Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Qupperneq 6
Fréttir Á slóðum mikillar sögu og hamfara „Ég er mjög ánægður og glaður. Þetta hefur verið mjög skemmti- legur og fróðlegur dagur og mér flnnst mikilvægt að skilja kraft- inn í íbúunum, hvað fólkið er staðráðið í að nýta þær auðlindir sem eru í náttúru héraðsins og sögunni til að skapa sér atvinnu og blómlegt líf í framtíðinni," sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, að kvöldi fyrri dags opinberrar heimsóknar for- setahjónanna í Vestur-Skaftafells- sýslu. Ólafi fannst gaman að koma í skólann á Klaustri þar sem hress böm voru á kafi í námi og list- sköpun, en þau sögðu honum líka frá lömbunum sem þau voru búin að eignast undanfarna daga. Sam- hengið í mannlífi, náttúrunni, fæðingunni, landbúnaðininn og héraðssögunni hér í Skaftafells- sýslunni frá landnámi er enn greinilega sami þráðurinn og maður fann hjá krökkunum í dag,“ sagði Ólafur Ragnar. Frá skólanum á Klaustri fóru forsetahjónin á hjúkrunar- og dvalarheimilið Klausturhóla. „Mér fannst líka gaman á hjúkr- unarheimili aldraðra, af því að hér erum við í héraði þar sem sag- an er auðvitaö mikil og frá land- námi mjög sterk og dramatísk, að þá skyldi sú gjöf sem íbúar dvalar- heimilisins færðu okkur vera myndband um tækninýjungar og sögu rafvæðingar í héraðinu, áminningu um það hvemig tækni- fmmkvöðlar í héraði hefðu inn- leitt rafmagnið, orkuna og kraft- inn og bætt mannlífið. Það finnst mér nú vera djúpur skilningur á framtíðinni að hinir öldruðu hér skuli færa manni myndband um tæknibyltinguna í héraðinu," sagði Ólafur Ragnar. Frá dvalar- og hjúkmnarheimilinu var farið í minningarkapellu Jóns Stein- grímssonar þar sem Hanna Hjart- ardóttir sagði sögu staðarins og kirkjuhalds á Klaustri allt til land- námsaldar. „Það hefur oft verið vikið að sögunni í dag, ógn- þrungnum atburðum sem hér hafa verið en líka þeim rótum ís- lenskrar kristnisögu sem hér er að finna, hinni merku klaustur- sögu sem héraðið geymir og varð- veitir, en lika eldsumbrot og sköp- unarverk náttúrunnar allt frá landnámi. Mér fannst það vera táknrænt einnig að gjöf sveitar- stjórnarinnar til okkar hjóna var listaverk sem unnið var úr land- námshrauninu, þannig að efnivið- urinn var sóttur í það hraun sem hér rann við landnám,“ sagði Ólafur Ragnar. Nú var kvöldið fram imdan með mikilli samkomu þar sem fjöl- margir listamenn úr V-Skaftafells- sýslu komu fram og fjöldi fólks úr ailri sýslunni kom og hitti forseta sinn. „Við hlökkum mjög til þeirr- ar hátíðar, ég veit að dagskráin verður fjölbreytt í höndum heima- manna, ég mun svo reyna að leiða fram ákveðnar hugsanir um sam- hengið í sögu héraðsins og þeirri framtíð sem við íslendingar sem þjóð þurfum að hugleiða og feta saman, móta stefnu varðandi varðveislu náttúrunnar og skoöa vel þær auðlindir sem við eigum í landinu og sögu þjóðarinnar," sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands. -NH Á samkomunni sem haldin var til heiðurs forsetahjónunum afhenti forseti íslands átta ungmennum „Hvatningu forseta íslands til ungra íslendinga". Þau voru: Hugborg Hjörleifsdóttir, Jóhanna Friörika Sæmundsdóttir, Ragna Björg Ársælsdóttir, Saga Sigurðardóttir, Svavar Helgi Ólafsson, Vignir Þór Pálsson, Vignir Snær Vigfússon og Þórunn Bjarnadóttir. DV-myndir Njöröur Forsetahjónin heim sóttu Mýrdælinga Glæsilegur hópur mýrdælskra kvenna með forsetanum. Þórður Tómasson meö forsetahjón- unum. Forsetinn kvaddurí byggðasafninu Ég fagna þessari heimsókn í Byggðasafnið í Skógum, því að ég tel að vegur safnsins aukist við slíka heimsókn. Allt sem vekur at- hygli á safninu er af því góða og að menn telji safnið þess virði að koma og heimsækja það, og svo er ég af- skaplega þakklátur Vestur-Skaftfell- ingum, héraðsnefnd og sýslumanni fyrir að kveðja forsetahjónin hér í safninu í Skógum, þessari sameigin- legu eign Rangæinga og Vestur- Skaftfellinga," sagði Þórður Tómas- son, safnvörður í Skógum, en opin- berri heimsókn forsetahjónanna í Vestur-Skaftafellssýslu lauk þar á laugardagskvöldið. Þórður segir að safnið sé sameiningartákn fyrir sýslumar báðar og fólkið í sýslun- um hafi staðið af miklum myndar- skap að því að byggja upp þetta safn. „Því þó ég sé áhugasamur þá hefði það ekkert haft að segja ef ekki hefði notið skilnings hjá fólk- inu. Ég er mjög glaöur yfir þessu," sagði Þórður Tómasson. -NH Seinni dagur opinberrar heim- sóknar forsetahjónanna rann upp bjartur og fagur í Mýrdal. Sveitar- stjómarmenn úr Mýrdal tóku á móti forsetanum við mörk Skaftár og Mýrdalshrepps við Blautukvísl á Mýrdalssandi. Þaðan var haldið að Kerlingardal þar sem skoðað var sambýli fyrir þroskahefta. Frá Kerl- ingardal fóm forsetahjónin í hús björgunarsveitarinnar Víkverja og þar vom þeim sýnd björgunartæki og búnaður til björgunarstarfa. Síð- asti viðkomustaður fyrir hádegi var svo Brydebúðarhúsið sem áhuga- samir Mýrdælingar eru farnir að gera upp og ætla að setja upp menn- ingarmiðstöð í því. Þar tók fjöldi fólks á móti hjónunum og skoðaði með þeim húsiö og marga hluti sem þar vom til sýnis. í hádeginu var borðað í Víkurskála, þar var borinn fram matur sem að mestöllu leyti er framleiddur í Mýrdalnum og stærstur hluti hans framleiddur eft- ir reglum um lifræna framleiöslu landbúnaðarvara. Eftir hádegið var fyrst haldið i leikskólann í Suður- Vík þar sem böm á aldrinum 6 mánaða til 6 ára eru. Bömin tóku vel á móti forsetahjónunum og sungu fyrir þau og ræddu við þau. Þá var farið í Víkurkirkju þar sem Haraldur M. Kristjánsson sóknar- prestur rakti sögu kirkjunnar og sýndi forsetahjónunum kirkjuna og muni hennar. Frá kirkjunni fóm forsetahjónin á dvalarheimiliö Hjallatún og áttu þar notalega stund með heimilisfólkinu, barna- kór Víkurskóla kom og söng fyrir heimilisfólk og gestina nokkur lög undir stjórn Önnu Bjömsdóttur. Síðasti viðkomustaðurinn í Vík var atvinnumálasýning þar sem fyrir- tæki og einstaklingar úr Mýrdal sýndu og kynntu framleiðslu sína. Á leiðinni að Skógum var komið við í Ketilsstaðaskóla og hann skoð- aður og skólastarfið kynnt. í Skóg- um sýndi Þórður Tómasson forseta- hjónunum fyrst hina nýju Skóga- kirkju og síðan safnahúsið sjálft. Þar var svo forsetinn kvaddur eftir vel heppnaða heimsókn i Vestur- Skaftafellssýslu. -NH MÁNUDAGUR 11. MAÍ 1998 sandlcorn ÓlgaumÖgmund Frumkvæði Ögmundar Jónas- sonar að stofmm nýrra samtaka vinstri manna hefur vakið mikla ólgu innan Alþýðubandalagsins. Margrét Frímanns- dóttir og fram- kvæmdastjóri flokksins, Heimir Már Pétursson, em sögð Ögmundi reið vegna máls- ins, sem sumir telja að sé vísir að klofhingi ef verð- ur af samvinnu A-flokkanna til næstu kosninga. Áhersla hinna nýju samtaka á umhverfismál er túlkuð þannig að verði af samruna A-flokkanna muni Hjörleifur Guttormsson slást í lið með Ög- mundi og félögum um ffamboö fyr- ir þingkosningamar... Sverrir skelfir Kringum Finn Ingólfsson er mikill titringur vegna greinaskrifa Sverris Hermannssonar. Stuðn- ingsmenn hans segja Finn ekkert hafa að fela en óttast að Sverrir sé að ná sér upp meðal al- mennings og harðar árásir hans á Finn skaði stöðu ráð- herrans. Þeir hafa því stöðuga fálm- ara í gangi og hlera meðal aimars fjölmiðlamenn til að kanna hvaða undirtektir árásir Sverris fá meðal almennings. Sverrir hefur hins veg- ar sett upp herráð sem i em gamlir félagar hans og þar er til dæmis ræddur sá möguleiki að hann haldi opinn fund um málið enda telur herráðið að hann hafi miklar máls- bætur. Þeir segja líka að Sverrir muni ekki unna sér hvíldar fyrr en hann hafi komið Finni úr ríkis- stjórninni... Vinsældalistinn Á Sauðárkróki kom á siðustu stundu fram nýr listi, Vinsældalist- inn. Kosningamál hans skera sig frá málum annarra lista á landinu. Helsta baráttumál listans er þannig að reisa styttu af Geir- mundi Valtýssyni, helsta tónlistar- snillingi Norðlend- inga. Auk þess vill Vinsældalistinn leggja vatnsrenni- braut úr Nöð- unum, sem eru ofan við Sauðár- krók, og niður í sundlaug bæjarins. Það mál sem Vinsældalistinn bind- ur þó mestar vonir við í kosningun- um er loforð um að komist listinn til valda muni hann beita sér fyrir því að leggja niður graskögglaverk- smiðjuna í Vallhólma og gera úr henni bruggverksmiðju... Ræningjar og svikarar Sverrir Hermannsson er „í pásu“ eftir að hafa farið mikinn í skrifum sínum að undanfórnu. Landsbankamálið hefur væntan- lega orðið til þess að nú veit öll þjóðin hversu mikill áhugamaður Sverr- ir er um laxveiði. í haust sat Sverrir ráðstefnu Norður- Atlantshafslaxa- sjóðsins um __ ástand íslenskra laxveiðiáa og lét þar til sín taka eins og við var að búast. Sverrir sagði þar að ís- lendingar væru komnir af sjóræn- ingjum og skattsvikurum, þeir hefðu löngum legið í ófriði út í frá og hver við annan en á síðari tím- um virtist sem þeir stunduðu helst hemað gegn landinu og lífverum þess. Sverrir fór svo nokkrum orð- um um áratugavem sína við Hrúta- fjarðará og hversu nærgætnislega hann hefði umgengist þá nátt- úruperlu... Umsjón Reynir Traustason Netfang: sandkorn @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.