Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1998, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998
Spuriúngin
Hefurðu ort?
Hákon Ásgeirsson garðyrkju-
fræðingiu:: Nei, en ég hef reynt.
Brynjar Viggósson sjávarútvegs-
fræðingur: Já, oft.
Björn Knútsson sjávarútvegs-
fræðingur: Já, með öllum bragar-
háttum.
Dagbjört Guðmundsdóttir móðir:
Já.
Ragnar Sær Ragnarsson leik-
skólakennari: Já, um elskumar
mínar, börn og náttúru.
Brynja Guðbrandsdóttir nemi:
Já, ég geri það stundum.
Lesendur
Landssíminn
lifandi fyrirtæki
Bréfritara finnst Landssíminn ekki hafa fylgt einkavæðingunni eftir nógu vel.
Sigurður Ólafsson skrifar:
Með miklum tilþrifum einka-
væddi Halldór Blöndal Póst- og
símamálastofnunina sem nú heitir
Landssíminn og íslandspóstur.
Hvor tveggja nafngiftin er í áratuga
gömlum anda enda Landssíminn
enn fomeskjulegri en hann var sem
opinbert ríkisfyrirtæki. Dæmi um
það er að lokadagur fyrir tilkynn-
ingar í símaskrá 1998 var síðasti
dagur janúar 1998. Nú um miðjan
maí bólar ekki á símaskránni og
það á tímum tölvunar og veraldar-
vefsins.
Starfsfólk Landssímans hefur í
starfi sínu aðgang að tölvuvæddri
símaskrá. En hvers vegna ekki al-
menningur, líkt og t.d. í Bandaríkj-
unum? Ég ætlaði að fá mér auglýs-
ingu á gulum síðum nýju síma-
skrárinnar og hélt í einfeldni minni
að tvær línur gæti ég teiknað sjálf-
ur á mína tölvu og sent Landssím-
anum. En, ónei. Nota verður fok-
dýrt vandfengið forrit að kröfu
Landssímans.
Ég hafði þá samband við prent-
smiðjuna Odda sem er að hamast
við að prenta skrána og spurði
hvort þeir gætu ekki útbúið auglýs-
ingu fyrir mig á ódýran máta. Jú,
jú, en Landssíminn hefur gert
samning viö ákveðna auglýsinga-
stofu sem ein má gera þetta. - Og
kostnaðurinn? Ég varð alveg undr-
andi; 25.000 krónur fyrir agnar ögn
á gulu síðumar. Mér datt í hug:
Skyldi einhver hjá Landssímanum
hafa hagsmuna að gæta hjá viðkom-
andi auglýsingastofu? Er það óeðli-
legt að detta það í hug á tímum sí-
felldra uppljóstrcma um misferli hjá
hinu opinbera?
En mikil lifandi ósköp hefur nú
afgreiðsla Landssímans fylgt einka-
væðingunni vel eftir. Eða hitt þó
heldur! Alveg sama hæga þjónustan
og afgreiðslutími þetta vika, tíu dag-
ar á því sem ekkert er. Mér finnst
sem sé einkavæðingin litlu hafa
breytt. Nema nú þarf stofnunin ekki
að gefa opinberar upplýsingar um
laun forstjóranna. Ég held að for-
stjórinn (sem ég man ekki hvað
heitir) sé vænsti maöur. Hann verð-
ur hins vegar að hysja upp um sig
ef Landssíminn á ekki að þurrkast
út í framtiðarsamkeppninni.
En skylt Landssímanum er sam-
gönguráðuneytið, ráðuneyti fjar-
skiptamála og veraldarvefsins. Þeir
sem eru á heimasíðu ráðuneytisins
sjá hve aum hún er og raunar kol-
vitlaus og hefur ekki verið leiðrétt
frá því hún var gerð. - Það er varla
von á góðu þegar sjálf foðurhúsin
fylgja fomeskjunni.
Hamingjan er R-listans
Ólafur Bjarnason skrifar:
Á dögunum birti R-listinn auglýs-
ingu þar sem borgarbúum var ósk-
aö til hamingju. Þar vora talin upp
„afrek“ R-listans á kjörtímabilinu
og vonir greinilega bundnar viö að
borgarbúar læsu auglýsinguna ekki
vandlega heldur féllu fyrir innan-
tómu slagorðinu. Þetta slagorð „Til
hamingju" er nú fariö að skjóta upp
kollinum á skiltum í borginni, og
því ástæða til að staldra við og velta
því fyrir sér í hverju hamingja
borgarbúa á að vera fólgin.
Er hamingjan e.t.v. fólgin í því að
hafa fengið á sig 2 milljarða króna
skattahækkun á kjörtímabilinu?
Eða í því að borgin hefur safnaö
auknum skuldum, um 4-5 milljörð-
um króna? Kannski er hamingjan
fullkomn í því að þetta hvort
tveggja hafi gerst þrátt fyrir að R-
listinn hafi sérstaklega lofað að
skattar yrðu ekki hækkaðir og að
skuldir yröu lækkaðar?
Vera kann að R-listinn eigi við að
því fylgi sérstök hamingja að sitja í
bíl sínum í umferðarteppu á morgn-
ana. En umferðarteppan stafar ein-
mitt af þeirri stefnu listans að
„auka ekki umferðarrýmd vestan
Elliðaár“. Við nánari athugun verð-
ur þó ljóst hvar hamingjan liggur.
Hún er hjá R-listanum vegna þess
að hann er við völd og getur útdeilt
sérverkefnum til vina og aðstand-
enda listans og skipað í stöður. List-
inn hefur getað svikið loforð og hag-
að sér eins og honum hefur sýnst en
heldur samt stöðu sinni í skoðana-
könnunum!!
Þungaskattur endurgreiddur
milljónir til sérleyfishafa
Aðeins útvaldir fá afslátt af þungaskatti, samkvæmt sérleyfi samgönguráö-
herra.
Pétur Sigurðsson hringdi:
Flutningsmiðlar eru fyrirferðar-
miklir í þessu landi. Landflutningar
með fólk og vörur aukast sífellt með
betra vegakerfi. Það er gleðilegt að
þessi starfsemi skuli blómgast svo
mjög. Það er þeim mun einkenni-
legra að hið opinbera skuli leyfa sér
að greiða niður starfsemi sérleyfis-
hafa. Fullyrt er í fréttum aö sérleyf-
ishafar fái 70% af þungaskatti end-
urgreitt. Upphæðin nemur tæpum
168 milljónum króna á síðustu
fjórumr árum. Þessi rýmilegheit
ríkisins eru svo enn einkennilegri
með því að flestir flutningsmiðlam-
ir komast bærilega af og þaðan af
betur. Flestir þeirra skila arði, þetta
5,7 og upp í tæpar 40 milljónir
króna.
En ekki sitja þó allir við sama
þjónusta
allan
síma
i kl. 14 og 16
borð. Einungis þeir sem hafa fengið
útgefið sérleyfi samgönguráðherra
fá endurgreiðslu 70% þungaskatts-
ins. Aðrir flutningshafar, sem eru á
eigin ábyrgð í rekstri, njóta ekki
þessardr fyrirgreiðslu ríkisins.
Það ætlar seint að eldast af ís-
lenskum samgöngumálum að sækj-
ast eftir viðveru undir pilsfaldi rík-
isins. Ég undrast mjög þolgæði ráð-
herra í núverandi rikisstjórn hvað
þetta varöar. Fyrrverandi opinber
fyrirtæki eru einkavædd, hvert af
öðru, en ívilnunum og styrkjum er
dreift til rekstraraðila í samgöng-
um, bæði í lofti og á landi. - Hvers
vegna sækir Eimskipafélagið ekki
um styrk til sjóflutninga sinna?
Laxness - lag
án texta?
J.J. hringdi:
Ég las ánægjulega frétt í DV sl.
miðvikudag undir fyrirsögninni:
Eina lag Laxness frumflutt. - Gott
og vel. Það gleymdist hins vegar að
geta þess hvort og þá hvaða texti
(ljóð) verði notaö með laginu, og
eftir hvaða höfund. Vera má að
ekki sé um neinn texta að ræða, að-
eins „instrumentaT flutning. En
samkvæmt fréttinni er rennt blint í
sjóinn þar um. Upplýsingar um ljóð
og höfund væru hins vegar vel
þegnar. - Að öðru leyti óska ég við-
komandi tónlistarfólki til ham-
ingju.
Fjölskyldugreiðsl-
ur D-listans
Berglind Þorsteinsd. skrifar:
Nokkuð hefur verið skrifað um
fyrirhugaðar fjölskyldugreiðslur D-
listans í Reykjavík. Þær eru sagðar
verða 25.000 krónur með hverju
barni. En nærri lagi er, að tala um
15.000 krónur með bami, þvi auð-
vitað borgar fólk skatt af þessum
greiðslum eins og öðrum. I síðustu
valdatið D-listans framkvæmdi
hann loforð um slíkar greiðslur
þegar þrír mánuðir voru eftir af
kjörtimabilinu. - Því má segja:
Verkin tala, ekki orðin ein.
Lítil löggæsla í
miðbænum
Kristinn Sigurðsson skrifar:
Ótal sinnum hefur okkar ágæti
lögreglustjóri verið minntur á að
það sé mikið mn erlenda ferða-
menn I miðborg Reykjavíkur, en
einnig, og því miður líka drykkju-
lýður og dópistar sem mér finnst að
ætti að fjarlægja úr borginni. Okk-
ur ber heilög skylda til að vemda
okkar erlendu gesti, en eins og er
em þeir án allrar vemdar. - Ég
skora á borgarstjóm og lögreglu-
stjóra enn einu sinni að bæta úr
þessu. Reykjavík getur ekki talist
menningarborg ems og nú er
ástatt.
Krabbameinslyfj-
um fagnað
Margrét hringdi:
Nú berast góðar fréttir af nýjum
lyfjum gegn krabbameini. Svona
fréttir hafa borist okkur til eyma
áður. En víst skal vona og þreyja
þar til sigur vinnst. Ég hef á tilfinn-
ingunni að sumir læknar - en ekki
vísindamenn - séu súrir vegna
frétta um að útrýma megi þessum
eða hinum sjúkdómnum að fuliu.
Krabbameinslækningar stunda
þúsundir manna um heim allan,
ótal tegundir lyfia era í gangi gegn
sjúkdómnum. Ef skyndilega er lok-
að fyrir þessa grein með nýju
undralyfi, verða einhverjir langleit-
ir spái ég. En við bíöum enn, viö
glötum ekki voninni.
Ingíbjörg í
landsmálin?
Guðjón Jónsson skrifar:
Einhver umræða hefur orðið um
að Ingibjörg Sólrún borgarstjóri
ætli sér í landsmálin þegar kosið
verður til Alþingis á næsta ári.
Hún neitar eðlilega, en var þó ekki
nógu trúverðug í sjónvarpinu um
daginn. Þá sagði hún að hún ætlaði
sér að vera borgarstjóri á næsta
kjörtímabili, en gat ómögulega sagt
að hún ætlaði að vera borgarsfjóri
út næsta kjörtímabil. Stjómmála-
menn hafa áður staðið í þessum
sporum. Davíð Oddsson sagði fyrir
borgarstjómarkosningar 1990 að
hann myndi verða borgarstjóri
áfram en var kominn í landsmálin
árið 1991. Freisting Ingibjargar Sól-
rúnar að sameina vinstri menn á
landsvísu hlýtur að vera mikil. Lík-
legt má telja að verði hún borgar-
sijóri á næsta kjörtímabili, þá verði
það aðeins í eitt ár.