Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Blaðsíða 63

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Blaðsíða 63
DV LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998 Krabbameinssjúk börn: í ævintýraferð um öræfi fslands „Hugmyndin kom þegar við frétt- um af erlendum fötluðum börnum sem voru að koma til íslands í æv- intýraleit. Við hugsuðum okkur þá að bjóða einhverjum íslenskum að- ilum úr svipuðum geira í ævintýra- ferð. Við fengum Skeljung og Sjóvá í lið með okkur. Úr varð að við buð- um Styrktarfélagi krabbameins- sjúkra barna að senda á annan tug barna og foreldra þeirra í sannkall- aða ævintýraferð um öræfi ís- lands,“ segir Árni Birgisson hjá Is- landsflökkkurum. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í ævintýraferðum um íslensk öræfi á sérútbúnum Land Rover-jeppum. Þema ferðarinnar var að börnin fengju að takast á við hluti sem björgunarsveitarmenn, fjalla- og jeppamenn takast á við. Á Þingvöll- um tóku bömin þátt í klettaklifri og bjargsigi. Farið var í jeppasafarí niður Grafningsveg og í Dyradali þar sem börnin vora látin leita að einum föðurnum i hópnum og grafa hann upp með hjálp snjóflóðaleitar- hunds. „Þetta var mikið ævintýri fyrir börnin. Þau stóðu sig öll geysilega vel og fengu öll verðlaun í ferða- lok,“ segir Árni. -RR Meö hjálp sjóflóðaleitarhunds leituðu börnin að einum föðurnum í snjónum og grófu hann upp. DV-mynd Odd Stefán Flugvélin TF-BKB nauðlenti á Nesjavallavegi í fyrrakvöld. Nú hefur komiö í Ijós að eins atvik átti sér stað varðandi sömu vél fyrir 18 árum. DV-mynd S Tilkynningar Fálag eldri borgara Spiluð verður félagsvist að Gull- smára 13 mánudaginn 6. apríl kl. 20.30. Húsið öllum opið. Félag breiðfirskra kvenna Fundur í Breiðfirðingabúð mánu- daginn 6. apríl kl. 20. Páskabingó, kaffiveitingar. Gestir velkomnir. Fálagsvist eldri borgara Félagsvist í Risinu fellur niður sunnudaginn 5. apríl. Næst spilað föstudaginn 17. apríl. Dansað í Goð- heimum kl. 20. Söngvaka mánudag- inn 6. apríl í Risinu kl. 20.30. Félag kennara á eftirlaunum Skemmtifundur FKE verður á morgun, laugardaginn 4. apríl, í Kennarahúsinu við Laufásveg og hefst kl. 14. Danskt vor Hjá Byggðasafni Árnesinga í Hús- inu á Eyrarbakka tekur gildi 4. apr- íl sýningartími fyrir apríl og maí. Opið verður á laugadögum og sunnudögum kl. 14-17 og eftir sam- komulagi ef pantað er. Uppl. i síma 483-1504. Ferðafélag íslands Sunnudaginn 5. april kl. 13. Ferðafélagið og samstarfshópur um vemdun Straumsvíkursvæðisins munu kynna náttúrufar, sögu og minjar svæðisins í nokkrum ferðum í vor og sumar. Fyrsta ferðin er til Straumsvíkur. Góð leiðsögn. Tilval- ið fyrir alla fjölskylduna að mæta. Verð aðeins 500 kr. í rútu, frítt f. böm 15 ára og yngri m. fullorðnum. Brottför frá BSÍ, austanmegin, og Mörkinni 6. Munið páskaferðirnar, m.a. 3 dagar í Landmannalaugum. Skíðaganga ef snjólög leyfa kl. 10.30 frá Bláfjöllum að Kleifarvatni. Andlát Þórður Ingimundur Þórðarson, Norðurbrún 1, Reykjavík, lést í Sjúkrahúsi Reykjavikur fimmtudag- inn 2. april. Böðvar Stefán Daníelsson, fyrr- verandi bóndi, Fossseli, Vestur- Húnavatnssýslu, andaðist að kvöldi 2. apríl á Vifilsstöðum. Jarðarfarir Kristrún Sigríður Sigurðardóttir, Vigdísarstöðum, sem lést 21. mars, verður jarðsunginn 4. apríl kl. 14.00 frá Melstaðarkirkju. Dularfull atvik í tengslum við nauðlendingar TF-BKB: Eins atvik nú og fyrir 18 árum - velin ekki i lagi, segir flugmaðurinn sem nauölenti henni fyrir 18 arum Rannsókn stendur yfir hjá rann- sóknarnefnd flugslysa vegna nauð- lendingar lítillar eins hreyfils flug- vélar, TF-BKB, á Nesjavallavegi í fyrrakvöld. Dularfullt atvik gerðist þegar bensínmælh’ vélarinnar féll óeðli- lega hratt tæpum tveimur klukku- stundum eftir að hún fór í loftið. Flugþolstími flugvélarinnar er hins vegar 5 klukkustundir. Nú hefur komið í ljós að eins atvik kom fyrir sömu flugvél árið 1980. Samkvæmt heimildum DV var atvikið hins veg- ar aldrei rannsakað til fullnustu heldur afgreitt sem mistök flug- manns. „Þetta var mjög dularfullt. Vélin varð bensínlaus löngu fyrir áætlað- an flugþolstíma. Ég nauðlenti henni með þrjá farþega innanborðs. Málið var aldrei rannsakað af Loftferða- eftirlitinu og ég tel það hafa verið hagsmunamál og klíkuskapur sem hafi ráðið því. Mér var kennt um nauðlendinguna og látinn fara í hæfnispróf. Ég var auðvitað gríðar- lega ósáttur og fór ítrekað fram á að málið yrði rannsakað en það var ekki gert,“ segir flugmaðurinn sem nauðlenti TF-BKB fyrir 18 árum. „Skömmu áður en óhappið varð fyrir 18 árum hafði þessi vél skemmst þegar hún fór út fyrir flug- braut. Ég tel að hún hefði ekki átt að fá flughæfnisskírteini þegar hún kom úr viðgerð. Það voru mistök Loftferðaeftirlitsins þá og nú kemur aftur í ljós að vélin hefur ekki verið í lagi. Það þarf að finna út hvað er að þessari vél. Ég á ekki von á öðra en rannsóknarnefnd flugslysa geri það enda vinnubrögðin í þessum málum mun faglegri nú en fyrir 18 árum,“ segir flugmaðurinn. -RR Ný sending Stuttar og sfðar kápur, sumarhattar Páskatilboð: Sumarjakkar kr. 7.900. Mörkinni 6 • sími 588-5518, opið loug. 10-16. afmæli Til hamingju með afmælið 5. apríl 90 ára Ingibjörg Jónsdóttir, Hólavegi 16, Sauðárkróki. Jón Jónsson, Vallholtsvegi 17, Húsavík. 85 ára Guðrún Bjamadóttir, Holtsgötu 10, Hafnarflrði. 80 ára Gísli Erasmusson, Háu-Kotey, Skaftárhreppi. Jón Hjálmtýsson, Kirkjubraut 7, Akranesi. Ólafur Guðjónsson, Vesturholtum I, Djúpárhreppi. 75 ára Erlendur Guðmundsson, Gullsmára 8, Kópavogi. Guðrún Jónsdóttir, Holtastíg 2, Bolungarvík. Kristinn Sigurðsson, Mýrum, Villmgaholtshreppi. Ragna Þorgerður Kristjánsdóttir, Trönuhjalla 3, Kópavogi. 70 ára Ágúst Sæbjömsson, Holtagötu 1, Reyðarfirði. Ásmundur Pálsson, Eskihlíð 6, Reykjavík. 60 ára Guttonnsson J Hvassaleiti 83, Reykjavík. \ ÉtÆ \ Aðalheiður Haraldsdóttir Funalind 15, Kópavogi. Einar Sigurðsson, Nýbýlavegi 66, Kópavogi. Haukur Þormar Ingólfsson, Sveighúsum 8, Reykjavík. Ólafía Aradóttir, Brautarholti 13, ísafirði. 50 ára Ómar C. Einarsson, skipstjóri, Vatnsholti 24, Keflavík. Eiginkona hans er Pálína Guðmundsdóttir húsmóöir. Ómar er að heiman á afmælisdaginn. Eiríkur Kiistófersson, Seljalandi 9, ísafirði. Elín Einarsdóttir, Selbrekku 40, Kópavogi. Jónína Guðmundsdóttir, Birkigrund 4, Kópavogi. Viðar Bjamason, Grashaga 12, Selfossi. 40 ára Ásdís Gissurardóttir, Kársnesbraut 63, Kópavogi. Emilia Davíðsdóttir, Grettisgötu 29, Reykjavík. Gunnlaugur Úlfar Gunnlaugsson, Arnarhrauni 7, Grindavík. Halla Sigurgeirsdóttir, Reykjavíkurvegi 50, Hafnarfirði. Jón Andrésson, Vestursíðu 26, Akureyri. Magnús Þ. Gissurarson, Lindasmára 35, Kópavogi. Margrét K. Gunnarsdóttir, Hraunbæ 154, Reykjavík. Þórður Ámi Hjaltested, Geithömram 15, Reykjavik. Smáauglýsingar 550 5000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.