Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1998, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1998, Blaðsíða 6
FÖSTUDAGUR 16. JANUAR 1998 Neytendur Vaxlita- blettir Flestir sem umgangast lítil böm vita að í hita leiksins hættir þeim til aö nota vaxliti allfrjálslega og stundum gríp- ur þau löngun til að gera um- hverfi sitt skrautlegra með slíkum litum. Allir sem reynt hafa vita að sápa og vatn vinnur illa á slík- um blettum og oft viröist sem litimir muni sitja fastir á veggjum og gólfum um aldur og ævi. Til er prýðileg aðferð til að hreinsa burt vaxlitabletti af veggjum en galdurinn felst i hreinsuðu bensíni. Það er bor- ið á blettinn með litlum bursta, til dæmis tannbursta. Með þessari ágætu aðferö hverfur mestur hluti vaxlitar- ins og afgangurinn er orðinn uppleystur og oftast vinnur hreinsilögur á því sem eftir stendur. Ef litagleði smáfólksins hef- ur náð hámarki á veggfóðri er nauðsynlegt að aðgæta í fyrstu hvort hreinsað bensín hefur áhrif á lit veggfóðursins. Ráðlegt er að gera tilraun á lítt áberandi stað, til dæmis á bak við kommóðu. Þá verður að gæta þess að nudda ekki of fast, hvort sem um veggfóður eða málaða fleti er aö ræða. Bruna- blettir Bmnablettir í teppum geta verið afar hvimleiðir og til mikillar óprýði. Sumir halda að það sé bara ekkert hægt að gera við slíkum blettum en því er öðm nær. Aðferöin er sú að fyrst er bletturinn nudd- aður með sandpappír þannig að sem mest af brunnum end- um hverfí. Að þvi loknu er gripiö til naglaskæra eða rak- vélablaðs og brenndir þræð- imir, sem eftir em, skornir varlega burt. Ef teppið er loðið að gerö og ekki mikið munstrað má bæta skaðann með því að ná í þræði annars staðar í teppinu, til dæmis úti í horni. Þræðira- ir em límdir með sterku lími og krefst þetta nokkurrar vandvirkni. GSM-símar: Geta valdið höfuðverk Undanfarið hefur átt sér stað mikil umræða um áhrif GSM-síma á heilsufar manna. Eins og í öðra þá sýnist sitt hverjum í þessum efnum og framleiðendur GSM-sima hafa flestir hafnað því að símarnir séu hættulegir eða geti valdið heilsu- tjóni. í rannsókn sem var gerð í Svíþjóð nýlega kemur fram að þeir sem nota GSM-síma í meira en klukkustund á dag kvarti gjarna undan höfuðverk, sljóleika og svima. Alþjóða heil- brigðisstofnunin hóf nýlega stóra rannsókn á áhrifum símanna en því miður er niðurstöðu ekki að vænta fyrr en að nokkrum árum liðnum. Höfuöheyrnartólin verja Hér á landi hefur ekki mikið bor- ið á kvörtunum vegna fyrrgreindra kvilla. Þó segist Gylfi Gylfason hjá Símabæ hafa orðið var við kvartan- ir undanfarið frá fólki sem notar símana stóran hluta dagsins. „Við höfum talsvert orðið varir við kvartanir sem em tengdar notk- un GSM-símanna. Þeir sem kvarta em flestir í þeirri aðstöðu að nota símana mikið á hverjum degi. Fólk talar gjama um höfuðverk sem það segist fá þegar líða tekur á daginn. Svo hef ég heyrt um eitt tilfeOi þar sem maður fékk verk í öxl en hann hafði jafnan geymt símann í brjóst- vasa,“ sagði Gylfi í samtali við DV. Hann sagði jafnframt að menn væru nú í auknum mæli farnir að nota höfuðheymartól til þess að verjast útgeislun frá loftneti símans. Höfuðheymartólin þykja einnig hentug til notkunar í bílum því með þeim getur ökumaðurinn haft báðar hendur á stýri á meðan hann tcdar í símann. Þau lönd sem gera miklar kröfur um öryggi í akstri hafa bann- að notkun farsíma í ökutækjum nema heymartól séu til staðar. Sams konar lög taka gildi í Dan- mörku með vorinu. DV hafði samband við nokkrar verslanir sem selja GSM-síma og spurðist fyrir um höfuðheyrnartól. Þau eru greinilega orðin almenn og virðast fást í þeim verslunum sem selja GSM-síma á annað borð. Verð Langar þig að lyfta þér upp... eitt kvöld í viku eða eitt laugardagssíðdegi í viku undir skemmtilegustu fyrirlestrunum í bænum og fyrir hófleg skólagjöld? Ef svo er þá er ekkert annað en að hringja og fá allar upplýsingar um mest spennandi skól- ann í bænum í dag. -Hringdu og fáðu allar upp- lýsingar sem þig langar að vita um þennan skemmtilega skóla. Við svörum í símann alla daga vikunnar kl. 14 til 19. Kynningarfundur á laugardag kl. 14. og á mánudags- og þriðjudagskvöld, kl. 20.30. A Sálarrannsóknarskólinn - Mest spennandi skólinn í bænum - Vegmúla 2 s. 561 9015 & 588 6050 Höfuöheyrnartól í bíl verja ekki einungis símnotandann fyrir geislun heldur auka þau öryggi ökumannsins til muna. DV-mynd Pjetur slíkra tóla er nokkuð mismunandi en þau ódýmstu kosta rétt rúmar 3.000 krónur. Verðið er i sumum til- vikum mun hærra og sérstakur búnaður fyrir bíla getur kostað allt að tuttugu þúsund krónum. -aþ Landssími íslands: Jólatilboðiö stendur - segir Samkeppnisráð Jólatilboð Landssímans hf. um ókeypis símakort í GSM-síma er ekki brot á samkeppnislögum að mati Sam- keppnisráðs. Landssíminn auglýsti að allir þeir sem keyptu GSM-síma á tímabilinu 10. desember-10. janúar fengju símakortið frítt en það kostar að öllu jöfnu rúmlega 2.000 krónur. Guðmundur Sigurðsson hjá Sam- keppnisstofnun sagði Símann hafa haft samráð við stofnunina áður en tilboð- ið var lagt fram og að engar athuga- semdir hefðu verið gerðar við það. Hins vegar hefði væntanlegur keppi- nautur Landssimans, íslenska farsíma- félagið, lagt fram kæra þar sem Sam- keppnisstofnun var beðin um að skera úr um hvort þessir viðskiptahættir brytu gegn samkeppnislögum. Guðmundur sagði að Samkeppnis- ráð hefði komist að sömu niðurstöðu og áður eftir að hafa kannað málin, að ekki væri um brot á samkeppnislögum að ræða. ■aþ Soðinn lax með appel- sínu- og sítrónusósu Hvað er betra en borða góðan fisk, svona mitt á milli jóla og þorra. Hér er uppskrift að soðnum laxi, en eins má nota smálúðu eða ýsu í staðinn fyrir laxinn. 750 g lax, smálúða eða ýsa 1 msk. appelsínubörkur, 100 mi appelsínusafi safi úr einni sítrónu 2 msk. laukur, fint skorinn 1 msk. steinselja 1 tsk. basilíkum 1/8 tsk. salt 150 ml mysa 150 ml vatn (Ef mysunni er sleppt em settir 300 mi af vatni og safi úr sítrónu.) Aðferð Skerið fiskinn í sneiðar. Setjið vatn og mysu á stóra pönnu og látið suðuna koma upp. Leggið fisksneið- amar á pönnuna, reynið að láta þær ekki snertast. Vatnið á pönnunni á að þekja helming fiskstykkjanna. Látið suðuna koma aftur upp og lækkið þá hitann. Þá er lok sett á pönnuna og fiskurinn látinn sjóða í u.þ.b. sex mínútur, eða þar til hann er tilbúinn. Meðlæti Blandið saman appelsínuberki, appelsínusafa, sítrónusafa, lauk, steinselju, basilíkum, myntu, salti og ólífuolíu. Gott er að setja sósuna í kmkku og hrista duglega. Sósuna má laga áður en sjálf eldamennskan hefst. Því næst er blaðsalat, eikarlauf, lollo rosso eða annað salat sem til fellur sett á fat. Helmingnum af sósunni er hellt yfir salatið og fiskinum þá raðað yfir. Nú er rest- inni af sósunni helit yfir fiskinn. Fallegt er að skreyta réttinn með rifnum appelsínuberki. Egill á Þjóðbraut Að undanfömu hafa verið nokkrar hræringar meðal fjöl- miðlafólks. Nú mun Egill Helgason, sjón- varpsfréttamað- ur á Stöð 2, vera að færa sig um set. Egill, sem verið hefur í erlendum fréttum, fer þó ekki langt því hann fer á Þjóðbraut Bylgjunnar að eigin ósk. I hans stað kemur Áslaug Pálsdóttir á Stöðina. Hún er stjómmálafræð- ingur og hefur undanfarið starf- að hjá Markaði og kynningu. Ás- laug mun vera nýgræðingur í fréttamennsku en reit mikla lokaritgerð í Háskólanum um stórútgerðarmenn og smábáta- eigendur... Kempur í stuði Leikrit Ólafs Jóhanns Ól- afssonar, Fjögur hjörtu, hefur slegið rækilega í gegn í Loftkastal- anum. Eftirspurn eftir miðum hefúr verið svo mikil að Hallur Helgason leik- stjóri hefur jafn- vel brugðið á það ráð að vera með tvær sýningar suma daga. Þar stíga á fjalimar gömlu kempurnar Bessi Bjamason, Rúrik Haraldsson, Gunnar Eyjólfsson, að ógleymdum Áma Tryggvasyni. Kappamir hafa sjálfir svo gaman af leikn- um að á dögunum höfðu áhorf- endur á oröi að það væri langt síðan menn hefðu sést skemmta sér jafh vel í leikhúsi... Geimverur við Jökul Jöklarar héldu fyrir skömmu geimveruhátíð við sporð Snæ- fellsjökuls. Til- efnið var að minnast þess að fyrir tveimur árum beið þar fjöldi manns komu fars utan úr geimnum sem erlendum áhugamanni hafði vitrast að hygðist lenda á jöklinum. Þá sást þó ekkert en húmoristinn Skúli Alexandersson, fyrrum þingmaður, taldi sig þó sjá dauft fjós á himni. Engin ljós sáust að þessu sinni nema ljós sjón- varpstökuliðs frá BBC sem var mætt á staðinn til að taka efni fyrir Channel 4. Heiðursgestur samkomunnar var geimveruvin- urinn Magnús H. Skarphéðins- son. Hann notaði tækifærið og lýsti Skúla fyrsta heiðursfélaga íslenska geimverufélagsins... Friður í kirkjunni Innan kirkjunnar er litið á sigur herra Karls Sigurbjöms- sonar í biskups- kjöri sem ósigur svartstakkanna. Opinn stuðning- ur þeirra við séra Sigurð Sigurðarson vígslubiskup er _ talinn hafa veikt _ hann mjög. Öðmm þræði er því einnig litið á herra Ólaf Skúla- son, fráfarandi biskup, sem sig- urvegara en hann þurfti stöðugt að kljást við innblásna andstöðu hinna svartklæddu réttrúnaðar- manna. Hann kann að brosa út í annað þegar hann lítur yfir svið- iö: Séra Flóki Kristinsson kom- inn í frakt milli Evrópulanda, vígslubiskupinn Sigurður gjörtapaði biskupskjöri, og séra Geir Waage einangraður í Reykholti og orðinn skotspónn friðarpostulans og orðháksins Ástþórs Magnússonar. Friður sé með yður öllum... Umsjón: Reynir Traustason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.