Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1998, Page 36
44, MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1998 k Ummæli króknum | „Hann fattar ekki hvemig ein Jóhanna á þingi og tvær prjónakonur úr Kvennalist- ■ anum gátu með nuddi sínu náð honum á krókinn.“ Steínunn Jóhannesdóttir, í DV 1000 á ári „Enn er staðan sú að á hverju ári greinast um 1000 íslending- ar með krabba- mein...“ Guðrón Agn- arsdóttir, í MBL i l Kaffi og kruðerí „Og sérstakur þjónn sem elti mann um ár- bakkana með heitt kaffi og kraðeri." Sverrir Her- mannsson, í MBL I í eina sæng „Spyrðum ofsatrúarmenn og portkonur saman í ævi- langt hjónaband." Jóhannes Sigurjónsson, í Degi Til fram- búðar „Skjámenning, tölva, ver- aldarvefur og aðrir hraðboðar okkar tima hafa slegist í fór með manninum til frambúð- ar, og er það vel, sé farsællega á haldið." Þorsteinn frá Hamri, í Degi. Standa við sitt „Sjálfstæöis- menn hafa ávallt staðið við sín kosn- ingaloforð..." Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, ÍDV. # K.K. (Kristján Kristjánsson) tónlistarmaður: Tvísöngur í Lettlandi Nú stendur yfir tónlistarhátíð í Lett- landi og er yfirskrift hennar Farand- söngvarar á faraldsfæti. Henni er ætl- að að skapa grundvöll fyrir samskipti farandsöngvara og auka þekkingu á hefðum þeirra og stefnum. Þátttakend- ur eru frá öllum Norðurlöndunum og Eistlandi, Lettlandi og Litháen. K.K. (Kristján Kristjánsson) er fulltrúi ís- lands. Hann býr í hálfrar aldar gömlu húsi í Teigunum ásamt eiginkonu sinni, Þórunni Rannveigu Þórarinsdóttur iðjuþjálfa, og þremur börnum. „Ég ætla að syngja nokkur íslensk lög. Meðal þeirra eru Borðsálmurinn, Fiðlungur, Hross- ____________________ Maður strengjum og ætli ég syngi ekki íslenskt þjóðlag sem er nokkuð frægt og heitir Ó, mín flaskan fríða.“ K.K. segir að það verði „fimmundarfilingur" á lögunum. Hann ætlar líka að syngja tvísöng. „Ég get náttúrlega ekki sungið tvísöng einn. Ég ætla því að fá gítarinn til að syngja með mér.“ Sumir telja að tví- söngurinn sé þúsund ára gamali og hafi þekkst á víkingatímanum. Eggert Marinósson smíðaði gítarinn sem mun syngja með K.K. og er hann sá nýjasti í safninu. Gítarinn er meðal annars úr snákaviði og mahóníi. Eins og nafnið gefur til kynna flækj- ast farandsöngvarar á milli staða. K.K. hefur haldið þeirri hefð við í mörg ár. Hann bjó í Lundi i Svíþjóð í 13 ár og __________________ fór á hverju sumri í ■ ■ fimm ár til Óslóar QdgSlílS þar sem hann stóð við Karl Johan með gítarkassann fyrir framan sig og söng og spilaði. „Þetta voru gjöful mið. Ég hafði mikla ánægju af þessu og kynnt- ist mörgu góðu fólki. Ég græddi líka mikla peninga og ég seldi kassettur sem ég bjó til. Þetta var eiginlega fyrsta platan mín og hún er ófáanleg I dag.“ K.K. segir að tónlist farandsöngvara þýðumúsík. Þeir flytja gjarnan tónlist og texta sem fjalla um þjóðfé lagsmál og ýms ar hliðar mann lífsins. „Við bæt um litum við lit rófið. Það væri ekkert gaman að þessu ef viö endurvörpuðum því eins og ljós- mynd.“ í Svíþjóð er sterk hefð fyrir far- andsöngvum og K.K. tonlistarmaður. er Bellman tví- mælalaust frægasti sænski farand- söngvarinn. K.K. varð hins vegar fyrir miklum áhrifum af Cornelius Vreeswi- jk. „Hann var mjög róttækur og endur- speglaði samfélagið sem hann bjó í á mjög skemmtilegan hátt. Það er það sem ég er að reyna að gera.“ Að undanfómu hefur K.K. verið að æfa lög eftir Magnús Eiriksson. „Þegar ég kem frá Lettlandi ætlum við að „túra“ smávegis." Hann hefur líka ver- iö að semja lög. „Svo hef ég sökkt mér niður í kveðskap og lesið ljóö eftir Hjalmar Gullberg." Hljómsveitin hans heitir K.K. kvin- tett. Félagar hans þar eru Óskar Guð- jónsson saxófónleikari, Guðmundur Pétursson gítarleikari, Haraldur Þor- steinsson bassaleikari og Ólafur Hólm trommuleikari. „Þetta er bara spari- grúppa og er okkar prívatsveit. Við komum einstaka sinnum fram að gamni okkar.“ Sparigrúppan spilar á Fógetanum 1. og 2. maí næstkomandi og 4. maí hefst svo árleg djass- og blús- hátíð í Borgarleikhúsinu. K.K. spilar á hátíðinni, auk þess sem hann hefur verið aðstoðarmaður Hjalta Björnsson- ar hjá SÁÁ sem stendur fyrir henni. „Það verða góðir músíkantar sem koma þar fram.“ K.K. veit ekki hvað verður á döfmni þegar til lengri ttma er litið: „Ég hef aldrei áætlað nema svona mánuð fram í tímann, nema kannski eitt og eitt „gigg“. Ég myndi aldrei meika það. Ég myndi fá örvæntingarkast, leggjast upp í sófa og breiða teppi upp fyrir haus.“ K.K. veit hins vegar hvað hann ætlar að gera í frítímanum á næstu misserum. Hann er nefnilega búinn að kaupa trillu sem hann segir að sé hobbíbátur. „Ég ætla að veiöa í soðið. Það er búinn að vera draumur minn í mörg ár að eignast trillu." -S.J. Rauði krossinn Aðalfundur Rauða kross- ins verður haldinn í kvöld kl. 18.00 í Sjálfboðamiðstöð R-RKÍ á Hverfisgötu 105. Krabbameins- félag Reykjavíkur Krabbameinsfélag Reykjavíkur stendur fyrir almennum fræðslufundi um krabbamein í blöðruháls- kirtli í kvöld kl. 20.30 í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8. Sæluvika Skag- firðinga Kirkjukvöld í Sauðár- krókskirkju hefst kl. 20.30 og á Kaffi Króki eru dansk- ir dagar. Hið íslenska náttúrufræðifélag í kvöld kl. 20.30 hefst fræðslufundur HÍN og verð- ur hann haldinn í stofu 101 í Odda. Halldór Pétursson jarðfræðingur flytur erindi. Samkomur Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning í Árna- garði er opin þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtu- daga kl. 14.00-16.00 til 15. maí. Myndgátan Lausn á gátu nr. 2088: Vængjasláttur Myndgátan hér aö ofan lýsir hvorugkynsoröi. Tóndansmynd Á morgun, þriðjudag, verður verkið Tóndansmynd frumflutt í Menningarmiðstöðinni í Gerðu- bergi kl. 20.30. Tóndansmynd er um það bil klukkutíma langur gjörningur þar sem tvinnaöar eru saman þrjár listgreinar; tónlist, dans og myndlist. Höfundar og flytjendur eru Guðni Franzson tónlistarmaður, Lára Stefánsdótt- ir dansari og Raghildur Stefáns- dóttir myndlistarmaður. Tónleikar Tónleikar Peters Maté Áður auglýstir tónleikar Peters Maté í Digraneskirkju 27. apríl falla niður vegna veikinda. Næstu tónleikar í Kópavogi verða 4. maí í Digraneskirkju. Þá leika Unnur María Ingólfsdóttir á fiðlu og Miklos Dalmay á pianó. Vindur og ljós Franski leikhópurinn ABAL COMPANY sýnir leiksýninguna Vindur og ljós í Möguleikhúsinu við Hlemm laugardaginn 2. maí kl. 14.00. Vindur og ljós er sýning án orða sem ætluð er börnum á aldr- inum 4-12 ára. í sýningunni renna tónlist og boltakúnstir (jugglíng) saman í sögu fyrir unga áhorfendur. Tilgangurinn er að leiða bömin inn í heim þar sem tónlist og myndir eru eitt en leyfa þeim um leið að búa til sína eigin sögu innan sögunnar. Leikhús Leikritið hefst við sólarupprás í friðsælli veröld; heimi tveggja spaugilegra vina. Annar leikur sér með bolta af mikilli kúnst, hinn er tónlistarmaður. Flytjend- ur eru leikarinn Eric Patrois og saxófónleikarinn Frédéric Bodu. Leikstjóri er Laurent Merienne. Bridge Undankeppni íslandsmótsins í sveitakeppni fór fram um síðustu helgi og þar dró til stórtíðinda. Tvær sterkar sveitir af A- og B-styrkleika þurftu að lúta I gras og náðu ekki inn í úrslitin. Sveit núverandi íslands- meistara, Kaupþing Norðurlands, var önnur þeirra og hin var sveit Stilling- ar. Sveitir VÍS- Keflavik og Islensku útflutningsmiðstöðvarinnar stálu þessum sætum af þeim. Önnur sterk sveit, Marvin, komst áfram á jöfnu, sveit Olís fékk jafn mörg stig en tapaði í innbyrðis viðureign sveitanna. Aðr- ar sveitir í úrslitum eru Öm Arnþórs- son, Eurocard, Ásgrímur Sigurbjöms- son, Samvinnuferðir-Landsýn, Roche, Grandi og Landsbréf. Hér er eitt spil úr 6. umferð en sömu spil vom spiluð í öllum riðlum. í leik Roche og Sam- vinnuferða-Landsýnar gengu sagnir þannig í lokuðum sal, suður gjafari og allir á hættu: ♦ ÁK74 «98 ♦ K3 4 ÁDG85 * 109 «K52 ♦ ÁD96 4 9743 ♦ D863 « D64 ♦ 72 ♦ K1062 Suður Vestur Norður Austur Helgi S. Guðm. ísak Helgi J. pass 2« 3 ♦ 3« 4 * pass 4 4 p/h Tveggja hjarta opnun Guðmundar Sveins Hermannssonar lofaði a.m.k. 5-4 í sögðum lit og láglit til hliðar. Fjögurra spaða samningur leit ekki mjög illa út, virtist standa og falla með tígulásnum réttum og spaðanum 3-2. En þessi lega var ekki hagstæð. Helgi spilaði út hjarta og Guðmundur átti fyrsta slaginn á tíuna. Hann spil- aði lágu hjarta til baka, Helgi drap á kóng, spilaði laufi og vörnin tók þrjár spaðastungur. Spilið fór því 400 niður á hættunni. Samningurinn var 3 spaðar á hinu borðinu, einn niður og S/L græddu 7 impa á spilinu. ísak Örn Sigurðsson 4 G52 « ÁG1073 ♦ G10854 4 -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.