Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Side 18
i8 wenning MÁNUDAGUR 11. MAÍ 1998 JjV Fortíðin verður að ráða • • • Við leggjum mikla áherslu á að einsagan sé ekki persónu- saga,“ segir Sigrún. „Við skrifum ekki ævisögur ákveöinna einstaklinga þó að við notum meðal annars dagbækur og bréf sem heimildir. Hefðbundin sagnfræði byggir að jafnaöi á opinberum gögnum og lýsir æski- legri hegðun eða lífsferli fólks og þeirri stóru umgjörð sem stofnanir samfélagsins mynda utan um líf þess eða hún beinir sjón- um að ákveðnum einstaklingi og áhrifum hans á samtíð og sögu. En einsagan vill varpa ljósi á hvemig menning hvers tíma hefur áhrif á líf venjulegs einstaklings og hvemig hegðun hans - sem ekki er alltaf í samræmi við æskilega hegðun - hefur áhrif á hvemig ríkjandi gildismat tekur breyting- um. Hugsun einstaklingsins og tjáning hans mótast af menningunni á hverjum tíma og þeim gildum sem viðurkennd em án þess að hann sé algerlega á valdi þeirra. Þvi geta heimildir á borð við bréf, dagbækur eða réttarskjöl - þar sem einstaklingurinn er að játa eitthvað fyrir sjálfum sér eða öðmm - sýnt okkur dæmi um það að lang- anir hans stangist á við það sem viðtekið er. Þá er með þessum heimildum bæði hægt að varpa ljósi á þessi viðteknu gildi og benda á að það verði að taka þeim með fyrirvara, þau segi ekki ailt; hegðun ein- staklingsins er ekki alltaf í samræmi við reglur og venjur í samfélagi hans. Þetta er auðvitað ástæðan fyrir því að menningin er ekki stöðug heldur síbreyti- leg.“ - Skáldverk lýsa líka þessum árekstrum milli langana einstaklinga og ríkjandi gild- ismats - frá þessum tíma era til dæmis smásögur Gests Pálssonar ... „Eitt tónverk getur verið tilbrigði við annað tónverk en það missir tengslin viö upphaf sitt ef of mörgum nótum er breytt eða þær felldar burt,“ segir Sigrún. „Þannig er líka með sagnfræðina. Ef óvarlega er far- ið með staðreyndir þá missir hún tengsl við manna á 19. öld. veruleikanum en sagnfræðin komist. „Það er ágæt lausn að nýta sér skáldskap- inn til að varpa ljósi á það sem maður þyk- ist lesa út úr heimildum en getur ekki rök- stutt," segir Sigrún. „í þeim tilvikum mótast sá sannleikur sem höfundur dregur fram fyrst og fremst af viðhorfum hans sjálfs en ekki af heimildunum. Skáldsagnahöfundur- inn setur túlkanir sínar fram sem sannleika en aðalsmerki sagnfræðingsins er - eða ætti að mínu viti að vera - að útskýra túlkanir sínar og sýna að þær geti verið afstæðar. Ég tefli skáldskapnum fram gegn sagnfræðinni í greininni til að útskýra fyrir lesandanum þær takmarkanir sem ég verð að virða sem fræðimaður.“ Engin hommafóbía -1 greininni þinni um tvo vini, Finn Jóns- son og Pál Briem, vinnurðu með bréf en það hefur auðvitað veriö gert áður í sagnfræði- ritum. „Já, en við notum þau ekki sem hluta af lýsandi sögu til að segja frá atburðum. Frek- ar reynum við að skoða hvemig bréfritar- inn skilgreinir sjálfan sig og staðsetur sig í umhverfinu. Það sem mér finnst athyglisverðast við Finn Jónsson er að hann var af alþýðufólki en komst til mennta og giftist síðan inn í vel stæða borgarafjölskyldu í Kaupmannahöfn, þannig að hann skilgreindi sig út frá þrenns konar menningarheildum; fyrst menningu fátækrar alþýðu í Reykjavík sem barðist fyr- ir tilverurétti sínum, síðan fór hann aö skil- greina sig út frá vinum sínum í skóla og að lokum út frá danskri borgarastétt. Líf hans fram að þrítugu einkenndist af togstreitu milli þessara þriggja menningarheilda sem allar áttu tilkall til hans og hann til þeirra. Hegðun hans var kannski samþykkt á ein- Sigrún Sigurðardóttir - rannsakar vinskap ungra Sagn- fræði, ein- saga og skáld- skapur „Einsaga" er nýjasta tískuorðið í sagn- fræði og hafa þegar nokkur rit komið út undir því kjörorði sem áreiðanlega er kom- ið til að vera. Nú í vor kom út greinasafnið Einsagan - ólíkar leiðir með efni eftir átta sagnfræðinga, flesta unga, þar sem áhuga- samir lesendur geta kynnst fyrirbærinu. Ritstjórar em Erla Hulda Halldórsdóttir og Sigurður Gylfi Magnús- son sem vakti athygli fyrir tvær bækur um bræður frá Ströndum í fyrra. Meðal höf- unda í greina- safhinu er Sig- rún Sigurðar- dóttir sem skrifar þar um vináttu ungra karlmanna á öldinni sem leið og sækir heimildir sínar einkum í bréf Finns Jónsson- ar (fæddur 1858) sem hann skrifaði heim meðan hann var í námi í Kaupmanna- höfn. Hann varð seinna prófessor við Hafnarháskóla. Áður en við ræðum þá grein skýrir Sigrún lítillega hugmyndir ein- sögumanna. fortíðina og breytist í skáldskap. Fortíðin verður að ráða.“ - í greininni þinni er stuttur kafli þar sem þú sviðsetur atburði og sérð í hug persóna eins og í skáldverki, og mér finnst þú vera að segja þar að með því að nota aðferðir skáldskaparins komist maður nær raun- um stað en olli hneykslun á öðrum og það hlýtur að hafa verið erfitt.“ - Þú gefur aðeins í skyn aö þeir vinimir hafi ef til vill einhvem tíma daðrað við leynilegan menningarkima hómósexúalism- ans. „Orðið hommi var ekki til fyrir þessum ungu mönnum, það var ekki notað í menningu þeirra og þess vegna var engin hommafóbía til heldur. Það gerir að verkum að samskipti þeirra vom kannski frjálslegri en milli ungra karlmanna nú á dögum. Orðið elska þurfti ekki endilega að hafa kynferð- islega merkingu. Það voru færri hömlur á notkun þess eins og sést á bréfum og dagbókum. Þær sérstöku aðstæð- ur sem háskólanemend- ur í Kaupmannahöfn bjuggu við gerðu að verkum að sambandið milli þeirra varð ennþá nánara en annarra ungra manna. Þeir höfðu bara hver annan. Stuðn- inginn fengu þeir hver frá öðrum og hlýjuna líka. Þeir vora vanir því að systkini svæfu í sama rúmi - af hverju ætti svolítið eldri unglingur að vera hræddur við að skriða upp í rúm hjá vini sínum ef það var kalt úti og herbergið ókynt? Maður veit ekki alveg hvernig maður á að skilja það þegar þeir em að lýsa faðmlögum og kossum milli vina í dag- bókum sínum. Fyrir okkur hljómar þetta eins og samkynhneigð en ég held að þeir hafi ekki velt þessum möguleika fyrir sér. Ég felli engan dóm um kynhvatir þessara manna, enda get ég það ekki út frá heimildunum sem ég hef. Reyndar er gaman að komast að því hvað maður er vanmátt- ugur gagnvart fortíðinni að þessu leyti...“ DV-mynd BG Hefði getað not- að dulnefni - Skrifar þú bréf sjáif? „Já, ég hef mjög gaman af að skrifa bréf.“ - Þá gæti einhver skrif- að um þig einsögurann- sókn í framtíðinni. „Það væri meira en vel- komið. Enda væri sú manneskja ekkert að skrifa um mig per- sónulega heldur bara skoða hvernig menn- ingin hefði mótaö tjáningu mína sem ein- staklings - alveg eins og ég er að gera við mitt fólk. Ég hefði alveg getað skrifað um vinina tvo undir dulnefnum og í rauninni vildi ég óska að ég hefði gert það. Rannsókn- in hefði ekki misst neitt gildi við það sem einsögurannsókn og lesendur hefðu áttað sig betur á því að þetta er ekki persónu- saga.“ Sigrún er nú á styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna til að vinna að bók í ritröðinni Sýnisbækur íslenskrar alþýðumenntunar með bréfum frá móður Finns Jónssonar, Önnu Guðrúnu Eiríksdóttur, og systur hans, Guðrúnu Borgfjörö, til Finns. Hún segir að bréfin séu stórkostleg heimild um sjáifsmynd og hlutskipti gáfaðra alþýðu- kvenna á öldinni sem leið. Fegurðarstjórinn lýsti frati á oss... Alltaf er gaman að aöstoða metnaðar- gjamt og duglegt fólk í menningarviðleitni þess. í vikunni sem leið var talsvert veður gert út af því að á opnunar- hátíð Iðnó á miðviku- daginn (13.) verð- ur sungið lag eftir Halldór Laxness sem hann mun hafa samiö 12 ára gam- all. Pétur Grétarsson segir frá því hér í DV á miðvikudaginn var hvemig hann „fann“ lagið (í nýlegri bók frá Vöku-Helgafelli) og fréttinni er slegið upp undir fyrirsögninni „Eina lag Laxness frumflutt". í Morgunblaðinu sama dag segir Pétur: „Það er hins vegar forvitnilegt hvort ekki em til fleiri lög eftir Halldór því við vitum að hann hafði mikinn áhuga og mikla þekkingu á tónlist auk þess sem hann lék ætíö á píanó." Pétur getur glaðst: Lögin era fleiri. í leikskrá Þjóðleikhússins með leikrit- inu Prjónastofan Sólin, sem var frumsýnt í apríl 1966, er greinin „Tilorðníng Prjóna- stofunnar" eftir Halldór. Þar útlistar hann meðal annars í smáatriöum breytingar frá prentaðri gerð verksins til sviösverksins; þeirra á meðal nefnir hann tvö kvæði sem ekki verða fundin í prentaða textanum en „eru nú súngin í leiknum með lögum sem þar fylgja: annað er uppgeröar hetjulag kölska; hitt er nokkurskonar bamagæla soðin uppúr gasmjólkurlaginu sem var vinsælt hér á árunum, uppranalega enskt, aö mig minnir." Svo birtir hann kvæðin, fyrst „Saung Sínemaníbusar" og svo kvæöið sem kór fegurðardísanna syngur þar sem er þessi dásamlega vísa: Fegurðarstjórinn lýsti frati á oss, fór á stað og kvæntist Moby Dick. Líkkistusmiðurinn hefúr líknað oss. Lifið heil með sóma og skikk. Lögin era svo „prentuð með eftir- stúngu" í leikskránni, eins og Halldór orð- ar þaö; bæði era eftir hann sjáifan en hið síðara tilbrigði við þekktan slagara eins og áður gat. Erró á þremur stöðum Fyrsti Listahátíðarfarfugl- inn flaug til landsins í nótt frá Frakklandi. Það er myndlistar- maðurinn Erró en meðal myndlistarviðburða á Listahá- tíð er opnun Hafharhússins í Reykjavík með sýningu á myndum af konum eftir hann. Sýningarstjórinn hans, Gunn- ar Kvaran, er líka kominn frá Bergen til að setja sýninguna upp ásamt Eiríki Þorlákssyni, forstöðumanni Kjarvalsstaða. Gaman er að geta þess að ekki verða allar myndir á sýn- ingunni úr safni Listasafns Reykjavíkur heldur verða líka nýjar myndir sem Erró sendi á undan sér frá Frakklandi. Alls verða um hundraö verk á sýn- ingunni. Erró ætlar líka að sýna vasamyniir, að- allega af konum, í Galleríi Sævars Karls við Bankastræti og verður þar í slagtogi meö Guðjóni Bjamasyni sem sýnir skúlp- túra. Eins og þetta sé ekki nóg þá fer hann vestur í Ólafsvík núna í vikunni, í fæðing- arbæ sinn, þar sem hann opnar sýningu á verkum sínum á fimmtudaginn. ítalski útgefandinn Mario Lucchetti var að gefa út þriðja bindiö um Erró og list hans. Þetta eru miklar bækur sem ná yfir feril hans frá upphafi og til 1995; þar era greinar um hann eftir ýmsa listfræðinga (ein á íslensku eftir Eirík Þorláksson í síð- asta bindinu) og þar eru myndir af öllum verkum hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.