Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Qupperneq 47
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998
55
Leicur á uppboði
Það er nú kannski ekki fyrir
ferðamenn að hafa rándýra
Leicu-myndavél á maganum þeg-
ar ferðast er. Þeir sem hins vegar
hafa áhuga á að eignast slíka vél
geta sótt heljarmikið uppboð hjá
hinu fræga fyrirtæki Christiels í
London. Á uppboðinu verða
boðnar upp nokkrar tegimdir
myndavélarinnar en ein þykir
bera af öðrum. Þaö er myndavél,
merkt sjálfum Henri Cartier-
Bresson, en hann hefði orðið ní-
ræður á þessu ári. Uppboðið fer
fram þann 11. júní næstkomandi.
Ukamsfegurðin
verðlaunuð
Bæjarstjóri smábæjarins Di-
ano Marino á itölsku Rivíerunni
hefur sannarlega smekk fyrir fal-
legum konum. Hann vill að
grannar og failegar konur gangi
um í bikiníi á ströndinni en má
ekki heyra minnst á að konur í
yfirþyngd skarti slíkum klæðum.
Nei, þær skulu vera með málin
90-60-90 ella borga sekt. Hinum
fógru fljóðum heitir bæjarstjór-
inn hins vegar vikugistingu á
einu af hótelum bæjarins.
Vasco da Gama
Nýlega opnaði forseti Portú-
gaís, Jorge Sampaio, nýja brú yfir
ána Tagus sem rennur í gegnum
Lissabon. Brúin var skírð í höf-
uðið á landkönnuðinum Vasco da
; Gama en á þessu ári minnast
Portúgalar þess að fimm hundruð
; ár eru siðan sæfarinn sigldi og
fann leiðina til Indlands.
Miðinn pantaður á Netinu
Frönsku jámbrautimar ætla
I að opna bókunarkerfi á Netinu í
1 upphafl sumars. Fólk getur þvi
setið heima og skipulagt sumar-
fríið og pantað lestarferðir eftir
þörfúm.
Slóðin er www.sncf.fr en ekki
verður hægt að greiða fyrir mið-
ana á Netinu fyrst um sinn.
Minneapolis og Helsinki
I Um þessar mundir undirbúa
; Flugleiðir opnunarflug félagsins
til Minneapolis í Bandaríkjunum
þami 9. apríl og til Helsinki þann
15. maí næstkomandi. Með þessu
er Minneapolis í Minnesota ætlað
að verða útvörður félagsins í
vesturheimi í sistækkandi leiöa-
neti félagsins.
Helsinki, höfúðborg Finnlands,
verður aftur útvörður Flugleiða í
austri.
Nýjar kannanir benda til þess að
loftræstingu í farþegarýmum flug-
véla hafi i mörgum tilfellum farið
mjög aftur síðustu árin. Flugfarþeg-
ar geta því átt á hættu að fá ýmsa
sjúkdóma eingöngu með því að ferð-
ast með flugvélum. Þetta kemur
fram í nýjasta tölublaði hins virta
ferðablaðs Condé Nast.
Samkvæmt könnun sem gerð var
á vegum blaðsins kemur fram að
allur gangur er á því hvort flugfar-
þegar njóta hreins súrefnis á flugi
eða hvort sama loftinu er dælt aftur
og aftur um farþegarými vélarinn-
ar.
Meðal annars er vitnað til fyrrum
starfsmanns breska flugfélagsins
British Airways sem heldur því
fram að mörg flugfélög láti sama
loftið leika um farþega í auknum
mæli. Meginástæðan er auðvitað
spamaður en það kostar mikið elds-
neyti að halda loftræstikerfinu
gangandi á langri flugleið. Sagt er
að flugmenn hafl það að keppikefli
Netferðir:
Síðustu sætin
seld á spottprís
hætti
hafa borist á milli flugfar--
þega; til dæmis veiktust tvær
skoskar konur í fyrra en þær áttu
ekkert sameiginlegt nema að hafa
setið í sömu flugvél.
Ógnvænlegur sparnaöur
Eldsneytiskostnaður er þungur
baggi hjá mörgum flugfélögum
og þess vegna er freistast til
þess að spara eins og
mögulegt er.
í greininni er staðhæft að
súrefnissparnaður sé ekki nýr af
nálinni og hafi þekkst síðustu árin.
Þá hefur almennt reykingabann i
flestum flugvélum gert það að verk-
um að flugmenn víla síður fyrir sér
að spara súrefnishylkin. Á meðan
reykingar voru leyfðar í farþega-
rými var það hreint og beint nauð-
syn að hafa loftræstinguna í lagi.
Nú er því ekki að heilsa lengur að
reykingamenn mengi fyrir öðrum
farþegum; en spurning hefur vakn-
að um hvort sé á endanum betra;
reykjarmökkur eða bakteríumeng-
að loft.
_ Tvö flugfélög hafa þegar tilkynnt
að þau hyggist gera bragarbót í
þessum málum; það eru bandaríska
flugfélagið United og Swissair sem
bæði hafa mótað skýra stefnu um
hertar gæðakröfur þegar kemur að
loftræstikerfum flugvéla þess. Lík-
legt þykir að fleiri flugfélög sigli i
kjölfarið á næstunni.
-Condé Nast
spara
að nota sem minnst
af súrefniskútum flugvélanna enda
fái þeir klapp á bakið fyrir að ná
fram sparnaði með þessum hætti.
Þá benda aðrir á að álagið verði
minna á áhöfnina því hringrás lofts-
ins veldur gjama slappleika og doða
á meðal farþega sem eru þá ekki
jafn kröfuharðir á þjónustu og ella.
Sjúkdómar breiðast út
Eitt mesta áhyggjuefnið að mati
höfundar er hættan á útbreiðslu
sjúkdóma. Þegar sama loftinu er
dælt aftur og aftur um farþegarým-
ið geta bakteríur frekar borist á
milli manna. Tekið er einfalt dæmi
af 400 manna breiðþotu á flugi á,
mUli tveggja stórborga. Ekki er óal-'
gengt að farþegar komi frá
nokkrum heimsálfum og ekki þarf
nema eitt slæmt tilfelli af flensu til
þess að fjöldi manns sýkist og hugs-
anlega getur sjúkdómur þannig
borist heimsálfa á milli.
Alls smituðust 72 farþegar í
leiguflugi á milli Birmingham og
Tórínó í fyrra. Verst eru dæmi af
berklatilfellum sem með óyggjandi
*
-f.
Netferðir eru nafn á
nýrri netferðaskrifstofu
sem er að finna á
Vísisvefnum. Það eru
Samvinnuferðir-Landsýn
sem reka netferðaskrifstof-
una en þar er að finna úr-
val ferða á verði sem er
lægra en gengur og gerist.
Mikill fjöldi gesta hefur
heimsótt vefinn frá því
hann var opnaður form-
lega síðastliðinn flmmtu-
dag og yfir eitt þúsund
manns hafa þegar sett sig
á póstlista fyrirtækisins.
Þeir sem eru á póstlistan-
um fá öll tilboð ferðaskrif-
stofunnar send jafnharðan
og þau eru sett á vefinn.
„Þetta fer vel af stað og fyrstu
ferðimar hafa meira og minna selst
upp. Framboð á ferðum á örugglega
eftir að aukast eftir því sem líður á
sumarið og háannatími sólarlanda-
ferða og annarra sumarleyfisferða
rennur upp. Það er engin spurning
að við getum boðið mjög gott verð
enda er þetta ferðaskrifstofa sem
byggist á lítilli sem engri yfirbygg-
ingu. Það gerir okkur kleift að vera
sveigjanlegir og við eigum auðvelt
með að bregðast fljótt við ferða-
möguleikum sem kannski aðrir ná
ekki. Stór hluti af okkar sölu verður
svokölluð forfallasæti og sæti sem
losna á síðustu stundu. Mikið af
þessum ferðum er að finna í
UFPBOfS fuilam
gangl
MaiIorka-Calad'Or
8. til 20. aprO
yert.ymp.p,...
..Jivtr vtlt nema oðþ úKondtt d
ha&tctBu verttí tU ht allorka um
piUuumf
vlfl www.vlslr.is
bæklingum Samvinnuferða en
einnig má reikna með öðrum spenn-
andi ferðum sem við setjum sjálfir
saman.
Netferðir eru nýtt fyrirtæki og
ætlunin er að láta það þróast og
vaxa í takt við þau viðbrögð sem við
fáum. En það er ekki annað að sjá
en byrjunin lofi í það minnsta mjög
góðu,“ segir Þorsteinn Guðjónsson.
Uppboð eru ein af þeim nýjung-
um sem Netferðir bjóða upp á. Þeg-
ar er lokið fyrsta uppboðinu en þá
voru seldar páskaferðir á 11 til 13
þúsund krónur til London. Þá er að
flnna ferðafréttir og tilboðin kunna
að breytast dag frá degi. Ferðaskrif-
stofuna er að finna á slóðinni vis-
ir.is á Netinu.
« lifrt tut iwhiumatn* pmm
'n; iMTÍV! t *»+**>• ' i*
« » | ; < » I ÍÖ I Sí § & j I j I |! í»a-v- ? HvW H tn* fi [ j( m
; •'TV' rmu'rtut - ' 'r'r'
íssvssw^sifss;
ir* —— S *. * **!■* :, *.**&■**% -é
Wi
Ath,! Upt^oSoM á
Gönguskíðaferð á Grænlandi:
Hálfhríngur um
Ammassalikfjörð
Ferðaskrifstofan Landnáma efnir til gönguskíðaferðar um Grænland nú
um páskana. Flogið verður til Kulusuk og þaðan flogið með þyrlu til
þorpsins Quernertivartivit sem er á lítilli eyju í Ammassalikfírði. Það-
an verður svo haldið i ævintýralega göngu um ísilagðan fjörðinn og er
miðað við 15 kílómetra göngu á dag. Genginn verður hálfhringur um
fjörðinn og gist verður i tjöldum allar næturnar utan þá síðustu en þá
verður dvalið á Hótel Ammassalik. Ferðin hefst á skírdag og verður
komið heim þriðjudaginn eftir páska.
Fararstjóri verður Leifur Örn Svavarsson.
-
Ámkrlttarmlmlnn er 515 6100
4*.
.í \