Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Blaðsíða 2
Fréttir
Verðmæti og magn fiskafla eykst í góðæri:
Stefnir i metar
- segir Ásgeir Daníelsson, sérfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun
„Þaö stefnir 1 metár hvað varðar
heildarverðmæti fiskafla," segir Ás-
geir Daníelsson, sérfræðingur Þjóð-
hagsstofnunar. Samkvæmt spá Þjóð-
hagsstofnunar verður heildarverð-
mæti fiskaflans 97,2 milljarðar
króna árið 1998. Það er um 10%
aukning frá því í fyrra. Fyrstu mán-
uði ársins reyndist útflutningur
minni en spáin gerði ráð fyrir.
Bráðabirgðatölur Fiskifélags fs-
lands fyrir verðmæti afla fyrstu sex
mánuði ársins auka hins vegar lík-
ur á þvi að spáin standist. Þá er
ekki ólíklegt að seinni hluti ársins
verði öflugri en sá fyrri, að sögn sér-
fræðinga.
Hagstæð skilyrði
Markaðsverð á mikilvægum sjáv-
arafurðum íslendinga hefúr hækkað
undanfarið. DV ræddi við Kristján
Hjaltason, forstöðumann sölu- og
markaðssviðs Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna. „Síðasta árið hefur
frysting verið í mikilli sókn. Al-
mennt er mikil veiði og hátt mark-
aðsverð. Ástandið er því óvenjugott
núna. Við sjáum miklar hækkanir í
hefðbundnum fisktegundum. Hvað
þorsk varðar, sem er mikilvægasta
einstaka fisktegundin, hefur þróun-
in verið jákvæð. Ef borið er saman
meðalverð á kíló fyrstu sex mánuði
í ár miðað viö fyrstu sex mánuði í
Verðmæti fiskafla í janúar 1998
- verömæti alls 31.180 milljónir kr. sem er 6% aukning frá 1997 -
25.000 millj. kr on nnn -
15.000
10.000
5.000
vAU-í
o
Botnfiskur Síld og loðna Krabbi og skeldýr
um 38% milli ára i 10,6 milljarða.
Töluvert minna veiddist af ýsu og
ufsa og samdráttur varð á veiðum á
grálúðu og skarkola. Hins vegar
veiddist meira af steinbít og karfa
og sérstaklega af úthafskarfa.
Af verðmæti fiskaflans er síld og
loðna með rúm 17,3% sem samsvar-
ar 5,4 milljörðum kr. Það er um 3%
verðmætaminnkun milli ára.
Loðnuveiði minnkaði töluvert milli
ára en hagstætt verð heldur tekjum
uppi.
Loks veiddist af krabba og skel-
dýrum fyrir 3,5 milljarða króna. Það
er 32% verðmætaminnkun frá þvi í
fyrra. Minnkun skýrist af sam-
drætti í rækjuveiðum.
fyrra hefur markaðsverð á þorski
hækkað um 7,8% í íslenskum kr.
Samfara þessu hefur þorskafli auk-
ist og loks er meira um að hann sé
frystur. Þetta þrennt virkar mjög
vel saman.
Hvað ýsu og ufsa varðar hefur
samdráttur orðið á magni. Hins veg-
ar hefúr hækkun á markaðsverði
næstum alveg vegið upp á móti hon-
um. Ýsan hefur hækkað um 14,8%
og ufsinn um 18,8%,“ segir Kristján.
31,2 milljarður króna. Það er aukn-
ing um 6,3% eða um 1,85 milljarð
króna, ef miðað er við sama tíma og
í fyrra. Þetta má lesa úr bráða-
birgðatölum Fiskifélags íslands.
Aukning á heildarverðmæti
Heildarverðmæti íslenska fiskafl-
ans fyrstu sex mánuði þessa árs var
Vægi einstaka tegunda
Af heildarverðmæti aflans er
hluti botnfisks rúm 71%. Það sam-
svarar 22,3 milljörðum kr. Þar er
um að ræða 16% verðmætaaukn-
ingu miðað við sama tíma í fyrra.
Munar þar mest um þorsk. Af botn-
flsktegundum er þorskurinn mikil-
vægastur með tæplega helming
verðmætis. Verðmæti þorsks eykst
Mikil hækkun á lýsi
íslendingar framleiða um 10% af
heimsframleiðslu á lýsi. Vegna veð-
urfyrirbærisins E1 Nino hefur fram-
leiðsla á lýsi dregist mikið saman í
löndum eins og Perú og Chile. í kjöl-
farið hefur framboð minnkað og
verð fariö hækkandi. íslenskir
framleiðendur hafa ekki farið var-
hluta af þessu. í mars á síðasta ári
var verðið á loðnulýsi um 475 doll-
arar tonnið. Verðið hefur farið stig-
hækkandi og nú er svo komið að
tonnið hefur verið selt á um 800
dollara.
-JP
Queen Elizabeth II í Reykjavík:
Minnir um margt á Titanic
- en er sterkbyggt og glamúrinn minni
Queen Elizabeth II kom til Reykja-
víkur í gær. Þetta er fastur viðkomu-
staður skipsins á ferð þess um heims-
höfin. Englendingurinn R. W.
Warwick er skipstjóri þessarar
drottningar hafsins sem fór í jómfrú-
arferðina 2. maí 1969. Hann er mið-
aldra og hefur yfir sér virðulegt yfir-
bragð. Svartur einkennisbúningurinn
er stífpressaður og grátt skeggið vel
snyrt. Hann hefur starfað á skipinu
síðan 1970 en verið skipstjóri síðan
1990. Hann er frá Sommerset og þar
ver hann fríunum. Hann er kvæntur
og tveggja barna faðir. Konan hans er
með í þessari ferð. Hún er ennþá í
landi.
„Skipið, sem nær 31 hnúts hraða, er
hannað til að þola erfiðar aðstæður og
storma á Atlantshafi. Það er mjög
sterkbyggt og traust," sagði hann þeg-
ar DV skoðaði skip hans í gær.
Queen Elizabeth II minnir á Titan-
ic; frægasta skemmtiferðaskip allra
tíma; þótt ekki sé sama glamúrnum
fyrir að fara. Konur í síðkjólum og
karlar í smóking spranga ekki um
gangana. Queen Elizabeth II á hins
vegar að þola þær aðstæður sem réðu
örlögum Titanic. Þess má geta að skip
frá sama skipafélagi og á Queen Eliza-
beth II, Cunard, kom til bjargar þegar
Titanic fórst. Warwick hefur séð kvik-
myndina Titanic. „Við sýnum hana
reglulega hér um borð.“
Skipstjórinn segir að fólk á öllum
aldri og frá öllum heimshomum ferð-
ist með Queen Elizabeth II. Stundum
er áhöfnin sjálf frá 30-40 þjóðlöndum.
íslensk kona er matreiðslumaður um
borð. Queen Elizabeth II er siglandi
hótel. Þar er hægt að leigja dýr her-
bergi og þar er líka hægt að leigja
ódýr herbergi. Stærstu vistarverumar
eru álíka stórar og brúin en þær
minnstu eru einungis nokkrir fer-
metrar. -S.J
Það er konungleg tign yfir Queen Elizabeth II. R. W. Warwisk hefur verið skipstjóri
skemmtiferðaskipsins síðan 1990. DV-mynd Hilmar Þór
Einn stærsti lántökusamningur sem gerður hefur verið:
Lánsfé 1,8 milljarðar
Frá undirskrift samningsins.
Einn stærsti lántökusamningur
sem gerður hefur verið á íslandi var
undirritaður í gær. Það var Eignar-
haldsfélag Kringlunnar hf. og lána-
stofnanimar Landsbanki íslands hf.,
FBA hf. og Union Bank of Norway
sem undirrituðu samninginn í
Kringlunni í gærdag. Lánið, sem er
1,8 milljarðar, verður greitt á 25
árum en féð verður notað til að mæta
kostnaði við stækkun Kringlunnar.
Skiptist fjármögnunin þannig að
FBA hf. lánar 1.030 milljónir, Lands-
banki Islands hf. 610 milljónir og
Union Bank of Norway 160 milijónir.
Með stækkuninni verða suður- og
norðurhús Kringlunnar tengd saman
í eina byggingu og verður heildar-
stærð Kringlunnar að verki loknu
50.000 fermetrar. Nýbyggingin sjálf
verður 9.200 fermetrar og útleigt
rými um 7.000 fermetrar. Gert er ráð
fyrir bæði verslunarhúsnæði og veit-
ingarekstri í nýbyggingunni. Stækk-
unin verður í tveimur áfongum; sá
fyrri verður tekinn í notkun í byijun
nóvember 1998 og sá síðari í lok sept-
ember 1999. Auk þess verður byggt
hús við Borgarleikhúsið en það mun
einnig hýsa útibú Borgarbókasafns-
ins og síðar meir nýjan sal Borgar-
leikhússins.
-HB
FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998
Stuttar fréttir
Nafna sínum til sóma
Björgunarbáturinn Hannes Haf-
stein frá Sandgerði kom báti til
hjálpar i fyrra-
kvöldi á leið-
inni til Sand-
gerðis eftir að
hafa tekið þátt í
minningarat-
höfn um Hann-
es Þ. Hafstein,
fv. forstjóra
Slysavarnafélagsins, á ytri höfninni
í Reykjavík. Á leið sinni til heima-
hafnar, eftir athöfnina, kom björg-
unarbáturinn að vélarvana báti og
dró hann til hafnar.
Starfsmönnum hótað?
Starfsmenn Landmælinga ís-
lands hafa fengið frest til dagsins í
dag til að svara hvort þeir vilji
starfa á Akranesi. Þeir telja þetta
dulda hótun um að þeir séu án
starfs svari þeir ekki.
Engin ófrjósemi
Rannsókn bandarískra vísinda-
manna á íslenskum flogaveikisjúk-
lingum leiðir í ljós að flogaveiki
veldur ekki ófrjósemi. Þetta gengur
þvert á fyrri rannsóknir sem hafa
sýnt allt að helmingi minni frjó-
semi hjá flogaveikisjúklingum.
Lögreglustarfshópur
Ríkislögreglustjóri hefur skip-
að sex manna starfshóp sem ætlað
er að gera tillögur um stefnu-
mörkun lögreglunnar til næstu
flmm ára. Hópinn leiöir Þórir
Oddssson vararíkislögreglustjóri
en auk hans eiga þar sæti Georg
Kr. Lárusson lögreglustjóri og
Qórir sýslumenn á landsbyggð-
inni.
Allir ófullir
Lögreglan á Selfossi stöðvaði sér-
hvem ökumann á Suðurlandsvegi í
fyrrakvöld og tók m.a. öndunarsýni
með nýjum tækjabúnaði lögregl-
unnar.
Losun í sjó bönnuð
Tímamótasamningar um um-
hverfis-vernd á höfunum náðust á
ráðstefnu um-
hverfisráðherra
15 Evrópurikja í
Portúgal sem
lauk í gær. Þar
vár ákveðið að
banna nær alla
losun geisla-
virkra efna í
sjóinn á næstu tuttugu árum. RÚV
sagði frá.
Gegn kvótakerfinu
Samkvæmt nýrri könnun Þjóðar-
púls Gallup fyrir RÚV er mikifl
meirihluti þjóðarinnar, eða 72%,
óánægður með kvótakerfið. Tæp-
lega 12% eru ánægðir með það sam-
kvæmt könnuninni. 17% eru hlut-
laus.
Pizza 67-menn kærðir
Fjórir menn sem allir tengjast
rekstri Pizza 67 hafa verið kærðir
af efnahags
brotadeild Rík-
islögreglustjóra
fyrir meint
brot á lögum
um virðisauka-
skatt og stað-
greiðslu skatta.
Málið verður
þingfest í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í dag.
Barnaklám rannsakað
Ríkislögreglustjóri hyggst rann-
saka tengsl íslendinga við stóran al-
þjóðlegan barnaklámshring sem ný-
lega var afhjúpaður í Hollandi. Það
voru belgísk samtök sem komu upp
um hringinn og hafa forsvarsmenn
þeirra sagt að það væri bamaskap-
ur að halda að íslendingar væru
ekki viðriðnir hringinn, einir Norð-
urlandabúa.
Afbrigðilegheit
Nokkuð hefur verið um að eldri
karlmenn haFi berað blygðir sína
fyrir börnum og unglingum,
einkum í Elliðaárdal, Árbæ,
Grafarvogi og Fossvogi. Fólki er
ráðlagt að tilkynna til
lögreglunnar ef því Finnst einhver
sýna afbrigðilega hegðun af þessu
tagi.
-SÁ