Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 11. MAÍ 1998 Spurt í Reykjanesbæ Hver veröa úrslit sveitar- stjórnarkosninganna í Reykjanesbæ? Helena Magnúsdóttir nemi: Framsókn vinnur. Ingunn Rögnvaldsdóttir leið- beinandi: J-listinn vinnur kosningamar. Eyrún Ármannsdóttir verk- stjóri: Ég spái því að J-listinn vinni. Nicolai Bjarnason ellilífeyris- þegi: Ég held að J-listinn nái meirihlutanum. Vilhjálmur Magnússon raf- virki: Sjálfstæðismenn verða sigurvegaramir. Ragnheiður Skúladóttir píanó- kennari: Það er erfitt að spá um þetta en ætli þetta verði ekki jöfn barátta. dv______________________Sveitarstjórnarkosningar 1998 Sveitarstjórnarkosningar í Reykjanesbæ: Nýtt afl ógnar meirihlutanum Sjálfstæðisflokkur og Framsókn- arflokkur mynda meirihluta í bæj- arstjórn Reykjanesbæjar. Þessir flokkar bjóða áfram fram fyrir komandi kosningar og stefna ótrauðir á að halda sínu. Nýtt afl er komið fram í bænum og ógnar nú veldi meirhlutans. Það er J-listinn, Bæjcurnálafélag jafnaðar- og félags- hyggjufólks. Hér er um að ræða þá sem hafa staðið að Alþýðuflokki og Alþýðubandalagi og síðan kemur ut- anflokkafólk til liðs við félagið. Þennan nýja lista leiðir Jóhann Geirdal sem er reyndur í bæjarpóli- tíkinni í Reykjanesbæ. Bæjarstjóra- efni félagsins er Guðfinnur Sigur- vinsson, sem var bæjarstjóri í Kefla- vík 1988- 1990, en hann er í 22. sæti listans. Ellert Eiríksson bæjarstjóri leiðir lista sjálfstæðismanna. Ellert, sem varð sextugur á dögunum, er búinn að vera bæjarstjóri undanfarin 8 ár í Keflavík og síðar Reykjanesbæ. Hann stefnir á að halda bæjarstjóra- sætinu í fjögur ár í viðbót og hætta síðan. Ellert segist sjálfur hafa byrj- að í stjómmálum 12 ára garnall þannig að hann er búinn að vera Mikil niöursveifla varð í atvinnulífinu á Suöurnejsum snemma á þessum áratug en það hefur nú veriö byggt upp. DV-myndir ÞÖK og atvinnumál. Þá em fjölskyldu- mál einnig ofarlega á blaði. Mikil niðursveifla varð í atvinnulífi á Suðurnesjum snemma á þessum áratug. Síðasta kjörtímabil hefur einkennst af því að byggja upp at- vinnulífið í Reykjanesbæ og hefur það tekist. Það hefur kostað all- mikla fjármuni. Heildarskuldir Reykjanesbæjar jukust um 72 pró- sent á síðasta kjörtímabili og em nú 1,8 milljarðar. -RR REYKJANESBÆR lengi að. Skúli Skúlason, annar vel þekktur og reyndur maður í bæj- arpólitíkinni, leiðir lista Framsókn- arflokksins. Helstu kosningamálin í Reykja- nesbæ em skipulags-, umhverfis- A: 24,5% 0:35,9% B: 19,4% G: 20,3% Varnarbarátta að skila árangri „Hér hefur verið traust og gott samstarf allra bæjarfulltrúa. Ég tel að hér hafi verið gerðir margir góð- ir hlutir á síðasta kjörtímabili. 1991 lentum við í mestu niður- sveiflu í atvinnu- lífi sem um getur í Islandssögunni alla leið síðan kreppan var. Við fórum í þá miklu vinnu að koma okkur til baka. Það hefur tekist. Hér er nú at- vinnuleysi búið og eftirspurn eftir vinnu. Við töldum okkur hafa þær skyldur við þá íbúa sem hér búa að reyna að gæta þess að þeir hefðu vinnu frekar en að hvetja til mikils innflutnings í sveitarfélag sem hafði takmarkað framboð af vinnu. Þetta hefur verið tímabil varnarbaráttu sem nú er að skila árangri," segir Ellert Eiríksson, bæjarstjóri og odd- viti D-listans. Ellert er búinn að vera bæjar- stjóri í 8 ár í Keflavík og síðan Reykjanesbæ. Hann segist stefna að því að verða bæjarstjóri næstu 4 árin og hætta síðan sáttur. „Við munum Ieggja áfram meg- ináherslu á atvinnumál, skólamál og fjölskyldumál. Við viljum meina að stefnuskrá okkar sé ein fjöl- skyldustefnuskrá. Brýn mál á dag- skrá okkar eru forvamir og það sem tengist unga fólkinu," segir Ellert. Aðspurður um kosningabaráttuna framundan segir hann: „Kosningabaráttan er jákvæð og mér líst vel á hana. Það er að vísu nýtt litróf og ekki lengur gamla fiór- flokkakerfið. Hið nýja afl hefur auð- vitað það markmið að fella mig sem bæjarstjóra og meirihlutasamstarf sjálfstæðisflokksins. Þeir geta kom- ið sterkir til leiks en við erum líka sterkir fyrir og gefum ekki eftir bar- áttulaust." Aðaláhersla á atvinnulíf „Hér á Suðurnesjum eiga sér lík- lega stað mestu umsvif í atvinnulífi fl-á upphafi. Við eigum von á því að geta skapað hér vel yfir þúsund störf ef það ganga eftir áform um magnesíumverk- smiðju, alkóhól- verksiðju og það sem því tengist. Aðaláherslan sl. fiögur ár hefur verið að byggja upp atvinnulífið eftir þá miklu nið- ursveiflu sem varð hér í sjávarút- vegi snemma á þessum áratug. Við þurfum að auka þjónustustig í sveit- arfélaginu þannig að við getum tek- ið við þeim fiölskyldum og því fólki sem við þurfum til að nýta þau at- vinnutækifæri sem bíða okkar hér,“ segir Skúli Skúlason, oddviti B- lista. „Áherslurnar á næstu fiórum árum verða á skólamálum, fiöl- skyldumálum, íþrótta- og menning- armálum, umhverfismálum og fiár- málum bæjarins. Við tökum heils hugar undir tillögur skólanefndar um skólahald í bænum. Þar segir að skólarnir okkar skuli vera lang- skiptir, þ.e frá 1. til 10. bekk. Við viljum útfæra þetta enn frekar með þvi að flétta tónlistarnám, íþrótta- æfingar og heimanám í samfellda stundatöflu. Við viljum líka auka sveigjanlegan vinnutíma starfsfólks hér. Við ætlum að markaðssetja Reykjanesbæ sem íþróttabæ annars vegar og hins vegar sem menningar- bæ. íþróttir eru mjög öflugar hér í bæ og við viljum efla þær enn frek- ar. Við viljum setja litla afgirta gervigrasvelli inn i hverfin þar sem böm og unglingar geta leikið sér í alls kyns íþróttum og leikjum. Þannig getur yngri kynslóðin um frjálst höfuð strokið inni í hverfun- um. Við höfum t.d. Poppminjasafn íslands og Sæfiskasafnið o.fl. staði sem hafa aðdráttarafl fyrir ferða- menn en viljum bæta við þessa flóru Kvennasögusafni íslands. Um- hverfismál verða mikilvæg næstu árin. Það hefur mikið verið unnið Framboðslistar í Reykjanesbæ Ellert Eiríksson, bæjarstjóri og oddviti D-list- ans. Skúli Skúlason, oddviti B-list- ans. D-listi 1. Ellert Einksson bæjarstjóri. 2. Jónina A. Sanders hjúkrunarfræðingur. 3. Þorsteinn Erlingsson útgeröarmaður. 4. Björk Guðjónsdóttir heildsali. 5. Böðvar Jónsson fasteignasali. 6. Steinþór Jónsson framkvæmdastjóri. 7. Gunnar Oddsson tryggingaráðgjafi. 8. íris Jónsdóttir listamaður. 9. Anna Maria Sveinsdóttir verslunarmaöm-. 10. Rikharður Ibsen verkamaður. 11. Helgi Þ. Kristjánsson lögreglumaður. B-listi 1. Skúli Skúlason fulltrúi. 2. Kjartan Már Kjartansson forstöðumaður. 3. Þorsteinn Ámason skipstjóri. 4. Guðný Kristjánsdóttir leiðb. 5. Guðbjörg Ingimundardóttir sérkennari. 6. Gísli Hlynur Jóhannsson framkvæmdastjóri. 7. Ólöf Kristín Sveinsdóttir skrifstofumaður. 8. Sigriður I. Danielsdóttir forstöðuþroskaþjálfi. 9. Jón Helgi Ásmundsson vélstjóri. 10. Guðmundur Margeirsson framkvæmdastjóri. 11. Hafsteinn Ingibergsson forstöðumaður. J-listi 1. Jóhann Geirdal bæjarfulltrúi. 2. Kristmundur Ásmundsson yfirlæknir. 3. Kristján Gunnarsson bæjarf. 4. Ólafur Thordersen framkvæmdastjóri. 5. Sveindís Valdimarsdóttir kennari. 6. Guðbjörg G. Logadóttir markaðsfulltrúi. 7. Eðvarð Þór Eðvarðsson kennari. 8. Hulda Ólafsdóttir leikskólak. 9. Valur Ármann Gunnarsson lögregluþjónn. 10. Agnar Breiðíjörð Þorkelsson verkstjóri. 11. Guðbrandur Einarsson kerfisfræðingur. að fegrun bæjarins og að frárennsl- ismálum af núverandi meirihluta og við viljum halda því áfram. Svo geta bæjarbúið litið á stefnumál okkar á Netinu en heimasíðan er www.isholf.is/framsokn,“ segir Skúli. Björgunarleið- angur „Við höfum ákveðið að setja sam- an þetta framboð því við sjáum fram á mjög mikla nauðsyn að kom- ast til aukinna áhrifa í þessu sveitarfélagi. Staðan hér kallar á björgunarleið- angur og þennan leiðangur erum við tilbúnir að fara. Hér hefur átt sér stað alger stöðnun. Síðustu 3 ár hefur meðal- fiölgun hér verið 16 manns á ári. Það er minna en náttúruleg fiölgun. Það segir okkur að það eru fleiri sem flytjast frá bænum en til bæjar- ins. Þetta gerist á sama tima og at- vinnuuppbygging er í gangi hér. Það segir okkur að margir kjósa að búa annars staðar þó þeir sæki vinnu hingað, segir Jóhann Geirdal, oddviti J-lista. „Það hefur verið stöðnun á íbúð- arbyggingum hér. Á sama tima hafa skuldir bæjarins aukist. Stórt vandamál er að 86 prósent fara í rekstur bæjarins. Það vantar meiri fiölda til að standa undir greiðslun- um. Það gerist ekki og því stefnir í óefni í fiármálum. Það þarf að gera svæðið eftirsóknarverðara. Það þarf aö skipuleggja ný íbúðarhverfi með grunnskóla og leikskóla o.fl. Hér hefur verið ófremdarástand í skóla- og félagsmálum. Því velur fólk frek- ar búsetu á höfuðborgarsvæðinu. Þessu verður að breyta. Það hefur verið ótrúlegur doði í gangi á mörg- um sviðum. Við gagnrýnum úr- ræðaleysi meirihlutans í fiölmörg- um öðrum málum, t.d. skort á fram- tíðarsýn. Það er gert ráð fyrir því í sveitarstjórnarlögum að á fyrsta ári leggi nýr meirihluti fram fram- kvæmdaáætlun til þriggja ára. Slík áætlun er enn ekki komin fram,“ segir Jóhann. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.