Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 Fréttir Drengir í miklum meirihluta þeirra sem slasast: Hroðalegar tölur - segir Herdís Storgaard um slysatíðni barna árin 1990 til 1996 Banaslys á drengjum og stúlkum ■ samanburöur milli drengja og stúlkna á aldrinum 0-18 ára - 10-14 15-18 í skýrslu heilbrigðisráðherra um tiðni og eðli bamaslysa á ís- landi tímabilið 1990-1996 kemur fram að á íslandi eru drengir í meirihluta þeirra sem slasast og láta lífið í slysum. Til að gefa nokkur dæmi má nefna að á tímabilinu voru 213 börn á aldr- inum 0-18 ára (130 drengir (61%) og 83 stúlkur (39%)) lögð inn á Sjúkrahús Reykjavíkur eftir að hafa slasast í skólum og/eða dag- vistun. Um er að ræða 2% allra islenskra bama. Burtséð frá sjúkrahússinnlögnum slasaðist á tímabilinu 5.771 drengur í skól- um og/eða dagvistum en 4.368 stúlkur. Ef einungis eru teknir áverkar eftir íþróttaslys voru drengimir 5.545 en stúlkurnar 3.258. Á tímabilinu voru hins vegar 137 drengir lagðir inn vegna íþróttaslysa en 56 stúlkur. Árin 1990-1995 létu 58 böm á aldrin- um 0-18 ára lífið í slysum, að frátöld- um slysum af völdum náttúruhamfara og sjálfsvígum. Drengir vom 41 en stúlkur vom 17. 3.374 drengir lentu í umferðarslys- um en 2.645 stúlkur. í samanburði við hinar Norður- landaþjóðirnar á tíðni banaslysa á hverja 100.000 íbúa má nefna að árið 1990 létust 24,6 0-14 ára drengir á ís- landi en árið 1995 voru þeir 8,9. Árið 1990 létust 3,2 0-14 ára stúlkur á ís- landi en árið 1995 vom þær 9,4. í sam- anburði má nefna að árið 1990 létust 5,7 0-14 ára sænskir drengir en árið 1995 vom þeir 4,9. I Svíþjóð létust 4,3 stúlkur árið 1990 en árið 1995 vom þær 3,4. Það má líka nefna að hvað varðar slys í heimahúsum á ámnum 1990-1996 vom drengir 12.422 en stúlk- ur 9.731. Skipting á milli kynjanna er líka afgerandi þegar kemur að bruna- slysum. í rannsókn, sem gerð var árið 1996 og spannar 14 ára tímabil, 1982-1995, kemur í ljós að af þeim, sem brenndust, vom drengir 62% en stúlkur 38%. Ólfk hegöun kynjanna Herdís Storgaard, upplýsingafuli- trúi Slysavarnafélags íslands, segir að karlmennskuteorían skipti máli hvað varðar mun á slysatíðni og dauðaslys á drengjum og stúlkum. Hún segir að mikill munur á slysatíðni þeirra, sem em farþegar í bílum, geti stafað af til- viljun eða að foreldrar láti undan þrýstingi drengjanna vegna þess að þeir em fyrirferðarmeiri en stúlkur. „Ég gerði ásamt fleirum könnun á bíl- beltanotkun þrjú ár í röð. Röng bíl- beltanotkun á meðal yngstu bamanna var áberandi. Það er eins og foreldr- amir láti bömin um að bjarga sér þeg- ar þau hafa aldur til að fara sjálf í belti eða búnað, s.s. sessur eða stól. Svo er alltaf eitthvað um að böm losi sig úr beltunum og þar eru drengir í meiri- hluta. Kannski gefast sumir foreldrar einfaldlega upp á þrýstingi sonanna." Eins og áður hefur komið fram vom drengir 62% þeirra sem brenndu sig á árunum 1982-1995. „Það má tengia það fyrirferðinni í þeim; þeir vilja fikta i krönunum." Herdís segir að hitaveitu- vatnið sé helsta ástæðan fyrir þvi að börn brenna sig á Is- landi. „Það er hlut- ur sem hefur verið vont að eiga við vegna tæknihliðar- innar.“ Hún segir að einfaldlega megi sjá mun á kynjunum að leik á skólalóð- inni. „Strákamir em á mikilli hreyfingu og jafnvel í hrottafengnum leikjum á meðan stelpurnar em að tala meira saman eða sippa." Aga- og eftirlitsleysi Það vekur athygli í skýrslunni að miðað við höfðatölu slasast og deyja flestir drengir á íslandi mið- að við Norðurlöndin. „Það er mikið aga- og eftirhts- leysi á íslandi. Islensk böm em sett út og þau fá að vera frjáls. Það þarf hins vegar að hafa eftirlit með börnunum þegar þau eru óvitar og þegar þau vaxa úr grasi þarf að kenna þeim hvað er hættu- legt.“ Herdís finnst tími til kominn að yfirvöld fari að aðhafast eitthvað í málinu. „I skýrslunni eru hroðalegar tölur. Og ég tel að með því að fara út í skipulagðar aðgerðir sé vel hægt að fækka slysum mikið. Slys em til að fyrirbyggja og það er hægt að fyrir- byggja þau.“ -SJ Samanburður á Norðurlöndum - tíöni slysa á hverja 100.000 íbúa - Danmörk Finnland ísland Noregur Svíþjóö Krakkarnir sem í sumar hafa veriö á leikjanámskeiöum íþrótta- og tómstundaráös komu saman í vikunni og geröu sér glaðan dag. Þaö var íþrótta- og tómstundaráö sem bauö til árlegs sumarkarnivals þar sem ýmislegt var gert til skemmtunar. Hér eru þrír hressir guttar sem í tilefni dagsins hafa fengiö andlitsmálningu. DV-mynd Hilmar Þór DiJlliJ'Jh SÖMMER BÖZZ '98 Where to Drink, Party, Chlll, Picnic and-Of Course-Have Sex „íslenska“ Playboy-blaðið rýkur út: Yfir fimm þús- und eintök seld Áhuga íslendinga fyrir nöktum íslenskum konum ætlar seint að verða svalað þar sem nú hafa selst um 5000 eintök af Playboy og fleiri eintök eru þegar á leið- inni. „Fyrir tæpum hálfum mánuði fengum við 3000 eintök og þau seldust upp á nokkrum klukkustundum. Við leituðum eftir fleiri eintökum hjá Playboy og þeir sendu okkur 2500 eintök um hæl,“ sagði Guðmundur H. Sigmundsson, framkvæmdarstjóri Blaðadreifingar sem hefur umboð fyrir Playboy. „Þegar við hringdum í búðir í gær voru langir biðlistar eftir blaðinu og ef það selst upp þá er búið að selja eitt blað á hverja 48 íslendinga. Ef Playboy ætl- aði að gera hið sama í Bandaríkjunum þá þyrfti að selja um fimm og hálfa milljón eintaka þar í landi." Að sögn Guðmundar hefur þegar verið óskað eftir um eitt til tvö þúsund eintökum frá Playboy í Banda- ríkjunum. Aðspurður hverju þessi mikli áhugi íslend- inga á Playboy með íslenskum stúlkum sætti sagðist Guðmundur ekki kunna skýringar í á því. Svipað hefði þó verið uppi á teningnum í Finnlandi þegar Playboy birti myndir af frægum fiðluleikara þar í landi. Guðmundur sagði þennan mikla áhuga Norður- landabúa á Playboy hafa komið útgefendunum mjög á óvart og nú væri tO umræðu að gefa út sérstakt hefti tOeinkað Norðurlöndum. -kjart Stuttar fréttir i>v Umhverfisvernd í höfum Umhverflsráðherrar 15 Evrópu- ríkja sitja nú í Portúgal ráðstefnu um umhverfis- vernd í höfun- um. Ráðherr- ar Norður- landanna hafa sameinast um að banna aUa losun geisla- virkra efha í haflð. Guðmundur Bjamason um- hverfisráðherra sagöi við RÚV að Bretar og Frakkar gerðu sér grein fyrir alvöru málsins. Reykblys olli bruna Reykblys sem varpaö var úr þyrlu vamarliðsins kveikti í sinu og mosa á HöskuldarvöUum á Reykjanesi í fyrradag. Stöð 2 seg- ir að vamarliðsmennimir hafi lent þyrlunni og reynt að slökkva eldinn. 6-7 hektarar lands bmnnu og slökkvistarf tók 8 klst. Hjúkrunarprófessor Dr. Sigríður HaUdórsdóttir hef- ur verð skipuð prófessor í hjúkr- unarfræði við Háskólann á Akur- eyri. Hún er fyrsti prófessorinn í hjúknmarfræði sem skipaður er hér á landi og jafhframt fyrsta konan sem er skipuð prófessor við Háskólann á Akureyri. Flutningsjöfnun Forstjóri Skeljungs, Kristinn Björnsson, sagði í fréttum RÚV að greiðslur úr flutningsjöfh- imarsjóði og lög um flutnings- jöfhun á olíu feli í sér óleyfi- legar hömlur á samkeppni. Esso fái úr sjóðnum vegna mikilla umsvifa á landsbyggðinni, öfugt við Skelj- ung sem þarf að greiða í sjóðinn. Eldur í potti Töluverðar sót- og reyk- skemmdir urðu á íbúð í Hraunbæ þegar eldur kviknaði í djúpsteik- ingarpotti þar. Einn maður var í íbúðinni og forðaöi hann sér út á svalir og varð ekki meint af. Umferð á Gígjubrú Umferð hefur verið hleypt á nýja brú yfir Gígjukvísl. Gamla brúin hvarf f Skeiöarárhlaupinu í nóvémber 1996. Framkvæmdir við nýju brúna kostuðu rúmlega hálfan milljarð króna. Mislæg gatnamót Skipulagsstofnun hefur hafið frumathugun á umhverfisáhrif- um mislægra gatnamóta á mótum Miklubrautar og og Skeiöarvogs. Framkvæmdir við gatnamótin eiga að hefjast síðla sumars 1998 og vera lokið vorið 2000. Fáninn verður tekinn Friðjón Guðröðarson, sýslu- maður RangárvaUasýslu, segir að enn séu nokkr- ir dagar í það að fáninn, sem flaggað er í hálfa stöng við Hágöngulón, fari í kaf í vatn en að til standi aö taka hann niður á næstu dögum. Sigurður hættir Félagsmálaráðherra mun ganga frá starfslokum við Sigurð E. Guðmundssonar framkvæmda- stjóra Húsnæðisstofnunar, sem tadca gildi um næstu áramót. Þá lýkur stofnunin starfsemi sinni. Sýknun Héraðsdómur Vestfjarða sýkn- aði í morgun ökumann af kröfu ákæruvaldsins um að hann yrði sviptur ökuleyfi timabundið fyrir að aka á 67 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 35 km. á klukkustund.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.