Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1998, Page 7
FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 7 Kári í jötunmóð Sagt er að Kári Stefánsson hjá íslenskri erfðagreiningu sé kröfuharður maður og vilji fólk með metnað. Til dæmis um það er sögð saga af hjúkrunarfræðingi sem átti að hafa sagt upp á einum spítalanna í ný- legri launadeilu. Hún ákvað að snúa ekki til fyrri starfa og leitaði til Kára. í atvinnuviðtal- inu spurði hann hvaða hugmynd- ir hún hefði um launakjör. Hún ákvað að vera hógvær og svaraði því til að hún hefði hugsað sér 100 þúsund krónur á mánuði. Kári á að hafa þagað lengi og sagt síðan aö hann ætti erfitt með að greina svo lág laun og spurt hvort hún vUdi ekki fara heim og hugsa málið og koma svo aftur... Afbrotanefnd R-listans Á fundi borgarstjórnar fyrir nokkru sté Guðlaugur Þór Þórð- arson, borgarfuUtrúi sjálfstæðis- manna, í pontu og vakti athygli á því að Helgi Hjörv- ar, borgarfuUtrúi R- listans, hefði sagt það í fjölmiðlum fyrir skömmu að hann yrði formað- ur í einni nefnd til viðbótar þeim sem hann gegndi nú þegar. VUdu sjálfstæðismenn gjaman vita hvaða nefnd þetta væri sem tæki tU starfa. Borgar- stjórinn, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, var ekki lengi að verja flokksbróður sinn og tilkynnti um stofnun sérstakrar afbrota- og vímuvamamefndar og að Helgi yrði þar formaður. Sjálfstæðis- menn á fúndinum vom því fegnir að enn væm tU menn eins og Helgi Hjörvar sem hefðu nú aug- un opin fyrir hvers kyns afbrotum sem framin væru í borginni... Suðurlandsskjálfti Á Suðurlandi hafa Alþýðu- bandalag og Alþýðuflokkur núna tvo þingmenn, þau Margréti Frí- mannsdóttur og Lúðvík Berg- vinsson í kjördæm- inu. Lúðvík er sagður ótryggur orðinn og liklegt talið að bæði séra Axel Ámason og Guðmundur Þ. B. Ólafsson í Eyjum gætu hugsaö sér að setjast í sæti hans. Sömuleiðis hafa heyrst hugmynd- ir á Suður-landi um að Ágúst Einarsson, þingmaður í Reykja- neskjördæmi, færi sig yfír á Suð- urland. En hann er Vestmanna- eyingur í húð og hár og á þar mjög öflugar ættir. Ágúst er auk þess talinn eiga mun betri mögu- leika á Suðurlandi en á Reykja- nesi þar sem staða Rannveigar Guðmundsdóttur og Guðmimd- ar Árna Stefánssonar er mjög sterk... Þrumukjafturinn Hannibal Þegar Hjörleifur Guttormsson yfirgaf Alþýðu- bandalagið á dögun- um rifjuðu félagar hans upp vísu sem Helgi Seljan orti er Hannibal Valdimarsson yf- irgaf Alþýðu- banda-lagið fyrir fullt og allt á sín- um tíma: Þú ert farinn þrumukjaftur, þín ég sakna mikið skal. En komdu bara ekki aftur, elskulegi Hannibal. Umsjón Hjálmar Blöndal Netfang: sandkorn @ff. is Fréttir Kolmunnastofninn mælist rúm milljón tonna: Vantar öflugri skip DV, Akureyri: „Þessar fréttir eru mjög athyglis- verðar. Þær eru í raun og veru stór- fréttir sem kalla á þær aðgerðir að við undirbúum okkur fyrir það að geta nýtt þennan stofn. Ef það er mat fiskifræðinga að hér sé um álit- legan kost að ræða er það fyrirsjá- anlegt að einhverjir aðilar munu fara út 1 skipakaup til þess að geta stundað þessar veiðar," segir Sverr- ir Leósson, útgerðarmaður á Akur- eyri, um þær fréttir að á aðra millj- ón tonna sé af kolmunna við ís- landsstrendur sem hægt sé að veiða verulegt magn úr. Sverrir segir að þvi miður eigi ís- lendingar fá skip sem geti stundað kolmunnaveiðar. „Það þarf geysi- lega öflug skip í þetta sem sést best á því að Norðmenn og Færeyingar sem hafa fengist við þesscir veiðar hafa talið nauðsynlegt að þau skip sem þær stunda hafl 6-8 þúsund hestafla vélar. Nótaskipin okkar eru sennilega flest með um 2 þúsund hestafla vélar nema eitt og eitt sem hefur stærri vél. Ástæða þess hversu öflugar vélar þau skip þurfa sem fást við þessar veiðar er fyrst og fremst sú að kolmunninn heldur sig ekki í þéttrnn torfum, eins og loðnan og síldin, og þvi þarf að veiða hann í flottroll og draga lengi í einu,“ segir Sverrir. Hann segir það ljóst að þeir sem muni fjárfesta í skipum til að geta stundað þessar veiðar verði ekki einstaklingar, það verði án efa aðilar sem hafi yfir bræðslum að ráða og geti því nýtt aflann í landi. Um það hvort islenski nótaskipa- flotinn sé orðinn allt of gamall og allt að því úreltur segir Sverrir að það sé auðvitað tvíeggjað að taka þannig til orða. „Það er hins vegar alveg ljóst að afkoman í þessum „geira“ útvegsins hefur ekki verið með þeim hætti að menn hafi getað farið í stórar fjárfestingar. Bestu skipin í flotanum hafa verið með aflaverðmæti upp á 200-250 milljón- Snæfellsnes: Fjör í ferða- þjónustu DV, Vesturlandi: Miklar framkvæmdir hafa stað- ið yfir hjá Ferðaþjónustu Snjófells á Amarstapa en þar er verið að reisa nýtt gistihús með sjö her- bergjum og sameiginlegri setu- stofu fyrir gesti. Húsið er keypt tilbúið og flutt vestur í þremur hlutum og er nú unnið að því að setja það saman, smíða við það sólpall og vinna að ýmsum öðrum lagfæringum. Húsnæðið verður bráðlega tek- ið í notkun til að mæta þeirri miklu eftirspum eftir gistirými sem verið hefur upp á síðkastið. Bundið slitlag á veginum á Amar- stapa gerir alla aðkomu að ferða- þjónustunni og höfninni mun skemmtilegri. En það em fleiri sem eru að bæta við sig í gistirými. Snæfells- ás, samfélagið í Brekkubæ, setti nýlega upp gistihús með fjórum herbergjum og baði sem smíðað er á Selfossi hjá SG-húsum og flutt í heilu lagi vestur. Húsið er byggt samkvæmt vistvænum kröfum og er I samræmi við nýju húsin sem risu þar í fyrra. íbúar á Hellnum hafa samein- ast um að kaupa vegskilti sem stendur við þjóðveg 574. Inn á skiltið eru merktir allir bæir á Hellnum, sumarhús, gönguleiðir og athyglisverðir staðir, auk þess sem þjónustuupplýsingar koma fram. Skiltið veitir góðar upplýs- ingar og er ágætt framtak íbú- anna. -DVÓ Sverrir Leósson útgerðarmaður vill strax undirbúa stórauknar veiðar á kolmunna. ir króna á ári og það sjá allir að það stendur ekki undir fjárfestingum í dýr- um skipum sem kosta sennilega hátt í tvo milljarða króna. Ég sé því ekki annað fyrir mér en útgerðarmenn nótaskipa munu flestir halda áfram þeirri stefnu að reyna að bæta og betrumbæta sín skip án þess að eyða í það háum upphæðum í hverju sinni. Þetta er bara veruleikinn eins og hann er,“ segir Sverrir. -gk Akranes: 20 mil|jónir í malbikið DV, Akranesi: Miklar framkvæmdir eru og verða í sumar við fegrun og snyrt- ingu á Akranesi og þarf ekki að efa að opnun Hvalfjarðarganga eiga þar hlut að máli. Ekki færri en 9 bíla- plön við fiölbýlishús verða malbik- uð og við sum þeirra verða steyptar nýjar gangstéttir. Töluglöggir menn á Skaganum segja að öll herlegheitin kosti yfir 20 milljónir króna. Verktakafyrirtækið Skóflan hf. á Akranesi sér um að leggja lagnir og undirbúa flest plön- in undir malbik. Hlaðbær leggur þau. Auk þess vinna ýmis verktaka- fyrirtæki við gerð gangstéttanna. Þá er þessa dagana verið að und- irbúa götur við Kalmansvelli og Smiðjuvelli en þar verður steypt í sumar. Rætist þá langþráður inu sem hafa lengi barist fyrir draumur fyrirtækjaeigenda á svæö- þessu. -DVÓ Starfsmenn Hlaðbæjar-Colas að leggja malbik á plan á Akranesi. DV-mynd Daníel Sent lieim J8" míþrem áleggsteg. 12" hvítlauksbrauð, 21 Coke og hvítlauksolía aðeins 1890 kr 16" mlþrem áleggsteg, aðeins 1280 kr. TZeqkja&iJí ?éS 4S4S yó5 istf J6"mltveim áleggsteg. aðeins 940 kr 4Sl Ajjsjrkf* kr,. ««*.4 18" mltveim áleggsteg. aðeins 1080 kr. EJ Siá.it.nr. ernt W'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.