Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Qupperneq 42
50
MÁNUDAGUR 11. MAÍ1998
Afmæli
Haukur Jörundarson
Haukur Jörundarson, fyrrv.
skólastjóri og skrifstofustjóri í land-
búnaðarráðuneytinu, til heimilis að
Aflagranda 40, Reykjavík, er áttatiu
og fimm ára i dag.
Starfsferill
Haukur fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp en flutti sex ára með
fjölskyldu sinni að Múla í Biskups-
tungum og þremur árum síðar að
x Skálholti, en faðir hans var bóndi í
Skálholti og síðar í Kaldaðamesi.
Haukur var í íþróttaskólanum í
Haukadal 1928, í Héraðsskólanum á
Laugarvatni 1930-31, varð búfræð-
ingur frá Bændaskólanum að Hól-
um 1932, stundaði nám við mennta-
skólann á Hamri í Noregi 1932-33,
er búfræðikandídat frá Búnaðarhá-
skólanum að Ási í Noregi 1936 og
stundaði framhaldsnám við Notting-
ham College of Agriculture í
Englandi 1945-46, auk þess sem
hann fór námsferðir til allra Norð-
urlandanna, Hollands og Þýska-
lands 1937. Þá dvaldi hann í níu
mánaði við nám í Bandaríkjunum
1956.
, Haukur var kennari við Bænda-
skólann á Hvanneyri 1936-57, starf-
aði hjá Landnámi ríkisins 1957-58,
var fulltrúi í landbúnaðarráðuneyt-
inu 1959-63, skólastjóri Bændaskól-
ans á Hólum 1963-71, var fulltrúi
hjá Landnámi ríkisins auk skóg-
ræktarstarfa 1971-73 og skrifstofú-
stjóri í landbúnaðarráðuneytinu
1974-83.
Haukur sat í hreppsnefnd Anda-
kílshrepps 1947-57, var formaður
Ungmennasambands Borgarfjarðar
um skeið, i stjóm Kaupfélags Borg-
firðinga, var fyrsti formaður Skóg-
ræktarfélags Borgarfjcirðar, formað-
ur Framsóknarfélags Borgcirfjarðar,
formaður Framsóknarfélags Reykja-
víkur 1961-63, formaður bátafélags-
ins Bjargar 1959-62 og fyrsti formað-
ur Félags búfræðikandídata.
Fjölskylda
Haukur er tvikvæntur. Fyrri
kona hans er Ástríður, f.
27.11. 1913, hjúkrunar-
kona. Hún er dóttir Sig-
urmundar Sigurðssonar
læknis og k.h., Önnu
Kristjönu Eggertsdóttur
húsmóður. Haukur og
Ástríður slitu sam-
vistum.
Dætur Hauks og
Ástríöar era Anna, f. 7.10.
1938, búsett í Frakklandi;
Björg, f. 24.1. 1941, fyrrv.
bankafulltrúi í Reykja-
vik; Ásrún, f. 20.4. 1944, hjúkrunar-
kona í Reykjavik; Áslaug, tvíbura-
systir Ásrúnar, hjúkrunarkona og
ljósmóðir i Reykjavík; Amdís Ósk,
f. 25.3. 1950, hjúkrunarkona í
Reykjavík.
Síðari kona Hauks er Sólveig, f.
5.5. 1934, sjúkraliði, dóttir Alexand-
ers Jónssonar heildsala og k.h., Sól-
veigar Ólafsdóttur húsmóður. Hauk-
ur og Sólveig slitu samvistum.
Stjúpsonur Hauks og sonur Sól-
veigar: Kristján, f. 24.1.1963, d. 1998,
verkamaður í Reykjavík.
Alsystkini Hauks: Guðrún, f. 29.7.
1911, d. 4.5. 1912; Guðrún, f. 21.12.
1916, húsmóðir og ekkja í Kópavogi;
Guðleif, tvíburasystir Guðrúnar,
húsmóöir í Kópavogi; Þórður, f.
19.2. 1922, fyrrv. kennari, búsettur í
Kópavogi; Auður, f. 16.6. 1923, ekkja
og fyrrv. starfsmaður við Sláturfé-
lag Suðurlands, búsett í Reykjavík.
Hálfsystkini Hauks, samfeðra,
era Unnur, f. 9.4. 1929, fyrrv. skrif-
stofustjóri í Reykjavík; Gaukur, f.
24.9. 1934, umboðsmaður Alþingis.
Foreldrar Hauks voru Jörundur
Brynjólfsson, f. 21.2. 1884, d. 1979,
bóndi í Múla og síðar kennari í
Reykjavík, og f.k.h., Þjóðbjörg Þórð-
ardóttir, f. 20.10. 1889, d. 4.6. 1969,
kennari.
Ætt
Jörundur var sonur Brynjólfs, b.
á Starmýri í Álftafirði eystra Jóns-
sonar, b. á Geithellum Brynjólfsson-
ar. Móðir Jóns var Guðrún, systir
Högna, langafa Davíðs Ólafssonar,
fyrrv. seðlabankastjóra,
föður Ólafs, ráöuneytis-
stjóra í forsætisráðuneyt-
inu. Guðrún var dóttir
Gunnlaugs, pr. á Hall-
ormsstað Þórðarsonar,
pr. á Kirkjubæ Högna-
sonar prestaföður Sig-
urðssonar.
Móðir Jörandar var Guð-
leif Guðmundsdóttir, b. á
Starmýri Hjörleifssonar,
sterka á Höfn Ámasonar,
b. á Hööi Gíslasonar, en
þeir Hafnarbræður, Hjörleifur og
Jón, voru víðfrægir sökum hreysti
sinnar og hugprýði. Móðir Guð-
mundar var Björg Jónsdóttir, systir
Þóreyjar, langömmu Halldórs, alþm.
og forstjóra, foður Ragnars, stjóm-
arformanns í ÍSAL.
Þjóðbjörg var dóttir Þórðar, tré-
smiðs í Reykjavík Narfasonar, b. í
Stíflisdal í Þingvallasveit Þorsteins-
sonar, b. þar Einarssonar frá Núp-
um í Ölfusi Jónssoncir. Móðir Ein-
ars var Ingveldur Jónsdóttir, frá
Breiðabólstað í Ölfusi. Móðir Þórð-
ar var Þjóðbjörg Þórðardóttir, b. á
Úlfljótsvatni Gíslasonar. Móðir
Þórðar var Margrét Þórðardóttir,
borgara í Þorlákshöfn Gunnarsson-
ar og Guðríðar Pétursdóttur, systur
Sigurðar, föður Bjarna riddara.
Móðir Þjóðbjargar í Stíflisdal var
Sigríður Gísladóttir, hreppstjóra á
Villingavatni Gíslasonar, b. á Þúfú
Sigurðssonar, bróður Jóns, afa Jóns
forseta. Móðir Sigriðar á Úlfljóts-
vatni veæ Þjóðbjörg, systir Gísla,
langafa Sigríðar, móður Halldórs
Laxness. Gísli var einnig langafi
Vilborgar, ömmu frú Vigdísar Finn-
bogadóttur og Sigríðar Gísladóttur.
Þjóðbjörg var dóttir Guðna, ættfoð-
ur Reykjakotsættarinnar Jónsson-
ar, bróður Ingveldcir á Breiðaból-
stað.
Móðir Þjóðbjargcir var Guðrún,
dóttir Jóhanns Bjarnasonar á
Hrólfsskála og Sigríðar Bjarnadótt-
ur. Jóhann var sonur Bjama Sig-
urðssonar og Amdísar Árnadóttur
sem þá voru hjú að Haugum í Staf-
holtstungum. Sigríður var dóttir
Bjama Ingimundarsonar og Sigríð-
ar Einarsdóttur, er bjuggu að Sogni
í Reynisvallasókn.
Haukur verður ekki heima á af-
mælisdaginn.
Haukur Jörundarson.
Nauðungarsala á lausafé
Eftirtaliö lausafé, tilheyrandi rekstri fyrirtækis í mannvirkjagerö,
veröur boöiö upp aö Tröllaborgum, Grafarvogi, mánudaginn 18. maí
______1998, kl. 14.00, að kröfu Sameinaða lífeyrissjóösins:_
Linden-byggingarkrani
Byggingamót
Vinnuskúr
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN f REYKJAVÍK
Nauðungarsala á lausafé
Eftirtaldar hryssur veröa seldar á uppboði sem verður haldiö 18.
maí 1998 kl. 10.00 aö Fákshúsinu við Bústaðaveg (Neöri-Fákur),
Reykjavík, að kröfu Sveinbjörns Sveinbjörnssonar hdl., f.h. Braga
_____________________Andréssonar:___________________
Vorsól nr. 85.2.65-025, Stjömusól 94.2.25 og Svala nr. 91.2.25-170.
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Nauðungarsala á lausafé
Eftirtaliö lausafé, tilheyrandi rekstri prentsmiðju, verður boöiö upp
aö Ármúla 42 þriöjudaginn 19. maí, kl. 14.00, aö kröfu Sameinaða
lífeyrissjóðsins:
« ---------------------------------------- '
Repromaster af gerðinni Agfa-Gevaert RPS 2024 Automatic
Skurðarhnífur af gerðinni Adast Maxim MH80-3
Setningartölva af gerðinni Linotype CR Tronic 300
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN f REYKJAVÍK
Skömmu fyrir helgina skall á bylur á Austfjöröum þannig aö krakkarnir í
grunnskólanum í Neskaupstaö gripu tækifæriö og köstuðu snjónum eins og
þau gátu hvert í annað. Þó aö kyngt hafi niður og sumar heiðar oröiö torfær-
ar er veðriö nú aö skána heldur og von er á blíöu. DV-mynd BG
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Fríklrkjuvegl 3 - Pósthólf 878 - 121 Roykjayík
Síml 552 58 0(T- Fax 562 26 16 - Netfang: fsr@rvk.ls
T I L SÖLU
Tilboð óskast í eftirfarandi bifreiðar og tæki fyrir Vélamiöstöö
Reykjavíkurborgar:
1. VolvoN10 vörubíll
2. VolvoF616 vörubíll
3. MAN 19. 281 4x4 vörubíll
4. Scania 112 6x4 vörubíll
dráttarb. m/skífu. lamir f/pall
5. Toyota Corolla fólksbíll
6. Toyota Corolla fólksbíll
7. Toyota Corolla fólksbíll
8. Subaru Justy 4x4 fólksbíll
9. Subaru E10 4x4 sendibíll
10. Toyota Corolla fólksbíll
11. Toyota Corolla fólksbíll
12. Toyota Corolla fólksbíll
13. Izuzu DC 4x4 pallbíll
14. Daihatsu Rocky 4x4 jeppi
15. Massey Ferguson dráttarvél
16. Sláttuvél m/sogi á dráttarvél
17. Snjótönn á vörubíl
18. Keðjusláttuvél á dráttarvél
19 Vinnuhús af Benz 709
20. Sanddreifari árg. ?
Hengdur á lítinn sturtupall.
árg. 1984, 10 hjóla m/palli
árg. 1983, 6 hjóla m/palli
árg. 1982, dráttarbíll m/skífu_
_árg. 1983
árg. 1988
árg. 1987
árg. 1990
árg. 1987
árg. 1988
árg. 1990
árg. 1989
árg. 1990
árg. 1990
árg. 1990
árg. 1971
árg. (1990)
árg. ?
árg. ?
árg. (1987)
Tækin og bifreiöarnar verða til sýnis dagana 11.-13. maí n k. í porti
Vélamiðstöðvar Skúlatúni 1.
Opnun tilboða: miövikud. 13. maí 1998, kl. 15.00 á skrifstofu okkar
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tll hamingju
með afmælið
11. maí
80 ára
Bima Björnsdóttir,
Hombrekku, Ólafsfiröi.
75 ára
Gyða Þórarinsdóttir,
Hamraborg 14, Kópavogi.
Helga Sigurgeirsdóttir,
Hjallabraut 33, Hafnarfirði.
Sigurður E. Jónasson,
Efstalandi, Öxnadalshreppi.
Hallveig Guðjónsdóttir,
Stekkjartröð lla,
Egilsstöðum.
70 ára
Gunnlaugur
Finnsson,
bóndi og kennari,
Hvilft II,
Önundarfirði.
Gunnlaugur
verður staddur í
Reykjavík og tekur á móti
vinum, samstarfsfólki og ætt-
ingjum í Akogessalnum, Sól-
túni 3, í dag kl. 17.00-19.00.
Bjarni Gíslason,
Hvassleiti 157, Reykjavík.
Svava Sveinsdóttir,
Hamrahlíð 25, Reykjavík.
Bjarnþór Karlsson,
Einimel 19, Reykjavík.
Hulda Þorgrímsdóttir,
Rauðhömrum 12, Reykjavík.
Þorbjöm Marteinsson,
Kiðafelli, Kjósarhreppi.
60 ára
Gunnar Malmquist,
Vallarási 5, Reykjavík.
Gissur Jónasson,
Skarðshlíð 14d, Akureyri.
50 ára
Ingimar Kjartansson,
Kirkjuteigi 9, Reykjavík.
Jón Óskarsson,
Engjaseli 1, Reykjavík.
Þóra G. Hafsteinsdóttir,
Urriðakvísl 5, Reykjavík.
Anna Pétursdóttir,
Hrafnhólum 8, Reykjavík.
Jórunn Erla Sigurðardóttir,
Lækjarsmára 64, Kópavogi.
Arnór G. Ragnarsson,
Gerðavegi 31, Garði.
Erna Fossdal Júliusdóttir,
Broddanesi I,
Broddaneshreppi.
Karl Franklín Magnússon,
Munkaþverárstræti 24,
Akureyri.
Indriði Theódór Ólafsson,
Þúfu, Vestur-Landeyjahreppi.
Sigurður Friðbjömsson,
Ásavegi 29, Vestmannaeyjum.
40 ára
Halldór Jóhann Harðarson,
Nökkvavogi 6, Reykjavík.
Kristinn Sigurjón Jónsson,
Nesvegi 67, Reykjavík.
Jóhann Sigfússon,
Ásgarði 15, Reykjavík.
Hjálmar Bjamason,
Efstahjalla 7, Kópavogi.
Gróa Bjarnadóttir,
Hrunastíg 1, Þingeyri.
Ingibjörg M. Valgeirsdóttir,
Brennihlíð 4, Sauðárkróki.
Jóna Ósk Vignisdóttir,
Grundargötu 6, Akureyri.
Adam Ásgeir Óskarsson,
Löngumýri 20, Akureyri.