Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1998, Page 12
12
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1998
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stiórnarformaöur og útgáfusfjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vfsir, netútgáfa Frjálsrar flölmiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverö á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Þinghald allt áríð
Enn einu sinni horfir alþýða manna í forundran á
þingstörf þegar nær dregur þinglokum að vori. Gert haföi
verið ráð íyrir því að Alþingi lyki störfum í dag en ljóst
er að svo verður ekki. Þinglok eru í óvissu og ósætti rík-
ir um þau milli stjómar og stjómarandstöðu. Vegna kom-
andi sveitarstjómarkosninga átti að ljúka þinghaldi nú.
Sú staða sem nú er komin upp er vel þekkt. Ríkis-
stjórnin, studd af meirihluta þings, reynir að koma mik-
ilvægum stjómarfrumvörpum í gegn fyrir þinglok en
stjómarandstaða heldur uppi málþófi. Þinghald er í sjálf-
heldu.
Átök nú koma ekki á óvart. Á vorþinginu hefur verið
tekist á um stórmál, mál sem hafa grundvallarþýðingu
fyrir landsmenn. Mjög skiptar skoðanir vora á hinu svo-
kallaða gagnagrunnsfi'umvarpi heilbrigðisráðherra. Því
máli var frestað til haustsins. Enn eru óafgreidd fjögur
mjög umdeild lagafrumvörp, frumvarp um sveitar-
stjómarlög, þar sem einkum hefur verið deilt um hver
fari með stjórn miðhálendisins, frumvarp um þjóðlend-
ur, frumvarp um eignarhald og nýtingu á auðlindum í
jörðu og framvarp til laga um húsnæðismál.
Mest hafa átökin orðið um hálendisfrumvarpið. Þar
er tekist á um stjóm mikillar auðlindar, hálendisins.
Málið kom seint fram og þarf mikla umræðu. Sú um-
ræða þarf að fara fram á þingi, í sveitarstjómum og
meðal almennings. Ríkisstjómin reynir að keyra málið
áfram í krafti þingmeirihluta en býr um leið við það að
brestir era í röðum eigin fylgismanna.
Stjómarandstaðan beitir því afli sem hún hefur til
þess að koma í veg fyrir óbreytta afgreiðslu máls og ná
fram breytingum á frumvarpinu. Því er málið þæft með
langhundum úr ræðustóli. Stjómarandstöðuþingmenn
nýta sér rétt sinn til að tala tvisvar við hverja umræðu.
Endurteknar uppákomur sem þessar fyrir þinglok að
vori og fyrir jólaleyfi benda á veilur í starfi Alþingis.
Umræður sem varða alla landsmenn þurfa tíma. Þingi
er frestað að vori og það kemur aftur saman í október.
Þá er jólahlé þingsins langt, gjarnan rúmur mánuður.
Þessu þarf að breyta. Það er arfur fortíðar að fresta
þinghaldi í marga mánuði frá vori til hausts. Þingmenn
og starfsmenn þingsins eiga rétt á sumarleyfi líkt og
aðrir landsmenn. Því er eðlilegt að fresta þinghaldi í sex
vikur yfir hásumarið. Það er hins vegar engin ástæða til
þess að fresta þinghaldi frá því í desember fram í lok
janúar. Hið sama á að gilda um þingmenn og aðra. Þeir
eiga frí á hátíðisdögum um jól og áramót. Löng ffestun
þinghalds á þeim árstíma er einnig arfur fortíðar þegar
aðstæður í samgöngumálum sem og öllum samskiptum
vora með allt öðrum hætti en er í dag. Þingmenn hafa
notað þau rök að í löngum þinghléum gefist færi á að
hitta kjósendur í héraði. Eflaust er eitthvað til í því en
ofrausn er að ætla nær hálft árið í þau fundahöld. Því
er ekki haldið fram að þingmenn séu verklausir á sumr-
in en álag á þá er misjafnt. Hvað sem segja má um kjós-
endur í fámennari kjördæmum landsins má fullyrða að
kjósendur í þéttbýlli kjördæmunum verði ekki mikið
varir við þingmenn sína frá vori til hausts.
Verklag þingsins kemur í veg fýrir eðlilega málsmeð-
ferð. Mál hrúgast upp fyrir jól og að vori. Það kallar á
kvöld- og næturfundi auk málþófs eins og við verðum
vitni að þessa dagana. Það er ekki gæfulegt að örþreytt-
ir þingmenn afgreiði frá sér mál sem engin tök eru á að
gaimigæfa og fara yfir af viti.
Ástandið í þinginu nú sýnir þörfina á breytingunni.
Jónas Haraldsson
Seyöishólar í Grímsnesi. - Náttúruperlur seldar sem undirlag á hraöbrautir Evrópu.
Samvisku er
þörf
Á Alþingi íslendinga sitja 63
þingmenn sem oftast eru bara
fimm, eða sem svarar fjölda flokk-
anna. Fimm lóð misjöfn að þunga.
Sjálfstæðisflokkurinn er um þess-
ar mundir 25 grömm, Framsókn
15, Kristín Ástgeirsdóttir eitt,
o.s.frv. Alþingi er reisla með vog-
arskálum til hægri og vinstri og
síðan raöast lóðin á skálarnar eft-
ir flokkadráttum á þingi. Sem
stendur er ekkert sem getur vegið á
móti sameinuðum lóðum framsókn-
ar og íhalds - nema samviskan.
Dýrmætt dæmi
Þess vegna er dæmi formanns
umhverfismálanefndar Alþingis
svo dýrmætt, að hann skuli hafa
risið gegn eigin flokki og varið þá
skoðun sína að miðhálendið eigi
að vera undir heildrænni stjórn
þjóöarinnar í stað þess að henda
því eins og heini fyrir hundaþvögu
hagsmunapots-
ins. Hver svo sem
afstaða okkar
kann að vera í
þessu tiltekna
máli, þá hijóta
það aö vera
þannig þingmenn
sem við æskjum
öfl, einstaklingar
sem byggja
ákvarðanir á vit-
rænum forsend-
um og hlýða rödd
sannfæringarinnar.
Þeir sem vilja athenda öræfi ís-
lands aðliggjandi hreppum telja
væntanlega að þeir sem næstir
standi vettvangi séu best til þess
bærir að sýsla með hagsmuni
svæðisins. Ég er hræddur um að
ákaflega margt bendi til hins gagn-
stæða. Engum
blandast hugur um
að landsbyggðin á
undir högg að
sækja, en því miður
ber aflt of oft á þeim
sjónarmiðum að
hún eigi að taka
landið með sér í
fallinu.
Ekki bara ör-
vænting
Varla er til svo
aumt pláss í vanda
að það æpi ekki á
álver eða einhveija
stórtæka mengunar-
iðju sem myndi
skaffa íbúunum
vinnu við mokstur -
um hríð. En það er
ekki bara örvænting sem knýr tfl
örþrifaráða, eitt best stæða sveit-
arfélag landsins með hæstu tekjur
af sumarhúsabyggð, því var ekki
nóg að selja lönd undir sumar-
húsalóðir og innheimta af þeim há
fasteignagjöld, sveitastjómin barð-
ist fyrir því meö oddi og egg að
náttúruperlur í sumarhúsabyggð-
inni miðri yrðu seldar sem undir-
lag á hraðbrautir Evr-
ópu og var reiðubúin
að láta þungvinnuvélar
og flutningabíla at-
hafha sig við þessa iðju
innan um smnarþjóð-
ina næstu árin.
Þótt Seyðishólar í
Grímsnesi séu að hluta
á náttúruminjaskrá
virtist engin reglugerð
i landinu megna að
koma í veg fyrir fram-
kvæmdina. Ekki þarf
að taka fram að um-
hverfisráðherra skip-
aði sér strax í sveit
með landeyðingar-
mönnum, enda er hann
nú einusinni landbún-
aðarráðherra.
Skúffa í umhverfisráðu-
neyti
Náttúruvemdarráð að sínu leyti
sýnist vera orðið að skúffu í um-
hverfisráðuneyti sem er skjala-
skápur í landbúnaöarráðuneyti
sem aftur er homreka í iðnaðar-
ráðuneyti sem er léttadrengur hjá
Landsvirkjun.
Við hljótum að gera þær kröfur
til Alþingis að það hefji sig yfir
skammtímasjónarmið og semji
okkur umgengnisreglur sem sjái
tfl þess að ísland sé ekki einnota
heldur til frambúðar. Það má ekki
gleymast að þegar við segjum þjóð-
in þá eigmn við ekki einvörðungu
við það fólk sem hreyfír sig á litla-
sviðinu hér og nú heldur afla þá
sem eiga eftir að lifa í landinu
löngu eftir að við hin emm komin
á smíðaverkstæðið.
Pétur Gunnarsson
„Engum blandast hugur um að
landsbyggðin á undir högg að
sækja, en því miður ber allt of
oft á þeim sjónarmiðum að hún
eigi að taka landið með sér í
fallinu. “
Kjallarinn
Pétur
Gunnarsson
rithöfundur
Skoðanir annarra
Samkeppni við Landssímann
„Það er engum aöila hoflt að búa við einokun á
markaði. Slíkt rekstrarumhverfi býður upp á óljós
rekstrarmarkmið fyrirtækja og metnaðarleysi auk
þess sem menn geta leyft sér að láta hagsmuni og
kröfur neytenda sitja á hakanum. Tilkomu félaga
líkt og Tals hf. á íslenskan markað, ber því að fagna.
Aukin samkeppni veitir fyrirtækjum aðhald í
rekstri og tryggir neytendum betri þjónustu. Sam-
keppni Landssímans og Tals á farsímamarkaðnum
er því augljóslega framfaraskref, símafyrirtækjun-
um og almenningi til heilla."
EG í Viðskipti/atvinnulíf Mbl. 7. maí.
Hálendið er fjársjóður
„Umræða um umhverfismál og skoðanamyndun
þjóðarinnar á umhverfismálum er því miður óra-
langt á eftir tímanum eins og undrunarvert umburð-
arlyndi gagnvart réttindum sauðkindarinnar ber
ljóst vitni. ... íslendingar eru afls ekki tilbúnir að
ákveða með hvaða hætti á að umgangast hálendið.
Hálendið er fjársjóður, sem ekki veröur metinn til
peninga, og þangað á að sækja tekjur sem mölur og
ryð fá ekki grandaö, og eru af sumum mældar í ham-
ingjustundum."
Guðmundur E. Sigvaldason í Degi 7. maí.
Píslarganga Hanes-hjónanna
„Hanes-hjónin hafa síðan þurft hér á landi að verj-
ast sem sakamenn. ... Úrskurður Hæstaréttar var á
þá leiö að brotið hefði verið á rétti Hanes-hjónanna,
m.a. að þau hefðu ekki fengið að tala sínu máli og að
dómsmálaráðuneytið hefði farið offari í máli. ... Þá
er komið í óvænt efni er ráðuneyti dómsmála á ís-
landi lætur bandaríska sjónvarpsstöð segja sér fyrir
verkum ... Það er óviðunandi að ráðuneyti dóms-
mála fari offari í svo viðkvæmu máli og án undan-
genginnar rannsóknar og vitnaleiðslna."
Gunnsteinn Gunnarsson í Mbl. 7. maí.