Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1998, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998
3
Fréttir
) ALLIR "suzukA
SUZUKI BlLAR ERU MEO 2 ÖRYGGIS- ÁFLOG I
8UZUKI LOFTPÚÐUM. k ÖRYGGl J
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slml 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, simi 462 63 00.
Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hí, Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími S55 15 50. fsafjörður: Bílagarður ehf.,
Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavlk: BG bilakrlnglan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Þorsteinn EA mokveiddi grálúðu á Hampiðjutorgi:
Mánuðurinn
gaf 85 milljónir
„Það var mokveiði á Torginu.
Við náðum samanlagt 380 tonnum
af grálúðu, 190 í hvorum túr. í
heild tóku túrarnir samanlagt 36
daga. Við lönduðum í Reykjavík
eftir fyrri túrinn og fórum síðan
strax út aftur. Aflaverðmætið var
um 86 milljónir í þessum túrum
þannig að hásetahluturinn er
ágætur,“ segir Hörður Guð-
mundsson, skipstjóri á Þorsteini
EA frá Akureyri.
Skipið náði fullfermi af grálúðu
í tveimur veiðitúrum eða saman-
lagt 180 tonn á Hampiðjutorgi.
Skipið kom til Akureyrar á mið-
vikudag. 18 manna áhöfn er á Þor-
steini EA.
Mjög dræm veiði hefur verið af
grálúðu undanfarin ár og hafa
margir lýst því að stofninn væri
við hrun. Nú er það skoðun
margra að stofninn sé aftur á upp-
leið. Á árum áður veiddust á þess-
um slóðum allt að þúsund tonn-
um af grálúðu á mánuði.
„Við náðum tvívegis 18 tonnum
í hali í túrunum sem er auðvitað
mjög gott. Oftast vorum við þó
með frá þremur upp í átta tonn í
Félagslegar íbúðir:
Óvissan
óþolandi
- segir leigjandi
„Það hefur verið skelfilegt fyrir
fólkið að finna þetta óöryggi, eins
og ég var fegin þegar ég loks
komst inn í þetta kerfi og taldi
mig geta framvegis búið við ör-
yggi í húsnæðismálum,“ sagði Sig-
rún Reynisdóttir, leigjandi félags-
legrar íbúðar hjá Reykjavíkur-
borg, í samtali við DV.
Leigusamningur Sigrúnar nær
til aldamótaársins, en samskiptin
milli leigjenda og borgarinnar
hafa verið þannig að leigjendumir
hafa ekki fengið skýlausar yfirlýs-
ingar um hvaða breytingar verði
á leigumálum þeirra við yfirtöku
Félagsbústaða á íbúðarhúsnæði í
eigu Reykjavíkurborgar.
„Maður hefur ekki vitað hvort
það ætti að taka þetta öryggi af
manni aftur og henda manni á
götuna eins og hverju öðru rusli
eða ekki. Það fólk sem af einhverj-
um ástæðum á undir högg að
sækja hefur rétt til að geta lifað á
mannsæmandi hátt,“ sagði Sigrún
Reynisdóttir. -SÁ
EskiQörður:
Kolmunni
bræddur
DV Eskifiröi:
Loðnuverksmiðja Hraðfrysti-
húss Eskifjarðar hefur tekið á
móti 7.645 tonnum af kolmunna
síðustu tvær vikurnar. Vel gekk
að bræða hann. Kolmunninn er
ekki feitur og fæst því ekki mikið
lýsi úr honum en mjölnýting er
mjög góð.
Færeyski loðnubáturinn Þránd-
ur í Götu landaði 3. maí 2.600
tonnum og er það síðasti farmur-
inn sem hefur komið hingað.
Áður lönduðu tveir skoskir bátar
og Samherjaskipið Jón Sigurðsson
en það er gert út frá Færeyjum.
Kolmunninn hefur reynst hið
besta búsílag fyrir verksmiðjuna
sem nýlokið hafði bræðslu frá síð-
ustu loðnuvertíð. Regina
hali. Ég held að þessi mikla veiði
sé nú aðallega vegna þess að það
er búið að minnka svo kvótann og
því eru miklu færri skip þarna að
veiða en áður. Það held ég að sé
aðalskýringin frekar en að grá-
lúðan sé á svona mikilli uppleið.
-RR
18 manna áhöfn Þorsteins EA gerði það gott í tveimur veiðitúrum á Torginu. Alls veiddi skipið 380 tonn af gráiúðu.
Aflaverðmætið er um 86 milljónir. DV-mynd Þorsteinn Gunnar
Kynnstu töfrum Suzuki
Finndu hve rýmið er gott
Þægilegur og óvenju rúmgóður,
bæði fyrir bílstjóra og farþega
í Baleno Wagon er nóg fóta-, höfuð-
og olnbogarými fyrir bílstjóra og
farþega, jafnvel þótt stórir og stæði-
legir séul Vel bólstruð sætin veita
góðan stuðning á langferðum og
hljóðeinangruð yfirbyggingin heldur
vélar- og vegahljóðum í algjöru
lágmarki. Það gerir ferðalagið enn
ánægjulegra.
Og líttu á verðið:
WAGONGLX l .445.000 KR.
WAGON GLX 4x4 1.595.000 KR.
Baleno 4x4 hefur einstaklega
góða aksturseiginleika
Fjórhjóladrifnir Baleno Wagon hafa
RBC fjöldiska tengsli sem sér um að
færa afl milli fram- og afturhjóla eftir
því sem aðstæður krefjast. RBC
tengslið eykur veggrip í beygjum og
brekkum og bætir jafnvægi við
hemlun-
96 hestafla, 16 ventla
vél með fjölinnsprautun
Baleno Wagon er hagkvæmur í
rekstri og sameinar mikið afl og litla
eyðslu. Suzuki hönnun tryggir bestu
eldsneytisnýtingu við allar aðstæður.
Baleno Wagon hefur allt að
1.377 lítra farangursrými!
Það er meira rými en flestir þurfa að nota,
jafnvel þegarfarið er í sumarbústaðinn
eða söluferðina. Aftursætið skiptist 40/60.
Krókar binda niður farangurinn, draghlíf
hylur hann og aðskildar hirslur eru inn-
feldar í gólf. Baleno Wagon er gerður til
flutninga.