Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Qupperneq 32
32 %ókarkaf!i LAUGARDAGUR 4. APRIL 1998 Itarlegar frásagnir farþeganna sem lifðu af Titanic-slysið - nú endurútgefnar á bók á íslensku: Sú nótt gleymist aldrei, eftir Walter Lord, er lík- lega ein ítarlegasta bókin sem skrifuð hefur veriö um Titanic-slysið. Þar er sögð saga skipsins með orðum farþeganna sjálfra og það var í þessa bók meðal annars sem James Cameron, nýkrýndur ósk- arsverðlaunahafi, leitaði við gerð stórmyndar sinn- ar um örlög Titanic. Bókin er prentuð í ann- að sinn fyrir íslenskan markað en hún var end- urprentuð í Bandaríkjun- um fyrir síðustu jól og hefur verið þar á metsölu- listum œ síðan. Það er Bókaútgáfan Hólar á Ak- ureyri sem gefur bókina út nú en þýðandi sem fyrr er Gísli Jónsson, íslensku- frœðingur og fyrrum menntaskólakennari. Hér á eftir fara valdir hlutar úr 1. kafla bókarinnar: Gljáfægður glerflötur „Frederick Fleet, varðmaður, sat hátt uppi í varðturni á hafskipi White Star-félagsins, Titanic, og starði á ljósblik næturinnar. Það var kyrrt veður, heiðríkt og sárkalt. Tungl var ekki á lofti, en stjömur blikuðu á heiðum himni. Atlants- hafið var áþekkast gljáfægðum gler- fleti; menn sögðu síðar, að þeir hefðu aldrei séð það svo lygnt. Þetta var fimmta kvöldið á fyrstu ferð Titanics til New York, og mönnum var þegar ljóst, að skipið var ekki aðeins stærst, heldur og ævintýralegast allra skipa í heimi. Hundar farþeganna voru meira að segja ævintýralegir. John Jacob Astor hafði með sér rottuhundinn sinn, Kitty. Með Henry Sleeper Harper, af ætt hinna kunnu útgef- enda, var kínverski verðlaunahund- urinn Sun Yat-sen. Robert W. Dani- el, bankastjóri frá Philadelphia, hafði nú heim með sér forkunnleg- an franskan bolabít, sem hann var nýbúinn að kaupa í Englandi. Clarence Moore frá Washington hafði og verið að kaupa hunda, en þau 50 pör enskra veiðihunda, sem hann keypti til London- veiðanna, voru ekki með í förinni. Það var allt annar heimur, sem Frederick Fleet lifði og hrærðist í. Hann var einn af sex varðmönnum á Titanic, og varðmennirnir höfðu engar áhyggjur af vandamálum far- þeganna. Þeir voru „augu skipsins", og einmitt þessa nótt hafði Fleet verið áminntur um að gá sérstak- lega vel að ísjökum. Ekkert óvenjulegt Enn var allt með felldu. Á vakt klukkan tíu ... fáein orð um ísinn við Reginald Lee, sem var á vakt með honum ... svolítið meira spjall um kuldann ... mestmegnis dauða- þögn, þar sem þeir störðu báðir út í dimmuna. Nú var vaktin næstum úti, og enn var ekkert óvenjulegt. Aðeins nótt- in, stjömumar, nístandi kuldinn og „Skipið ósökkvandi" lagði úr höfn í Southampton í Bretlandi 10. apríl 1912. Fjórum dögum síðar var saga þess öll. Bók Walters Lords byggist á frásögnum þeirra farþega sem lifðu af slysiö. lagar hans kölluðu „kjálkaskegg í kringum ljósið", en það voru örsmá- ar ísagnir í loftinu, smágerðar eins og duft, og sló á þær óteljandi lit- brigðum, hvenær sem glampi þil- farsljósanna skein á þær. En þá fann hann allt í einu und- arlega hræringu rjúfa hinn reglu- bundna klið eimvélanna. Það var ekki alveg ósvipað þvi að mjakast þunglega upp með hafnargarði. Hann leit fram fyrir sig og starði sem áður. Honum sýndist stórt skip, fyrir fullum seglum, fara framhjá á stjórnborða. En svo sá hann, að þetta var borgarísjaki, sem gnæfði ef tU viU aUt að hundrað fet yfir sjávarmál. Hann hvarf í næstu andrá og rak afturmeð út í myrkrið. Titrandi urghljóð Meðan þetta gerðist uppi, sátu fjórir aðrir af skipshöfninni kring- um eitt borðið niðri í matsalnum á fyrsta plássi á D-þUjum. Síðasti farþeginn var löngu farinn frá matborðinu, svo að þessir fjór- menningar voru nú einir í hinum stóra, hvíta sal, sem gerður var í barokkstU. Þeir voru þjónar og skemmtu sér nú við eftirlætis- dægradvöl allra þjóna, sem eiga frí, sem sé að segja sögur um far- þegana. En sem þeir sátu þarna og spjölluðu, var sem tU þeirra bær- ist ógreinUegt, titrandi urghljóð einhvers staðar langt innan úr skipinu. Það var ekki mikið, en nóg til þess að binda endi á sam- ræðurnar, og það glamraði í silfur- borðbúnaðinum, sem búið var að taka til fyrir morgundaginn. James Johnson, þjónn, hélt hann vissi, hvað það væri. Hann mundi eftir eins konar titringi, sem fer um skip, þegar af því fer skrúfublað, og hann vissi, að slíkt óhapp yUi því, að snúið yrði aftur tU Harland & Wolff-skipasmíða- stöðvarinnar í Belfast, og því fylgdi langur frítími til þess að njóta ágætrar gestrisni í þeirri höfn. Einhver nálægur tók í sama streng og hrópaði glaðlega: „Önn- ur Belfast-ferð!“ Við erum að lenda! í eldhúsi aftur á var Walter Belford, yfirbakari á næturvakt, að gera brauðsnúða tU morgun- dagsins (það heiðursstarf að baka fínt sætabrauð var geymt dagvakt- inni). Þegar titringurinn kom, þá hafði það öUu meiri áhrif á bakar- ann en þjóninn, kannski vegna þess, að hrúga af nýjum snúðum datt úr pönnu ofan af ofninum og dreifðust þeir um gólfíð. Farþegarnir, sem voru í klefum sínum, fundu einnig hristinginn og reyndu að setja hann í samband við eitthvað venjulegt. Ung, sviss- nesk stúlka, Marguerite Frolicher, í fylgd með föður sínum, sem var í verslunarferð, hrökk upp með andfælum. Þar sem hún lá hálfsof- andi, datt henni ekki annað i hug en hröslulegar lendingar litlu, hvítu vatnabátanna í Zúrich. Hún sagði rólega við sjálfa sig: „En hvað þetta er gaman, við erum að lenda.“ Arthur Godfrey Peuchen, majór, sem var að hátta, fannst því líkast sem brotsjór dyndi á skipinu. Frú J. Stuart White sat á rúmstokkn- um og var að teygja sig til að slökkva, þegar skipið virtist velta yfir „þúsund marmarakúlur", eins og hún komst að orði. Frú Cosmo Duff Gordon, sem vaknaði við titr- inginn, virtist sem risafingur væri dreginn eftir skipshliðinni. Frú Frá tökum á kvikmyndinni vinsælu um Titanic-slysið. Leonardo DiCaprio og Kate Winslet taka við fyrirmælum leikstjórans, James Cameron. vindurinn, sem lék í reiðanum, um leið og Titanic plægði dökkan haf- flötinn með 22 1/2 sjómílu hraða. Þetta var um það bil 10.40 eftir há- degi sunnudaginn 14. apríl 1912. Skyndilega sá Fleet eitthvað framundan, eitthvað, sem var jafn- vel dekkra en myrkrið. í fyrstu var það lítið (hann hélt svo sem eins og tvö borð sett saman), en með hverri sekúndu varð það stærra og kom nær. Fleet hringdi varðturnsbjöll- unni í skyndi þrisvar sinnum; það var merki um hættu framundan. Um leið lyfti hann símtólinu og hringdi í brúna. „Hvað sérðu?“ spurði róleg rödd í símanum. „ísjaka beint framundan," svar- aði Fleet. „Þakka þér fyrir,“ sagði röddin með einkennilega ópersónulegri kurteisi. Fleira var ekki sagt. Jakinn nálgast Næstu 37 sekúndur stóðu þeir Fleet og Lee rólegir hlið við hlið og horfðu á jakann nálgast. Nú var hann alveg kominn að, en samt breytti skipið ekki um stefnu. Jak- inn gnæfði, votur og gljáandi, hátt yfir afturþiljurnar, og báðir menn- irnir bjuggu sig undir áreksturinn. En þá gerðist kraftaverkið, og skip- ið tók að sveigja á bakborða. Á síð- ustu stundu komst stefniö framhjá, og jakinn rann hratt fram með stjómborðsmegin. Fleet sýndist, að það hefði ekki mátt tæpara standa. Á sama tíma stóð George Thomas Rowe, stýrari, á verði á aftur- brúnni. Þetta hafði einnig verið honum viðburðasnautt kvöld, að- eins sjórinn, stjörnurnar og bitur kuldinn. Þegar hann steig þiljurnar, tók hann eftir því, sem hann og fé- Sú nótt gleymist
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.