Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1998, Page 7
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998
7
Met í formennsku
Hreppsnefnd Súðavíkurhrepps
hefur beðist afsökunar vegna þess
að farið var offari við hreinsunar-
stai-f eftir snjóflóðið sem varð 14
manns að bana. Af-
sökunarbeiðnin er
tilkomin vegna ára-
langrar baráttu. í
framlínunni hefur
staðið Hafsteinn
Númason sendi-
bílstjóri sem hef-
ur miskunnar-
laust hamrað á
yfirvöldum
vegna þessa máls. Svo er að sjá að
sendibílstjórar hafi áttað sig á bar-
áttuþreki hans og ákveðið að virkja
það í sína þágu því Hafsteinn gegn-
ir nú formennsku í félagi þeirra,
Trausta. Þetta er einkum merkiiegt
fyrir þær sakir að hann er formlega
séð enn formaður í Verkalýðs- og
sjómannafélagi Álftfirðinga í Súða-
vík. Ekki hefur enn verið kjörinn
nýr maður í hans stað þar þrátt fyr-
ir að rúm þrjú ár séu síðan Haf-
steinn flutti. Þetta er væntanlega
íslandsmet í formennsku ...
Stórgjafir og litlar...
Suðumesjafréttir sögðu frá
vígslu safnaðarheimilis Hvalsnes-
sóknar sem fram fór á sumardag-
inn fyrsta. Reynir Sveinsson sókn-
amefndarmaður
flutti við athöfnina
ávarp sem blaðið
segir að eftir hafi
veriö tekið. Hann
sagði þar frá þeim
gjöfum sem bár-
ust. Þannig
minntist hann á
blómakörfu frá
Gerðahreppi sem
hann kallaði „þessa litlu þarna."
Síðan mun hann hafa þulið upp
nokkrar stórgjafir og endaði með
því að segja frá gjöfum sem verö-
lagðar vom á 10 þúsund og minna
„frá ýmsu liði sem ég er ekkert að
telja upp,“ hefur blaðið eftir sókn-
amefhdarformanninum...
Melrakkar í framboð
Apótekarinn á Patró, Bjöm Jó-
hannsson, er í framboði I Vestur-
byggð undir merkjum Broslistans.
Það sem sameinar menn í framboð-
inu er fyrst og fremst
reglubundið tófuát
þeirra sem DV hefur
greint itarlega frá.
Listinn gengur því
undir gælunafiiinu
Melrakkalistinn.
Guðfaðir listans er
Símon Símonar-
son, eirrn af
þungavigtarmönnum
Sjáifstæðisflokks. Mikil læti urðu
vegna framboösins sem talið er
höggva í raöir vinstri manna á
Ammóníakslista. Ammóníaksmenn
urðu æfir þar sem þeir töldu sig
missa fylgi. Framboðið var stutt 20
meömælendum en tveir höfðu skráð
sig á aðra lista og það var klagað.
Melrakkar fengu sólarhringsfrest til
að koma með aðra meðmælendur
sem tókst. Gárungar segja um að
ræða alvarlegan ammóníaksleka
sem orðið hafi tU að melrakkamir
hafi flúiö skútuna ...
Einræðisherra hættir
Á Þórshöfn eru boðnir fram tveir
listar. Núverandi oddviti hreppsins
er Jóhann A. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar. Ýmsum
hefur þótt nóg um
völd hans og hefur
Jóhann á stundum
verið kaUaður ein-
ræöisherra. Nú
hefur hann ákveð-
ið að láta af völd-
um og gefur ekki
kost á sér tU
áframhaldandi setu í hrepps-
nefnd. Hann mun þó halda völdum í
frystihúsinu eftir sem áður ...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is
Fréttir
Cortina Sport
útiuistarfatnaður
vörur
Nútímafatnaður
Loðskinn á Sauðárkróki starfar áfram:
Hlutafé afskrifað
DV, Akureyri:
Eftir mikfl fundahöld undan-
farna daga virðist nú ljóst að
skinnaverksmiðjan Loðskinn hf. á
Sauðárkróki muni starfa áfram en
mjög tvísýnt þótti um það á tíma-
bUi. Nær aUt hlutafé fyrirtækisins
verður afskrifað og nýtt fengið í
staðinn.
Loðskinn hefur átt í mjög miklum
erfiðleikum. Hráefni tU verksmiðj-
unnar hefur hækkað en á sama
tima fór afurðaverð lækkandi er-
lendis og við bættist að markaðir
lokuðust og sölumálin urðu erfiðari.
AUir þessir erfiðleikar uröu m.a. tU
þess að ekki hefur ávallt verið hægt
að greiða starfsfólkinu laun á rétt-
um tíma. Þannig var t.d. í gær ver-
ið að greiða laun sem greiða átti um
síðustu mánaðamót eða jafnvel fyrr.
Lausnin á vanda fyrirtækisins nú
er sú að nær aUt hlutafé fyrirtækis-
ins, sem nemur 157 mUljónum
króna, verður afskrifað og nýtt
hlutafé fengið inn í fyrirtækið og
nemur það samkvæmt heimUdum
DV á bflinu 150-170 miUjónum
króna. Samkvæmt heimUdum DV
eru það að mestu núverandi eigend-
ur sem leggja fyrirtækinu tfl nýtt
hlutafé en helstu eigendur eru Sauð-
árkróksbær, Umbúðamiðstöðin,
Hagkaup og Lífeyrissjóður Norður-
lands. Samkvæmt sömu heimUdum
hefur Sauðárkróksbær þegar ákveð-
ið að leggja tugi miUjóna króna sem
hlutafé í fyrirtækið en Snorri Bjöm
Sigurðsson bæjarstjóri vUdi hvorki
Úr verksmiðju Loðskinns.
játa því né neita þegar DV ræddi
þetta mál við hann í gær. -gk
„VinsældáListinn“ í Skagafirði:
Vill fá næturklúbb í Lýtingsstaðahreppi
DV, Akureyri:
„Þetta framboð er ekki brandari,
ekki alveg a.m.k. Við erum að
minna hina flokkana á að það em
tU ungir kjósendur sem mætti höfða
meira tU og ungu fólki er ekki gert
hátt undir höfði hé,r“ segir Aðal-
heiður L. Úlfarsdóttir en hún skipar
efsta sætið á Vinsældalistanum sem
er fiórði listinn sem kom fram
vegna sveitarstjómarkosninganna í
Skagafirði.
Aðalheiður segir að imgt fólk
standi að framboðinu og er elsti
maður á listanum 25 ára. Hún neit-
ar því að um sé að ræða óánægju-
framboð en þó segir hún að ungt
fólk sé ekki haft með í ráðum varð-
andi ákvarðanatökur í Skagafirði.
Ef litið er á stefnumál Vinsælda-
listans ber hæst að reisa skuli nýtt
félagsheimUi á Sauðárkróki. Leggja
eigi niður styrktargreiðslur tU
íþróttafélaganna en Aðalheiður seg-
ir að þar sé aðaUega um að ræða að
hætta að greiða skuldir eins félags
vegna kaupa á leikmönnum fyrir
aUt að 10 mUljónir króna. Þá vUl
Vinsældalistinn að 1. mars verði frí-
dagur og veittur verði ókeypis bjór,
stytta af Geirmundi Valtýssyni
verði reist á Sauðárkróki, greiddar
verði 226.385 krónur fyrir hvert
bam sem fæðist í sveitarfélaginu,
næturklúbbi verði komið á fót í Lýt-
ingsstaðahreppi, aðstaða verði
sköpuð fyrir hjólabrettakrakka og
lausaganga katta í þéttbýli verði
bönnuð.
„Mér finnst hægt að fara fram á
að fólk taki þetta alvarlega. Þetta
era hugmyndir en ekki fastmótuð
stefhuskrá. Við stefiium á að fá þrjá
menn í sveitarstjóm og erum tUbú-
in að axla ábyrgð ef við fáum tU
þess fylgi,“ segir Aðalheiður sem er
19 ára. TU gamans má geta þess að
bróðir hennar er í 2. sæti listans og
systir hennar í 11. og neðsta sæti.
Þá er faðir þeirra systkina, Úlfar
Sveinsson á S-Ingveldarstöðum, í
22. sæti Skagafiarðarlistans.
-gk
| Skálawörðu»ttg 20 - Sími 5521555 |
♦
16:9 breiðtjald
VGA-tölvutengi
DVD-myndgeisladrif
32" (16:9) tölvuskjér
og fjölmargt fleira!
THOMSON
Skipholti 19
Sími: 552 9800
AST0RUM
loMXjCiAácUf, kl.10 - 17 o<f icumctÁuf kl. 13 -17