Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1998
KentrucK
Ahvík
Armúla 1- Reykiavík,
Sfmi 568 7222 - Fax 568 7295
Handlyfti-
vagnar
Þýskar álfelgur á
bíla.
535 9000
Útlönd
Atvinnulíf í Danmörku lamaðist í nótt:
Búist við löngu og
ströngu verkfalli
Verkfall tæplega 500 þúsund Dana
hófst nú í nótt, eftir að um 56% fé-
laga í stærstu verkalýðssamtökum
Danmerkur höfnuðu nýjum launa-
samningum í atkvæðagreiðslu. Nán-
ast allt atvinnulíf lamast í verkfall-
inu, enda nær það til um það bil
fimmtungs af vinnuafli landsins.
Forystumenn verkalýðshreyfingar-
innar búast við löngu verkfalli, jafn-
vel í 2-3 vikur, enda hefur ekkert
heyrst frá samtökum atvinnurek-
enda.
Verkfallið hefur mest áhrif á iðn-
greinamar og samgöngur í landinu,
en engu aö siöur munu flestir Dan-
ir verða þess áþreifanlega varir.
Vörur hafa þegar tæmst úr hillum
verslana sökum hamsturs og talið
er að bensínbirgðir muni ekki end-
ast nema í nokkra daga.
Þá verður rusl ekki hirt og skól-
um verður lokað vegna verkfalls
Hillur hafa tæmst í verslunum vegna
yfirvofandi verkfalls.
ræstingafólks. Flug á vegum SAS
mun liggja niðri og einungis verður
hægt að veita smærri flugvélum
þjónustu þannig að verkfallið kem-
ur einnig til með að hafa áhrif á flug
milli íslands og Kaupmannahafnar.
Það kom vinnuveitendum og
verkalýðsforystunni jafnmikið á
óvart á föstudaginn að samningun-
um var hafnað. Verkafólk krefst
þess að fá sex vikna launað sumar-
frí, en eins og er hafa Danir fimm
vikna sumarfrí á launum. Atvinnu-
rekendur segja að sjötta vikan
myndi samsvara 2,2% launahækk-
un í viðbót við þau 4,25-4,5% sem
samið var um.
Hans Jensen, formaður dönsku
verkalýðshreyfingarinnar, segir
ljóst að semja verði um meiri frí-
tíma á launum án þess að það komi
til með að kosta atvinnulífið jafn
mikið og þeir hafa fullyrt.
Úkrafnskur maöur kveikir á kerti viö kjarnorkuveriö f Chernobyl í gærmorgun til aö minnast þeirra sem fórust þegar
kjarnakljúfur gaf sig fyrir 12 árum. Afleiöingar kjarnorkuslyssins voru gffurlegar og gætti vföa um Evrópu, auk þess
sem fjöldi barna í nágrenninu varö fyrir alvarlegum skaöa sökum geislunar. Kjarnorkuverinu hefur ekki veriö lokaö
þrátt fyrir ábendingar umhverfissinna um aö annaö eins umhverfisslys kunni aö gerast. Símamynd Reuter
Rússneskur of-
urhugi deyr á
norðurpólnum
Rússneskur ofurhugi og þekkt-
ur björgunarmaður, kafari og
fjallagarpur fórst á noröurpólnum
í gær þegar hann reyndi aö slá
heimsmet í köfun.
Maöurinn, Andrea Rozhkov,
var að reyna nýja tegund köfunar-
útbúnaðar og vildi jafnframt
verða fyrstur til að reyna að kafa
á norðurpólnum.
Talsmaður sambands björgun-
arsveita taldi að eitthvað hefði
gefið sig í búnaðinum.
Minningarsjóður
Díönu í uppnámi
Minningarsjóður um Díönu
prinsessu er í uppnámi vegna
þeirrar ákvörðunar að setja mynd
hennar á nýja smjörlíkistegund í
auglýsingar- og fjársöfnunar-
skyni. Vilhjálmur prins er sagður
miður sin yfir því að nafn móöur
hans skuli tengt hverju sem er til
að safna fé.
Serbar og Albanar
berjast í Kosovo
Átök blossuðu upp að nýju
milli serbneskra hermanna og
Albana í Kosovohéraöi í gær-
morgun, rétt við albönsku landa-
mærin. Ekkert mannfall varð, að
sögn yfirvalda í Serbíu.
Að sögn forsvarsmanna
serbneska hersins voru um 10
hryðjuverkamenn úr röðum
Kosovo-Albana yfirbugaðir eftir
árásina. Þá sögðust þeir einnig
hafa hindrað um 200 aðskilnað-
arsinna að komast yfir landa-
mæri Albaníu og Kosovo með
gífurlegt magn af vopnum og
sprengjum. Mennimir hefðu flú-
ið þegar þeir uppgötvuðu að upp
um þá hefði komist. Þorpsbúar
eru þó uggandi um afdrif þeirra.
Þá réðust aðskilnaðarsinnar
einnig á tvær lögreglustöðvar
Serba á laugardagskvöld og að
morgni sunnudags. Serbar segja
að tveir lögreglumenn hafi særst
í árásunum.
Serbneskur hermaöur hugar aö
vopnum viö albönsku landamærin.
Stuttar fréttir ðv
Sigur öfgahægrisinna
Gerhard Frey, leiðtogi öfga-
hægrisinna,
vann stórsig-
ur í kosning-
um í austur-
hluta Þýska-
lands í gær.
Flokkur Freys
hlaut 11% at-
kvæða en
Kristilegir
demókratar,
flokkur Kohls kanslara, guldu
mikið afhroð í kosningunum.
ETA sækir ráð til IRA
Fulltrúar írska lýðveldishers-
ins, IRA, og hryðjuverkasveita
aðskilnaðarsinna Baska, ETA,
áttu leynifund í Úrúgvæ um
helgina til að ræða um friðar-
samningana á Norður-írlandi.
Skaut félaga sinn
Fjögurra ára drengur skaut til
bana sex ára gamlan leikfélaga
sinn í Norður-Karólínu í Banda-
ríkjunum í gær. Amma drengs-
ins var að undirbúa afmælis-
veislu og drengimir voru að leik
í garði við hús hennar þegar þeir
fundu byssu með framangreind-
um afleiðingum.
Tólf fórust á Spáni
Tólf manns fórast og um 40
slösuðust þegar rúta valt á fjall-
vegi í austurhluta Spánar í gær.
Rútan var fúll af farþegum á leið
tU Valencia.
Morð á N-írlandi
Sprengja sprakk í krá á Norð-
ur-írlandi í gær en varð engum
að fjörtjóni. Kaþólskur maður
fannst hins vegar myrtur á laug-
ardag og er talið að öfgasamtök
sambandssinna mótmælenda
beri ábyrgð í báðum tUvikum.
Fdður undirbúinn
Dennis Ross, sérlegur sendi-
fuUtrúi Bandaríkjanna í Mið-
austurlönd-
um, átti fund
með Yassir
Arafat, for-
seta Palest-
ínumanna og
Benjamín
Netanyahu,
forsætisráð-
herra ísraels,
nú um helg-
ina til að undirbúa friðarviðræö-
ur sem eiga að hefjast í Lundún-
um 4. maí.
Kosningar sniögengnar
Kjósendur urðu við kröfum
helsta flokks stjómarandstæð-
inga í Nígeríu og sniðgengu að
mestu kosningamar sem haldn-
ar voru á laugardag.
Vopnahlé framlengt
Talebanar í Afganistan áttu í
dag viðræður með helstu and-
stæðingum sínum. Báðum fylk-
ingum kom saman um að fram-
lengja vopnahlé eftir að átök
blossuðu upp aftur á laugardag.
Paula púuð niður
Paula Jones, sem kærði Bill
Clinton Bandaríkjaforseta fyrir
kynferðislega
áreitni, var pú-
uð niöur er
hún mætti til
góðgerðarsam-
komu á laugar-
dag þar sem
forsetinn og
Hillary, kona
hans, vora
heiðursgestir.
Monicu Lew-
insky, sem sögð er hafa átt í kyn-
ferðissambandi við forsetann,
var einnig boðið en hún afþakk-
aði.
Annað kennaramorð
Fjórtán ára drengur myrti
kennara sinn á skólaballi í
Bandaríkjunum á laugardag.
Ekki er vitað hvernig honum
tókst að smygla byssunni inn á
skólaballið. Skólabróðir drengs-
ins særðist einnig.