Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1998, Side 22
34
FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1998
Messur
Árbæjarkirkja: Guðsþjónusta kl. 11
árdegis. Bamaguðsþjónusta kl. 13. Allir
foreldrar velkomnir. Prestamir.
Áskirkja: Bamaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Kaffisala Safnaðar-
félagsins eftir messu. Kirkjubíllinn
ekur. Ámi Bergur Sigurbjömsson.
Breiðholtskirkja: Bamaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11. Jögvan
Purkhús prédikar. Barnakórinn syng-
ur. Kynning á starfi Gfdeonfélagsins.
Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Barnamessa kl. 11.
Fjölbreytt dagskrá i tali og tónum.
Guðsþjónusta kl. 14. Pálmi Matthías-
son.
Digraneskirkja: Messa kl. 11. Sunnu-
dagaskólinn á sama tíma. Prestur dr.
Sigurjón Ámi Eyjólfsson. Léttur máls-
verður eftir messu.
Dómkirkjan: Guösþjónusta kl. 11 við
upphaf samkirkjulegu bænaviktmnar.
Björgvin Snorrason prédikar. Sr. Hjalti
Guðmundsson þjónar fyrir aitari.
Bænaguðsþjónusta kl. 14. Prestur sr.
Hjalti Guömundsson. Bamasamkoma
kl. 11 í safnaöarheimilinu í umsjá Auð-
ar Ingu Einarsdóttir.
Elliheimilið Grund: Messa kl. 14.
Prestur sr. Lárus Halldórsson. Félag
fyrrverandi sóknarpresta.
Eyrarbakkakirkja: Bamaguðsþjón-
usta kl. 11. Sóknarprestur.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Ein-
söngur Inga Björg Stefánsdóttir. Barna-
starf á sama tíma. Prestamir.
Fríkirkjan 1 Reykjavík: Guðsþjónusta
kl. 14. Kór Frikirkjunnar í Reykjavík
syngur. Presur sr. Magnús B. Björns-
son.
Glerárkirkja: Fundur æskulýðsfélags-
ins er kl. 17. Takið eftir breyttum tíma.
Sr. Gunnlaugur Garðarsson.
Grafarvogskirkja: Bamaguðsþjónusta
kl. 11 í Grafarvogskirkju, Brúðukórinn
kemur í heimsókn. Barnaguösþjónusta
kl. 11 í Engjaskóla. Guðsþjónusta kl. 14
í Grafarvogskirkju. Sr. Sigurður Amar-
son prédikar. Prestamir.
Grensáskirkja: Bamasamkoma kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ólafur Jó-
hannsson.
Grindavfkurkirkja: Bamastarf kl. 11.
Víöihlíö kl. 12.30. Guðsþjónusta kl. 14.
Fermingarbörn aðstoða viö helgihaldið.
Fundur eftir guðsþjónustuna með for-
eldrum fermingarbarna um ferm-
ingarundirbúning og fermingardagana.
Hafnaríjarðarkirkja: Sunnudagaskól-
ar í kirkju Setbergsskóla og Hvaleyrar-
skóla kl. 11. Guðsþjónusta, fermingar-
börn sýna helgileik kl. 11. Prestur sr.
Gunnþór Ingason. Þjóðlaga tónlistar-
guðsþjónusta. Prestur sr. Þórhallur
Heimisson.
Hallgrímskirkja: Bamasamkoma og
messa kl. 11. Sr. Sigurður Pálsson. Fyr-
irlestur kl. 17. „Bekkina gerði gullhlaðs-
ey.“ Elsa E. Guðjónsson flytur fyrirlest-
ur um hannyrðir á Hólastað.
Háteigskirkja: Bamaguðsþjónusta kl.
11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
Messa kl. 14. Sr. Helga Soffia Konráðs-
dóttir.
Hjallakirkja: Almenn guðsþjónusta kl.
11. Sr. Kristján Einar Þorvarðarson
þjónar. Kór kirkjunnar syngur. Barna-
guðþjónusta kl. 13. Prestamir.
Hveragerðiskirkja: Sunnudagaskóli
kl. 11. Jón Ragnarsson.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Jón
Bjarman.
Lágafellskirkja: Guðsþjónusta kl. 14.
Barnastarf í safnaðarheimilinu kl. 11.
Bíli frá Mosfellsleið fer venjulegan
hring. Jón Þorsteinsson.
Keflavikurkirkja: Sunnudagaskóli kl.
11. Munið skólabílinn. Messa (altaris-
ganga) kl. 14. Barn borið til skímar.
Prestur sr. Ólafur Oddur Jónsson.
Kotstrandarkirkja: Guðsþjónusta kl.
14. Jón Ragnarsson.
Kópavogskirkja: Bamastarf i safnaö-
arheimilinu Borgum kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 14. Sönghópurinn Rúdólf kemur
í heimsókn og syngur í guðsþjónust-
unni. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands
biskups. Fjölskyldumessa kL 11. Kór
Kórskólans syngur. Prestur sr. Jón
Helgi Þórarinsson. Lena Rós Matthías-
dóttir segir sögu. Stofnfundi Safnaöarfé-
lags Langholtskirkju, sem átti að vera í
kvöld, er frestað fram í febrúar.
Laugarneskirkja: Messa kl. 11. Bama-
starf á sama tíma. Fermingarböm og
foreldrar hvattir til þátttöku. Kór Laug-
ameskirkju syngur. Jón Dalbú Hró-
bjartsson.
Neskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Starf fyrir 8-9 ára börn á sama tima.
Opið hús frá kl. 10. Kirkjubíllinn ekur.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Halldór Reynis-
son.
Seljakirkja: Krakkaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ágúst Ein-
arsson prédikar. Prestarnir.
Seltjamarneskirkja: Messa kl. 11.
Prestur sr. Baldur Kristjánsson. Barna-
starf á sama tíma.
Skálholtskirkja: Messa nk. sunnudag
kl. 14. Prófastur setur séra Egil Hall-
grimsson inn í embætti sóknarprests i
Skálholtsprestakalii. Sóknamefndimar.
Vídalinskirkja: Messa kl. 14. Altaris-
ganga. Heimsókn eldri borgara úr Víöi-
staðasókn í Hafnarfirði. Boðið til kaffl-
samsætis í safnaðarheimili Víðistaða-
kirkju á eftir messu. Rútuferð frá
Vídalínskirkju eftir messu í kafflsam-
sætið og til baka. Rúta fer frá Hleinun-
um til messunnar kl. 13.40. Sr. Hans
Markús Hafsteinsson.
Afmæli
Kristján Þór Gunnarsson
Kristján Þór Gunnars-
son framkvæmdastjóri,
Fífuhjalla 15, Kópavogi,
er fertugur í dag.
Starfsferill
Kristján fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp
fyrstu sjö árin en flutti
þá í Kópavoginn og hefur
átt þar heima siðan.
Hann var í Kársnes-
skóla, stundaði gagn-
fræðanám í Þinghóls-
skóla, lauk stúdentsprófi frá MK
1978 og lauk BS-prófi í matvæla-
fræði frá HÍ 1982.
Á unglings- og námsárum vann
Kristján í Áburðarverksmiðju ríkis-
ins. Hann var matvælafræðingur
hjá niðursuðuverksmiðjunni ORA
1982-87 og framkvæmdastjóri hjá
Sjólastöðinni hf. í Hafnarfirði
1987-89. Þá stofnaði hann útflutn-
ingsfyrirtækið Fisco hf. og hefur
verið framkvæmdastjóri þess síðan.
Kristján er stjórnarformaður
Kristján Þór
Gunnarsson.
Fisk 2000 á Blönduósi og
AGS í Reykjavík.
Fölskylda
Kristján kvæntist 30.3.
1985 Guðrúnu Huldu
Birgis, f. 18.2. 1961, ferða-
málafræðingi og hár-
greiðslumeistara. Hún er
dóttir Birgis Amar Birg-
is sölumanns og Aldísar
G. Einarsdóttur yfirsím-
ritara.
Börn Kristjáns og Guð-
rúnar Huldu eru Sindri
Þór Kristjánsson, f. 14.5. 1989, nemi
í Hjallaskóla; Aldís Eva Kristjáns-
dóttir, f. 24.4. 1991, nemi í Hjalla-
skóla.
Dóttir Kristjáns frá fyrrv. sam-
búð er Helga Kristjánsdóttir, f. 26.6.
1981, nemi við Kvennaskólann í
Reykjavík.
Hálfsystkini Kristjáns, sam-
mæðra, eru Hörður Garðarsson, f.
24.1.1956, byggingarverkfræðingur í
Reykjavík; Sigurjón Kristjánsson, f.
5.4. 1962, prentsmiður í Reykjavík;
Jónína Kristjánsdóttir, f. 29.8. 1963,
hagfræðingur í Kópavogi; Freyja
Kristjánsdóttir, f. 13.10. 1965, kenn-
ari á Stöðvarfirði; Amar Logi Krist-
jánsson, f. 11.2. 1973, starfsmaður
hjá Rafmagnsveitu rikisins, búsett-
ur í Kópavogi; Július Steinn Krist-
jánsson, f. 4.4. 1975, nemi við MK,
búsettur í Kópavogi.
Háifsystkini Kristjáns, samfeðra,
em íris Alda Stefánsdóttir, f. 20.12.
1957, húsmóðir í Reykjavík; Anna
Sigríður Gunnarsdóttir, f. 30.1.1960,
búsett í Stykkishólmi; Brynjólfúr
Harald Gunnarsson, f. 16.11. 1961,
bankastarfsmaður í Reykjavík; Guð-
mundur Gísli Gunnarsson, f. 8.10.
1963, vélgæslumaður í Reykjavík;
Gunnar Þór Gunnarsson, f. 16.10.
1964, rafmagnstæknifræðingur í
Reykjavík.
Foreldrar Kristjáns: Gunnar
Gíslason sem er látinn, rafvirkja-
meistari, og Helga Kristjánsdóttir
húsmóðir.
Fósturfaðir Kristjáns er Kristján
S. Sigurjónsson húsgagnasmiða-
meistari.
Jóhann Kristján Ragnarsson
Jóhann Kristján Ragnarsson, af-
greiðslustjóri hjá Eimskipafélagi ís-
lands í Vestmannaeyjum, til heiml-
is að Höfðavegi 3, Vestmannaeyjum,
verður fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Jóhann Kristján fæddist í Miðseli
við Seljaveg í Reykjavik og ólst þar
upp.
Að loknu skyldunámi stundaði
Jóhann enskunám í Englandi 1966.
Hann stundaði flugnám og lauk at-
vinnuflugmannsprófi 1969. Þá
stundaði hann nám við Sjómanna-
skólann í Reykjavík og lauk þaðan
prófum til skipstjórnarréttinda 1975.
Jóhann hefur stundað hin ýmsu
störf til sjós og lands hjá Eimskipa-
félagi íslands frá 1968.
Fjölskylda
Jóhann kvæntist 8.9. 1979 Guð-
nýju Sigríði Þorleifsdóttur, f. 1.11.
1952, húsmóður og fiskvinnslukonu.
Hún er dóttir Þorleifs Kjartans
Kristmundssonar, fyrrv.
prófasts á Kolfreyjustað í
Fáskrúðsfirði, og k.h., Þór-
hildar Gísladóttur hús-
freyju.
Börn Jóhanns og Guð-
nýjar Sigríðar eru Þorleif-
ur Kjartan, f. 24.1. 1974,
nemi í Vestmannaeyjum;
Ragnar Kristján, f. 18.1.
1980, nemi; Styrmir, f. 6.11.
1981, nemi; Jóhanna, f.
18.6.1983, nemi.
Systkini Jóhanns eru
Nína Björg, f. 1949, hár-
greiðslukona, gift Halldóri
Jóhannssyni og eiga þau þrjár dæt-
ur; Gunnar, f. 1950, fulltrúi, kvænt-
ur Margréti Ingvarsdóttur og eiga
þau þrjú börn; Auður, f. 1953, hjúkr-
unarfræðingur, gift Pétri Svavars-
syni og eiga þau einn son; Ragnar, f.
1955, verkstjóri, kvænfur Ragnheiði
Hjarðar og eiga þau tvær dætur;
Jón, f. 1962, forstöðumaður, kvænt-
ur Guðrúnu Guðmundsdóttur og
eiga þau tvo syni.
Foreldrar Jóhanns voru
Ragnar Krisfjánsson, f.
1.3. 1917, d. 13.3. 1988, yf-
irtollvörður í Reykjavík,
og Jóhanna Jóhanns-
dóttir, f. 29.5. 1921, d.
30.8. 1989, húsmóðir.
Ætt
Ragnar var sonur Krist-
jáns V. Guðmundssonar,
verkstjóra og verka-
manns úr Dýrafirði, og
k.h„ Bjargar Magnús-
dóttur frá Miðseli í Reykjavík.
Jóhanna var dóttir Jóhanns
Tryggvasonar, kaupmanns og
hreppstjóra á Þórshöfn og síðar inn-
kaupastjóra hjá Skipaútgerð rikis-
ins, og k.h., Jónínu Kristjánsdóttur
frá Seyðisfirði.
Jóhann er í útlöndum um þessar
mundir.
Jóhann Kristján
Ragnarsson.
Miðvikudaginn 28. janúar mun aukablað
um skatta, fjármál og tryggingar fylgja DV.
Fjallað verður um flest það er við kemur
sköttum, fjármálum og tryggingum
heimila og einstaklinga.
Þeim sem vilja koma á framfæri efni í blaðið er
bent á að hafa samband við Jóhönnu Á.H. Jó-
hannsdóttur, DV, fyrir 21. janúar.
Þeir sem ætla að auglýsa í þessu aukablaði hafi
samband við Gústaf Kristinsson, auglýsinga-
deild DV í síma 550 5731. Ath: Síðasti skiladagur
auglýsinga er fimmtudagur 22. janúar.
i>v
Til hamingju
með afmælið
16. janúar
85 ára
Stefán Þórarinsson,
Lindasíðu 4, Akureyri.
Þorkell Sigurðsson,
Hrafnistu við Kleppsveg,
Reykjavík.
75 ára
Elsa Bjarnason,
Klausturhólum 2,
Skaftárhreppi.
70 ára
Ása Björgúlfsdóttir,
Lambastaðabraut 2,
Seltjamamesi.
Eyjólfur Guðjónsson,
Framnesi, Djúpavogshreppi.
Guðmundur Valgeir
Guðlaugsson,
Heiðarbrún 96, Hveragerði.
Ottó Sigurðsson,
Bláhömrum 4, Reykjavík.
Unnur Lárusdóttir,
Víðiteigi 6d, Mosfellsbæ.
60 ára
Einar Þórir Jónsson,
Álfaskeiði 111, Hafnarfirði.
Hrafnhildur Ásbjömsdóttir,
Starengi 44, Reykjavík.
Hörður Smári Hákonarson,
Skipasundi 46, Reykjavík.
María Elisabet Jónsdóttir,
Hverfisgötu 102, Reykjavík.
50 ára
Ari Már Þorkelsson,
Hólavegi 16, Siglufirði.
Jón Björn Friðriksson,
Hverfisgötu 35, Reykjavík.
Jón Hjaltason,
Logafold 51, Reykjavík.
40 ára
Auður Eggertsdóttir,
Engjaseli 11, Reykjavík.
Ágústa Þórisdóttir,
Ásbraut 21, Kópavogi.
Brynjar Kvaran,
Álfatúni 11, Kópavogi.
Hrönn Þórarinsdóttir,
Lyngholti 19, Keflavík.
Jenný Sigurlína Níelsdóttir,
Berjarima 10, Reykjavík.
Óskar Vikar Haraldsson,
Bragagötu 26, Reykjavík.
Sveinn Ásgeirsson,
Bæjargili 102, Garðabæ.
Valgerður Arndís
Gísladóttir,
Karlalgötu 16, Reykjavík.
Búðarránið
áSkutuls-
FJARÐAREYRI
/
|Jrval