Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Side 17
Heitt mál sem varðar þig
J3"V LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998
Heitt númer Hitaveitu Reykjavíkur er liður í að gera
þjónustu Hitaveitunnar einfatdari og skilvirkari.
Þú fylgist með mælinum heima hjá þér. skráir stöðuna
í álestrabókina og hringir í Heitt númer og slærð
stöðuna inn. Þannig tryggir þú að
hitareikningurinn þinn sé ekki hærri
en hann á að vera. HITAVEITA
REYKJAVÍKUR
Grensásvegi 1-108 Reykjavík • Sími 560 0101 • Heitt númer 800 6010
4
viðtal K
(nýjum bæklingi sem dreift hefur verið
til viðskiptavina Hitaveitu Reykjavíkur
má finna ítarlegar upplýsingar um
nýja þjónustu Hitaveitunnar, Heitt
númer. auk átestrabókar
og ráðlegginga um orku-
spamað í heimahúsum.
algjörlega að þvt að vera leikari. Það
flnnst mér sérlega gott,“ sagði Sigurð-
ur en upp úr dúrnum kom þó að hann
hefði átt þess kost að sitja í verkefna-
valsnefnd hússins. Fékk semsagt að
ráða örlitlu en kjarabaráttu leikara
hefur hann ekki komið nálægt - enn!
Kitlar egóið
Sigurður viðurkenndi að það kitl-
aði „egóið“ pínulítið að fmna að sóst
væri eftir hans kröftum. Þetta væri
leikhús sem hefði þörf fyrir hann og
vildi endilega hafa hann innanborðs.
„Þetta er hvatning fyrir mig. Þarna
fæ ég tækifæri til að vinna sem leik-
ari að góðum verkum. Fyrir mér
skiptir ekki máli hvar leikhúsið er
sem ég starfa í. Frægðin skiptir mig
engu máli. Bara að ég fái tækifæri til
að vinna nógu mikið við leiklist."
Eftir að sýningar á Meistaranum
verða komnar í gang á nýju og glæsi-
legu litla sviði í Vasaleikhúsinu mun
Sigurður leika á stóra sviðinu í Bréf-
beranum frá Arles, leikriti sem fjallar
um listmálarann Van Gogh. Hann
mun leika í öðru leikriti til viðbótar
sem ekki hefur verið ákveðið enn þá.
Alls starfa hátt í 25 leikarar við leik-
húsið næsta leikár, þar af eru 10 fast-
ráðnir. Vasaleikhúsið verður brátt 80
ára.
Æfingar á Meistaranum hefjast um
miðjan ágúst næstkomandi. Fram að
þeim tíma hyggst Sigurður slappa af
og njóta íslenska sumarsins. Hann
hefur þó ekki alveg fengið sig lausan
frá Borgarleikhúsinu því stuttu eftir
að hann kom frá Finnlandi var hann
farinn að „vasast" í ýmsum málum
fyrir leikfélagið. Blaðamaður fann fyr-
ir þessu því nokkurn tíma tók að
finna stund með Sigurði til að spjalla
í vikunni.
Hundrað hlutverk
Hann sagðist hafa fundið það út
skömmu fyrir frumsýningu á leikriti
Millers, Horft af brúnni, að hlutverk-
ið hefði verið sitt hundraðasta á ferl-
inum. Nú í mars hefðu verið 33 ár lið-
in frá því hann lék sitt fyrsta hlutverk
í Iðnó hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Hann sagði skemmtilegt til þess að
vita að næsta leikár myndi hann leika
þrjú hlutverk í fyrsta sinn í nokkur
ár. Það er kannski til marks um að
hvað mikill tími fór í félagsmálin hjá
honum fyrir LR.
„Þannig að Meistarinn verður byrj-
unin á næsta hundraðinu," sagði Sig-
urður og glotti.
Aðspurður sagðist hann ekki
reikna með að hann tæki með sér
aðra íslenska leikara til Vasa. Engu
að síður yrði innrás íslenskrar leik-
listar í Finnland næsta vetur. Fyrir
utan „innrásina" í Vasa þá yrði
Himnaríki Áma Ibsens tekið til sýn-
ingar í sænska leikhúsinu í Ábo und-
ir leikstjóm Hilmars Jónssonar með
leikmynd íslensks leikmyndateikn-
ara.
Ekki að flytja
Við fengum Sigurð til að setja sig í
framtíðarstellingar. Hvað tæki við eft-
ir næsta leikár ef vel tækist til. Hann
sagði litlar sem engar líkur á að þau
Ásdís flyttu búferlum til Finnlands.
Þrettán ára sonur þeirra myndi vænt-
anlega ekki taka slíkt i mál.
Sigurður sagði reynslu sína af
Finnum, hvort sem þeir töluðu
sænsku eða finnsku, vera þá að þeir
væru í rauninni afskaplega líkir ís-
lendingum. Þeir væm a.m.k. álíka
tækja- og tölvuóðir og væm áreiðan-
Ég er meistarinn, leikrit Hrafnhildar
Hagalín, hefur veriö sett upp víöa
um heim. Nú er þaö sænska leik-
húsiö í Vasa í Finnlandi sem setur
það upp næst.
lega með fleiri farsíma en við, enda
væm þeir í sjálfu Nokia-landi. í þessu
sambandi rifjaði hann upp pínlegt at-
vik á einni sýningunni á Horft af
brúnni. Hann hefði verið um það bil
að hefia langa einræðu, aleinn á svið-
inu, þegar simi fór að hringja úti í sal.
„Ég vissi varla hvort ég átti að
hætta að leika eða hægja á mér.
Hringingarnar urðu fiórar áður en
viðkomandi símeigandi slökkti á
gemsanum," sagði Sigm-ður og hló.
Hann mundi einnig eftir að hafa séð
Finna á kaffihúsi tala i tvo farsíma.
Þetta væri náttúrlega bilirn!
-bjb
„Þetta hefur í rauninni veriö í fyrsta
sinn sem ég hef verið í aöstööu til
aö einbeita mér algjörlega aö því
aö vera leikari," segir Siguröur m.a.
í viötalinu um dvöi sína í Vasaleik-
húsinu.