Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1998, Síða 28
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í slma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
1550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ1998
Útlánatap ríkisbanka:
767 þúsund
kall fauk
_ daglega
Ríkisviðskiptabankamir,
Landsbanki og Búnaðarbanki töp-
uðu um 14 milljörðum króna í út-
lánum á árunum 1993-1997. Þetta
kom fram í svari Finns Ingólfs-
sonar viðskiptaráðherra við fyrir-
spurn Jóhönnu Sigurðardóttur al-
þingismanns á þingi í gær.
Þetta jafngildir þvi að bankam-
ir hafi að meðaltali tapað á hverj-
um einasta degi á umræddu tíma-
bili 767 þúsund krónum.
Jóhanna vill að óháðir aðilar
verði fengnir til að fara ofan í
hlutina, bæði fjármálastjórn í
bönkuniun og þátt endurskoðenda
og bankaeftirlits Seðlabankans í
: wþessu máli.
-SÁ
Helgarblað DV:
Jóhanna
ekki hætt
í helgarblaði DV á morgun
birtum við opnuviðtal við Jóhönnu
Sigurðardóttur, alþingismann og
formann Þjóðvaka, sem hefur verið
áberandi í þjóðmálaumræðunni að
undanfómu. Hún ræðir Lands-
bankamálið, framtíð sína í pólitík
og ýmislegt fleira forvitnilegt.
Rætt er við systkinin Hallgrím og
Helgu Völu, börn þeirra leikara-
hjóna Helga heitins Skúlasonar og
Helgu Bachmann. Þau hafa svo
sannarlega erft leiklistarhæfileika
foreldranna en Hallgrímur er
afkastamikið leikritaskáld og Helga
Vala er einmitt að útskrifast úr
Leiklistarskólanum á morgun. Þetta
era aðeins brot úr fjölbreyttu og
efnismiklu blaði á morgun.
‘5r' -sm/-bjb
Jón Stefánsson kórstjóri býður Gradualekórnum heim til sín á hverju ári. Þá er nagað af súpuketi og fær sá/sú sem
best nagar Beinabikarinn. Keppnin er hörð og er flestum í mun að naga sem best og mest. DV-mynd Hilmar Þór
íslenskur listahátíðarstjórnandi hafnar „þjóðsöng“ Björgvinjar:
Ráðherra kenni
íslendingnum
mannasiði
- segir stórþingsmaður. Gef mig ekki, segir Bergljót Jónsdóttir
DV, Björgvin:
„Ég gef mig ekki hvað sem hver
segir og kvartar, það er ekki tími til
að flytja þennan þjóðsöng við opnun
hátíðarinnar og þess vegna hef ég
strikað hann út,“ segir Bergljót
Jónsdóttir, listahátíðarstjóri í
Bergen í Noregi, og hefur valdið
meira uppnámi í bænum en vitað er
um á síðari tímum.
„Þetta er frekleg móðgun við alla
íbúa Bergen og ég krefst þess að
menntamálaráðherrann kenni þess-
um íslendingi mannasiði og skipi
henni að taka þjóðsöng okkar borg-
arbúa á dagskrána," segir Terje
Hansen, þingmaður
Framfaraflokksins
frá Bergen.
Anne Enje Lan-
stein, menntamála-
ráðherra Noregs,
segir Listahátíðina í
Bergen vera utan
valdsviðs síns og því Bergljót
geti hún ekki sagt jónsdóttir.
Bergljótu formlega
fyrir verkum.
„Við líðum ekki íslenskan menn-
ingaryfirgang hér í bænum. Þetta er
þjóðsöngurinn okkar og fyrr verður
íslendingurinn rekinn en við verð-
um svikin um hann,“ er einróma
álit fólks á götunni í Bergen. Stolt
þess er sært og dæmi era um að fólk
syngi sönginn á götum úti.
Bergljót heldur fast við sitt. Þjóð-
söngurinn, sem reyndar er óskap-
lega hallærislegur, verður ekki
fluttur við opnun listahátíðarinnar
í sumar.
Stjórn hátíðarinnar stendur með
Bergljótu sem hefur á undanförum
áram náð að vekja listahátíðina í
bænum af löngmn dvala. En heima-
menn hafa hlustað á þjóðsönginn
sinn á hverju ári í fjöratíu ár og
vilja ekki missa hann, allra sist
vegna íslensks menningaryfirgangs.
-GK
5° 70 70 —/ s } t
, 7 1 7° •:
, ' - A 3
Veðrið á morgun:
Hlýnandi
veður
Á morgun verður suðvestan-
gola eða kaldi norðvestan til en
annars hæg vestlæg átt. Skýjað
verður að mestu og sums staðar
dálítil súld allra vestast en létt-
skýjað annars staðar. Veður fer
hlýnandi, 5 til 10 stiga hiti verður
siðdegis.
Veöriö í dag er á bls. 37.
Frambjóðend-
ur sakaðir um
óreiðu
Heimasíða með netfanginu
itn.is/&samviska, hefur verið opnuð á
Netinu þar sem hæfi tveggja fram-
bjóðenda R-listans til að gegna trúnað-
arstörfum fyrir borgarbúa er stórlega
dregin í efa.
Frambjóðendumir sem um er fjall-
að eru þeir Helgi Hjörvar, sem skipar
1. sæti R-listans fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar, og Hrannar B. Arnars-
son sem skipar 3. sætið. í fréttatil-
kynningu frá aðstandendum heima-
siðunnar, þeim Hlyni Jóni Michelsen
og Gísla Björnssyni, segir að fram-
bjóðendumir tveir hafi verið óreiðu-
menn í fjármálum árum saman, hafi
svikið fólk um launagreiðslur og skil-
ið fyrirtæki og einstaklinga eftir með
tugmilljóna króna tapaðar kröfur. Á
þeim hvíli dómar vegna vanskila og
þeir hafi verið viðriðnir gjaldþrot
fjölda fyrirtækja.
DV hafði sambandi við Helga Hjör-
var vegna þessa máls í morgun. Hann
óskaði ekki eftir því að ræða málið
fyrr en hann hefði kynnt sér efni
heimasiðunnar. -SÁ
Krafa um svór
DV, Akureyri:
„Það er mitt markmið að fara út
af þessum fundi með skýr svör við
þeirri spumingu hvenær vamarlin-
um verður aflétt," segir Jón Ólafur
Sigfússon, framkvæmdastjóri
Landsmóts hestamanna, en yfir-
dýralæknir hefur boðað samráðs-
hóp hagsmunaaðila á sinn fund í
landbúnaðarráðuneytinu. -gk
Kjúklingastríð
Neytendur gæta glaðst í dag því
verðstríð á kjúklingum er hafið hjá
tveimur af stærstu stórmörkuðunum,
Nóatúni og Hagkaupi.
Nóatún auglýsir í dag sænska
kjúklinga til sölu á 450 krónur kílóið.
í morgun svaraði Hagkaup þessu til-
boði Nóatúns og býður nú íslenska
kjúklinga á 445 krónur kílóið.
Að sögn markaðsstjóra matvöru-
deildar Hagkaups er hér um tíma-
bundna lækkun að ræða og því verða
kjúklingaunnendur að hafa hraðar
hendur til þess að ná sér í ódýran
kjúkling. -glm
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI UPPSKRIFT
PAR SEM PU RÆÐUR FERÐINNI
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA