Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1998, Side 72
FRETTASKOTIB
SIMINN sem alorei sefur
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá T síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1998
Gagnagrunnsmálið:
Háskólann í
samkeppni
« við IE
- er hugmynd lækna
Reynir Arngrimsson, læknir á
Landspítala, lagði fram hugmyndir á
fundi sem haldinn var á spítalanum í
gær, um að stofhuð yrði heilbrigðis-
og vísindastofnun í tengslum við Há-
skóla íslands og myndi sú stofnun
halda utan um gagnagrunn þann sem
heilbrigðisráðherra hefur nýverið
lagt fram frumvarp um. Þar með yrði
sprottin upp samkeppnisaðili við ís-
lénska erfðagreiningu sem sóst hefur
eftir að fá einkarétt á gagnagrunnin-
um næstu 12 árin.
„Hugmyndin gerir ráð fyrir að Há-
skólinn haldi utan um þetta og safni
.^döessum upplýsingum undir eftirliti
læknadeildar eða í beinum tengslum
við deildina. Háskólinn myndi þá
selja aðgang að gagnagrunninum. Ég
held að þetta sé nokkuð góð hugmynd
og allrar athygli verð, enda eru hér
miklir siðferðilegir og peningalegir
hagsmunir í húfi. Ég held að það sé
ekki ásættanlegt að það sé einkaréttur
á þessum gagnabanka heldur verði
þetta selt hæstbjóðanda," sagði Guð-
mundur Bjömsson, formaður Lækna-
félags íslands. -phh
^ íjm ,,, s # £ f
£ vfl .*■ |ff, ' í • M 4 ■ "
Veður i Hlfðarfjalli í gær var eins og það gerist best fyrir norðan, sól og blíða. Keppnin á skíðalandsmótinu heldur áfram í dag og á morgun og mótinu lýk-
ur á mánudaginn. Á myndinni er Kristinn Björnsson að gefa eiginhandaráritun, þar sem hann var umsetinn aðdáendum sínum. Hinn 18 ára Dalvíkingur,
Björgvin Björgvinsson, var maður dagsins þegar skíðalandsmótið hófst í Hlíðarfjalli við Akureyri i gær. DV-mynd BÖS
Litla-Hraun:
Fimm fangar
í einangrun
-en engin eyönismit
41-
Lúðvík Ólafsson aðstoðarland-
læknir heimsótti fangelsið á Litla-
Hrauni í gær
til að rann-
saka hvort
fangar hefðu
hugsanlega
smitast af
eyðni í fang-
JBtlsinu svo sem
sagt hafði
verið frá í
Sjónvarpinu.
Lúðvík sagði í
samtali við DV
í gær að
fangarnir hafi allir verið skoðaðir
en enginn þeirra hafi greinst með
eyðni.
„Þetta virðist vera úr lausu lofti
gripið. Það eru engin merki um
eyðnismit hjá neinum þessara
manna,“ segir Lúðvík.
Nokkrir fangar munu hafa
sprautað sig með amfetamíni í æð
og notað sömu sprautuna. Sam-
kvæmt heimildum DV hafa fimm
Jangar verið vistaðir í einangrun á
’ nltla-Hrauni vegna málsins. -RR
Saksóknari telur lækni hafa brotið af sér gagnvart sjúklingi:
Læknirinn
ákærðu r
Ríkissaksóknaraembættið hefur
gefið út ákæru á hendur lækni í
Reykjavík fyrir kynferðisbrot gegn
sjúklingi og brot í opinberu starfi.
Réttarhöld, sem verða að líkindum
lokuð, munu því fara fram á næst-
unni í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Maðurinn, sem var vaktstjóri hjá
Læknavaktinni í Reykjavík, var í
vitjun hjá kæranda þegar meint
brot átti sér stað. Samkvæmt heim-
ildum DV kom maðurinn margsinn-
is á heimili konunnar sem kærði
hann.
Konan hélt því fram að læknirinn
hefði svæft sig og síðan haft við sig
mök. Maðurinn er ákærður í sam-
ræmi við það, broti gegn 196. grein
hegningarlaganna. Hún kveður m.a.
á um að hver sem „notfæri sér“
annmarka einstaklings í því skyni
að hafa við hann samræði á meðan
hann getur ekki spornað við verkn-
aðinum eða skilið þýðingu hans
skuli sæta fangelsi allt að 6 árum.
Viðurlög við broti gegn þessari laga-
grein er mun vægari en viðurlög
við nauðgun. Þar er refsilágmark 1
ár en hámarkið er 16 ár.
„Við höfurn talið að ef yfirvöld
teldu ástæðu til að gefa út ákæru
yrði það eðlilegur framgangur,"
sagði Guðmundur Bjömsson, for-
maður læknafélagsins, við DV í gær.
„Það er eftir að taka afstöðu um
aðild mannsins að Læknafélagi ís-
lands. Þegar við vitum niðurstöðu
dóms mun það verða gert,“ sagði
Guðmundur.
Heilbrigðisráðherra hefur svipt
umræddan lækni leyfi til lækninga.
Var það gert að tillögu landlæknis í
kjölfar sjálfstæðrar rannsóknar
embættis hans á háttsemi læknisins.
Læknirinn hefur viðurkennt að hafa
haft samræði við konuna. Honum og
kæranda ber hins vegar ekki saman
um ýmis atriði málsins. -Ótt
Hjúkrunarfræðingar:
Flestar óléttar
verða eftir
Eygló Ingadóttir er einn þeirra
hjúkrunarfræðinga sem sagði upp
störfum um síðustu mánaðamót.
Hún segir að
margir hjúkrunar-
ffæðingar á bráða-
deildum Landspít-
alans hafi sagt
upp. Mjög margir
hafi sagt upp á
gjörgæsludeild
sem hún starfar á Eygló Ingadóttir.
en flestir þeirra
sem ekki hafi sagt upp séu bamshaf-
andi eða í bamseignarfríum. Hún
telur ekki hægt að reka stofnunina
með þvi starfsfólki sem eftir verði.
Hún segir meginástæðu fyrir
uppsögnunum lág laun og að hjúkr-
unarffæðingar vilji fá leiðréttingu á
launum. „Fólk er ekki til í að vinna
við það sem það hefúr menntað sig
til og bera þessa ábyrgð fyrir þessi
laun. Við erum að segja að það sé
komið nóg. Við erum ekki að miða
okkur við lækna. Hjúkrunarffæð-
ingar hafa staðið í stað miðað við
sambærilegar stéttir," segir Eygló.
„Margir hjúkrunarffæðingar
huga að því að breyta um starfsvett-
vang eða fara til annarra landa. Það
ku vanta 12 þúsund hjúkranarfræð-
inga 1 Noregisegir Eygló. -sm
Veðrið á sunnudag
og mánudag:
Hægviðri
Á sunnudag og mánudag gerir
Veðurstofan ráð fyrir hæglætis-
veðri. Á landinu verður norð-
austangola en sums staðar kaldi.
É1 verða við austurströndina en
annars þurrt og víða léttskýjað.
Hiti verður 0 til 6 stig yfir daginn
en vægt næturfrost.
Veöriö í dag er á bls. 73.
NISSAN
30%
Verðlækkun
á Nissan
varahlutum
Ingvar
|j g-g Helgason hf.
= ■= = Sævarhöfða 2