Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1998, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998
Neytendur
60.000 kr.
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
0
FOTi
Kúlutjöld
3 manna
4 manna
53.300
3L670
27.700
9.900
, JZ
> ro
ra c
</) £
(D
Segla-
geröln
Ægir
10.900
13.900
14.800 14.800
16.563
19.900
2L600
o
o
"O
2
<d
5
Útllíf
ro
cn
o
Segla- Skáta-
gerðln búðin
Æglr
Skáta-
búðln
Bíla-
naust
Q. .£
x 5
Sport- Útilíf
leigan
o
'a
x
Sport-
leigan
2
<D
C
xz
Skáta-
búðin
<D
X
57.360 70.000 kr.
60.000
a
u>
<D
X
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
E|4 manna
' -.5 manna
■6 manna
60-65.000
34.980
39.000
12.450
15.858
Útllíf Útllíf
Bílanaust Bílanaust
27.980
I
ro
cH
Skáta-
búðin
o
oo
ra
Skáta-
búðin
Segla-
geröin
Ægir
Sport-
leigan
Segla-
gerðin
Ægir
Hústjöld og kúlutjöld:
Eitthvað við flestra hæfi
Nú þegar sumarið er komið klæj-
ar væntanlega marga í finguma í að
komast út í guðsgræna náttúruna
og liggja úti í tjaldi eina helgi eöa
tvær.
Neytendasíða DV fór á stúfana og
kannaði verð á hústjöldum og með-
alstórum kúlutjöldum ætluðum fyr-
ir hinn almenna notanda.
Kannað var verð hjá fimm fyrir-
tækjum í höfuðborginni. Þau eru:
Bílanaust, Seglagerðin, Útilíf, Sport-
leigan, og Skátabúðin.
Kínverskar kúlur
Ódýrasta kúlutjaldið í könnun-
inni var frá Seglagerðinni Ægi. Það
tjald heitir Savannah og er meðal-
stórt þriggja manna kínverskt tjald.
Tjaldið er með þremur trefjabogum
sem gerir það mjög stöðugt, það eru
úr næloni, með himni, er vindþolið,
með vatnsþéttan botn og andar vel.
Þetta tjald kostar 9900 krónur.
Næst ódýrasta kúlutjaldið í könn-
uninni var breskt þriggja manna
tjald frá Útilífi. Það heitir Winster
og með þremur bogum, úr næloni
og með himni. Winster-tjaldið kost-
ar 10900 krónur.
Næst í verðröðinni kom síðan
fjögurra manna kínverskt
Savannah- kúlutjald frá Seglagerð-
inni Ægi.
Það er eins uppbyggt og þriggja
manna Savannah-kúlutjaldið nema
það hefur auk þess stórt fortjald.
Fjögurra manna Savannah-kúlu-
tjaldið kostar 13900 krónur.
Vatnsþétt og vindþolin
Skátabúðin kemur síðan næst í
verðröðinni með þriggja manna
breskt kúlutjald sem heitir Outdoor.
Það tjald kostar 14800 krónur og er
með himni, vatnsheldum botni og er
úr næloni.
Skátabúðin býður einnig svipuð
kúlutjöld frá breska fyrirtækinu
Lichfield. Þau tjöld kosta einnig
14800 krónur. Lichfield-kúlutjaldið
eru frábrugðið Outdoor-kúlutjald-
inu að þvi leyti að það hefur boga-
dregið fordyri.
Þar á eftir kemur íjögurra manna
kúlutjald frá Bílanausti á 16536
krónur. Það tjald vegur um fjögur
kíló, er með himni úr nælon og
innra tjaldi úr bómull.
Bómull og nælon
Sportleigan býður síðan fjögurra
manna þýsk kúlutjöld sem heita
Hipick á 19900 krónur. Þau tjöld eru
með fortjaldi, himni úr næloni og í
þeim er frekar hátt til lofts.
Þar á eftir kemur Útilíf með fjög-
urra manna breskt Winster-kúlu-
tjald á 21600 krónur. Það tjald er
mjög rúmgott og er i raun hálfgerð
„hús-kúla“.
Næst í verðröðinni kemur Sport-
leigan með fjögurra til fimm manna
Hipick-kúlutjald á 27700 krónur. í
því tjaldi er hátt til lofts, það hefur
fortjald og himin úr næloni.
Skátabúðin býður síðan bresk
fjögurra til fimm manna Lichfield-
kúlutjöld á 31670 krónur. Þau tjöld
eru með himni úr næloni, vega um
tíu kíló og hafa fordyri.
Lestina í meðalstóru kúlutjöldun-
um rekur síðan Útilíf með tvær
gerðir af Helsport-kúlutjöldum. Það
ódýrara kostar 53300 og það dýrara
kostar 57360 krónur. Helsport-kúlu-
tjöldin eru meö þremur til fjórum
bogum. Þau eru mjög létt, sterk og
vatnsheld.
Hústjöld meö fordyri
Talsvert úrval var af hústjöldum
hjá verslunum í könnuninni og var
verð þeirra mjög mismunandi.
Ódýrasta hústjaldið er fjögurra
manna hústjald frá Bilanaust. Það
tjald er með svefntjaldi og fordyri,
himni úr næloni og innra tjaldi úr
bómull.
Bilanaust býður einnig aðra svip-
aða gerð af fjögurra manna hústjöld-
um á 15858 krónur.
Næst í verðröðinni kemur Skáta-
búðin með tvær gerðir af tékknesk-
um hústjöldum sem heita Prago Ex-
port. Ódýrara tjaldið sem kostar
27980 krónur er þríhymingslaga
með góðu fordyri. Það er úr þykkri
bómull, með himni og með grjót-
skörum á hliðum til að halda tjald-
inu niðri í vondu veðri. Þetta tjald
er ætlað fjórum. Dýrara tjaldið kost-
ar 34980 krónur. Það er fjögurra
manna tjald með hefðbundnu hús-
tjaldalagi, með fordyri, einni
svefnálmu og grjótskörum.
Næst í verðröðinni kemur Segla-
gerðin Ægir með hollenskt fjögurra
manna hústjald sem kostar 39000
krónur. Það tjald er með fordyri og
tveimur svefnálmum.
Sportleigan kemur næst með fiög-
urra til fimm manna þýskt Hipick-
hústjald sem kostar 39890 krónur.
Það tjald er úr bómull, með stóru
svefntjaldi sem hægt er að skipta í
tvennt með skilrúmi, vatnsheldum
botn, fortjaldi og skyggni.
Þar á eftir kemur Skátabúðin
með fimrn manna Prago Export-hús-
tjald sem kostar 48000 krónur. Það
tjald er úr bómull, með tveimur
svefnálmum, grjótskorum, himni og
mjög stóru fordyri.
Sportleigan býður siðan sex
manna Hipick-hústjald á 59900 krón-
ur. Það tjald er hægt að stækka í
samkomutjald. Það er með stóru
skyggni og fordyri. Lestina í hús-
tjöldunum rekur síðan Seglagerðin
Ægir. Þar á bæ er hægt að fá fiög-
urra manna Dallas- hústjöld sem
eru saumuð hjá Seglagerðinni.
Dallas-tjöldin hafa tvær svefnálmur
og stór fordyri. Þau kosta á bilinu
60000-65000 krónur.
Hvernig skal velja?
Að sögn Valgeirs Ingólfssonar hjá
Skátabúðinni þarf að hafa í huga
hversu marga tjaldið á að rúma þeg-
ar fiölskyldutjald er keypt. Einnig
þarf að athuga hvort nælon- eða
bómullartjald muni henta betur.
Bæði efnin hafa sína kosti, nælonið
þolir betur vont veður en af því
stafar meiri eldhætta en af bómull-
inni. Valgeir sagði einnig að barna-
fólk ætti að huga að því gott væri að
hafa rúmgott fordyri á tjaldinu þar
sem geyma mætti barnavagn eða
kerru. Valgeir vildi hins vegar vara
fólk við að nota fordyrið til þess að
grilla í. Að lokum sagði Valgeir að
fólk þyrfti að sjálfsögðu að huga að
því að tjaldið sem keypt væri pass-
aði í farangurgeymslu bílsins.
-glm
Mörgum finnst fátt betra en aö tjalda úti í guösgrænni náttúrunni og njóta lífsins.
Engin hamarsför
Oft koma hamarsfor á neglda
eða málaða fleti þegar neglt er á
þá. Lítil gúmmíkringla meö gati í
miðjunni getur leyst þennan
vanda. Þegar naglinn hefur fengið
festu er kringlunni smeygt niður
á hann. Þá er hægt að reka
naglann niður án þess að mis-
smíði sjáist í kring.
Þunnur málmur
Oft flísast frá gati sem borað er
í þunnan málm. Leggir þú hins
vegar samanbrotinn klút á milli
bors og málms fert þetta allt bet-
ur. Haltu vel við klút og málm til
þess að borinn dragi klútinn ekki
með sér.
Svampur í kertastjaka
Nútímaleg,
handunnin
kerti eru
skemmtileg en
fara því miður
ekki jafnvel í
öllum stjökum.
Því er ráð að
sníða mjóan
svamprenning i sfiakann. Hann
styður við kertið ef það er í
mjórra lagi.
Sparaðu flísarnar
Oft ber þaö við þegar flísalagt
er ofan við eldhúsbekk að neðsta
flísin springur þegar lokalistinn
er negldur. Negldu lista sem er
jafnþykkur flísunum áður en þær
eru límdar upp neðst viö bekkinn.
Sláðu á naglaoddinn
Ef hætt er við því að viðurinn
rifni við neglingu er rétt að gera
sem hér segir: Sláðu á naglaodd-
inn til þess að hann fletjist dálít-
ið. Viðartrefiarnar meijast undan
honum en ýtast ekki til hliðar
þegar slegið er á naglann.
Kojuhengi
Ef börn sem nr-----------
sofa í kojum
sofna á misjöfh-
um tíma sólar-
hringsins er ráð
að búa til hengi
fyrir neðri koj-
una og láta
þann sem fer
fýrr að sofa sofa
þar. Þá er stórum léttara að sofna
því birtan skín þá ekki í augun.
Hreinn þvottaklútur
Þvottaklútar úr gerviefnum
mega gjarnan liggja u.þ.b. 10 mín-
útur í volgu ediksvatni stöku
sinnum. Þá verða þeir miklu
hreinni og lykta vel.
Hlíföu borðinu
Öskubakkar og aðrir leirmunir
rispa stundum borðplötur. Kom-
ast má hjá því ineð því að hirða
korkplötur úr flöskulokum og
líma þær neðan á leirmunina.