Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Page 2
2 MÁNUDAGUR 11. MAÍ 1998 Fréttir Skoðanakönnun DV á afstöðu til hálendisfrumvarps félagsmálaráðherra: Þorri þjóðarinnar á móti frumvarpinu - stuðningur mun meiri á landsbyggðinni en höfuðborgarsvæðinu Þorri þjóöarinnar, eða ríflega sjö af hverjum tíu íslendingum á kosn- ingaaldri, er andvígur frumvarpi fé- lagsmálaráðherra um stjómsýslu hálendisins. Andstaðan er mun meiri á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðinni. Þetta eru helstu niðurstöður skoðanakönnunar DV á afstööu fólks til hálendisfrumvarps félagsmálaráðherra, Páls Pétursson- ar, þar sem m.a. er kveðið á um að færa stjómsýsluna yfir hálendinu til þeirra 42 sveitarfélaga sem liggja að því. Sem kunnugt er hefur hart verið deilt um málið á Alþingi að Úrtakið var 1200 manns, jafnt skipt milli höfuðborgarsvæðis og lands- byggðar sem og kynja. Eftirfarandi spuming var lögð fyrir þátttakend- ur könnunarinnar: „Ertu fylgjandi eða andvígur frumvarpi félagsmála- ráðherra um stjómsýslu hálendis- ins sem rætt hefur verið á Alþingi aö undanfomu?" Miðaö við svör allra í könnuninni sögöust 19,1 prósent vera fylgjandi frumvarpinu, 49,8 prósent voru því andvíg, 29,1 prósent sögðust vera óá- kveðin og 2,1 prósent neituðu að svara spumingunni. Konur óákveönari Afstaða fólks eftir búsetu er mis- munandi. Rúm 60 prósent af þeim sem fylgjandi eru frumvarpinu eru af landsbyggöinni og eigi ósvipað hlutfall andstæðinga þess af höfuðborgarsvæðinu. í hópi óá- kveðinna og þeirra sem vildu ekki svara spurningunni var ekki marktækur munur eftir búsetu. Ekki er svo mikill munur á af- stöðu kynjanna. Helst er að mun fleiri konur en karlar em óá- kveðnar, algengara var að þær Afstaða til hálendisfrumvarps Svör allra Óákv./sv. Fylgjandi Þeir sem tóku afstöðu Andvíglr 27,7% 72,3% Andvígir Afstaða eftir búsetu Fylgjandi Höfuöborgar- svæðið ^,'981 Höfuöborgarsvæðlö undanfomu og eyddi stjómarand- staðan töluverðum tíma í 2. um- ræðu um frumvarpið. Skoðanakönnunin var gerð sl. þriðjudags- og miðvikudagskvöld. Sé aðeins tekið mið af þeim sem tóku afstöðu í könnuninni reyndust 27,7 prósent vera fylgjandi hálendis- frumvarpinu en 72,3 prósent því andvíg. vildu kynna sér framvarpið betur áður en þær tækju afstöðu til málsins. Á móti kemur að karlar eru ívið fleiri en konur bæði í röð- um fylgjenda og andstæðinga frumvarpsins en munurinn getur vart talist marktækur. -bjb Allsherjargoöi helgaöi hálendið með aðstoð Fjalla-Eyvindar: Himnagáttir opnuðust „Lýsi ég landhelgim á hálendinu öllu og eignarhaldi allrar alþýðu, með ám og vötnum, skógum og völlum, fjöllum og dölum, öllum gögnum og gæðum, til nota og nytja oss til handa, niðjum voram og erfingjum öllum, getnum og ógetnum, bomum og óbornum, nefndum og ónefndum, til eignar og yfirráða fullra og fastra. Skal svo haldast meöan mold er, og menn lifa.“ Þannig hljómaði m.a. sú þula er Jörmundur Ingi allsherjargoði fór með á miðpunkti íslands í gær, við Beinakerlingu á Sprengisandi, í því skyni að helga hálendi íslands fyrir hönd þjóðarinnar. „Tilefni atburðarins era hálend- isfrumvörpin hjá Alþingi þar sem mörgum finnst réttur meirihluta almennings fyrir borð borinn. Þetta land hefur aldrei verið numið eða helgað. Nú er þetta helgað, ekki af mér sem einstaklingi heldur fyr- ir hönd þjóðarinnar. Ég tók mér það umboð. Nú er að sjá hvað Al- þingi gerir í málinu," sagöi Jörmundur Ingi í samtali við DV í gærkvöld og benti á að ríkisstjórn- in gæti ekki helgað sér land á há- lendi, sitjandi á Alþingi. Ekki sé hægt að helga land nema að vera á staðnum. „Annars hefði Ingólfur Arnarson aldrei þurft að koma til íslands,“ sagði allsherjargoðinn. Meö Jörmundi í for var jeppa- maðurinn og hálendisfarinn Birgir Brynjólfsson, betur þekktur undir nafninu Fjalla-Eyvindur. Lét hann til leiðast þrátt fyrir að vera í Jörmundur Ingi allsherjargoöi helgar hálendlö á miöpunkti íslands, viö Beinakerlingu á Sprengisandi. DV-mynd Fjalla-Eyvindur endurhæfingu eftir hjartaaðgerð! Lögðu þeir félagar af stað hálf- átta í gærmorgun úr Reykjavík og sex tímum síðar voru þeir meö að- stoð GPS-staðsetningartækis komn- ir að Beinakerlingu, skammt aust- an Hofsjökuls og vestan Tungna- fellsjökuls. Færið var gott sem og veðrið lengst af. „Við fengum svörun þama upp frá. Himnagáttir opnuðust um leiö og athöfnin byrjaði. Sólin skein glatt á meðan á athöfninni stóð og síöan skyggði á ný,“ sagði Jör- mundur sem m.a. fór með þessa þulu: Heyri jötnar, heyri hrímþursar, synir Suttunga, sjálfir ásliöar, hve égfyrir býö, hve égjyrir banna. Landsspjöll öll mönnum, landbrigöir öllum mönnum. -bjb Stuttai fréttir dv Óeölileg viöskipti? I fréttaskýringu í Mórgun- blaöinu í gær segir að Gunn- laugur M. Sigmundsson hafi selt stjórn Kögunar hf. hlut Þróun- arfélagsins í Kögun á fjórföldu nafnverði á grundvelli upplýsinga sem hann hafði sem framkvæmdastjóri félagsins. Viðmælendur Morg- unblaðsins segja Gunnlaug hafa beitt óeðlilegum við- skiptaháttum. Hernámsvefur Ljósmyndasafn Reykjavikur og Menningardeild Ríkisút- varpsins hafa nú sett upp sýn- inguna Hernám íslands á Net- inu. Á sýningunni era Ijós- myndir frá hemámsárunum sem aldrei hafa sést opinber- lega áður. Frábærar viötökur Verk Einars Már Guð- mundssonar og Einars Kára- sonar hafa fengið frábærar við- tökur í kynningarferð sem þeir eru í núna um Þýskaland, Sviss og Austurríki, sem öll era þýskumælandi. RÚV sagði frá. 700 milljóna lán Reykjanesbær tekur 700 milljón króna lán til fram- kvæmda vegna einsetningar grunnskóla. Ellert Ei- riksson bæj- arstjóri sagði á kosninga- fimdi frétta- stofu RÚV að lánið hefði fengist með útboði og bæjarfélagið njóti betri vaxtakjara en dæmi séu um á þessu ári. Gæði og gestrisni Kjörorð í ferðaþjónustu í uppsveitum Ámessýslu verða Gæði og gestrisni. Þetta er samkvæmt nýrri stefnumótun sem Ásborg Amþórsdóttir og Rögnvaldur Guðmundsson unnu. Takmarkið er að fjölga ferðamönnum á svæðinu. RÚV sagði frá. Fljótar blesgæsir Blesgæsir sem bera sérstaka senda náöu 115 kílómetra hraða á leiðinni frá írlandi til íslands á dögunum. Ekki er vitað til að þær hafi flogið svo hratt áður. Ein gæsanna er komin til Vestur-Grænlands. RUV sagði frá. Vill rannsókn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfufltrúi vill rannsókn á ásökunum á hendur tveimur frambjóðendum R-listans um fiármálaóreiðu. Þessi orð lét hann falla í þættinum 19 20 á Stöð 2 í gærkvöld. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að ekkert sé að rannsaka. Ekki nóg tillit Mörður Ámason, trúnaðar- maður R-listans, segir hugsan- legt að ekki hafi verið tekið nóg tillit tfl ým- issa í stjóm- málaflokkun- um sem standa að listanum þegar ákveð- ið var að tefla honum fram í nafni Reykjavíkurlista. Stöð 2 sagði frá. Banaslysum fjölgar Níu hafa látist I banaslysum á þessu ári. Svo margir hafa ekki látist á þessu tímabfli í áratug. I fyrra og árið 1996 lést euin maður í umferðarslysi á tímabflinu 1. janúar til 9. maí. Stöð 2 sagði frá. „hi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.