Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1998, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998
Fréttir
Skoðanakönnun DV á því hvern Reykvíkingar vilja sem borgarstjóra:
Sjö af hverjum tíu
vilja Ingibjörgu
- tæp 12 prósent sjálfstæðismanna gætu hugsað sér Ingibjörgu frekar en Árna
Sjö af hverjum tíu kjósendum í
Reykjavík vilja Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur sem borgarstjóra frekar
en Áma Sigfússon. Þar með eykst
enn persónufylgi Ingibjargar á
kostnað Áma í kapphlaupi borgar-
stjóraefna Reykjavikurlistans og
Sjálfstæðisflokksins. Þetta eru
helstu niðurstöður nýrrar skoðana-
könnunar DV á því hvem Reykvík-
ingar vilja sem borgarstjóra. At-
hygli vekur að tæplega 12 prósent
þeirra sem segjast ætla að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn vilja Ingibjörgu
frekar sem borgarstjóra en oddvita
flokksins í borginni.
Könnunin fór fram sl. þriðjudags-
og miðvikudagskvöld. Úrtakið var
418 manns, þar 212 karlar og 206
konur. Spurt var: „Hvort viltu fá
sem borgarstjóra, Áma Sigfússon
eða Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur?“
Miðað við svör allra í könnuninni
vildu 62,8 prósent aðspurðra Ingi-
björgu Sólrúnu sem borgarstjóra, 26
prósent vildu Áma, 8,1 prósent vom
óákveðin og 3,1 prósent vildu ekki
svara spurningunni. Alls tóku því
88,8 prósent úrtaksins afstöðu til
spumingarinnar sem er svipað
hlutfall og í síðustu könnunum DV.
Bilið eykst stöðugt
Af þeim sem tóku afstöðu nefndu
70,7 prósent Ingibjörgu og 29,3 pró-
sent Áma. Munurinn er 41,4 pró-
sentustig og hefur aukist um 12 pró-
sentustig frá slöustu könnun í byrj-
un mars síðastliönum og um 17,6
prósentustig frá febrúarkönnun-
inni.
Munurinn á Ingibjörgu og Áma
er heldur meiri en á fylgi borgar-
stjórnarflokkanna sem birt var í DV
í gær þar sem R-listinn var með 64
prósenta fylgi og D-listinn með 34,5
prósent. Önnur framboð vora alls
með 1,4 prósent á bak við sig, þ.e.
húmanistar og Launalistinn.
Miðaö við síðustu könnun DV í
mars er eins og að konum hafi
fækkað í þeim hópi er vill Áma
frekar en Ingibjörgu. Um leið hefur
körlunum fjölgað en munurinn
þama á milli er ekki svo mikill.
Kynjaskipting hjá stuðningshópi
Ingibjargar og flokki óákveðinna er
nokkuð jöfn en konur era mun fleiri
af sem vildu ekki svara spuming-
unni.
Óákveðnir til Ingibjargar
Þegar afstaða kjósenda er skoðuð
eftir því hvom flokkinn þeir hyggj-
ast kjósa kemur í ljóst að flokkshofl-
usta við oddvita listanna er heldur
meiri hjá kjósendum R- en D-lista.
Tæplega 98 prósent kjósenda R-list-
ans vilja Ingibjörgu áfram í stól
borgarstjóra á meðan hlutfallið inn-
an raða D-listans sem nefna Áma er
rúm 84 prósent. Eins og áður sagði
gætu tæp 12 prósent kjósenda Sjálf-
stæðisflokksins hugsað sér Ingi-
björgu frekar en Áma sem borgar-
stjóra. Ef má kalla þetta óánægju
sjálfstæðismanna með Áma þá hef-
ur hún aukist frá marskönnuninni
um 3 prósentustig.
Innan raða óákveðinna kjósenda
í borginni og þeirra sem vildu ekki
svara spurningunni era flestir, líkt
og áður, einnig óákveðnir í afstöðu
Viðhorf eftir
flokkum
| Áml yji Ingibjörg
ÓÁKVySV. EKKI
A | %
,5% 38/ \
■ ■ m^^
sinni til borgarstjóraefnanna. Ámi
á minnstan stuðning í þessum
hópi, eða 8,5 prósent, á meðan 38
prósent óákveðinna vilja Ingi-
björgu frekar. Hefur sá hópur
stækkað nokkuð frá síðustu könn-
un.
Sökum takmarkaðs fylgis þótti
ekki marktækt að greina með þess-
um hætti hug kjósenda Húmanista-
flokksins og Launalistans til borg-
arstjóraefnanna. -bjb
Árni eða Ingibjörg?
- niðurstöður skoðanakönnunar DV 5. til 6. maí '98 -
7/2 '98
É H/3 '98
■ 6/5 '98
38,1%35,3%
’ 29,3%
Ámi
61,9% 64»7%
70,7%
Ingibjörg
r r SO M **
26” }.,S% \
LL -
Svör allra .su»iinii
5. til 6. maí“98||jTI*a
Hrossasóttin komin í Skagafjörð:
Hef enga skýringu
- segir Páll Pálsson á Flugumýri
DV, Akuteyri;
„Ég varð var það á miðviku-
dagskvöld að hrossin vom orðin
veik og til þessa hafa um 20 hross,
af 33 sem ég er með á húsi, tekið
veikina. Um helmingur þeirra er
þegar oröinn frískur aftur en um
10 enn veik og með hita. Þetta
virðist ganga mjög hratt yfxr,“
sagði Páll B. Pálsson, bóndi á
Flugumýri í Skagafirði, í samtali
við DV í gærkvöld. Hrossasóttin
hefur því stungið sér niður langt
austan vamarlínunnar á Holta-
vörðuheiði, og viðbúið úr þessu
að hún breiðist út um allt Norður-
land á næstu vikum.
Páll segist ekki geta ímyndað
sér hvemig sóttin hafi borist í
hross hans. „Ég get ekki skýrt þaö
á annan hátt en að hér er jafnan
mikill gestagangur og hingað
kemur fólk alls staðar af landinu,"
segir hann.
Á Flugumýri er þribýli en sótt-
in hafði í gær aðeins gert vart við
sig í einu hesthúsi af þremur þar.
Þá hafði hennar ekki orðið vart í
hrossum sem era úti.
Útflutningsbann
Ekkert verður af útflutningi
hrossa af ósýktum svæöum sem
dýralæknanefnd Evrópusam-
bandsins hafði heimilað, en til
stóð aö hefja útflutning frá Akur-
eyri. Sú heimild var háð því skil-
yrði að hrossasóttin kæmi hvergi
upp á nýjum svæðum.
Guðmundur Birkir Þorkelsson,
formaður Hrossaræktarsambands
Eyfirðinga og Þingeyinga, gaf í
skyn í gær að krafist yrði lög-
reglurannsóknar á því hvernig
hrossasóttin hefði borist í Skaga-
fjörð, en aðrir hestamenn, sem DV
ræddi við í gærkvöld, sögðu slíka
rannsókn ekki þjóna neinum til-
gangi. -gk
Vinnuveitendasambandið:
Ólafur áfram formaður
Víglundur Þorsteinsson tv. og Ólafur B. Ólafs-
son tókust í hendur þegar úrslit lágu fyrir í for-
mannskjöri VSÍ. DV-mynd ÞÖK
Ólafur B. Ólafsson var
endurkjörinn formaður
Vinnuveitendasambands ís-
lands á aðalfundinum í gær.
Atkvæði féllu þannig að
Ólafur hlaut 50,11% at-
kvæða en Víglundur Þor-
steinsson, fráfarandi vara-
formaður, hlaut 49,74% at-
kvæða, þannig að mjög
mjótt var á munum milli
þeirra. Eftir kjörið lýsti
Víglundur, sem verið hefur
varaformaður, því yfir að
hann væri hættur afskipt-
um af félagsmálum VSÍ.
Aðalfundurinn var settur
Id. 11 í gærmorgun og var
Einar Oddur Kristjánsson kjörinn
fundarstjóri. Ólafúr B. Ólafsson for-
maður sagði í formannsskýrslu
sinni m.a. að það hefðu verið von-
brigði að þrátt fyrir nýja vinnulög-
gjöf sem átti að flýta gerð kjara-
samninga hefðu kjarasamningar
gengið afar hægt og tekið lengri
tíma en nokkra sinni.
Ólafur sagði það mikilvægt að
stöðugleiki í efnahagsmálum héldist
til að áfram mætti halda á braut
vaxandi fjölbreytni í atvinnulífi og
aukins kaupmáttar.
Auk hefðbundinna aðalfxmdar-
starfa ávörpuðu aðalfund VSÍ, Dav-
íð Oddsson forsætisráðherra, Hall-
dór Ásgrimsson utanríkisráðherra
og Eivind Reiten, forstjóri álfram-
leiðsludeildar Norsk Hydro og fyrr-
verandi olíumálaráðherra Noregs.
-SÁ
Stuttai fréttir dv
Slitnað upp úr
Fulltrúar námsmanna I stjöm
Lánasjóðs ísl. námsmanna hafa
hætt vinnu við árlega endur-
skoðun úthlutunarreglna.
Ágreiningur er um að hækka
lánin í samræmi við almenna
kjarasanminga og atvinnuleys-
isbætur. Meirihluti stjórnar
leggst gegn því.
Leifssýning vestra
í frétt frá Hvita húsinu í Was-
hington segir
að Leifur Ei-
ríksson verði
heiðraður fyrir
að flnna Amer-
iku 500 árxxm á
undan Kólum-
busi. Sérstök
farandsýning
verði sett upp í tilefni af 1000 ára
afmæli atbvxrðanna og sérstakxxr
minnispeningxxr sleginn.
Einkavæðingu hratt
Aðalfundur VSÍ vill að einka-
væðingu verði hraðað og af-
rakstrimxm varið til að lækka
skuldir rikisins, Ríkisbankarnir
verði seldir, almenningur geti
keypt hlutabréf í ríkisfyrfrtækj-
um, orkuvinnslu og fjarskiptxxm
og að afgangur á næstu fjárlög-
um verði 8-10 milljarðar.
Sumartekjur
Fulltrúar námsmanna í LÍN
vilja að námsmerm geti haft
sumartekjur upp á 210 þús. kr
án þess að námslán skerðist.
Meirihluti stjómar LÍN vill að
námslán hækki um 2,5% á
næsta ári og verði 57.600 á mán-
uði. Atvinnuleysisbætxxr era 59
þúsund.
Ólafur að hætta
Ólafxxr Ólafsson landlæknir
hættir senn
störfum í emb-
ætti vegna ald-
urs. Staða
landlæknis hef-
xxr verið aug-
lýst og Dagxxr
segir að Har-
aldxxr Briem sé
talinn líklegxxr arftaki Ólafs.
Hætt við kynlífskönnun
Hætt hefxxr verið við um-
deilda kynlífskönmm ritstjóm-
ar blaðsins 19. júní. Könmmin
var send út til 800 kvenna í
óþökk stjómar Kvenréttindafé-
lags íslands sem gefur blaðið út.
Tölvunefnd neitar
Umdeild kynlífskönnun 19.
júní var sögð gerð með heimild
Tölvunefridar af þeim sem öxm-
uðust hana fyrir blaðið 19. júni.
Það hefur reynst rangt og fyrir-
tækið Markaðssamskipti fær
áminningu fyrir tiltækið, að
sögn RÚV.
Litil áhrif
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagði á aðalfundi VSÍ í
gær aö áhrif evrannar, sameig-
inlegs gjaldmiðils Evrópu, yrðu
lítil hér á landi. Efnahagslífið
væri þó vel í stakk búið til að
bregðast við áhrifum hennar
þegar þau koma.
Lífseig þjóðsaga
Ólafúr B. Ólafsson, formaöur
VSÍ, sagði á að-
alfundi VSÍ í
gær að fullyrð-
ingar um lang-
an vinnutíma
íslendinga væri
lífseig þjóðsaga.
Vinnutími væri
ekki lengri en
gengur og gerist í grannlöndunum
vegna langs orlofs og fleiri lögboð-
inna frídaga.
Grænir skattar
Grænir skattar munu verða til
þess að iönfyrirtæki flýja land og
setjast að annars staðar. Slíkir
skattar af fyrirtækjum sem rekin
eru samkvæmt ströngustu um-
hverfisvemdarskilyrðum eru skila-
boð til nýrra fjárfesta um að þeirra
sé ekki óskað, sagði Eivind Reiten,
forstjóri álframleiðslusviðs Norsk
Hydro, á aðalfundi VSÍ. -SÁ