Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Qupperneq 24
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998 L>V
Myndlistarnemar glímdu við grænlenskt veður og afurðir þess á snjóhátíð í Nuuk:
List í landi frostsins
Þaó er svo margt sem
maöur hugsar og tálar
þegar maöur berst i stór-
hriöinni viö 27 rúmmetra
af snjó.
Grænland. Landið þar sem frost og
snjór eiga lögheimili. Þangað fóru sjö
nemar úr Myndlista- og handíðaskóla
íslands til að taka þátt í árlegri hátíð,
Nuuk Snow Festival, sem haldin var
dagana 14.-17. mars. Á þessari hátíð
er keppt í skúlptúrgerð og viðfangs-
efnið var femingur úr 27 rúmmetrum
af snjó.
íslensku liðin vora tvö: strákaliðið
með Guðmundi Lúðvík Grétarssyni,
Högna Sigurþórssyni og Erling Þór
Valssyni og stelpuliðið Icegirls með
Mörtu Maríu Jónsdóttur, Kristínu
Elvu Rögnvaldsdóttur, Díönu Storás-
en og Önnu Sóleyju Þorsteinsdóttur.
Verk strákanna hét Eins stórt og
það verður og fyrirmyndin var mað-
ur í glerkassa. Heiti verksins vísar til
þess að mannveran gat ekki orðið
stærri þar sem þeir nýttu sér allan
ferninginn. Verk Icegirls hét Að slá í
gegn og fékk nafn sitt af því að það
var eins og einhver hefði hlaupið í
gegnum snjóbergið.
Bæði verkin vora í flokki figúra-
tífra verka og hlutu sh'ákarnir fyrstu
verðlaun bæði frá dómnefnd og öðr-
um keppendum. Stúlkurnar fengu
þriðju verðlaun frá öðrum keppend-
um. Keppendur á hátíðinni vora alls
um 270. Þetta er í fyrsta sinn sem MHÍ
tekur þátt í keppninni en aðstandend-
ur hátíðarinnar eru að reyna að fá
skólana inn í hátíðina.
Snjókoman var sú mesta í 15 ár. Of-
ankoman þrjá daga hátíðarinnar var
nærri eðlilegri ársúrkomu. Míó, eins
og hálfs árs og án efa yngsti keppand-
inn, átti lengst af afdrep á baki pabba
síns, Högna Sigurþórssonar.
Þau tóku ekki með sér nein verk-
færi til skúlptúrgerðarinnar. Aðeins
Að slá í gegn. Krakkarnir í Nuuk voru rosalega spenntir fyrir skúlptúr lcegirls og hlupu inn og út um snjóhofiö í aerslafullum leikjum.
mátti nota handverkfæri og þau vora
að bjarga sér um verkfæri fyrsta dag
hátíðarinnar. Aðrir voru þama fag-
mannlegir í háttum og með sérstök
verkfæri sem þeir ferðuðust með á
milli snjóhátíða.
Myndlistarfólkinu unga finnst hug-
myndin Nuuk Snow Festival, sem
fmnst í mörgum öðrum köldum lönd-
um, spennandi fyrir ísland og íslensk-
ar aðstæður:
snjórinn
frostið
jöklamir
listin
-sm