Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1998, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998
DV
Börn 5-10 óra sýna í Galleríi
Sævars Karls.
Pabbií
sparifötum
Gallerí Sævars Karl hefur
opnað í nýju húsnæði að Banka-
stræti 7. Þar er nú sýning á
myndum 1111 bama á aldrinum
5-10 ára. Yfirskrift sýningarinn-
ar er Pabbi í sparifótunum. Sum
bamanna em að halda sína
fýrstu sýningu, en mörg þeirra
hafa sýnt áður í leikskólum og
gmnnskólum og koma myndim-
ar alls staðar af landinu.
Gallerí Sævars Karls var opn-
að 1989 og hafa áttatíu listamenn
haldið sýningar þar og nokkrir
þeirra hafa sýnt oftar en einu
sinni. Markmiðið hefur verið aö
sýna og kynna framsækna núlif-
andi listamenn og mun það
veröa stefna þess áfram.
Sýningar
Ólafur Már sýnir
í Mosfellsbæ
Ólafur Már sýnir þessa dag-
ana myndverk sín á veitinga-
staðnum Álafoss Föt Best í Ála-
fosskvosinni, Mosfellsbæ. Á sýn-
ingunni em sautján verk, öll
unnin á síðasta ári. Myndefnið
er fólk á ferð í íslensku lands-
lagi. Sýningin er opin á af-
greiðslutíma veitingastaðarins
og stendur út janúar.
Stríðsstefna
NATÓ-ríkja
og þjóðernis-
leg efnahags-
stefna
í kvöld kl. 20 að Klapparstíg
20, 2. hæð, heldur Málfundafé-
lag alþjóðasinna málfund und-
ir yfirskriftinni Stríðsstefna
NATÓ-ríkjanna og þjóðemis-
leg efnahagsstefna.
ITC-deildin Korpa
Fundur verður í kvöld kl. 20
í safnaðarheimili Lágafells-
sóknar. Allir velkomnir.
Samkomur
Gigtarfélag íslands
Hópþjálfun byrjar í dag og
eru allir velkomnir. Þjálfunin
fer fram í húsi Gí að Ármúla
5 og vatnsþjálfunin í Sjálfs-
bjargarlaug í Hátúni.
Kynningardagar
í Gjábakka
í dag og á morgun verða
kynningardagar i Gjábakka
og þá verður sérstaklega ósk-
að eftir hugmyndum og ósk-
um frá eldri borgumm í Óska-
og hugmyndabankann sem er
alltaf opinn í Gjábakka. í dag
mun einnig Frístundahópur-
innn Hana nú og fleiri áhuga-
mannahópar kynna starfsemi
sína.
Kjarvalsstaðir:
Klarínetta, selló
og piano
Siguröur Ingvi Snorrason og Anna Guöný Guömundsdóttir eru flytjendur í
kvöld ásamt Bryndísi Höllu Gylfadóttur.
Dálítil él norðanlands
I kvöld verða haldnir tónleikar að
Kjarvalsstöðum. Á efnisskránni eru
þrjú tríó fyrir klarínettu, selló og pí-
anó. Hið fyrsta er eftir norska tón-
skáldið Jon Öivind Ness sem fædd-
ur er árið 1968, en við flutning
verksins njóta flytjendur styrks úr
Norræna tónleikasjóðnum (Fonden
fór nordiska konserter). Þá kemur
trió Beethovens op. 11 frá árinu
1798. Lokaverk tónleikanna er síðan
Plutöt blanche qu azurée eða Frem-
ur hvítt en heiðblátt eftir Atla
Heimi Sveinsson. Atli samdi verkið
Skemmtanir
i Danmörku sumarið 1976 og lýsir
það löngum, björtum og hlýjum
sumardegi á fjarlægri eyju - frá sól-
arupprás til sólaríags.
Flytjendur á tónleikunum, sem
hefjast kl. 20.30, em Sigurður Ingvi
Snorrason klarínettuleikari, Bryn-
dís Halla Gylfadóttir sellóleikari og
Anna Guðný Guðmundsdóttir pi-
anóleikari.
Um 700 km suður af landinu er
víðáttumikil 959 mb lægð sem hreyf-
ist hægt norður en 1022 mb hæð er
yfir Norðaustur-Grænlandi.
I dag verður norðaustanátt, yfir-
leitt stinningskaldi eða allhvasst en
hvassviðri á stöku stað. Allra aust-
ast verður súld eða rigning með
köflum. Á Norðurlandi verða dálítil
él, skúrir suðaustan til en skýjað
með köflum annars staðar. Hiti yfir-
leitt á bilinu 0 til 5 stig, kaldast
norðan til.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
norðaustan stinningskaldi eða aU-
hvasst og skýjað með köflum. Hiti 2
til 5 stig.
Veðrið 1 dag
Sólarlag í Reykjavík: 15.58
Sólarupprás á morgun: 11.09
Slðdegisflóð í Reykjavík: 13.47
Árdegisflóð á morgun: 02.28
Veðrið kl . 6 í morgun:
Akureyri sjókoma 1
Akurnes rigning 3
Bergsstaöir hálfskýjaó 1
Bolungarvík alskýjaö 2
Egilsstaóir alskýjaö 2
Keflavíkurflugv. léttskýjaó 2
Kirkjubkl. léttskýjaó 1
Raufarhöfn alskýjaö 2
Reykjavík léttskýjaö 2
Stórhöfði alskýjað 5
Helsinki þoka 1
Kaupmannah. þokumóöa 3
Osló léttskýjaö -6
Stokkhólmur -1
Þórshöfn rigning á síö. kls. 6
Faro/Algarve léttskýjaö 9
Amsterdam skýjaó 10
Barcelona heióskírt 7
Chicago súld 4
Dublin léttskýjaö 4
Frankfurt súld á síö. kls. 9
Glasgow skýjaö 5
Halifax snjóél -4
Hamborg rigning 5
Jan Mayen snjóél á síð. kls. -7
London léttskýjað 9
Lúxemborg alskýjaö 9
Malaga heiöskírt 8
Mallorca léttskýjaö 3
Montreal -6
París rigning 10
New York þokumóóa 13
Orlando alskýjaó 23
Nuuk léttskýjaö -2
Róm þokumóöa 8
Vín skýjaö 2
Washington rigning 17
Winnipeg þoka -12
Hálka og snjór á
Öxnadalsheiði
Á Vestfjörðum em hálkublettir á heiðum og
hálka á Eyrarfjalli í Djúpi. Hálkublettir em á leið-
inni um Bröttubrekku 1 Dali. Á Norðurlandi em
Færð á vegum
hálkublettir á Vatnsskcirði, hálka og snjór á Öxna-
dalsheiði. Á Norðausturlandi eru hálkublettir á
Mývatnsöræfum. Hálka og snjór er á Möðrudalsör-
æfum, Vopnafjarðarheiði og á Fagradal. Á Fjarðar-
heiði er skafrenningur, hálka er í Oddsskarði. Að
öðru leyti er góð færð á landinu.
Ástand vega
0 Steinkast
0 Hálka
Ófært
Snjóþekja
0 Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarkanir
Œ1 Þungfært © Fært fjallabílum
Helga og Heiðar
eignast dóttur
Litla stúlkan, sem er í fanginu
á föður sínum, fæddist 27. októ-
ber síðastliðinn. Hún var við
Barn dagsins
fæðingu 3400 grömm að þyngd
og mældist 49 sentímetra löng.
Foreldrar hennar eru Helga Há-
konardóttir og Heiðar Jónsson
og er hún þeirra fyrsta bam.
dagsd^
Krakkarnir í afmælisveislunni.
Stikkfrí
íslenska jólamyndin í ár er
skemmtileg fjölskyldumynd, Stikk-
frí, sem leikstýrt er af Ara Kristins-
syni. Stikkfrí segir frá ungri stúlku
sem langar mjög til að hitta föður
sinn. Hún ratar í margvísleg ævin-
týri ásamt vinkonu sinni áður en
hún nær athygli hans. Inn í sögu-
þráðinn fléttast pabbar, mömmur,
hálfsystur, hálfbræður, hálfpabbar,
hálfmömmur, næstum því frænkur,
gamlir pabbar og nýjar mömmur.
Með aðalhlutverk fara Bergþóra
Aradóttir, ellefu ára gömul, Freydís
Kristófersdóttir, tólf ára gömul, og
Bryndís Sæunn Sigríður Gunn-
laugsdóttir, tveggja ára gömul. Með-
al annarra leikara má nefna Hall-
Kvikmyndir
dóru Bjömsdóttur, Ingvar Sigurðs-
son, Maríu Ellingsen, Halldóru
Geirharðsdóttur, Þröst Leó Gunn-
arsson, Egil Ólafsson, Kristbjörgu
Kjeld, Eddu Heiðrúnu Backman og
Öm Ámason.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Stikkfrí
Háskólabíó: Titanic
Laugarásbíó: Lína langsokkur
Kringlubíó: George of the
Jungle
Saga-bíó: Aleinn heima 3
Bíóhöllin: Tomorrow Never
Dies
Bíóborgin: Starship Troopers
Regnboginn: Spiceworlds -
The Movie
Stjörnubíó: G.l. Jane
Á NÆSTA
SÖLUSTAÐ
EÐA
ÍÁSKRIFT
ÍSÍMA
550 5752
- 960 síður á ári -
fróðleikurogskemmtun
semlifirmánuðumog
árumsaman