Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1998, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998
Neytendur
i>v
Sýklar í sólvörn
Nú er sumarið komið og margir
hafa sjálfsagt hugsað sér að sleikja
sólina í sumar hérlendis eða erlend-
is og ná lit á kroppinn.
Litarhaft flestra íslendinga krefst
þess að notað sé sóivarnarkrem til
þess að verjast sterkum geislum sól-
ar og koma þar með í veg fyrir sól-
bruna. En þótt það sé hægt að rífa
fram gömlu stuttbuxumar og sól-
stólana frá því í fyrra er ekki ráð-
legt að draga fram sólvarnarkrem
sem notað var í fyrra.
Hitinn slæmur
Danskir sérfræðingar hafa nefni-
lega komist að því að sólvarn-
arkrem sem hafa staðið í sólinni í
einhvern tíma og síðan verið geymd
inni í skáp yfir veturinn geta inn-
haldið alls kyns bakteríur og
sveppi.
Verkakvennafélagið Framtíðin, Hafnar-
firði, Garðabæ og Bessastaðahreppi
auglýsir framboðsfrest
Hér meö er auglýstur frestur til að skila inn tillögum
um stjóm, varastjórn, trúnaðarmannaráð, varatrúnaðar-
mannaráð, skoðunarmenn og varaskoðunarmenn í
Verkakvennafélaginu Framtíðinni í Hafnarfirði fyrir
næsta starfsár. Fullskipuðum framboðslista ásamt
meðmælendalista skal skila á skrifstofu félagsins,
Reykjavíkuvegi 64, eigi síðar en kl. 12 á hádegi
mánudaginn 8. júní 1998.
Auglýsendur,
athugið!
Smáauglýsingadeild
veröur opin um hvítasunnuhelgina sem hér segir:
Opið:
laugardaginn 30. maí frá kl. 9-14
mánudaginn 1. júní, annan í hvítasunnu,
frá kl. 16-22
Lokað:
sunnudaginn 31. maí, hvítasunnudag
kemur næst út eldsnemma
að morgni þriöjudagsins 2. júní
smáauglýsingadeild
Þverholti 11 - sími 550 5000
Samkvæmt könnun danskra sérfræöinga geta alls kyns bakteríur og sveppir leynst í gömlum sólvarnarkremum.
Afleiðingarnar geta m.a. verið
kláði og roði i húð.
í dönsku rannsókninni kom i ljós
að ef sólvarnarkremin höfðu staðið
úti í sól var mikil hætta á bakterí-
um í þeim. AIls innihéldu 70 túbur,
af þeim 124 sem skoðaðar voru í
rannsókninni, bakteríur eða sveppi
sem ollu kláða eða roða.
Endingartími stuttur
Á flestum sólvarnarkremum er
gefið upp hversu lengi þau eigi að
endast og er endingartíminn oft
sagður vera þrjú ár.
Samkvæmt dönsku rannsókninni
er endingarstimpillinn alls enginn
gulltrygging fyrir bakteríulausu
kremi því kremin í rannsókninni
voru að meðaltali einungis níu mán-
aða gömul.
Það er því ljóst að ef sólvarnar-
kremið þitt hefur staðið úti í sól síð-
astliðið sumar er ráðlegt að kaupa
nýtt krem áður en lagst verður I sól-
bað í ár.
-glm
Sól og sæla í
Hafnarfirði
Matarmikið salat
Þetta matarmikla og girnilega
salat er ættað úr smiðju Sigga Hall.
Það getur auðveldlega staðið eitt og
sér og myndað fullkomna máltíð
með góðu brauði. Salatsósan gefur
salatinu sérstakan austurlenskan
keim.
í salatið þarf:
1 höfuð jöklasalat, vel skolað og
rifið niður,
4-5 soðnar kartöflur,
120 g reyktan lax,
120 g skinku,
120 g Maribo-ost,
120 g Óðalsost,
1 dl grænar ertur,
3-4 tómata,
1 ferskan maísstöngul.
Hnetusósa:
1 dl blandaðar hnetur,
1 dl ólífuolía,
2 msk. ristuð sesamolía,
3 msk. balsamico-edik,
4 msk. japönsk sojasósa,
1 msk. hlynsíróp
Leggið jöklasalatið í djúpt fat.
Skerið soðnu kartöflumar í sneið-
ar og leggið ofan á. Skerið reykta
laxinn í stóra strimla og skinkuna
á sama hátt. Dreifið þessu jafnt
yfir salatið. Látið erturnar þiðna
og blandið saman við. Skerið
komið utan af maísstönglinum.
Blandið því jafnt yfir innan um
erturnar. Látið sósuna yfir rétt
áöur en salatið er borið fram.
Myljið hneturncir gróft. Ristið
þær á þurri viðloðunarfrírri
pönnu. Hristið þær vel á meðan
verið er að rista þær. Verið á
varðbergi því hnetur geta brunn-
ið snögglega. Blandið saman olí-
unum, edikinu, sojasósunni og
sírópinu. Þegar hneturnar eru
orðnar gullinbrúnar eru þær sett-
ar heitar út í sósuna. Kælið sós-
una niður.
Hnetusósan hentar einnig vel á
ýmiss konar önnur salöt og með
reyktum laxi eða gröfnu kjöti.
Forsvarsmenn sólbaðsstofunnar Sólar
og sælu, Fjarðargötu lla í Hafnarfirði,
höfðu samband við blaðið og vildu árétta,
vegna greinar í DV um ljósakort, að Sól
og sæla i Hafnarfirði væri ekki sama fyr-
irtæki og samnefnt fyrirtæki í Reykjavík.
Á Sól og sælu í Hafnarfirði kostar stak-
ur morguntími 350 krónur og stakur
venjulegur tími 450 krónur. Morguntím-
arnir gilda til kl. 14 virka daga og allan
daginn um helgar.
Fimm tíma kort I 15 daga kostar 1800
krónur, tíu tíma morgunkort í 30 daga
kostar 2500, tíu tíma kort í 20 daga kostar
2990, tiu tíma kort í 30 daga kostar 3400
krónur, tíu tíma kort í 60 daga kostar 3800
krónur og tuttugu tíma kort í 80 daga
kostar 5800 krónur.
Sól og sæla býður einnig upp á trimm-
form og kostar tíminn 690 krónur. Tíu
tímar í trimmformi kosta síðan 5900 og
tíu tímar í trimmformi og fimm tímar í
ljós kosta 6990 krónur. Á Sól og sælu er
boðið upp á leirvafninga og kostar einn
tími 5500 og þrír timar 11900 krónur, förð-
un á 1990 krónur og heilnudd á 2200 krón-
ur. -glm
SUÐURLAND
Miðvikudaginn 10. júní nk. mun aukablað um
Suðurland fýlgja DV.
Fjallaö veröur um þaö sem hæst ber á Suðurlandi
í sumar, ferðaþjónustu, listir og heimaiönaö, söfn
og sögu, veiði, ylrækt o.fl.
Umsjón efnis:
Umsjón efnis erí höndum Finns
Vilhjálmssonar, í síma 550 5819.
Umsjón auglýsinga hefur Gústaf
Kristinsson í síma 550 5000
Auglýsendur, athugið!
Síöasti skiladagur auglýsinga
er föstudagurinn 5. júní.