Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1998
Fréttir
Kostnaðaráætlun vegna gagnagrunns dregin í efa:
Milljarðamismunur
- á útreikningum Ríkisspítala og íslenskrar erfðagreiningar
Fulltrúar Ríkisspítala draga í efa
þær kostnaðaráætlanir sem ís-
lensk erfðagreining hefur lagt fram
hvað varðar stofnun miðlægs
gagnagrunns. íslensk erfðagrein-
ing hefur talið kostnaðinn 12-14
milljarða. Fyrirtækið fullyrðir
jafnframt að 3-400 hámenntaðir ís-
lendingar muni vinna að gerð
gagnagrunnsins. Fulltrúar Ríkis-
spítala benda á að við gerð allra
annarra gagnagrunna sem menn
þekki séu 75-80 prósent ekki há-
menntað fólk heldur innsláttarfólk
sem vinni undir verkstjórn há-
menntaðs fólks. Þeir segjast einnig
hafa látið reikna út fyrir sig áætl-
anir um kostnað við stofnun
gagnagrunnsins. Útkoman sé á bil-
inu 1-4 milljarðar króna.
„Sérleyflshafi vill búa grunninn
til og hafa hann í 12 ár en hann
ætlar ekki að greiða neitt meira,“
sagði Gísli Einarsson, fulltrúi í
stjórnamefnd Ríkisspítalanna, við
DV. „Það kemur því ekkert fé inn í
sjálft heilbrigðiskerfið. Við höfum
bent á þann galla í frumvarpinu,
eins og það er nú, að ekki komi
fram hver eigi grunninn að 12
árum liðnum. Okkur hefur hins
vegar verið tjáð að sérleyfishafinn
telji sig eiga hann, en að hann
verði verðlaus þá. Það held ég að
sé ekki rétt þótt reikna megi með
að hann verði talsvert verðminni
þá heldur en hann var í upphafi.
Það stafar af því að þá verður búið
að ná út úr honum ýmsum mikils-
verðum upplýsingum. Eftir 12 ár
verður tæknin búin að gera það að
verkum að við höfum miklu minni
þörf fyrir miðlægan gagnagrunn."
Gísli sagði fulltrúa Ríkisspítala
ekki hafa haft svigrúm til að
kanna með hvaða hætti megi
tryggja öryggi þeirra persónuupp-
lýsinga sem spítalamir hafi yfir að
ráða. Þeim upplýsingum hefði ekki
verið safnað til að fá þær í hendur
sérleyfishafa í ágóðaskyni. Loks
telji margir af færustu tölvu- og
tæknimönnum landsins að grunn-
forsendur fyrir slíkum gagna-
grunni séu ekki fyrir hendi og þeir
séu aifariö á móti honum. Sam-
tenging margra gmnna dugi vel til
að gera þessa hluti en sé jafnframt
miklu ömggari hvað persónuvernd
varðar. -JSS
Stóraukin
sementssala
DV, Akranesi
Sala Sementsverksmiðjunnar
hf. á Akranesi jókst um 30%
fyrstu þrjá mánuði þessa árs, bor-
ið saman við fyrstu þrjá mánuði
ársins 1997. Ef heldur fram sem
horfir em líkur á því að sements-
salan í ár verði svipuð og á áran-
um fyrir 1988, þegar byrjaði að
draga úr sementssölu.
Sementssala síðasta árs var
svipuð og árið 1990, eða 108.000
tonn, en ef miðað er við árin
1974-1997 varð hún mest árið
1974, rétt yfir 160.000 tonn.
Minnst var hún árið 1995, um
78.000 tonn, og árið 1988 um
130.000 tonn.
Aukin sala nú er auðvitað til-
komin vegna aukinna umsvifa í
þjóðfélaginu. Má þar nefna fram-
kvæmdir eins og byggingu álvers
á Grundartanga, Hvalíjarðargöng
og Sultartangavirkjun, auk þess
sem verið er að byggja gríðarlega
mikið af iðnaðar-, verslunar- og
skrifstofuhúsnæði víða um land.
-DVÓ
Lögreglan í Reykjavík var kölluö út síðdegis á laugardag til að aðstoða fjórtán hjúkrunarfræðinga sem voru stranda-
glópar í Geldinganesi. Konurnar höfðu farið í gönguferð um nesið en þegar þær ætluðu að snúa við hafði flætt yfir
eiðið á milli lands og ness. Þær voru orðnar nokkuð kaldar er hjálp barst en varð þó ekki meint af volkinu.
DV-mynd S.
Hörö andstaöa viö frumvarp um gagnagrunn:
Samþykki myndi stefna
starfi okkar í hættu
- segir erfðafræðingur Rannsóknarstofu Krabbameinsfélagsins
„Verði framvarp um gagnagrann
samþykkt eins og það kemur fyrir
myndi það gera okkur erfiðara fyrir
að fjármagna starfsemina á erlendum
styrkjum eins og við höfum gert að
stóram hluta hingað til. Við metum
það svo að yfirlýst stefna um að eitt-
hvert eitt fyrirtæki eigi einkarétt á
notkun á þessum gagnagranni myndi
þannig veikja stöðu okkar mjög mik-
ið og stefna starfi okkar í hættu.“
Þetta sagði Jórann E. Eyfjörð,
erfðafræöingur á Rannsóknarstofu
Krabbameinsfélagsins 1 sameinda- og
frumulíífræði.
Jórann sagði það einsdæmi að
hugmyndir væra uppi um að taka
einkaleyfi á notkun gagnagrunns um
heila þjóð. Það þætti mjög undarlegt
í vísindaheiminum. Viðbrögð væra
sterk og mönnum þætti þetta mjög
sérstakt. Hún kvaðst vonast til að
hægt yrði að seinka afgreiðslu fram-
varpsins á Alþingi.
„Ég vil t.d. benda á að það stangast
á við frumvarp um réttindi sjúklinga
sem samþykkt var á síðasta ári. Það
fékk mjög vandaða umfjöllun. Hitt er
sérstakt að frá sama ráðuneyti komi
nýtt framvarp sem á að hraða sérlega
mikið en stangast í verulegum atrið-
um á við hið nýsamþykkta framvarp.
Spumingin er hvort miðlægur gagna-
grunnur sé af hinu góða í litlu samfé-
lagi og hvort gagnavemdin sé nægi-
lega góð. Það hafa komiö fram mjög
góð rök fyrir því að í þessu litla sam-
félagi þurfi ekki miklar upplýsingar
um hvem einstakling til þess að
hann sé auöþekkjanlegur. Umrædd
duikóðun hefur aldrei verið útskýrð
þannig að skiptar skoðanir era á því
hvort hún sé framkvæmanleg og
hvernig framkvæmdin ætti að vera.
Framvarp um réttindi sjúklinga legg-
ur mjög mikla áherslu á vemd ein-
staklingsupplýsinga og að fólk hafi
ákvörðunarrétt um það hvort það
vilji, eða vilji ekki, vera með í ein-
hverjum tilteknum rannsóknum. I
nýja frumvarpinu er ekkert fjallað
um þetta, t.d. hvort fólk getur sagt sig
úr þessum nýja gagnagranni. Óskir
sjúklinga um slíkt myndu veikja
gagnagrunninn og gera hann óörugg-
ari.“ -JSS
Formaöur félags íslenskra hjúkrunarfræðinga:
Margir gallar á frumvarpinu
„Við höfum skoðað þetta frum-
varp mjög ítarlega og sjáum á því
marga galla," sagöi Ásta Möller,
formaður Félags íslenskra hjúkrun-
arfræðinga, um frumvarp um
gagnagrann.
Ásta sagði hjúkrunarfræðinga
hafa hvatt til þess að frumvarpið
yrði skoðað betur á faglegum, sið-
fræðilegum og lagalegum, granni.
Hjúkrunarfræðingar hefðu m.a.
skoðað það með hliðsjón af sam-
þykktum um þetta efni hjá OECD
og Evrópusambandinu.
„Við erum búnar að liggja yfir
þessu framvarpi og okkur finnst
við ekki einu sinni ná almennilega
utan um það. Við hverja skoðun
vakna stöðugt fleiri spurningar.
Stærstu gallarnir eru varöandi per-
sónuvemd sem okkur finnst ekki
vera tryggð. Þá má nefna einkaleyfi
og aðgang að þessum gögnum og
hvað það þýðir fyrir aðra sem vilja
komast að þeim.
Þessi mikli flýtir hefur verið út-
skýrður af hálfu íslenskrar erfða-
greiningar með þeim hætti að um
viðskiptalega hagsmuni væri að
ræða. Við drögum það mat ekki í
efa en umdeild lög, sem harðlega
hafa verið gagnrýnd af fagstéttum,
hljóta einnig að draga úr viðskipta-
vild fyrirtækisins.
Hin almenna venja er í dag að
sækja þarf til Tölvunefndar um að-
gang að persónugögnum, sé fólk að
hefja rannsóknir. Við teljum að
þetta fyrirtæki þurfi því einnig að
sækja um til nefndarinnar í hvert
sinn sem það fer inn í þessi gögn.
Þessi atriði, sem ég hef nefnt, eru
aðeins brot af fjölmörgum spurn-
ingum sem er enn ósvarað."
-JSS
Stuttar fréttir i>v
Stjórnin hélt
Framboðslisti stjómar Dags-
brúnar-Framsóknar fékk 66%
atkvæða kosn-
ingu meðal fé-
lagsmanna um
helgina. Kjör-
sókn var afar
dræm, innan
við 1.100 af lið-
lega 5.700 fé-
lagsmönnum
greiddu atkvæði. Halldór
Bjömsson er því formaður fé-
lagsins.
Röskun á flugi
Flugleiðir fljúga ekki til
Kaupmannahafnar meðan
verkfall stendur þar yfir. Far-
þegar sem þurfa að komast til
eða frá Kaupmannahöfn geta
nýtt sér aukaferðir til Ham-
borgar og Stokkhólms sem
famar verða á meðan á verk-
falli stendur. Hægt er að ná
tengiflugi í Stokkhólmi og
komast má með lest frá Ham-
borg til Kaupmannahafnar.
Opnari vegir
Kristinn H. Gunnarsson al-
þingismaður segir fólk á norð-
anverðum Vestfjörðum óánægt
með að vegurinn um Stein-
grímsfjarðarheiði sé ekki opn-
aður á hverjum degi. Einn skafl
loki leiðinni og Vegagerðin ætti
að geta haft þar tæki alla daga.
Nú er mokaö þar þrjá daga í
viku.
Varia sameining
Litlar líkur eru á því að
Skorradalshreppur geti samein-
ast nágrannasveitarfélögum
sínum fyrir næstu sveitar-
stjómarkosningar eins og
meirihluti hreppsnefndar vill.
Hagstofan rannsakar nú bú-
ferlaflutninga til hreppsins en
þeir þykja grunsamlegir. Bylgj-
an sagði frá.
Jóhannes formaður
Jóhannes Gunnarsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri
Neytasamtak-
anna, var kos-
inn nýr for-
rnaöur sam-
takanna á
laugardags-
morgun. Jón
Magnússon
verður áfram
varaformaður samtakanna.
Stefnuskrá R-listans
Reykjavíkurlistinn kynnti
stefnuskrá sína i gær. Þar er
meðal annars stefnt að lagn-
ingu Sundabrautar í áfóngum
niður á Álfsnes, lækkun hol-
ræsagjalds og skiptingu borgar-
innar í níu hverfi meö hverfis-
ráðum. Þá á að byggja tvö ný
hjúkrunarheimili fyrir aldraða
og tryggja bömum, eldri en
eins árs, örugga og niöur-
greidda dagvist.
Meiri þátttaka
Foreldrar vUja taka beinni
þátt í skólastarfinu en mögu-
leiki er gefinn á nú. Þetta kem-
ur fram í könnun sem Félags-
visindastofnun gerði fyrir
SAMFOK.
Misskilningur
Konráð Eggertsson, formað-
ur Félags hrefnuveiðimanna,
segir að nið-
urstaða rík-
isstjómar-
innar um að
hefja ekki
hrefnuveiðar
í sumar komi
sér mjög á
óvart enda sé
hún byggð á
misskilningi. Konráð sagði í
fréttum Bylgjunnar að vel væri
hægt að nota þann tækjabúnað
sem til er í landinu. -HI/JHÞ