Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 Messur Árbæjarkirkja: Guðsþjónusta í safnaðarheimili Árbæjarkirkju kl. 11. Prestamir. Áskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Ámi Bergur Sigurbjömsson. Breiðholtskirkja: Messur falla niður vegna sumarleyfa starfs- fólks og uppsetningar orgels til ágústloka. Bent er á guðsþjónust- ur í öðmm kirkjum i prófastdæm- inu. Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Pálmi Matthíasson. Digraneskirkja: Messur falla nið- ur frá 1. júlí til 9. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks. Dómkirkjan: Messa kl. 11. Altar- isganga. Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Elliheimilið Grund:Guðsþjón- usta kl. 10.15. Prestur sr. Gylfi Jónsson. Fella- og Hólakirkja: Guðsþjón- usta-helgistund kl. 20.30. Umsjón hefur Ragnar Schram, umsjónar- maður æskulýðsstarfs. Prestarnir. Grafarvogskirkja: Guðsþjónusta að Brekku i Nónholti - útivistar- svæði í Grafarvogi - austan við sjúkrastöðina að Vogi, kl. 11. Sr. Vigfús Þór Ámason prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafar- vogskirkju syngur. Hörður Braga- son leikur á harmoniku. Birgir Bragason leikur á kontrabassa. Hafið með ykkur eitthvað á grillið og drykkjarfóng. Guðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Eir kl. 16. Grensáskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn S. Hákonar- son. Hallgrímskirkja: Messa og bamasamkoma kl. 11. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Sr. Sigurður Pálsson. Org- eltónleikar ki. 20.30. Egbert Lewart trompetleikari og Wolf- gang Portugall, organisti frá Þýskalandi, leika. Háteigskirkja: Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Hjallakirkja: Vegna fram- kvæmda í Hjallakirkju og sumar- leyfa er fólki bent á helgihald í öðmm kirkjiun prófastdæmisins. Keflavíkurkirkja: Messa (altaris- ganga) kl. 11. Bam verður borið til skímar. Prestur: Ólafur Oddur Jónsson. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng. Nýr sálmur verður sunginn. Kópavogskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr kór Kópavogs- kirkju syngja. Ægir Fr. Sigur- geirsson. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Bragi Skúlason. Langholtskirkja: Kirkja Guð- brands biskups. Kvöldbænir kl. 20.30. Athugið timann. Umsjón Svala Sigríður Thomsen djákni. Sóknarprestur verður í sumarleyfi til 18. ágúst og á meðan verða kvöldbænir kl. 20.30 á sunnudags- kvöldum. Sr. Pálmi Matthíasson I Bústaðakirkju þjónar Langholts- prestakalli í sumarleyfi sóknar- prests. Laugarneskirkja: Vegna sumar- leyfa starfsfólks Laugameskirkju er bent á guðsþjónustu í Áskirkju. Neskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Gylfl Jónsson. Óháði söfnuðurinn: Næsta guðs- þjónusta að loknu sumarleyfi verður sunnudagskvöldið 9. ágúst kl. 20.30. Seljakirkja: Guðsþjónusta í Skóg- arbæ kl. 16. Sr. Ágúst Einarsson prédikar. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Altarisganga. Sr. Ágúst Einars- son prédikar. Strengjakvartettinn Anima flytur tónlist. Sóknarprest- ur. Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11. Prestur sr. Solveig Lára Guð- mundsdóttir. Viðeyjarkirkja: Rómversk-kaþ- ólsk biskupsmessa kl. 14. Herra Jóhannes Gijsen Reykjavíktu-bisk- up syngur messu helgaða heUög- um Ólafi konungi, dýrðlingi Norð- manna. Honum tU aðstoöar verð- ur herra Norbert Werbs, vígslu- biskup i Hamborg. Organisti og söngfólk Dómkirkju Krists kon- ungs í Landakoti sjá um tónlistar- flutning. Bátsferð úr Sundahöfn kl. 13.30. Ytri-Njarðvíkurkirkja: Guðs- þjónusta kl. 11. Kirkjukór Njarð- víkur syngur undir sjórn Steinars Guðmundssonar. Baldur Rafn Sig- urðsson. Afmæli Kristján G. Eggertsson Kristján Gunnar Eggertsson, húsasmíðameistari, Vesturbrún 16 i Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Kristján fæddist á Framnesvegi 15 í Reykjavík og átti þar heima tU fimm ára aldurs. Þá tóku foreldrar hans sig upp og Quttu tU BUdudals ar þar sem Eggert faðir hans hóf skútuútgerð. Eggert missti skip sitt í aftakaveðri ári seinna og Ruttu þau á aftur tU Reykjavíkur og sett- ust að á Lindargötu 58 og bjuggu þar lengst af. Kristján lauk Iðnskólaprófi í hús- gagnasmíði 1948. Ári síðar flutti Kristján tU Sauðárkróks og setti á stofn Litlu trésmiðjuna ásamt tveimur öðrum og starfaði þar til 1956 er fjölskyldan tók sig upp og flutti tU Reykjavíkur. Þau settust að á Tómasarhaga 37 og bjuggu þar til 1960. Á þessum árum var mjög erfitt að fá lóðir tU nýbygginga og varö úr að fjölskyldan tók sig upp og flutti tU Bolungarvíkur þar sem Kristján starfaði við rekstrn- tré- smíðaverkstæðis og við verkstjórn. Einnig tók hann sér fyrir hendur út- gerð á rækjubát á árunum 1966-70 og 1985-91. Árið 1993 setti hann af stað fuUvinnslu á vikri og var stjómarformaður Vikurs hf. frá upphafi. Því miður reyndist ekki unnt að halda þeim rekstri áfram en Kristján starfar nú sjálfstætt við smíðar. Fjölskylda Kristján hóf búskap með Jóhönnu Guðrúnu Pétursdóttur, f. 22.8 1929, frá Árskógssandi. Húner dóttir Péturs Jónssonar og Elísabetar Sölvadótt- ur. Þau skUdu. Böm Kristjáns og Jóhönnu em Ástdís, f. 16.11. 1950, framleiðslu- stjóri og á hún fimm böm og sex bamaböm; Eggert Bjami, f. 31.10. 1951, d. 14.7.1973; ísfold Helga, f. 1.3. 1953, bóndakona, gift Guðjóni Jós- epssyni bónda og eiga þau fimm böm; Pétur Kristján, f. 19.4. 1954, vélfræðingur, kvæntur Dagnýju Þorláksdóttur og eiga þau saman tvö böm en fyrir átti Dagný tvö böm og Pétur eitt; Magnús Viðar, f. 14.1. 1957, stýrimaður, kvæntur Snjólaugu Jónsdóttur og eiga þau fjórar dætur; Jóhann f. 7.1. 1958, út- gerðarmaöur, kvæntur Ólöfu Bene- diktsdóttur og eiga þau tvo syni; Eva HUdur, f. 22.10. 1959, klæðskeri og kjólameistari, gift Ás- geiri Þorlákssyni en Eva á einn son frá fyrri sam- búð og eitt bamabarn; Margrét Anna f. 4.3.1961, stöðvarstjóri, gift Helga H. Sigurðssyni og eiga þau fjögur böm en Mar- grét á einn son frá fyrri sambúð. Stjúpdóttir Krisfjáns og dóttir Jóhönnu er Elísa- bet María Haraldsdóttir, f. 9.2.1949, en hún á fhnm böm og fjögur bamaböm. Systkini Kristjáns: Margrét, f. 17.7. 1924, d. 17.6. 1997; Rannveig, f. 21.6. 1927; Björg Ólína Júlíana, f. 26.6. 1931; Helgi, f. 14.7. 1932, d. 18.1. 1985; Marta Kristín, f. 30.5. 1934, d. 28.11. 1991; Haraldur, 30.10. 1936; Ásta María, f. 2.9.1939. Foreldrar Kristjáns vom Eggert Kristjánsson, f. 26.5. 1892, d. 29.9. 1962, og ísfold Helgadóttir, f. 30.6. 1898, d. 6.8. 1971. Kristján verður að heiman á af- mælisdaginn og tekur á móti gest- um í Strandhöfn á Vopnafirði á heimUi dóttur sinnar. Kristján Gunnar Eggertsson. Þorleifur Þór Jónsson Þorleifur Þór Jónsson framkvæmdastjóri Hóp- ferðamiðstöðvarinnar ehf., Skaftahlið 32, Reykjavík, er fertugur í dag. Starfsferill Þorleifur fæddist i Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófi frá MH 1978, við- skiptafræðiprófi frá HÍ 1984 og M.Sc.-prófi í skipulagningu og þróun ferðamála frá University of Surrey í GuUdford í Englandi 1985. Þá hefur Þorleifúr meira ökupróf sem hópferðabUstjóri og er löggUtiu- leiðsögumaður. Þorleifur var rekstrarráðgjafi hjá Iðntæknistofnun íslands 1985-87, starfsmaður atvinnumálanefndar Akureyrarbæjar 1987-89, ferðamála- fuUtrúi Iðnþróunarfélags Eyjafjarð- ar og Akureyrarbæjar 1989-91, lekt- or í markaðsfræði við HA 1991-92 og var síðan stundakennari þar og prófdómari, stundaði sjálfstæða rekstrarráð- gjöf 1992, og er fram- kvæmdastjóri Hópferða- miðstöðvarinnar ehf. frá ársbyrjun 1993. Þorleifur var fuUtrúi í Ferðamálaráði 1989-92 og er varamaður þar frá 1993, sat í stjóm Ferða- málasjóðs 1989-93 og hef- ur gegnt ýmsum nefndar- störfum á vegum ferða- þjónustunnar. Fjölskylda Þorleifúr kvæntist 6.6. 1992 Þór- dísi Hrönn Pálsdóttur, f. 11.10. 1966, hótelfræðingi og móttökustjóra. Hún er dóttir Páls Amórs Pálsson- ar, f. 5.6. 1948, hrl. í Reykjavík, og k.h., Ragnheiðar Valdimarsdóttur, f. 18.6.1949, starfsmanns hjá ríkissjón- varpinu. Böm Þorleifs og Þórdísar Hrann- ar era Bryndís, f. 4.11. 1994; Amór, f. 23.11. 1996 Systkini Þorleifs eru Stefanía Gyða, f. 9.2.1963, húsmóðir í Reykja- vUí; Jóhann Þór, f. 14.10. 1969, við- skiptafræðingur og markaðsstjóri hjá Eimskipafélagi íslands, búesttur í Kópavogi; Bergrún Svava, f. 14.10. 1969, hjúkranarfræðingiu-, búsett í Kópavogi. Foreldrar Þorleifs era Jón Þór Jó- hannson, f. 11.8. 1930 fyrrv. fram- kvæmdastjóri í Reykjavík, og k.h. Bryndís Dóra Þorleifsdóttir, f. 20.11. 1935, húsmóðir. Ætt Jón Þór er sonur Jóhanns Helga- sonar, b. og verkamanns á Bakka- gerði í Borgarfirði eystra, og k.h., Bergrúnar Ámadóttur húsfreyju. Bryndís Dóra er dóttir Þorleifs Valdimars Sigurbrandssonar, verk- stjóra í Reykjavík, og k.h., HöUu Einarsdóttur húsfreyju. Afmælisbamið tekur á móti gest- um á Brandsbölum, Borgafirði eystri, mUli 17.00 og 19.00 á afmælis- daginn. Þorleifur Þór Jónsson. Fréttir Svavar Gestsson: Gagn- legur fundur „Ég held að þetta hafi verið gagnlegur fundur. Félagar höfðu þörf fyrir að koma sínum sjón- armiðum á framfæri og ég held að þau hafi öU komist til skUa á fundinum," sagði Svavar Gests- son um fund Alþýðubandalags- félags Reykjavikur fyrr í vikunni. „Þama komu fram bæði sjónarmið Steingríms J. og Jóhanns Geirdal. Þó hygg ég að þeir hafi verið fjölmennastir sem vilji bíða og sjá hvað setur í málefnasamstarfi flokkanna á næstu vikum. Sjálfur lagði ég áherslu á að endanlegt sam- komulag um málefni væri tilbú- ið fyrir septemberlok." Skemmdarverk voru unnin á 14 bifreiöum viö Bugðulæk og Rauöalæk í Reykjavík um síðustu helgi. Bílarnir voru rispaðir með eggjárni og er Ijóst aö tjóniö er töluvert. Lögregla rannsakar málið. DV-mynd S Hl hamingju með afmælið 24. júlí 80 ára Björg Kofoed-Hansen Dyngjuvegi 2, Reykjavík. Þórhallur Ámason, Hrísalundi 16g, Akureyri. 75 ára Björg Runólfsdóttir, Hlíðarhúsum, Egilsstöðum. Emilía Sigurðardóttir, Njálsgötu 82, Reykjavík. Guðbjörg M. Guðlaugsdóttir, Háalundi 4, Akureyri. Guðnin K. Karlsdóttir, Unufelli 48, Reykjavík. Hugi Jóhannesson, Rauðarárstíg 3, Reykjavík. Jón Sigurðsson, Básenda 3, Reykjavík. Sigurður Árnason, Gyðufelli 14, Reykjavík. 70 ára Elín Björnsdóttir, Ásvallagötu lOa, Reykjavík. Valgerðin* Auður Elíasdóttir, Egilsgötu 12, Reykjavík. 60 ára Guðrún Valgerður Ámadóttir, Langholtsvegi 174, Reykjavík. María Kristinsdóttir, Löngubrekku 7, Kópavogi. Sigurður Giumarsson, Vesturvangi 24, Hafnarfirði. 50 ára Brimhildur Jónsdóttir, Hringbraut 65, Keflavík. Eyrún Jónsdóttir, Austurvegi 20, Grindavík. Guðni Sigþórsson, Ægissiðu 17, Grenivík. f Jón Halldórsson, Kambhóli, Þorkelshólshreppi. Sigrún Jömndsdóttir, Hörgslundi 10, Garðabæ. 40 ára Albína Jóhannesdóttir, Reykjavíkurvegi 40, Hafnarfirði. Hallgrímur Jón Sigurðsson, Stekkjarholti 3, Húsavík. Jóhann Albertsson, Gauksmýri, Kirkjuhvammshreppi. Jóhann Halldór Albertsson, Holtaseli 41, Reykjavík. Margrét Ingibjörg Svavarsdóttir, Staðarbakka 4, Reykjavík. Ragnar Þórisson, Boðagranda 7, Reykjavík. Sigrún Alma Hjörleifsdóttir, Vesturási 20, Reykjavík. Valur Smári Stefánsson, Borgargerði 14, Stöðvarfirði. IJrval - 960 síður á ári - fróðleikur og skemmtun sem lifir mánuðum og árum saman

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.