Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1998
Fréttir
Árni Tómasson geröi athugasemdir viö laxveiðimál Landsbankans:
Lét ríkisendurskoð-
anda vita árið 1996
Árni Tómasson endurskoðandi
segist hafa rætt almennt við rík-
isendurskoðanda í ársbyrjun 1996
um risnumál Landsbankans. Hann
greindi honum frá athugasemdum
sem hann hafði gert til banka-
stjórnar. Hann segist raunar telja
sig hafa gert slíkt áður munnlega
við ríkisendurskoðanda en kveðst
ekki geta fullyrt um það þar sem
ekkert skriflegt liggi fyrir um það.
„Já, hann vissi um þetta alveg
frá ársbyrjun 1996,“ segir Árni.
„Alla vega sáu þeir afrit af mínum
blöðum. Þeir vissu alveg hvað var
að gerast af því sem það blasti við
okkur, af því sem hægt var að ráða
af fylgiskjölunum," segir Árni.
- Ræddir þú þessi mál sérstak-
lega við ríkisendurskoðanda?
„Já, lauslega að vísu, til dæmis
um mál Sverris (Hermannssonar).
Þau ræddum við og urðum sam-
mála um að ekki væri ástæða til
aðgerða miðað við þau loforð sem
ég fékk. Ég sagði Sigurði (Þórðar-
syni ríkisendurskoðanda) af því.“
- Lofaði Sverrir bót og betrun
varðandi það að bankinn væri að
kaupa leyfi úr á tengdri honum
sjálfum?
„Já, að hætta þessu.“
- Hve oft gerðir þú athugasemd-
ir við bankastjómina?
„Fjórum sinnum á fjórum árum,
1994-1997. Ég vil halda því fram að
ég hafi gert ríkisendurskoðanda
munnlega grein fyrir þessu fyrir
árið 1996 en ég á ekkert skriflegt
til um það. Mér finnst það líklegt
en get ekki um það fullyrt. Mér
bar heldur engin skylda til þess
enda kom sú stofnun sjálfstætt að
þessu.
En eins og upplýsingarnar lágu
fyrir fannst okkur ekki ástæður til
athugasemda miðað við það sem lá
fyrir. Fjárhæðirnar voru ekki það
háar á ári að okkar mati miðað við
stærð og umfang bankans," sagði
Árni Tómasson.
-Ótt
Stykkishólmur:
Einn tekinn
fyrir landasölu
Að sögn lögreglunnéir í Stykkis-
hólmi var helgin róleg þar, utan það
að ungur maður var handtekinn
fyrir landasölu og bmgg.
Hjá manninum fundust um 75
lítrar af landa og 60 lítrar af
gambra. Maðurinn hefur játað og
telst málið því upplýst. -glm
Vestmannaeyjar:
Nýtt tungl
hefur áhrif
Að sögn lögreglunnar í Vestmanna-
eyjum var helgin erilsöm þar. Tals-
vert var um ölvun, slagsmál og ölvun-
arakstur.
Lögreglan taldi að e.t.v. mætti
skýra hegðun Vestmannaeyinga um
helgina með því að nú væri nýtt
tungl.
-glm
Höfuðborgarsvæðið:
Stútar viö stýrið
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
var mikið af fólki í miðbænum um
helgina. Talsverður erill var hjá lög-
reglunni og eitthvað var um minni
háttar slagsmál.
Einnig var talsvert um ölvun-
arakstur um helgina og voru hátt í
tveir tugir ökumanna teknir fyrir
þær sakir. -glm
Árekstur mótorhjóls og bifreiöar varö á Bæjarbraut í Garöabæ síödegis á laugardaginn. Ekki uröu slys á mönnum
og má m.a. þakka þaö góöum búnaöi mótorhjólamannsins. DV-mynd S
Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi
Ekki í okkar verkahring
aö aðvara bankaráð
- fengu athugasemdir Árna Tómassonar 1996
Sigurður Þórðarson ríkisendur-
skoðandi segir í samtali við DV að
það hafi ekki verið í verkahring
Ríkisendurskoðunar að standa í
bréfaskriftum til bankaráðs Lands-
bankans. Það hafi gilt verkaskipting
milli hans og Áma Tómassonar
endurskoðanda bankans. Ámi hafi
gert honum viðvart um viðskipti
Landsbankans og Sverris Her-
mannssonar 1996 en þá hafi fylgt
sögunni að bankastjórarnir hefðu
ákveðið að hætta viðskiptum Lands-
banka við Bálk ehf. Ríkisendurskoð-
un hafi því ekki aðhafst frekar.
Hvað varðar athugasemdir Jóhanns
Ársælssonar að honum þyki „um-
hugsunarvert" að Ríkisendurskoð-
un hafi ekki aðhafst neitt í málum
Landsbankans eftir að Helgi S. Guð-
mundsson, formaður bankaráðs,
gerði þeim viðvart um athugasemd-
ir Árna Tómassonar endurskoðanda
í nóvember segir Sigurður að þeir
hafi haft málið í skoðun. Það hafi
ekki verið í þeirra verkahring að
gera bankaráði viðvart.
„Það kemur fram í skýrslu okkar
að Ámi Tómasson hafði látið okkur
fá athugasemdir um viðskipti Sverr-
is og bankans. Árni talaði við mig
1996, ári áður en Sverrir sendir hon-
um bréf þess efnis að viðskiptum
Bálks og bankans verði hætt. Árni
talaði við mig og hafi hann sent
bankastjórunum bréflegar athuga-
semdir á þessum tíma þá fékk ég
það bréf ekki. Við það tækifæri tal-
aði Árni við mig og þá var mér sagt
að bankastjórarnir hefðu ákveðið að
þessum viðskiptum væri lokið. En
ári síðar, þegar við vorum að skoða
árið 1996, kom það upp að þessu
hafði ekki veriö hætt og þá kemur
þessi skriflega yfirlýsing Sverris,"
segir Sigurður í samtali við DV.
- Þú sást aldrei ástæðu til að til-
kynna þetta til bankaráðsins þegar
þú vissir af þessu strax 1996?
„Nei, það var sagt að það hefði
verið ákveðið að hætta við þetta.
Skrifleg yfirlýsing Sverris kom svo
1997. En verkaskiptingin milli min
og Áma var ekki þannig að ég hafi
verið að skrifa bankaráði bréf.“
- En gaf þetta Ríkisendurskoðun
ekki tilefni til að skoða málið frek-
ar?
„Nei, Árni Tómasson sagði mér
1996 að þessu máli væri lokið. Þetta
byggist allt á því að menn treysti
hver öðrum og að það sé verið að
segja satt.“
Jóhann Ársælsson, sem sagði af
sér setu í bankaráði, segir umhugs-
unarefni hversu lengi það dróst að
Ríkisendurskoðun tæki á þeim upp-
lýsingum sem þið höfðuð fengið frá
Helga S. Guðmundssyni, formanni
bankaráðs, í nóvember í fyrra þar
sem þá hafi verið framkomnar ýms-
ar af þeim athugasemdum sem síðar
rötuðu í skýrslu Ríkisendurskoðun-
ar. Hver er skýringin og af hverju
létuð þið hankaráð ekki vita?
„Við voram einfaldlega með mál-
ið í skoðun. Upplýsingar Helga gáfu
ekki tilefni til að halda að hér væri
um slíkt stórmál að ræða. Hvað
varðar upplýsingagjöf til bankaráðs
þá vísa ég til verkaskiptingar milli
okkar Árna,“ sagði ríkisendurskoð-
andi.
-phh
Geirfinn fyrir Herbalife
Jón Óttar Ragnarsson, fyrr-
um sjónvarpsstjóri á Stöð 2, hefur
eins og kunnugt er haldið sig í
Los Angeles og lagt net víða um
lönd fyrir Herba-
life. Að eigin sögn
hefur hann þénað
allvel á þessum
viðskiptum. En
Jón Óttar hefur
gengið með bíó-
myndagerð í
maganum lengi
og var það
reyndar
frumorsök fyrir veru hans vestra.
Þegar hann er nú kominn í álnir
segja heimildir að hann sé langt
kominn með undirbúning að eig-
in kvikmynd eftir eigin handriti.
Myndin mun að sögn vera byggð
á atburðum Geirfinnsmála og
verða tekin upp hér á landi og
vestra strax á þessu sumri...
Ætlar til Sydney
Það varð mikið uppistand inn-
an júdóhreyfingarinnar fyrir
tveimur árum þegar Vernharð
Þorleifsson, júdómaður á Akur-
eyri, fékk ekki að
taka þjálfarann
sinn með á
Ólympíuleikana í
Atlanta en var
gert að fara
þangað með
þjálfara Bjarna
Friðrikssonar.
í kjölfarið hélt
Vernharð til
Noregs, tilkynnti með pomp og
prakt að hann yrði innan tíðar
norskm- rikisborgari og myndi
keppa fyrir Noreg á Ólympíuleik-
unum í Sydney árið 2000. En fljótt
skipast veður í lofti. Vernharð
kom heim skömmu síðar og hefur
nú lýst því yfir að hann muni
keppa á leikunum í Sydney fyrir
ísland og þjálfarinn hans fari með
honum. Það mun hafa verið
friðflytjandinn Júlíus Hafstein,
formaður Júdósambandsins, sem
varð til þess að menn slíðruðu
sverð ...
Góðirvinir
Árshátíð Fulbrightstofnunar-
innar á ísíandi var haldin nýlega
og var veislustjóri Einar Bene-
diktsson sendiherra. Aðalræðu-
maður kvöldsins var Björn
Bjarnason
menntamálaráð-
herra og eftir að
veislustjóri hafði
kynnt hann hóf
menntamálaráð-
herra ræðu sína
á því að lýsa því
aö þeir Einar
væru gamlir
vinir. Enskumæl-
andi fólki þótti menntamálaráð-
herrann komast einkennilega að
orði þegar hann lýsti kunnings-
skap þeirra Einai's og mælti: „We
Einar are good friends ..."
Dollý og sauðurinn
Stöð 2 skúbbaði rækilega þegar
Sigmundur Ernir Rúnarsson
varafréttastjóri kynnti frétt sem
fól í sér þau stórmerki að ein-
ræktaða ærin Doliý hefði borið
lambi. Það eitt var í sjálfu sér
fréttnæmt en
að auki fólst í
frétt Stöðvar-
innar það
skúbb að
granninn að
afkvæmi
Dollýjar
hefði
ónafn-
greindur sauður
lagt. Hér er því á ferðinni annað
líffræðilegt kraftaverk. Fyrir þá
sem ekki vita era sauðir
nefnilega þeirrar „náttúru" að
búið er að gelda þá. Fram að því
kallast þeir hins vegar hrútar ...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkom CaB. is