Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998
Neytendur______________________________
Skemmtanaskattur á bíómiða aflagður:
Skilar sér ekki
Bætt
ónæmi
Fylgið eftirfarandi leiðbeining-
um til að auka viðnám gegn al-
gengum sýkingum.
Samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar hefur kvikmyndahúsagestum fjölgaö mikið á milli ára. Ljóst er því aö lands-
menn láta sig hafa þaö aö standa í langri biöröð ef um góöa mynd er aö ræöa.
Skemmtanaskattur og svokallað
menningarsjóðsgjald á bíómiða var
aflagt um síðustu mánaðamót. Áður
var kvikmyndahúsum skylt að
greiða 15% af verði miða í skemmt-
anaskatt og 1,5% af miðaverði í
menningarsjóðsgjaldið. Eftir þessa
niðurfellingu hafa gjöld á bíómiðum
því lækkað um 16,5%.
Enn sem komið er hefur þessi
lækkun ekki skilað sér að fullu til
neytenda. Um síðustu mánaðamót
var algengt verð á bíómiðum á bil-
inu 600-650 krónur. Samkvæmt því
hefði verð á bíómiðum átt að lækka
um 99-107 krónur við niðurfellingu
skattsins.
Neytendasíða DV kannaði málið
og komst að raun um að ekkert bíó-
húsanna hefur lækkað veröið svo
mikið þótt einhverjar lækkanir hafl
orðið.
Fjögur hús lækka
Regnboginn er eitt þeirra
fjögurra kvikmyndahúsa í borginni
sem lækkað hafa almennt miðaverð
hjá sér. Veröið var nýlega lækkað
úr 650 krónum í 600. Að sögn Birgis
Sigfússonar hjá kvikmyndadeild
Skifunnar stóð það alltaf til hjá
Regnboganum að lækka miðaverðið
er skemmtanaskatturinn yrði felld-
ur niður. Háskólabíó lækkaði miða-
verð hjá sér úr 650 í 600 krónur
nokkru á undan Regnboganum en
Birgir segir að það hafi ekki ráðið
úrslitum. Aðspurður um hvort þessi
lækkun komi til með að auka að-
sókn að Regnboganum sagði Birgir:
Það er auðvitað ekki komin nein
reynsla á það en mér finnst þessi
lækkun bara jákvætt skref i rétta
átt.
í Regnboganum eru þrír verð-
flokkar á bíómiðum: fullorðinsmið-
ar á 600 krónur, bamamiðar á 300
krónur og miðar fyrir eldri borgara
á 450 krónur.
Það er skemmtilegt og gefandi að
rækta sinni eigin grasagarð. Flestar
jurtir era auðveldar í ræktun og
þarfnast lítillar umönnunar þegar
þær hafa skotið rótum. Kryddjurtir
þurfa yfirleitt þurran jarðveg, mik-
ið sólskin og gott skjól. Lækninga-
jurtir skal rækta á stað sem er að
hluta til í skugga því margar jurt-
anna eru upprunnar í skógum og
í Háskólabíói eru einnig þrír
verðflokkar: fullorðinsmiðar á 600
krónur, barnamiðar á 300 krónur og
miðar fyrir eldri borgara á 400 krón-
ur. Miðar á sýningar kl. 17 og 19
kosta síðan 400 krónur í Háskóla-
bíói.
Eftir fyrirspurnir DV í gærdag
ákváðu bæði Laugarásbíó og
Stjörnubió síðan að lækka miðana
hjá sér úr 650 krónum í 600 krónur
frá og með deginum í dag.
Skattaleiörétting
Að sögn Þorvalds Ámasonar,
framkvæmdastjóra bíódeildar Sam-
bíóanna, eru þessi mál í athugun
vaxa best í rakri mold.
Sum lækningagrös geta orðiö
mjög há. Ef rými er takmarkað er
rétt að láta tvær eða þrjár stórar
jurtir nægja. Gróðursetjið þær aft-
arlega í beði, hafið langt bil á milli
þeirra og gróðursetjið skuggaþolin,
skriðul grös í kringum þær.
þar á bæ. Nú þegar hafa þó ein-
hverjar myndir verið lækkaðar úr
650 krónum í 600. „Þrátt fyrir þessa
skemmtanaskattsaflagningu eru
skattar á bíómiða með því hæsta
sem gerist í Evrópu og því má segja
að hér sé í raun um skattaleiðrétt-
ingu að ræða. Ég tel að fimmtíu kall
til eða frá ráði því ekki hvert fólk
fer í bió. Það er myndin sjálf sem
ræður og þær eru misdýrar í inn-
kaupum," sagði Þorvaldur.
í Sambíóunum eru nú fjórir verð-
flokkar á bíómiðum. Fullorðinsmið-
ar kosta 650 eða 600 krónur, bama-
miðar kosta 300 krónur og miðar
fyrir eldri borgara kosta 450 krónur.
Uppskrift:
75 ml ólífuolía
klípa af smjöri
1 hvítlauksgeiri,
kraminn
175 g saxaðar valhnetur
100 g svartar olífur,
gróft skomar
4 msk. steinselja, gróft
skorin
salt og svartur pipar
450 g spagettí.
Fjölgun gesta skilar sér ekki
Samkvæmt tölum frá Hagstofu ís-
lands voru kvikmyndahúsagestir
1.481 þúsund talsins á síðasti ári og
hafði þeim fjölgað um 37 þúsund frá
árinu 1996. Þessar tölur jafngilda
því að hver landsmaður hafi farið
rúmlega fimm sinnum í bíó á síð-
asta ári. Þrátt fyrir þessa fjölgun og
niðurlagningu skemmtanaskattsins
hefur miðaverð í bíó í mesta lagi
lækkað um fimmtíu krónur. Ljóst er
því aö aukin aðsókn og niðurfelling
skemmtanaskattsins hefur ekki
skilað sér til neytenda nema að litlu
leyti.
-GLM
Aðferð:
Hitið olíuna og smjörið með hvít-
lauknum þar til smjörið er bráðnað
á pönnunni. Bætið valhnetunum við
og látið malla í tvær minútur. Bæt-
ið síðan við ólífunum, steinseljunni,
örlitlu salti og og talsverðu af svört-
um pipar. Hellið þessari blöndu yfir
soðið spagettíið og berið fram um-
svifalaust.
-GLM
Forðist allt ruslfæði og mikið
unnin matvæli, s.s. smjörlíki,
hvítt hveiti og sykur, Minnkið
kaffi- og tedrykkju, dragið úr
neyslu á salti, rauðu kjöti og
kjúklingum.
Takið ekki lyf, sérstaklega
sýklalyf og stera, nema nauðsyn
krefji. Sýnt hefur verið fram á að
ofnotkun sýklalyfja skemmir
ónæmiskerfið og margar lífverur
eru orðnar ónæmar fyrir þessum
lyfjum.
Reykiö ekki og drekkið í hófi.
Allar reykingar eru taldar veikja
ónæmiskerfið, svo og óhófleg
drykkja.
Hreyfið ykkur oft og reglulega,
helst í sólskini og dagsbirtu;
göngur, hjólreiðar, sund og önn-
ur létt hreyfing örva blóðstreymi
og auka framleiöslu á T-
eitilfrumum.
Borðið mikið af ferskum ávöxt-
um og grænmeti, (helst lífrænt
ræktuðu), heilhveitibrauði og
baunum. Drekkið grasa- og
ávaxtate og ferskan ávaxtasafa.
Forðist streitu eftir mætti, gæt-
ið þess að sofa vel og gefa ykkur
tíma til hvíldar og til þess að láta
fara vel um ykkur. Farið í nudd
eða einhverja aðra meðferð sem
ykkur þykir notaleg.
Hugsið alltaf jákvætt. Margt
bendir til þess, einkum hjá
krabbameins- og alnæmissjúk-
lingum, að jákvæð afstaða til til-
verunnar og heilsunnar geti
haldið einkennum í skefjum og
jafnvel í stöku tilfelli stuðlaö að
bata.
Takið bætiefhatöflur reglulega;
andoxunarefni á borð við A-
vítamín eða beta-karótín, C-
vítamín og
E-vítamín
og stein-
efnin
selen,
sink, jám,
kalk,
magnesí-
um og
mangan
hjálpa til
við að vernda líkamanna gegn
skaðlegum áhrifum sindurefna.
Notið grös sem styrkja ónæm-
iskerfið, s.s. sólhatt (veiru-, bakt-
eríu-, og sveppaeyðandi),
gingseng og hengiblóm.
Leifsstöð:
Veitingar
hækka
Veitingar í Leifsstöð hafa
hækkaö að meðaltali um 5-6%
eftir breytingar á veitingasölunni
þar nýverið. Að sögn Jóns Sig-
urössonar hjá veitingasölunni
hefur vöruúrval verið aukið mik-
ið og sumar vörur hækkað en
einnig hafa ódýrar vörar verið
teknar inn.
-GLM
-GLM
Smáauglýsingadeild DV er opin:
• virka daga kl, 9-22
• laugardaga kl. 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Tekið er á móti
smáauglýsingum
til kl. 22 til birtingar
ncesta dag
Ath.
Smáauglýsing í
Helgarblað DV
þarf þó að berast
okkurfyrir kl. 17
á föstudag
a\U milH' himjnx
"a.
Q-
Smáauglýsingar
E>3
550 5000
Ræktun lækningagrasa
Einfalt og fljótlegt eru einkunnarorö þessa girnilega spagettíréttar.
Spagettí með ólífum og hnetum