en við fórum í þessa ferð.
Við byrjuðum því strax á öðmm degi
að fara á bókasöfn, náðum okkur í all-
ar bækur sem hafa verið gefnar út á
íslandi um mat,
Gestgjafann frá
upphafi og Vikuna
og allt sem í raun-
inni var tiltækt um
mat því við létum
okkur ekki nægja
bækur og blöð held-
ur fóram á Netið
þar sem hægt er að
finna uppskriftir I
milljónatali. Þetta
pældum við í gegn-
um og heimfærð-
um. í heildina má
segja að þetta hafi
verið miMu meiri
vinna heldur en við
gerðum okkur
grein fyrir í upp-
hafi. Vinnan var
um leið mjög
skemmtileg og við
eram þegar að
skoða hvort við get-
um gert aðra bók.“
Það má segja að helsta áhugamál
Óskars tengist vinnunni: „Ég hef
óskaplega gaman af því að borða góð-
an mat og veit ekkert betra en að fá
mér góðan og digran vindil eftir að
vera pakksaddur eftir góða máltíð."
Eiginkona Óskars heitir María Hjalta-
dóttir og eiga þau tvö böm.
-HK
Óskar Finnsson.
Maður dagsins
Myndgátan
Stafkrókur.
Öll liðin í 1. deild karla verða í
eldlínunni f kvöld og þar á með-
al Haukar og KA sem eigast við
á myndinni.
Fjöldi leikja í
handboltanum
í kvöld
Handboltinn fer á fulla ferð í
kvöld og er fjöldi leikja á dag-
skrá. Heil umferð verður leik-
in í 1. deild karla og er það
tólfta umferðin af tuttugu og
tveimur. Sá leikur sem verður
sjálfsagt mest spennandi er
íþróttir
viðm-eign Fram og Stjömunn-
ar i Framhúsinu, sem hefst kl.
20.30. HK-FH leika í Kópavogi,
á Akureyri leika KA-Breiða-
blik, í Mosfellsbæ Aftureld-
ing-Víkingur, ÍR-Valur í Ár-
bænum og í Hafnarfirði leika
Haukar-ÍBV.
Fjórir leikir eru í 1. deild
kvenna, kl. 18.30 leika í
Kaplakrika FH-Fram, Hauk-
ar-Grótta/KR í Hafnarfirði og
Vikingur-Valur í Víkinni. í
Vestmannaeyjum leika ÍBV-
Stjaman og hefst sá leikur kl.
20. Þrír leikir em í 2. deild
karla. Á Selfossi leika Sel-
foss-ÍH, á Seltjamarnesi
Grótta/KR-Fjölnir og að
Varmá í Mosfellsbæ leika
HM-Ármann þegar leik Aftur-
eldingar og Víkings lýkur.
Bridge
Sveit Roche græddi 18 impa á
þessu spili í fyrstu umferð Reykja-
vikurmótsins í leik sínum við sveit
Eimskips. Sagnir gengu þannig í
opnum sal, norður gjafari og AV á
hættu:
* Á7632
* DG105
* Á10
* 72
norður austur suður vestur
ísak María Helgi Steind.
1 * pass 2 4 4-f
5* 5 ♦ 6 * pass
pass dobl p/h
* AKD1
Tveggja spaða sögn Helga Sig-
urðssonar í suður neitaði opnun
og var yfirfærsla í lauf. Af þeim
sökum átti norður sjálfsagða 5
laufa sögn yfir 4 tíglum vestiu-s og
Helgi ákvað einnig að segja 6 lauf
við 5 tíglum þó að það væri að
vissu leyti skot í myrkri. María
þurfti að lyfta spaðaás til að
hnekkja þessum samningi en bjóst
eðlilega við því að tígulásinn héldi
slag í upphafi. Eftir þá byrjun var
lítið verk fyrir sagnhafa að fá 12
slagi. NS lentu í sagnmisskilningi
í lokuðum sal og dobluðu þrjá tígla
hjá AV. Þeim samningi er ekki
hægt að hnekkja og NS verða
reyndar að taka hjartastungu til
að halda sagnhafa í 9 slögum.
ísak Öm Sigurðsson