Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1998, Qupperneq 4
4
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998
Fréttir
Breskur sérfræðingur kannar möguleika á olíu í íslenska landgrunninu:
Áhætta en ástæða
er til bjartsýni
- segir Tony Doré sem telur líkur á olíufundi fyrir Norðurlandi
„Það þarf aö skoða nánar það
sem er aögengilegast hér, þ.e. setlög
sem eru á landgrunninu. Það þarf
að taka sýni af þeim og athuga
hvort í þeim eru lífræn efni sem eru
undirstaða olíumyndunar. Mestu
líkumar eru fyrir Norðurlandi, sér-
staklega Tjörnesi, en þar hafa fund-
ist um 4 metra þykk setlög. Það er
ástæða til bjartsýni en samt er ljóst
að þetta er áhætta. Þess vegna er
ólíklegt að olíufélög séu tilbúin að
fjármagna olíuleit hér. Því þarf að
reyna að fá meiri upplýsingar um
setlögin. Þannig er hægt að minnka
óvissuna og áhættuna. Með því auk-
ast líkumar á að fá olíufélögin til að
fjármagna olíuleit," segir Bretinn
Tony Doré sem er sérfræðingur í
olíuleit.
Doré er hér á landi í boði Orku-
stofnunar til að leggja mat á rann-
sóknir íslenskra sérfræðinga og vís-
indamanna um hvort olía eða gas
fmnist á landgrunni íslands.
Iðnaðarráðherra skipaði á síðasta
ári starfshóp til að hefja markvissar
rannsóknir á því hvort olía eða gas
finnist á landgrunninu. Sveinbjörn
Bjömsson prófessor er formaður
starfshópsins.
„Stóra spurningin er hvort í þess-
um þykku setlögum eru lífræn efni
sem gætu safnast saman og orðið að
olíu. Hitaskilyrði eru fyrir hendi og
það er mikil gróska i hafinu. Síðan
þarf að vera til berg fyrir ofan sem
tekur við olíunni þegar hún mynd-
ast og geymir hana. Síðan þarf
nokkurs konar þak til að olían hald-
ist í jörðu í stað þess að leka upp á
yfirborðið. Þar er veikasti punktur-
Breski sérfræðingurinn Tony Doré (fyrir miðju) ásamt Sveinbirni Björnssyni prófessor og Karli Gunnarssyni hjá
Orkustofnun. DV-mynd ÞÖK
inn hjá okkur því jörðin er svo skor-
in eftir jarðskjálfta,“ segir Svein-
björn.
Markmiðið hjá okkur er að fá ráð
um hvaða rannsóknir við eigum að
gera i viðbót til að auka líkurnar á
að finna út hvort þama er olía eða
gas. Þær rannsóknir sem hægt er að
framkvæma kosta kannski nokkra
tugi milljóna. Ef farið er út í boran-
ir er um að ræða hundruð milljóna
króna kostnað og boranir úti í hafi
myndu kosta þúsundir milljóna,"
segir Sveinbjörn.
„Á Færeyjasvæðinu og grunnun-
um í kring er heilmikið basalt-
svæði. Olíuleitin er að færast út í
þau svæði sem voru undir áhrifum
af eldvirkni. Þessi reynsla og um-
hverfi sem hér er skiptir æ meira
máli í olíuleitinni á útjöðrum land-
grunna Bretlands og Noregs. íslend-
ingar gætu tekið meiri þátt í því
með upplýsingamiðlun. Þannig
gætu íslendingar komið meira inn í
olíuiðnaðinn," segir Tony Doré.
-RR
Rannsókn á réttarstöðu bankastjóranna:
Svör í næstu viku?
- svara engum spurningum, segir Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.
„Ég mun sennilega hitta Jón
Steinar í næstu viku og þá fer hann
yfir þessi mál með mér. Ég reikna
með að hann hafi fengið þau svör
sem hann þarf, en ég hef ekkert
heyrt nánar frá honum þar sem
hann hefur verið upptekinn við
annað. Það þarf að gera upp við
bankastjórana og til að það sé hægt
þarf að fá ákveðnar upplýsingar en
ég get ekki sagt um hvað þær snú-
ast. Almennt séð þá tók Jón Steinar
að sér að gæta réttarstöðu bank-
ans,“ sagði Helgi S. Guðmundsson,
formaður bankaráðs Landsbankans,
í samtali við DV í gær.
Bankaráð Landsbankans fól Jóni
Steinari Gunnlaugssyni hrl. að
kanna hver réttarstaða hinna
þriggja fyrrverandi bankastjóra
gagnvart bankanum er, að því er
varðar hugsanlegar endurkröfur
bankans á þeirra hendur og starfs-
lokakjör þeirra að öðru leyti. Þá var
Jóni Steinari falið að kanna hver
ábyrgð bankastjóranna kunni að
vera að lögum á þeim atriðum er
greinargerð Ríkisendurskoðunar
fjallaði um.
DV hafði samband við Jón Stein-
ar og spurði hann hvort hann hafi
sótt eftir og fengið nauðsynlegar
upplýsingar um málið annaðhvort
Götusópari valt á hliöina á Sæbrautinni í gær. Ökumaöur sóparans var aö taka beygju en þá fór annað afturhjóliö
upp á steinkant meö þeim afleiöingum aö sóparinn valt. Ökumaöur kvartaöi undan eymslum en meiösl hans voru
ekki talin alvarleg. DV-mynd S
Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.
frá bankastjórunum eða bankanum,
hvort hann væri farinn að vinna að
málinu og hver staðan væri.
„Engum af þessum spurningum
get ég svarað. Eins og kemur fram í
bréfi bankaráðs þá fól það mér að
kanna hver réttarstaða þessara
manna er eins og þar er lýst. Ég tek
að mér verkefnið og ætla að skila
því í hendur bankaráðinu. Ég hef
einsett mér þaö við þetta verk að
fjalla ekki um það að einu eða neinu
leyti í fjölmiðlum. Ég mun skila
mínu verki til bankaráðsins þegar
það verður tilbúið og mun ekki
svara neinum spumingum hvemig
ég vinn verkið, eða hvort ég hafi
sent erindi þar að lútandi eða öðru.
Þú getur þá, sem áhugasamur
fréttamaður, sótt svör til þeirra sem
við verkinu taka,“ sagði Jón Steinar
Gunnlaugsson hrl. -phh
Stuttar fréttir :dv
Flug á Patró
Patreksfirðingar em ánægðir með
áætlunarflug til sín sem flugfélagið
Jórvík hefur stundað sjö sinnum í
viku frá því i desember. 10 sæta vélar
em notaðar og er sætanýting góð, að
sögn fréttablaðsins Vestra.
Nýtt kennarafélag
Milliþinganefnd HÍK og KÍ er að
ljúka við drög að lögum fyrir nýtt félag
allra kennara. Verið
er aö kynna niður-
stöður nefndarinnar
fyrir kennurum
þessa dagana en alls-
herjaratkvæða-
greiðsla um samein-
inguna á að fara
fram í byrjun næsta árs. Kennarablað-
ið segir frá. Danfríður Skarphéðins-
dóttir er leiðtogi HÍK í sameiningar-
málum en Guðrún Ebba Ólafsdóttir er
talsmaður KÍ. Kennarablaðið sagði frá.
Betri afkoma
Orkubú Vestfjaröa hafði betri af-
komu í fyrra en árið á undan. Afkom-
an reyndist 114 milljónum befri en
ráð hafði verið gert fyrir. í stað 122
milljóna taps varð tapið aðeins 7,6
milljónir. Vestri sagði frá.
Menntasamningur
Búvísindadeildin á Hvanneyri hefur
samið við landbúnaðarháskóla í Nova
Scotia í Kanada um masters- og dokt-
orsnám Hvanneyrarkandidata í Nova
Scotia á sömu kjörum og heimamönn-
um bjóðast. Bændablaðið sagði frá.
Tapað stríð
Stríðið gegn minknum er tapað, að
sögn Áka Ármanns Jónssonar veiði-
stjóra, í Bændablaðinu. Hann nemur
stöðugt ný lönd og 5-7 ára sveiflutopp-
ar í stofnstærð verða stöðugt stærri.
Færri fóstureyðingar
Ingibjörg Pálmadóttir ætlar að
skipa nefnd landlæknis, kvensjúk-
dómalækna, félags-
ráðgjafa og ljósmóð-
ur. Nefndin á að
kanna hvers vegna
fimmta hver kona
sem þungast lætur
eyða fóstri. Þó
vandinn sé þetta
stór séu þó færri fóstureyðingar hér á
landi í hlutfalli við fæðingar en ann-
ars staðar á Norðurlöndum að Fær-
eyjum undanteknum.
90% í sambandi
GSM-farsímakerfið nær nú til 90%
landsmanna en Þórshöfn og Raufar-
höfn hafa nýlega bæst við kerfið, sam-
kvæmt fréttabréfi Landssimans hf.
Dýr kolsýra
Garðyrkjubændur greiða um 15
milljónir á ári fyrir kolsýru sem not-
uð er sem vaxtarhvati í gróðurhúsa-
ræktun og telja það alltof hátt. Leitað
er tæknilegra leiða til að lækka þerrn-
an kostnað, að sögn Bændablaðsins.
Stuttmyndahátíð
Tvær íslenskar stuttmyndir hafa
verið valdar á eina stærstu stutt-
myndahátíð heims sem fram fer i
Toronto í Kanada. 90 myndir eru vald-
ar ár hvert af um 1200 myndum sem
berast frá 50 löndum. íslensku mynd-
irnar heita Slurpinn & co. og Siggi
Valli á mótorhjóli.
Enga sérsamninga
Launanefnd sveitarfélaga hvetur
sveitarfélög til að ganga ekki tU við-
ræðna við kennara
um sérsamninga
heima í héraði, sem
félög kennara hafa
þrýst á um. Karl
Björnsson, formað-
ur nefndarinnar,
segir einn kjara-
samning í gUdi yfir aUt landið við
kennara.
Byrjað fyrr
SmyrU Line, útgerðarfélag ferjunn-
ar Norrönu, hefur ákveðiö að byrja
siglingar strax 23. maí eða viku fyrr en
undanfarin ár. Jafnframt verður siglt
viku lengur fram á haustið. Fyrsti
komudagur tU íslands verður 28. maí.
Að sögn norræna ferðablaðsins Stand
By hefur farþegarými skipsins verið
endumýjað í hólf og gólf. -SÁ