Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Page 14
14
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998
rir 15 árum
Sólveig Leifsdóttir hlaut silfrið í heimsmeistarakeppninni í hárgreiðslu fyrir 15 árum:
Stór stund í New York
Fimmtán ár eru nú liðin frá þvi
Sólveig Leifsdóttir hárgreiðslu-
meistari náði virkilega góðum ár-
angri í heimsmeistarakeppninni í
hárgreiðslu, International Beauty
Show, sem haldin var í Coliseum-
höllinni i New York. Þar tók hún
þátt í tveimur keppnum, varð i 2.
sæti i þeirri fyrri af 20 keppendum
og 5. sæti í seinni af 29 þátttakend-
um. Sólveig var eini þátttakand-
inn frá Islandi sem þáver-
andi íslandsmeistari. ítar-
leg frásögn í máli og
myndum var af þessu
i helgarblaði DV
laugardaginn 26.
mars 1983 með
fyrirsögninni:
„Ég
eflist á keppnispallinum". Einnig
hafði verið sagt frá úrslitunum í DV
21. mars.
í DV kom m.a. fram að hátt í 100
þúsund gestir hefðu verið viðstadd-
ir keppnirnar í New York. Þær
vöktu mikla athygli, m.a. sýndi
NBC-sjónvarpsstöðin beint frá
þeim.
Sólveig hefur sl. 18 ár verið með
eigin hárgreiðslustofu í Suðurveri.
Hún tók sveinspróf í hár-
greiðslu 1970 og keppti í fyrsta
sinn i íslandsmeistarakeppni
þremur árum síðar. Hún hef-
ur verið mjög sigursæl í
keppnum hér heima og er-
lendis. Fyrir áðurnefndar
keppnir í New York í mars
1983 hafði hún unnið í alþjóð-
legri keppni í Royal Albert
Hall í London árið áður
og hreppt bronsið í
Norðurlandameist-
arakeppninni 1981.
í seinni keppn-
inni í New York
var ekki aðeins
tekið tillit til hár-
greiðslunnar við
stigagjöfina held-
ur einnig fatnaðar
og snyrtingar. Mód-
el Sólveigar var Helga
Jóna Sveinsdóttir,
hjúkrunarfræðinemi
frá Akureyri. Hún
vakti mikla at-
hygli og fékk
fjölmörg til-
boð um að
gerast fyr-
irsæta.
Hún sýndi
í alls
fimm
kjólum
sem allir
voru
hannað-
ir og
saumað-
ir af
Sólveig Leifsdóttir meö dóttur sína, Maríu Auði Steingrímsdóttur, í móð'
stólnum en hún hefur lokiö sveinsprófi í hárgreiðslu og starfar með ur
móður sinni á stofunni í Suðurveri. DV-mynd S Sól-
veig-
urlandamótum. Þá
fengu Svíar
hana í fyrra
il að dæma
í þeirra
land-
var mik-
ill heiður
fyrir
mig og
sýnir
að
ar, Maríu Auði Guðnadóttur. Hvað
snyrtingu varðar fékk
Sólveig aðstoð frá
Heiðari Jónssyni
og Sigrúnu Sæv- (
arsdóttur.
Við fengum
Sólveigu til að
riQa þetta
New
maður er vonandi að gera hlutina
rétt.“
Æfingin skapar
meistarann
Aðspurð
annað en
Sólveig með siifurverölaunin sem hún fékk í New York í mars 1983. Myndin
er tekin skömmu eftir að hún kom heim. DV-mynd GVA
York-ævintýri upp í vikunni. Hún
sagði þetta hafa verið stóra stund.
Þarna hefði gríðarlegur mannfjöldi
verið saman kominn með viðeig-
andi glamúr og gleðskap.
Sólveig var rétt að byrja að klífa
frægðartind hárgreiðslunnar hér á
landi á þessum tíma. Hún varð
aftur íslandsmeist-
ari í hár-
greiðslu
árið 1985
og loks
1989. Tók
þátt í fjöl-
mörgum
keppnum
heima og er-
lendis, fór
m.a. aftur i
heimsmeistara-
keppnina í New York árið 1985 og
varð í 4. sæti í báðum hlutum
keppninnar.
„Ég var í landsliðinu meira og
minna þennan tíma. Ég hætti síðan
að keppa árið 1990 og frá 1992 hef ég
verið alþjóðlegur dómari, sá eini
sem við höfum í dömufögunum í
dag,“ sagði Sólveig sem hefur dæmt
í 3 heimsmeistarakeppnum,
nokkrum Evrópukeppnum og Norð-
WlW
ekki
sagðist hún ekki geta
verið stolt af sínum
keppnisferli sem
hárgreiðslumeist-
ari. Það hefðu ekki
margir kollegar
hennar farið álíka
víða í keppnir og
hún.
„Ég held að
hárgreiðslufólk-
ið okkar sé
ekki nógu lengi að.
Það tekur langan tíma að þjálfa sig
upp. Þetta er þrotlaus vinna. Það
var ansi mikið fyrir mann að standa
í þessu samfara heimilishaldi og
barnauppeldi. Maðrn: var ekki mik-
ið heima við. Annars eru íslenskir
hárgreiðslumeistarar mjög framar-
lega í sínu fagi. Það gildir í þessu
sem öðrum íþróttagreinum að æf-
ingin skapar meistarann," sagði
Sólveig Leifsdóttir. -bjb
bókaormurinn
y Eysteinn Björnsson, rithöfundur og kennari:
Olýsanleg tilfinning
„Eg fór snemma að hafa mikinn
áhuga á bókum og man eftir mér
ólæsum við bókaskáp foreldra
minna að handleika þessa furðu-
gripi með fögru fyrirheitin.
Eftir að ég varð læs byrjaði ball-
ið. Ég bjó langtímum saman í heimi
bókarinnar, spændi upp heilu ílokk-
ana, Ævintýrabækurnar, Tarzan,
Jóabækurnar,
Bláubæk-
urnar og
var þá
gjarnan í hlutverki ákveðinnar
sögupersónu í hverjum framhalds-
flokki. Ilmurinn af
hverri blað-
síðu, skrjáfið
og tilhlökk-
unin sem
fylgdi þessari
* athöfn, að
lesa nýja,
spennandi bók
er ólýsanleg. Mér
er nær að halda aö
þetta hafi verið
einhver dásam-
legasti og
ævintýra-
legasti
timi
Eysteinn Björnsson segist hrifnastur af Vigdísi Grímsdóttur af íslenskum
nútímahöfundum. DV-mynd E.ól.
lífs míns og ég myndi gefa allar
mínar jarðnesku eigur til þess að
mér þætti jafn gaman að lesa og þá.
En auðvitað les ég enn og hef
gaman af. Um jólin las ég Heimsljós
Laxness enda eru skáldsögur hans
það besta sem ég hef lesið um ævina
og hægt að koma að þeim aftur og
aftur. Af nútímahöfundum íslensk-
um er ég hrifnastur af Vigdísi
Grímsdóttur. Tvær síðustu bækur
hennar, Grandavegur 7 ogZ eru frá-
bærar.
Lífakur á náttborðinu
Ég hef lengi kennt ensku og ensk-
ar bókmenntir og þess vegna lesið
mikið á þeirri tungu. Fyrir utan
klassísku bókmenntimar hef ég haft
mjög gaman af höfundum eins og
Georges Simenon, sem skrifar sál-
fræðilegar spennusögur um fólk
sem komið er út á ystu nöf. Einnig
Raymond Chandler, Dashiell
Hammett og Robert B. Parker, frá-
bæra stílista sakamálasögunnar.
David Lodge, höfundur Changing
Places, Small World og Nice Work er
einnig í miklu uppáhaldi hjá mér,
en hann er leiftrandi húmoristi sem
dregur dár að háskóla-
akademíunni.
Af nýjum íslenskum bókum sem
ég hef lesið undanfarið langar mig
að nefna Elskan mín ég dey, eftir
Kristínu Ómarsdóttur sem mér
fannst frumleg og bráðskemmtileg
og Par Avion, nýjustu ljóðabók Jó-
hanns Árelíuzar sem mér hugnaðist
einkar vel.
Sú bók sem er á náttborðinu hjá
mér núna og ég hef litið í svo til á
hverjum degi undanfarið er ljóða-
bókin Lífakur eftir Ágústínu Jóns-
dóttur. Ljóðin hennar höfða mjög
sterkt til mín og það er langt síðan
ég hef farið í svona hrífandi ævin-
týraferðalag um ljóðheima.
Og af því við erum að tala um
bækur heitir eitt ljóðið hennar
Ágústínu Rökkur og hljóðar svo:
Ungt.kvöld
á mig aö bók
í nœturbrimi
viö kertaljós.
Ég skora á Bryndísi Sigurjóns-
dóttur að vera næsti bókaormur."
-sv
METSÖLUBÆKUR
BRETLAND
SKÁLDSÖGUR - KILJUR:
1. Catherlne Cookson: Bondage of Love.
2. Helen Fieldlng: Bridget Jone’s Diary.
3. John Grlsham: The Partner.
4. Patrlcia Comwell: Hornet's Nest.
5. Mlnette Walters: The Echo.
6. Kate Atklnson: Human Croquet.
7. Lesley Pearse: Rosie.
8. Louls de Bernieres: Captain Corelli's
Mandolin.
9. Josephine Cox: Miss You Forever.
10. Emma Blair: Flower of Scotland.
RIT ALM. EðLIS - KILJUR:
1. Paul Wilson: The Little Book of Calm.
2. Ýmsir: James Cameron’s Titanic.
3. Frank McCourt: Angela’s Ashes.
4. John Gray: Men Are from Mars, Women
Are from Venus.
5. Blll Bryson: Notes from a Small Island.
6. Grlff Rhys Jones: The Nation's
Favourite Poems.
7. Brian J. Robb: The Leonardo DiCaprio
Album.
8. Violet Joseph & J. Graham: Titanic
Survivor.
9. Penelope Sachs: Take Care of Yourself.
10. Anon: The Little Book of Motherhood.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Joanna Trollope: Other People's
Children.
2. Catherine Cookson: The Solace of Sin.
3. Jackle Colllns: Thrill!
4. Wllliam Boyd: Armadillo.
5. Kathy Reichs: Déja Dead.
INNBUNDIN RIT ALM. EÖLIS:
1. Peter Ackroyd: The Life of Thomas
More.
2. Ted Hughes: Birthday Letters.
3. Andrew Morton: Diana: Here True
Story in Her Own Words.
4. Dlckle Blrd: My Autobiography.
5. Melvyn Bragg: On Giants'
Shoulders.
(Byggt á The Sunday Times)
BANDARÍKIN
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Alicla Hoffman: Here on Earth.
2. John Grisham: The Partner.
3. Maeve Blnchy: Evening Class.
4. Anonymous: Primary Colours.
5. Mlchael Connelly: Trunk Music.
6. Rebecca Wells: Divine Secrets of the
Ya-Ya Sisterhood.
7. Jeffery Deaver: The Bone Collector.
8. Joseph Canon: Los Alomos.
9. Nlcholas Sparks: The Notebook.
10. Robln Cook: Chromosome 6.
RIT ALM. EðLIS - KIUUR:
1. Richard Carlson: Don’t Sweat the
Small Stuff.
2. Robert Atkln: Dr. Atkins’ New Diet
Revolution.
3. Les & Sue Fox: The Beanie Baby
Handbook.
4. Walter Lord: A Night to Remember.
5. Frances Mayes: Under the Tuscan Sun.
6. Caroline Myss: Anatomi of The Spirit:
The Seven Stages of Power and
Healing.
7. Ric Edelman: The Truth About Money.
8. Grace Catalano: Leonardo: A
Scrapbook in Words and Pictures.
9. Grace Catalano: Leonardo DiCaprio:
Modern Day Romeo.
10. Walter Lord: The Night Lives On.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. John Grisham: The Street Lawyer.
2. Anne Rlce: Pandora: New Tales of the
Vampires.
3. Tony Morrison: Paradise.
4. Charles Frazier: Cold Mountain.
5. Arthur Golden: Memoirs of a Geisha.
INNBUNDIN RIT ALM. EöLIS:
1. James Van Praagh: Talking to Heaven.
2. Suze Orman: The 9 Steps to Finencial
Freedom: Practical and Spiritual Steps
So You Can Stop Worrying.
3. Sarah Ban Breathnach: Simple Abun-
dance.
4. Howard Kurtz: Spin Cycle: Inside the
Clinrton Propaganda Machine.
5. Mitch Albom: Tuesdays with Morrie.
(Byggt á Washlngton Post)