Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Qupperneq 21
wmm
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998
siriðsljósn
Ólyginiísagði...
... aö leikarinn Alec Baldwin
ætti að fara varlega í þeim
áformum sínum að gerast póli-
tíkus. Konan hans, hin glæsi-
ega Kim Bassinger, handhafi
óskarsverðlauna fyrir leik sinn í
LA Confidential, hefur nefnilega
gefið honum viðvörun. „Ef
hann gefur kost á sér þá á hann
kannski ekki lengur kost á
mér,“ á Kim að hafa sagt.
... að fyrst við værum farin að
tala um pólitík þá hygöist
breska leikkonan Emma
Thompson ætla aö halda póli-
tísku þema í leik sínum. Eftir
forsetamyndina Primary
Colours með John Travolta
mun hún leika eiginkonu ástr-
alsks stjórnmálamanns sem er
myrtur í Austur-Tímor.
... að leikarinn þeldökki og
þægilegi, Danny Glover, sem
nú vinnur að gerð myndarinnar
Lethal Weapon IV ásamt Mel
Gibson og Joe Pesci, væri
kominn á mála hjá Sameinuöu
þjóðunum, þ.e. þróunarhjálp-
inni. Honum er ætlað að að-
stoöa við að útrýma fátækt í
þriðja heiminum. Stórt verkefni
það!
... að Robert De Niro sætti sig
ekki lengur við að vera kenndur
við alþjóölegan hóruhúsahring.
Hann hyggst reyna að hreinsa
mannorð sitt og ætlar aö byrja á
að kæra dómara nokkurn fyrir
að hafa ráðist inn í einkaiíf sitt
og svipt hann frelsinu við harö-
skeyttar yfirheyrslur.
Jack Frost með nýja konu
- leikarinn David Jason reynir fyrir sár í Chicago
Breski leikarinn David Jason, sem flestir ís-
lendingar ættu að kannast við úr þáttunum um
Jack Frost, lögregluforingjann geðstirða, hefur
höndlað hamingjuna á ný eftir sáran konumissi
fyrir þremur árum. Brjóstakrabbi varð konunni
hans að bana. Nú hefur David tekið saman við
aðra konu. Hún nefnist Gill Hinchclifle og er 20
árum yngri en hann. Þau kynntust einmitt við
tökur á einum þáttanna um Frost þar sem hún
var framkvæmdastjóri.
Þetta eru ekki einu tíðindin af góðkunningja
okkar af skjánum. Hann hefur nýlokið við að
leika í sjónvarpsþáttum sem teknir voru upp í
Chicago. Þeir nefnast March in Windy City og
hófu nýlega göngu sína á ITV-sjónvarpsstöðinni
í Bretlandi. Þar leikur David fyrrum leyniþjón-
ustumann úr MI6, Steven March, sem er ráðinn
til að drepa rússneskan maflósa. David er einnig
framleiðandi þáttanna þannig að hann er allt í
öllu. Þessir þættir þykja vist ekki síðri en þeir
geysivinsælu um Frost. Vonandi að islensku
stöðvamar ranki við sér.
Annars þurfum við ekki að örvænta um að
hafa misst Frost. Núna eru tökur einmitt að
hefjast á nýrri þáttaröð.
David Jason (Jack Frost) ásamt nýju ástinni,
Gill Hinchcliffe.
Macintosh 5500
FERMINGARTILBOÐ
■ ■
' -
•- .j.j
Power Macintosh 5500
• 225 MHz PowerPC 603e-örgjörvi
• 32 Mb vinnsluminni, staekkanlegt í 64 Mb
• Skyndiminni 256 k
• 2 Gb harðdiskur
• Tuttuguogfjögurra-hraða geisladrif
• 16 bita tvíóma hljóð
• PCI-rauf
• Localtalk
• 15" hógæða Apple-skjár
• 33.600 baud mótald
• HnappaborS
• Mús
• 4 mán. Internet-áskrift hjá Margmiðlun
• 200 forrit, leikir o.fl. á 7 geisladiskum
• 36W hátalara-par meS 3-D sound
149.900,
Apple-umboðið
Skiphalti 21, 105 Reykjavík, sími: 511 5111
Netfang: sala@apple.is Veffang: http://www.apple.is